Morgunblaðið - 14.01.1996, Side 20
20 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRYNJAR Karlsson eðlisfræðingur.
HVAÐ DREYMIR
FÓSTUR?
Við háskólasjúkrahúsið í Tours í Frakklandi er Brynj-
ar Karlsson eðlisfræðingur að leggja lokahönd á dokt-
orsverkefni sitt sem felst í því að nota sérþekkingu
sína í hátíðnihljóðum og vinnslu upplýsinganna sem
þau veita, til að smíða mælitæki sem gerir læknum
mögulegt að fá meiri upplýsingar um ástand bama
------------—----------
í móðurkviði. I samtali við Karl Pétur Jónsson lýsir
Biynjar þessum rannsóknum sínum og gildi þeirra.
FRANSKA borgin To-
urs er byggð á bakka
árinnar Loire (Leiru)
og meðfram henni
hefur um aldir legið
fjölfarinn vegur frá
austri til vesturs. Er Loire var
brúuð mynduðust krossgötur sem
eru ástæðan fyrir vexti og við-
gangi borgarinnar. Á miðöldum
var borgin mikil kirkjumiðstöð og
fjölsótt af pílagrímum. Þá voru
reistar margar veglegar kirkjur
og dregur borgin nafn sitt af fimm
þeirra.
Á 17. öld var sameiginleg mynt-
eining allrar Evrópu ekki farin að
koma til tals og voru þá tvær
myntir teknar gildar um gjörvallt
Frakkland. Önnur var slegin í
myntsláttu konungs í París, hin
var slegin í lítilli mynsláttu rue
de Monnay (Peningagötu) í Tours.
í húsi þessarar myntsláttu býr nú
eðlisfræðingurinn Brynjar Karls-
son sem er að smíða tæki sem
kemur meðal annars til með að
hjálpa læknum og sálfræðingum
að svara spumingunni hér að ofan,
hvað dreymir fóstur?
íbúðin í gömlu myntsláttunni
sem Brynjar Karlsson býr í minnir
helst á kirkju. Veggirnir eru úr
gulbrúnum sandsteini og loftið
helst á sínum stað fyrir tilstuðlan
trésperra sem eru hver um sig
ríflega hálfur metri í þvermál. Það
er skemmtileg þversögn að á
öldnu skrifborði í öldnu húsi ligg-
ur nýjasta tegund af fistölvu sem
að sögn Brynjars inniheldur allar
rannsóknir hans. Brynjar er að
leggja lokahönd á doktorsverkefni
sitt, sem unnið er í samstarfi við
háskólasjúkrahúsið í Tours, undir
stjórn heimsfrægs eðlisfræðings
og læknis, professor Pourcelot.
En í hverju er verkefni hans fólg-
ið?
„Grunnhugmyndin á bak við
verkefnið er að læknar hafa tekið
eftir því að fóstur sem þjást af
hættulegum sjúkdómum, sem oft
lýsa sér með súrefnisskorti og/eða
vaxtartöfum, hreyfa sig minna og
öðruvísi en heilbrigð fóstur. Það
gera fullorðnir einnig. Ekki þarf
að fjölyrða um hve alvarlegar af-
leiðingar súrefnisskortur getur
haft á fóstur. Fóstur eru mjög
sérstakir sjúklingar. Það er eins
og fæðingalæknar séu að með-
höndla mállausan sjúkling í gegn-
um síma. Þeir geta ekki spurt,
ekki þuklað, ekki horft á hreyf-
ingar og litaraft, ekki tekið blóð-
þrýsting og svo framvegis. Hjart-
sláttur og ógreinilegar svarthvít-
ar myndir eru einu gögnin sem
þeir hafa í höndunum. Þá vantar
upplýsingar til að vita hvaða með-
höndlun fóstrið á að fá. Ég sem
eðlisfræðingur sérhæfður í há-
tíðnihljóðum og vinnslu upplýs-
inganna sem þau veita, get komið
þeim til hjálpar með því að smíða
mælitæki sem gerir þeim mögu-
legt að fá meiri upplýsingar um
þennan ósnertanlega, mállausa
sjúkling en áður hefur verið
mögulegt.
