Morgunblaðið - 14.01.1996, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.01.1996, Qupperneq 4
I 4 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 7/1 -13/1 ►ÍSAL hefur tekið tilboði verktakafyrirtækisins Álftáróss í steypuvirki fyrir nýjan kerskála við Álverið í Straumsvík. Fyrirtækið bauð um 740 milljónir í verkið, sem skapar um 80 manns vinnu í tæpt ár. ►UNG kona hefur kært leigubilstjóra, sem ók henni, fyrir að hafa nauðgað sér. Rannsókn málsins stendur yfir og hefur enginn verið handtekinn vegna málsins. Að sögn RLR er óijóst hvar nauðgunin átti sér stað og af hvaða stöð leigubiUinn er. ►HAGSTOFUSTJÓRI seg- ir dæmi um að foreldrar hafi aðstoðað börn sin við að fá fölsuð persónuskilriki. ►ÍSLAND er eina landið í Evrópu þar sem árlegum fjölda alnæmistilfella miðað við 100.000 íbúa hefur ekki farið fjölgandi árlega, að því er fram kemur í Lækna- blaðinu. í árslok 1994 höfðu 79 karlar og 14 konur greinst með alnæmisveir- una hérlendis. Meðallíftími eftir að alnæmi greindist hjá smituðum var 22 mánuð- ir. ► GUARNIERI-fiðla, sem talin er á annað hundrað milljóna króna virði, er í eigu Ríkisútvarpsins. Meðal hugmynda til að létta á vanda stofnunarinnar er að selja hana og önnur hljóð- færi í eigu stofnunarinnar. Trúnaður við heim- ildarmenn virtur HÆSTIRÉTTUR hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Agnesi Bragadóttur blaðamanni sé skylt að svara spumingum RLR um heimildarmenn að greinum sem voru söguleg úttekt á uppgjöri við- skipta Landsbanka íslands og Sam- bands íslenskra samvinnufélaga. DNA-rannsókn úti- lokar dæmdan mann NIÐURSTÖÐUR DNA-rannsóknar sem framkvæmd var í Noregi gefa, samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins, til kynna að útilokað sé að sæði sem rannsakað var í tengslum við nauðgunarmál hérlendis sé úr breskum sjómanni sem dæmdur var í héraðsdómi í 12 mánaða fangelsi fyrir verknaðinn í desember. Niðurstöðumar stangast á við ís- lenska rannsókn, hina fyrstu sem gerð var hérlendis í tengslum við sakamál. Verjandi mannsins, sem er í far- banni hér á landi, segir að næstu daga verði ákveðið hvort krafist verði ómerkingar dómsins eða honum áfrýjað. Einkaréttur endan- lega afnuminn? BANDARÍKIN hafa í viðræðum við íslensk stjómvöld um endurskoðun tveggja ára gamals samkomulags um vamarstöðina á Keflavíkurflugvelli farið fram á að fyrirkomulagi verk- töku á flugvellinum verði breytt, framkvæmdir á vegum varnarliðsins boðnar út og einkaréttur íslenskra aðalverktaka á framkvæmdum þann- ig endanlega afnuminn. Gíslataka í Suður- Rússlandi TSJETSJENSKIR uppreisnarmenn náðu á sitt vald allt að 2.000 manns á sjúkrahúsi í bænum Kizlyar í sjálf- stjómarlýðveldinu Dagestan í Suður- Rússlandi fyrr í vikunni. Hótuðu þeir að drepa allt fólkið ef Rússar færu ekki með her sinn frá Tsjetsjníju en slepptu síðan flestum og héldu af stað í átt til Tsjetsjníju á nokkmm bílaflota. Voru þeir með rúmlega 100 gísla og voru í gær staddir í bænum Pev- romajskaja. Þar höfðu rússneskir her- menn umkringt þá og var óttast, að til blóðugs uppgjörs kæmi milli þeirra og uppreisnarmanna. Stóðu yfir við- ræður við þá en ekkert benti til, að samningar væra á næsta leiti. Skæra- liðar höfðu fallið frá pólitískum kröfum en kröfðust þess, að stjómmálamenn, erlendir blaðamenn og fulltrúar hjálp- arstofnana kæmu í stað gíslanna og tryggðu þeim undankomu til Tsjetsjníju. Fréttir vora um, að tsjetsj- enskir skæruliðar væra famir að fjöl- menna við landamæri Tsjetsjníju