Morgunblaðið - 14.01.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 19
landgræðslusvæði sýnd. Það er
alveg ljóst að þörfin fyrir heildar-
úttekt af þessu tagi er fyrir löngu
tímabær, því þeim sem sækja á
þetta landsvæði hefur fjölgað mik-
ið og fjölgar enn.“
En hvað með úrskurði dómstóla
í seinni tíð, t.d. þar sem Lands-
virkjun hafði betur gegn sveitarfé-
lagi vegna veiðiréttinda í uppi-
stöðulónum Blönduvirkjunar, hafa
slíkir úrskurðir einhvetja þýðingu
þegar hálendið er skipulagt með
þessum hætti og breytast á ein-
hvem hátt hugtökin afréttur og
almenningur?
„í sjálfu sér hafa þessir úr-
skurðir ekki áhrif á landnotkunar-
stefnu eða eignarhaldið yfír höf-
uð. Þeir hafa frekar áhrif í þá
veru hvort Landsvirkjun, í þessu
tilviki, á að borga einhverjum eitt-
hvað eða ekki. Hugtökin halda sér
en í drögunum sem nú hafa verið
lögð fram er lögð til aukin vernd
og friðun, t.d. minni beit. Hitt er
svo annað mál, að það er ekki
okkar að koma á boðum og bönn-
um. Þetta eru bara skipulags-
drög,“ segir Stefán.
Margir koma að málinu
Það er óhætt að segja að skipu-
lagning hálendisins er stórmál og
koma að því fjölmargir aðilar.
Haldnir hafa verið íjölmargir
fundir og á þá hafa mætt fulltrú-
ar landeigenda, sveitarstjórna,
upprekstrarfélaga, vegagerðar-
innar, náttúruverndarnefnda,
skipulagsnefnda, ferðamálafull-
trúar o.m.fl.
Þá háfa ráðgjafar haldið sér-
staka fundi m'eð samvinnunefnd
um svæðisskipulag í Borgarfirði
norðan Skarðsheiðar og með ráðg-
jöfum samvinnunefndar um svæð-
isskipuíag Skagafjarðar. Aðrir
sem hafa komið að fundum og
viðræðum eru Þjóðminjasafn ís-
lands, Landmælingar íslands,
veiðistjóri og veiðimálastjóri og
fleiri stofnanir.
Félagasamtök og hópar hafa
einnig komið við sögu, kynningar
og fundir hafa verið háldin með
Landvarðafélagi íslands, Ferða-
klúbbinum 4x4, Ferðafélagi ís-
lands, Félagi íslenskra ferðaskrif-
stofa, skotveiðimönnum og upp-
rekstrarfélögum, auk þess sem
Landssamband stangaveiðiféiaga
hefur ritað bréf og minnt á tilvist
sína. En telur Stefán að verkefnið
sé í góðum farvegi?
„Já, það tel ég. Geysileg vinna
hefur farið fram og mikið er enn
ógert og segja má að núna komi
hinn raunverulegi ágreiningur
fyrst í ljós, þegar þarf að fara að
taka ákvarðanir og marka stefn-
ur. Þá er hætt við að einhveijir
verði óánægðir og er það miður.
Hins vegar er þetta verkefni af
þvílíkri stærðargráðu að það er
nánast óhugsandi að allir geti
staðið uppi fullkomlega sáttir."
Stefán heldur áfram: „Og
vegna þessara orða er rétt að ég
árétti það sem ég sagði áðan, þrátt
fyrir að talað hafi verið við fjöl-
marga aðila, heyrist það samt
utan úr þjóðfélaginu að í ýmsum
hornum séu menn farnir að
skjáifa, algerlega sannfærðir um
að nú eigi að valta yfir þá og
þeirra hagsmuni. Þetta er eins
rangt og hugsast getur. Allir
mega segja sitt, öllu verður sinnt
og menn hafa enn nægan tíma til
þess að láta í sér heyra. í grund-
vallaratriðum er þetta land þar
sem enginn býr og það eiga allir
að geta nýtt svæðið á einn veg
eða annan, kjósi þeir það á annað
borð.“
En hvað tekur svo við eftir að
ráðherra hefur fengið skipulagið
í hendurnar, allt klappað og klárt
úr höndum þeirra sem nú vinna
að málinu?
„Þá hefst framkvæmdaþáttur-
inn. Þá reynir á hversu vel menn
hafa unnið sína heimavinnu og
að hve miklu leyti skipulagið
stenst þær kröfur sem menn munu
gera til þess. Það verður einfald-
lega að bíða átekta og vona það
besta,“ eru lokaorð Stefáns Thors
hjá Skipulagi ríkisins.
heldur utan um, en það var lands-
lagsarkítektastofan Landmótun
sem hreppti verkið fyrir 26 millj-
ónir króna. Áætlað er að verkið
muni kosta í heild 30 milljónir sem
greiðast að þremur fjórðu hlutum
af ríkinu, en einum fjórða hluta
af héraðsnefndunum. Fyrsti fund-
ur samvinnunefndarinnar var
haldinn í ársbyijun 1994 og er
áætlað að starfslok hennar verði
í árslok á næsta ári.
Alvaran...
Stefán Thors segir að nú megi
heita að umræðan fari af stað
fyrir alvöru og því fari fjarri sem
heyrst hafi úr ýmsum hornum að
verið sé að vaða áfram og valta
yfir ýmsa hópa sem vildu láta
málið sig varða. Má þar nefna
ferðafélög á borð við Ferðaklúbb-
inn 4x4, skot- og stangaveiði-
menn o.fl., en geysilegur fjöldi
fulltrúa þeirra eru þéttbýlisbúar
sem nýta hálendið á sinn hátt og
álíta að þeir hafi jafnan rétt og
bændur til að nytja almenninga
og afrétti.