Það geri ég með því að beina
hátíðnihljóðum á fóstrið. Smá-
vægileg breyting á tíðni endurk-
asts hljóðmerkisins verður þegar
fóstrið hreyfir sig. Tíðnibreyting-
unni er hægt að breyta í heyran-
legt hljóð sem hefur að geyma
ýmsar upplýsingar varðandi hreyf-
inguna, eins og hraða hennar og
lengd. Merkin sem þannig fást eru
jafnóðum sett á stafrænt form.
Tölvan tekur svo við og vinnur úr
merkjunum. Þetta er eitt það
flóknasta við verkefnið, að vinna
úr merkinu og setja fram þær
upplýsingar sem máli skipta.“
/ hveiju er tækið frábrugðið
tækjum sem fyrir eru á markaðn-
um?
„Það er ekki til neitt tæki á
markaðnum sem gerir þetta sama.
Tækið er framhaldið á þróun tækja
til að fylgjast með fóstrum. Þau
tæki sem til eru á markaðnum
fylgjast eingöngu með hjartslætti
og hríðum. Það hefur skilað góðum
árangri í fæðingum að fylgjast
einungis með þessum mælistærð-
um. Ymislegt getur komið upp á
í fæðingu og þá er mest hætta á
að snögglega fari ástandi fósturs-
ins að hraka, til dæmis ef nafla-
strengurinn klemmist. Hinsvegar
sýna þessar mælistærðir tiltölu-
lega seint hvenær súrefnisskortur
eða önnur viðvarandi vandkvæði
fara að setja fóstrið í hættu, eigin-
lega ekki fyrr en í óefni er komið.
Þessa mæliaðferð er því varla
hægt að nota til að fylgjast með
fóstrum sem grunur leikur á að
eigi við vandkvæði að stríða, súr-
efnis- eða næringarskort. Þessi
aðferð er hinsvegar mikið notuð
vegna þess hversu handhæg hún
er og auðveld í framkvæmd með
þeim tækjum sem til eru. Aðrar
aðferðir sem ganga út á að skoða
hreyfingar fóstra með ómsjá (són-
ar) í allt að klukkutíma hafa gefið
miklu betri niðurstöður en eru lítið
sem ekkert notaðar vegna hversu
flóknar, tímafrekar og dýrar þær
eru. Mitt tæki á að sameina kost-
ina við báðar þessar aðferðir.
Tækið er mjög einfalt í notkun og
gefur mun betri niðurstöður en
fyrri aðferðin."
Hverju mun það breyta fyrir
öryggi mæðra og barna?
„Greining á meini sem hijáir
ófætt bam eða móður þess getur
átt sér stað fyrr og fóstri sem þjá-
ist í móðurkviði er hugsanlega
hægt að bjarga ef gerður er keisa-
raskurður eða fæðingu komið af
stað þegar krankleikinn hefur verð
greindur. Hins vegar er verið að
búa til fyrirbura með því að grípa
inn í meðgönguna. Vandamálið
sem fæðingarlæknir stendur
frammi fyrir er einfaldlega, hve-
nær er best að ég grípi inn í?
Hvenær er barnið betur sett sem
fyrirburi og hvenær er betra að
það fái að vera áfram í sínu nátt-
úrulega en hættulega umhverfi
þar sem sjaldnast er hægt að koma
því til hjálpar?
Ég hef kynnst nokkrum fæð-
ingalæknum. Þeir eru oftast bros-
andi þar sem starf þeirra gengur
oftast snurðulítið fyrir sig. Það er
harla fátítt að þeir missi sjúkling.
