Morgunblaðið - 14.01.1996, Side 34
34 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
“1
GUNNHILDUR
GUÐJÓNSDÓTTIR
i
í
>
í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
[
i
>
í
í
i
i
i
i
i
f
i
(
!
{
r
i
Gunnhildur
Guðjónsdóttir,
klæðskerameistari,
var fædd að Gests-
stöðum í Sanddal,
Norðurárdals-
hreppi, Mýrasýslu,
11. febrúar 1907.
Hún lést á Borgar-
spítalanum 7. þessa
mánaðar. Foreldr-
ar hennar voru
Guðjón Guðmunds-
son, bóndi á Gests-
stöðum, fæddur að
Uppsölum í Norður-
árdal, og eiginkona
hans, Guðrún Daðadóttir, fædd
að Högnastöðum í Þverárhlíð.
Systkini Gunnhildar voru: Guð-
mundur, fæddur 27. júlí 1893,
drukknaði frá Grindavík 8.
apríl 1915, Elís Kristinn, fædd-
ur 27. nóv. 1895,
dáinn 18. desember
sama ár, Elín Krist-
ín, fædd 12. febrúar
1897, dáin 3. októ-
ber 1922, Gunnar
Daðmar, fæddur 7.
september 1899,
dáinn 5. janúar
1949, Hallvarður,
fæddur 18. okt.
1901, dáinn 7. apríl
1903, Páll Jakob
Blöndal, fæddur 22.
nóvember 1904, dá-
inn 14. okt. 1984,
Þórdís Ingveldur,
fædd 13. júlí 1909, er nú ein
eftirlifandi systkinanna.
Útför Gunnhildar verður
gerð frá Fossvogskirkju á
morgun, 15. janúar, og hefst
athöfnin kl. 13.30.
ÞEGAR ég vil minnast Gunnhildar,
föðursystur minnar, verður mér efst
í huga, að þar sem hún fór var kona
einbeitt og viljasterk er haslaði sér
völl í lífinu ein og óstudd, átti sér
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum sem hún fór ekki í laun-
kofa með. Eins og sést hér að ofan
var hún úr stórum systkinahópi sem
ekki náðu öll háum aldri. Er það
vissulega einn vitnisburður um þá
hörðu lífsbaráttu er á þeim tímum
þurfti að heyja á kotbýli í afdölum
uppi. Til frekari staðfestingar má
koma fram að sameiginlegur fæð-
ingarstaður okkar, Gestsstaðir, hef-
ur nú verið í eyði í hálfa öld og
Sanddalur í tvo áratugi.
Augljóst var að þeirra þriggja
systkinanna á Gestsstöðum, Gunn-
hildar, Páls og Þórdísar, biðu ekki
miklir möguleikar heimafyrir þegar
Gunnar,- bróðir þeirra, staðfesti ráð
sitt og tók við búi um 1930. Leið
þeirra allra lá því til Reykjavíkur
eins og margra ungra Borgfirðinga
bæði fyrr og síðar. Þrátt fyrir að-
steðjandi kreppu og atvinnuleysi á
komandi árum fengu þau vinnu og
náðu að koma sér bærilega fyrir
eftir því sem þá gerðist. Páll varð
er ár liðu fram velþekktur og um-
svifamikill húsasmíðameistari í
Reykjavík. Sér verka hans stað m.
a. í Borgartúni 6, „Rúgbrauðsgerð-
inni,“ og húsi skáldsins að Gljúfra-
steini í Mosfellssveit. Systumar báð-
ar fengu þegar frá leið vinnu við
saumaskap og varð starfsdagur
þeirra lengstur á þeim vettvangi.
Auðsætt virðist mér að starfsvali
þeirra hafi ráðið ættarfylgja sem
tengst hefur mörgum forfeðrum og
mæðram, að fólki því hafi verið gefn-
ar hagar hendur. Skal í því sam-
bandi getið þeirrar konu sem Gunn-
hildur án efa var heitin eftir. Var
það amma hennar í móðurætt, Gunn-
hildur Jónsdóttir, sem fædd var 1824
en andaðist 30. janúar 1907. Aðal-
heimild mín um hana er útfararræða
þar sem presturinn lætur þess sér-
staklega getið að hún hafi verið
„.. . afkastamikil, vandvirk og lagin
og svo vel vinnandi í höndunum að
margt sem eftir hana lá af handa-
vinnu þótti bera af öðra.“ Hafa skal
þá í huga að hún missti föður sinn
10 ára gömul og varla hafa föður-
lausu og fátæku stúlkubarni á þeim
>u
‘ Vírkunámskiíð - áír Uebrúar
FYRIR BYRJENDUR -Teppi 4x3 tímar.
Kennt er einu sinni í viku, mánudaga eða miðvikudaga kl.
7.00-10.00 á kvöldin.
Haegt er að velja um teppi með bjálkakofa (L- og Cabin) munstri,
ástarhnút (Lovers Knot) og sól og skugga ((Sunshine and Shadow).
Teppi eru öll unnin með skemmtilegri tækni með rúlluskera,
reglustiku og skurðarmottu.
FRAMHALDSNÁMSKEIÐ - 4 teppamunstur 4x3 tímar.
Kennt er einu sinni í viku, fimmutdaga, kl. 7.00—10.00 á kvöldin.