„Það hefur verið auglýst eftir
tillögum og reiknað með því að
notendur nýti sér það til að benda
á hagsmunamál sín. Góð svörun
hefur verið og við höfum rætt við,
fundað og skrifast á við fjölda
stofnana, félaga og einstaklinga.
Þó að mikil vinna sé eftir er þó
alveg ljðst að svo viðamikið og
flókið er viðfangsefnið að menn
verða seint sammála um alla hluti.
Nýtingarsjónarmiðin, s.s. í
orkugeiranum, eru til dæmis við-
kvæm. Á bráðabirgðakortinu má
nefna að merkt eru inn uppistöðul-
ón í Arnardal og Eyjabökkum á
Norðausturhálendinu. í skipulagi
Landsvirkjunar er gert ráð fyrir
virkjunum sem hefðu í för með
sér uppistöðulón á þessum svæð-
um, en þau eru geysilega viðkvæm
með merkilegu lífríki og því ekki
ljóst hvað verður. Það má segja
að þau svæði séu í uppnámi.
Hér er um að ræða að sýna á
Morgunblaðið/RAX
uppdrætti og í greinargerð
heildarstefnu til 20 ára, til ársins
2015 (vinna hófst 1995), um alla
landnotkun á miðhálendinu. Þegar
fyrir liggur samþykkt svæðis-
skipulag af miðhálendinu, er gert
ráð fyrir að framkvæmd þess verði
í höndum viðkomandi sveitarfé-
laga, þannig að hálendisskipulagið
sé rökrétt framhald af svæðis- og
aðalskipulagi í byggð. Gert er ráð
fyrir að skipulagið verði endur-
skoðað þegar og ef forsendur þess
breytast," segir Stefán.
En hver eru meginmarkmiðin?
Er til dæmis eitthvað tekið á því
sem kallað hefur verið eignarhald
á hálendinu?
„Eignarhaldið er ekki til neinn-
ar umfjöllunar. Landnotkunin er
það sem málið snýst um og er
verið að leita eftir ákveðinni mál-
amiðlun milli ýtrustu krafna not-
enda og ýtrustu krafna verndun-
arsjónarmiða," svarar Stefán og
heldur svo áfram:
„Þau meginmarkmið sem höfð
eru að leiðarljósi í þessari skipu-
lagsgerð eru í fyrsta lagi, að
heildarstefna verði mörkuð í leyfi-
sveitingum fyrir mannvirkjagerð
á hálendinu og áhrif hennar á
umhverfið jafnan metin.
í öðru lagi að landslag og ásýnd
svæðisins verði varðveitt sem
best, þar með talið gróður og líf-
ríki, náttúru- og menningarminj-
ar.
í þriðja lagi að vegakerfið verði
skilgreint og lagfært og reynt að
koma í veg fyrir akstur utan vega.
í fjórða lagi að sýnd verði virkj-
unarsvæði og land það sem ætlað
er undir uppistöðulón og línulagn-
ir í framtíðinni.
í fimmta lagi að ferðamál á
hálendinu verði skilgreind, há-
lendismiðstöðvum og þyrpingum
fjallaskála valin svæði og aðstaða
ferðamanna bætt.
í sjötta lagi að skipulagi verði
komið á sorp- og frárennslismál
og loks í sjöunda lagi að náttúru-
verndarsvæði verði skilgreind og
staðgreitt
staðgreitt
ÞYSK
HAPÆtíA
INVÖRP
LOEWE Profile 870 Nicam 28"
Fullkomin fjarstýring meS öllum
aSgerSum á skjá. Myndlampi
(Super Black Line). Flatur skjár
- Beint inntengi (SCHART) sem gerir
mynd frá myndbandstæki eSa afruglara
mun skárpari. - Hljóðmagnari Nicam
víðóma (STEREO) 2 x 25 W.v Textavarp
Tveir innbyggðir hátalanar eru í tækinu.
Afborgunarverb kr.J21.666,-
---------------------
ORION VH-1105
Tveggja hausa myndbandstæki
Fjarstýring með aðgerðaupplýsingum
Scart inntenging • „ShowView"
búnaður sem breytir upptökutíma
ef breyting verður á dagskrá
Sjálfvirk hreinsun á myndhaus.
Afborgunarverb
kr. 41.000.
69.900
staögreitt
Fullkomin fjarstýring meðB
öllum aðgerðum á skjá.
íslenskt textavarp • Myndllampi
(BLACK MATRIX) fiatur skjár.
Hljóðmagnari Nicam víðóma i
(STERÍÓ) 2x15W eða 30W.
Tveir hátalarar eru i tækinu.
Hægt er að tengja auka
hátalarasett við tækið.
Beint inntengi (SCART) sem
gerir mynd frá myndbandstæki
og/eða afruglara mun skarpari.
Afborgunarverb kr. 77.666,-
EUR0 ogVISA
raðgreiðslur
BRÆÐURNIR
Dl ORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 553 8820
Umboösmenn um alll land
Reykjavík: Heimskringlan, Kringlunni.Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi,
Kt. Borgtirðinga, Borgarnesi.Blómstun/ellir, Hellissandi. Vestflrðlr: Geirseyrarbúðin,
Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvtk.Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga.
Kf. Húnvetninga, Blðnduósi. Skagfirðingabúð.Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA.Dalvík.
Kf. Þingeyinga, Húsavik. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstððum. Stál, Seyðisfirði.
Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. Suðurland: Mosfell, Hellu.
Ánrirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshðfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell,
Keflavfk. Rafborg, Grindavfk.