Brosin hverfa þó af andlitum
þeirra þegar þeir vita af því að
sjúklingur þeirra, fóstrið, er í
hættu en þeir eiga í erfiðleikum
með að vita hversu alvarlegt
ástand þess er. Tækið mitt á að
gera þeim það kleift, með tiltölu-
lega einföldum og ódýrum hætti,
að meta hvort fóstrið er veikt og
þá hversu veikt og hvort borgi sig
að bíða eða að koma fæðingu af
stað.“
Hvaða markaðsmöguleika á
tækið þitt?
„Það er varla á færi neima
stærstu stórfyrirtækja að gera
þær rannsóknir sem þarf til að
koma tækinu á markað. Eina leið-
in sem ég sá til að gera þetta, án
þess hreinlega að gefa stórfyrir-
tæki hugmyndina, var að sækja
um styrk til ESB. Ég kom á sam-
vinnu milli fimm spítala og þriggja
rannsóknarstofnana í fimm lönd-
um til að sækja um þennan þróun-
arstyrk. Þarna er um að ræða
aðila frá Svíþjóð, Hollandi,
Kanada, Frakklandi og vitanlega
íslandi.
Þórður Helgason, deildarstjóri á
eðlisfræði- og tæknideild
Landspítalans, og Reynir Tómas
Geirsson, prófessor á kvennadeild
sama spítala, eru mínir samstarfs-
aðilar heima. Hugmyndin að
styrkumsókninni fæddist eiginlega
á Landspítalanum í samtölum mín-
um við þá. Umsókn okkar til Evr-
ópubandalagsins hljóðaði upp á
um það bil 80 milljónir, en fór
ekki í gegn í fyrstu umferð vegna
smávægilegra formgalla, en við
sækjum auðvitað um aftur á næsta
ári. Það er nú víst svona sem þetta
gengur fyrir sig, maður sækir um
aftur og aftur þar til maður fær
styrkinn, eða gefst upp sem ég
ætla ekki að gera!“
En hvað er hægt að fá miklar
upplýsingar með tækinu, er til
dæmis hægt að sjá hvort fóstrið
er vakandi eða sofandi?
„Sveiflur sem minna á svefn og
vöku byija_ snemma að þróast hjá
fóstrum. Á sjöunda mánuði má
segja að hegðunarmynstrið sé far-
ið að líkjast því sem gerist hjá
smábörnum nema hvað heill hring-
ur svefns og vöku tekur heldur
skemmri tíma eða um eina klukku-
stund. Fóstur eru oft miklu fjör-
ugri á kvöldin, um það eru flestar
verðandi mæður sammála. Á
mælingum mínum má auðveldlega
sjá þegar fóstrið vaknar og sofn-
ar. Auk þess má sjá lítil tímabil í
svefninum þar sem meira er um
hreyfingar og hjartsláttur eykst.
Það er ljóst að þessi tímabil sam-
svara draumsvefni þar sem hraðar
augnhreyfingar eða REM (Rapid
Eye Movements) eiga sér stað.
Ég get fullyrt að fóstur hafa öll
ytri einkenni þess að þau dreymi
og sennilega gera þau það. En
hvað dreymir þau? Það er stóra
spurningin. Ég velti þessu oft fyr-
ir mér en ég verð að eftirláta öðr-
um að rannsaka málið. Líklegt er
að tækið mitt geti hjálpað þeim
að komast að því.“
Hvers vegna hreyfa fóstur sig?
„Það mætti snúa þessari spurn-
ingu við. Hvað gerist ef fóstur
hreyfir sig ekki? Svarið er; það
sama og gerist ef að fullorðinn eða
barn hreyfir sig ekki. Þau bíða
skaða af í liðamótum, vöðvum og
blóðrás. Þau eru líka að æfa sig
fyrir lífið, maður sér oft fóstur
anda legvatni, hiksta og sjúga á
sér þumalinn. Sumir þeirra sem