Morgunblaðið - 14.01.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 21
skoða oft fóstur með ómsjá halda
því fram að þau viti miklu betur
hvað þau eru að gera í móðurkviði
en eftir að þau eru fædd.“
En af hveiju er eðlisfræðingur
að rannsaka fóstur?
„Ég er ekki að rannsaka fóstur.
Ég er að nýta vísindalega og
tæknilega þekkingu til að aðrir
geti rannasakað fóstur. Til að
sinna því þarf ég að geta sett mig
í spor þeirra sem slíkt gera. Þetta
eru svokallaðar þverfaglegar
rannsóknir. Við erum búnir að
tala mikið saman um fóstur en
rannsóknir á fóstrum eru markm-
iðið og ástæðan fyrir verkefninu.
Hinsvegar er margt annað sem
kemur inn í það. Fyrir utan eðlis-
fræði hátíðnihljóða þarf ég að
sækja þekkingu úr rafmagnsverk-
fræði, merkjafræði, tölvufræði,
tölfræði, sálfræði og víðar. Það
má líkja verkefninu við ferðalag
um hin ýmsu héruð vísinda- og
tæknilandsins með viðkomu í fæð-
ingalækningahéraði læknisfræði-
landsins. Sumir segja að flestir
vísindamenn kafi djúpt í mjög ein-
angruð atriði í fræðum sínum.
Vita alltaf meira og meira um
minna og minna þar til þeir vita
næstum allt um hartnær ekki
neitt. Þessu er öfugt farið um
mig, ég reyni að vita sem mest
um sem flest. Vonandi að ég endi
ekki með að vita næstum ekkert
um næstum allt.“
Ermikið um hindurvitni ogkerl-
ingabækur í þessum fræðum?
„Já, en það er erfitt að segja
til hvað eru hindurvitni og hvað
eru vísindi. Kunningi minn hefur
sýnt fram á að bragð og lyktar-
skyn þróast í móðurkviði og fylgir
því sem mæðurnar borða. Ef mað-
ur heyrði þetta í saumaklúbbi
myndi maður ef til vill freistast
til að kalla þetta kerlingabækur.
Þessi kunningi minn bar karrý að
vitum 30 nýfæddra bama ind-
verskra mæðra og svo 30 bama
af evrópskum uppruna. Ekkert
indversku barnanna brást illa við
en flest evrópsku bamanna. Hann
hefur svo sýnt fram á að hægt
er að stjórna fæðuvali lamba með
því að sprauta bragðefnum í leg-
vatn ánna. í þessum fræðum em
skilin á milli harðra vísindalegra
staðreynda og svokallaðra kerl-
ingabóka fremur óljós.“
Hvernig er að búa og stunda
nám í Frakklandi?
„Ég er búinn að vera hér í fimm
ár. Fyrst tvö og hálft ár í París
og síðan hér í Tours. Það hefur
gengið mjög vel. Ég ákvað
snemma að sökkva mér niður í
menningu innfæddra, svolítið eins
og mannfræðingur sem býr í snjó-
húsi og borðar selkjöt til að kynn-
ast háttum inúíta. Ég hef stundað
kaffihús, drukkið rauðvín, borðað
osta og almennt reynt að iðka siði
heimamanna. Ég held að þetta sé
besta aðferðin til að ná tökum á
tungumálinu, sem er ekkert ein-
falt fyrir íslendinga. Fyrsta árið
var erfítt að sækja fyrirlestra,
dæmatíma og að taka próf á
tungumáli sem er manni ekki full-
komlega tamt. Það gekk erfiðlega
en gekk samt og nú er ég búinn
að kenna eðlisfræði á frönsku við
háskólann hér í tvö ár. Ég ætlaði
alltaf að skrifa doktorsritgerðina
mína á ensku en vegna nýrrar
malverndunarstefnu stjórnvalda
fór héraðsstjórnin, sem hefur
styrkt mig síðustu ár, fram á að
ég skrifaði hana á frönsku. Þá er
lítið gagn í rauðvíni og ostum því