og Dagestans og ollu þær mikilli skelfíngu meðal fólks á þessum slóðum. Hafði eitt þorp verið yfirgefið af þessum sök- um. Mitterrand borinn til grafar FRANCOIS Mitterrand, fyrrverandi forseti Frakklands, lést á mánudag og var borinn til graf- ar á fimmtudag í fæðingarbæ sínum, Jamac. Vora að- eins fjölskyida hans og nánustu ástvinir viðstödd útförina en við minningarat- höfn í Vorrar frúar kirkju í París voru 65 þjóðhöfðíngjar og forsætisráðherr- ar. Þjóðarsorg var í Frakklandi og hefur Mitterrands víða verið minnst sem eins merkasta stjómmálamanns í Evrópu á þessari öld. Francois Mitterrand ►FLUTNINGAVÉL hrap- aði til jarðar á markaðstorgi i Kinshasa í Zaire á mánu- dag og fórust að minnsta kosti 350 manns, aðallega konur og börn. Talið er, að vélin, sem var rússnesk af gerðinni Antonov, hafí verið ofhlaðin. Flestir flugliðarn- ir komust af og varð lög- regla að gæta þeirra fyrir reiðu fólki. ►BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, skipaði á þriðju- dag Jevgeny Prímakov ut- anríkisráðherra landsins í stað Andreis Kozyrevs. Prímakov er sérfræðingur í málefnum Mið-Austurland og var yfirmaður leyniþjón- ustunnar erlendis í tíð Mík- hails Gorbatsjovs eftir að KGB var leyst upp. Oddvit- ar kommúnista og þjóernis- sinna hafa fagnað skipan hans. ►NÝJAR upplýsingar benda tfl, að Hillary Clinton, eiginkona Bills Clintons Bandaríkjaforseta, hafi komið meira við sögu í svo- kölluðu Whitewater- og Travelgate-máli en hún hef- ur viljað viðurkenna. Koma þau tíðindi sér afar illa fyr- ir forsetafrúna og Clinton á kosningaári auk þess sem Clinton stendur í ströngu vegna málshöfðunar konu nokkurrar, sem sakar hann um kynferðislega áreitni. ►LEIÐTOGAR Bosníu- Serba ákváðu í fyrradag að fresta því að hvetja serbn- eska íbúa Sarajevo til að flýja þaðan. Féllust þeir á það fyrir orð Carls Bildts og eftir fund hans með Momcilo Krajisniks, forseta þings Bosníu-Serba. FRETTIR Athugasemdir Ríkisendurskoðunar koma Landsvirkjun á óvart Skilmálar víkjandi lána skýra engar afborganir SKILMÁLAR víkjandi lána til Landsvirkjunar vegna Sigöldu og Búrfellsvirkjunar eru að sögn for- stjóra með þeim hætti að ekki ber að greiða af þeim afborganir og vexti fyrr en afkoma fyrirtækisins leyfír, miðað við ákveðnar lág- markskröfur um afkomu og að teknu tilliti til greiðslna af öðrum lánum fyritækisins. Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, segir það koma sér á óvart að Ríkisendurskoðun birti upplýsingar athugasemdalaust sem gefi í skyn að þessi lán séu í van- skilum, þar sem fyrrgeind ákvæði séu skjalfest í samningum. „Ekki þarf að greiða vexti og afborganir fyrr en greiðsluafgang- ur, þegar búið er að borga vexti og afborganir af öðrum lánum og annan rekstrarkostnað, skilar ein- hverju upp í greiðsluskyldu. Þessum skilyrðum hefur enn ekki verið full- nægt og því hefur ekki enn komið til greiðsluskyldu, heldur hafa þessi lán verið hækkuð árlega um áfallna vexti í samræmi við lánssamninga ríkissjóðs og Landsvirkjunar. Við förum því ekki að borga af þessum lánum fyrr en við högnumst svo um munar,“ segir Halldór. Um er að ræða lán frá 1972 og 1974 sem nú eru samtals rúmlega 2,7 milljarðar króna. Fyrirkomulag hagstætt Landsvirlqun Halldór segir jafnframt að vantald- ir vextir að upphæð um 360 milljón- ir króna vegna þessara lána séu einungis vantaldir hjá ríkissjóði en ekki hjá Landsvirkjun. „Óneitanlega hefur þetta fyrir- komulag þróast okkur í vil en Lána- sýsla ríkisins hefur ámálgað það við okkur upp á síðkastið hvemig fara skuli með málið, en við eigum eftir að sjá fyrir endann á þeim viðræðum,“ segir hann. Hann kveðst telja líklegt að verði þessu fyrirkomulagi breytt, yrði það gert á þann hátt að þessum víkjandi lán- um yrði breytt í langtímalán sem yrðu afborgunarlaus í nokkur ár en síðan greidd á t.d. 15 árum með fastbundnum afborgunum og vöxt- um. Halldór segir að lán upp á 138 milljónir króna með áföllnum vöxt- um vegna Laxárvirkjunar sé Lands- virkjun óviðkomandi, þar sem það hafí ekki verið hluti af yfírtöku fyr- irtækisins á virkjuninni árið 1983. „Hefði þetta lán verði hluti af þeim skuldum sem fylgdu Laxándrkjun er hún sameinaðist Landsvirkjun, hefði það raskað eignarhlutföllum eignaraðila Landsvirkjunar frá því sem tók gildi 1. júlí 1983 að öðru óbreyttu," segir hann. Framkvæmdalán verða óþörf í ár ÁÆTLAÐUR rekstrarhalli Lands- virkjunar nemur 174 milljónum króna í ár samkvæmt endurskoð- aðri áætlun, en í desember sl. var áætlað að rekstrarhallinn næmi 242 milljónum króna. Halldór Jónatans- son, forstjóri Landsvirkjunar, segir breytingar á gengi dollarans skýra þessa breyttu niðurstöðu. Lækkuðu skuldir um tvo milljarða Áætlunin gerir ráð fyrir að greiðsluafgangur fyrirtækisins nemi 1.963 milljónum króna, en að fjárfestingar nemi 1.712 milljónum. Um 250 milljónir renna til greiðslu afborgana af lánum öðrum en víkj- andi lánum frá ríki vegna Sigöldu og Búrfellsvirkjunar. „Ef fer sem horfír getum við fjár- magnað allar okkar framkvæmdir og rannsóknir á þessu ári án þess að taka lán,“ segir Halldór. „Framkvæmdir vora miklu minni á síðasta ári og þá notuðum við greiðsluafgang þess árs til að lækka skuldir um tvo milljarða króna. En í ár munum við greiða skuldir minna niður vegna aukinna framkvæmda. Við munum því einungis þurfa lán til að endurfjármagna eldri lán, í því skyni að jafna greiðslubyrðina, sem er alvanalegt í öllum rekstri." Slökkvibíll Brunavarna Amessýslu bræddi úr sér , , Morgunblaðið/Sig. Jðns. KRISTJÁN Einarsson, slökkviliðssljóri hjá Brunavörnum Árnessýslu, við slökkvibílinn sem er úr leik. Selfossi. Morgunblaðið. HJÁ slökkviliði Brunavarna Ár- nessýslu er unnið að því að fá lánaðan slökkvibíl frá Keflavík- urflugvelli á meðan unnið er að viðgerð á slökkvibílnum sem bræddi úr sér á dögunum. Lánsbíll gefur slökkviliðinu einnig tóm til að íhuga vel útveg- un nýs eða nýrri bíls. Bíllinn sem bræddi úr sér er 1974 árgerð af Benz og var áður mjólkurbíll til margra ára. Hann er með uppgerða vél sem er um 170 hestöfl en mikið er hlaðið á bíl- inn og hann þolir ekki álagið. Tækjabúnaður slökkviliðsins er ny'ög í eldri kantinum að sögn slökkviliðsmanna. Reynt að fá slökkvibíl frá Kefla- víkurvelli Mikil þörf er á alhliða slökkvi- bíl til Brunavarna Árnesinga með um 5 þúsund lítra af vatni og sterka háþrýstidælu og því sem fylgir til að geta starfað sem sjálfstæð björgunareining í fyrsta útkalli. Slíkur bíll kostar um 20 milljónir nýr. Missir gamla bílsins veikir stöðu slökkviliðsins og gerir liðinu erfiðara fyrir. Til að mæta þessu hefur verið stokkað upp í tækja- búnaði liðsins og samstarf er við slökkviliðin í Hveragerði og i Reykjavík. En þrátt fyrir það kemur ekkert í staðinn fyrir slökkvibíl á staðnum þegar út- kall er. Brunavarnir Árnessýslu eru eign 11 sveitarfélaga og á svæði þeirra búa 6.300 manns. Slökkviliðsmenn leggja áherslu á að á svæðinu er einnig stærsta sumarbústaðabyggð landsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.