franskt ritmál er fjarlægt talaða
málinu. Ég mátti því bíta á jaxlinn
og skrifa þessar tvö hundruð síður
á frönsku. Mér líkar ágætlega við
Frakkana, þeir eru svolítið sérs-
takir en þegar maður fer að skilja
hvernig þeir hugsa hlutina breytist
allt. Franskt orðatiltæki segir að
skilja allt sé að fyrirgefa allt og
ég held að gott sé að hafa það í
huga í samskiptum fólks af ólíku
þjóðerni.“
Utsala
*hr ’frr 4* fttf ’Ht frð $
Persía
■ W *\ f Sérverslun
/? 'V' C 1 /1 meöstöklepp'
# t t l #, / Á. og mottur
Suðurlandsbraut v/Faxafen - sími: 568 6999 MSíi E
Heimsferðir bjóða nú í fyrsta sinn spennandi ævintýri til þessa heiiiandi lands, sem nær frá Karíbahafínu
til frumskóga Amazon og á margar fegurstu náttúruperlur heimsins. Dvölin skiptist á miiii höfuðborgar
Venezuela, Caracas og periu Karíbahafsins, Margarita-eyjunnar, sem í dag er einn vinsælasti
áfangastaður Karíbahafsins vegna einstaks loftslags, iágs verðiags og gullfaiiegra stranda.
Margarita
Kölluð perla Karíbahafsins. Kólumbus steig fyrstur Evrópumanna fæti á eyjuna
og lagði liana undir Spán. Hún var miðstöð perluverslunar um aldir, sjóræningja
og nú fcrðamanna. Hér getur þú valið um yfir 50 strendur til að njóta sólarinnar,
farið í spennandi ferðir um eyjuna eða verslað í Porlamar, en Margarita-eyjan er
öll frihöfn og því afar ódýrt að versla. Hótel Heimsferða, staðsett 2 km tyrir utan
miðbæ Porlamar, öll herbergi með baði, sjónvarpi, síma og minibar. í hótelinu er
veitingastaður, bar, verslanir og sundlaug.
Caracas
höfúðborg Venezuela og nútímalegasta borg Suður-Ameríku. í kjölfar olíuauðs
Venezuela átti sér stað gífúrleg uppbygging á öllum sviðum og hér finnur þú
stærstu verslunarklasa í S-Ameriku, spennandi söfn, leikliús, tónlist, veitinga-
staði og næturlíf og fegurstu konur í heimi. Borgin er rík af sögu, var miðstöð
sjálfstæðisbaráttu Suður-Ameriku gagnvart Spáni og hér er minningu
sjálfstæðihetjunnar Símons Bolívars gert hátt undir liöfði. Spennandi kynnis-
ferðir með fararstjóra Heimsferða.
Ferðatilhögun
Beint flug til Kanarieyja með Heimsferðum. Dvalið á Kanari frá miðvikudagskvöldi 21. feb. til
tnánudags. Beint flug frá Kanarieyjum á mánudegi kl. 20.00. Dvalið í 14 nætur í Venezuela.
Valkostur a)
Dvöl á Margarita allan tímann.
Valkostur b)
Dvöl á Margarita fyrstu 4 dagana. Á fimmta degi farið
rneð flugi til Caracas. Dvalið í 3 daga, 2 nætur í
Caracas. Á sjöunda degi farið aftur til Margarita og
dvalið til ijórtanda dags.
Mánudagskvöldið þann 11. mars er flug aflur á
miðnætti til Kanaríeyja, lent á Kanarí á hádegi þann
12. mars. 6 tíma flug. Haldið til íslands daginn eftir,
13. mars, með beinu flugi Heimsferða.
Verð kr.
99.700
HEIMSFERÐIR
M.v. 2 í herbergi.
Aukagjald fyrir Caracas kr. 13.900.
Aukagjald fyrir 5 kynnisferðir kr. 12.900.
íslenskur fararstjóri: Þorsteinn Stephensen.
Innifalið í verði er flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli
erlendis, flugvallarskattar á íslandi og Spáni og íslensk
fararstjóm. Forfallagjald kr. 1.200 ekki innifalið.
Austurstræti 17,2. hæð. Sfmi 562 4600.