Aðferðir við eftirtalin munstur: Falinn brunnur (Hidden Wells),
Ohio Star, tvöfaldur brúðarhringur (Double Weddingring) og
ananas (Pinapple). Allar aðferðir kenndar (þ.e.a.s. ein hvert kvöld)
og unnar á fljótlegan máta með skurðartækni í fyrirrúmi.
DÚKKUGERÐ -RUGLAÐA RÚNA (NÝ DÚKKA) - 2x3 tímar.
Kennt er 2 þriðjudagskvöld kl. 7.00—10.00.
ELDHÚSHLUTIR - sem passa hver með öðrum. 4x3 tímar.
Servéttubox, tehetta, hæna, pottaleppar, veggmynd,
eldhúshandklæði o.fl.
Kennt er 4 fimmtudagskvöld kl. 7.00-10.00.
BAÐHERBERGISHLUTIR - heildarsamræmi í litavali. 4x3
tfmar.
Ilmdúkka, setuhlíf, „tissue box“,gæs o.fl.
Kennt er 4 þriðjudagskvöld kl. 7.00-10.00.
VEGGTEPPANÁMSKEIÐ - 3x3 tímar.
Kennt 3 miðvikudagskvöld kl. 7.00-10.00.
PÁSKAHLUTIR O.FL. SÍÐAR.
- Allir eru velkomnir og geta einstaklingar og hópar \
\ f 'j líka komið með tillögur að námskeiðum til viðbótar.
t!
MINNINGAR
tíma boðist margir kostir um lærdóm
til munns eða handa. Er það trúa
mín að Gunnhildi yngri hafi á marg-
an hátt kippt í kynið til formóður
sinnar eftir því sem henni er lýst í
útfararminnihgunni. Mér finnst það
varpa skæru ljósi á þróun mannlífs
hér á landi í hálfa aðra öld að bera
saman menntun þriggja kvenna,
allra af sömu ætt og bera sama
nafn. Hin elsta átti þess í mesta
lagi kost að læra að lesa og draga
til stafs, dótturdóttir hennar öðlast
meistaragráðu í iðngrein sinni og
bróðursonardóttir þeirrar konu lýkur
doktorsprófi við erlendan háskóla.
Þegar Gunnhildur fékk vinnu við
sauma varð vinnuveitandi hennar
strax eða fljótlega Andrés Andrés-
son sem á þeim tíma var orðinn
umsvifamikill í saumaskap og
klæðaverslun í Reykjavík. Þar starf-
aði hún um árabil og aflaði sér iðn-
réttinda sem klæðskeri. Þótt hún
starfaði alla tíð við saumaskap karl-
mannafata er tilgreint á meistara-
bréfi hennar, útgefnu 20. febrúar
1950, að hún sé meistari í kvenfata-
saumi. Ætla má að þar komi fram
lítið dæmi um kynskiptingu vinnu-
markaðarins á þessum tíma, ótil-
hlýðilegt hafi þótt að kona hlyti þessi
réttindi varðandi karlmannafata-
saum. Þegar klæðagerðin Última var
stofnuð 1941 kom hún þar til starfa
og vann því fyrirtæki meðan það var
við lýði og við lok starfsferils síns
hjá Karnabæ. Árið 1946 reyndi hún
fyrir sér að starfa sjálfstætt í iðn-
grein sinni. Hún gerði ferð sína til
Vestmannaeyja og dvaldi þar í
nokkra mánuði. Af einhveijum
ástæðum ílengdist hún ekki þar og
hvarf aftur til höfuðstaðarins en
meðan á dvölinni í Eyjum stóð tók
hún bílpróf.
Kynni mín af henni urðu nánust
á áranum 1946 - 1951 meðan ég
stundaði nám í Reykjavík. Framan
af þeim tíma dvaldi ég á heimili
Páls bróður hennar að Kirkjuteigi
13 þar sem hún átti þá einnig heima.
Heimilið á Kirkjuteigi var á þessum
tíma samastaður stórfjölskyldu. Auk
Páls, Theódóra Siguijónsdóttur, eig-
inkonu hans og sonar þeirra sátu
þar að matborði tvær systur Theó-
dóru, aldraðir foreldrar þeirra og
kostgangari.
Minnisstætt verður mér að í þess-
um hópi sló ósjaldan í brýnu milli
fólks vegna mismunandi stjórnmála-
skoðana enda andstæður í þeim efn-
um margfalt skarpari þá en nú ger-
ist. Gunnhildur skipaði sér eindregið
á vinstri væng og fylgdi Sósíalista-
flokknum ódeig að málum. Sjálf-
stæðisflokkurinn átti sér ekki síður
sannfærðan málsvara þar sem var
Sólveig Siguijónsdóttir, systir hús-
móðurinnar. Þær tvær voru þannig
fulltrúar andstæðra skauta og kom
gjarnan upp kappræða milli þeirra
þegar báðar voru saman í hópi. Allt
fór það þó fram með fullri kurteisi
enda reyndu aðrir, sem ekki áttu
jafnskarpar skoðanir, að bera klæði
á vopnin.
Hér að framan var þess getið
hvenær Gunnhildur tók bílpróf. Ekki
keypti hún þó bíl þegar í stað heldur
liðu allmörg ár þar til að því kom.
í samræmi við lífsviðhorf sitt lét hún
ganga fyrir að eignast eigið hús-
næði og vera ekki upp á aðra komin
í því efni. Nokkru fyrir eða um 1950
festi hún kaup á íbúð að Njarðar-
götu 39 og bjó þar rúman áratug.
Upp úr 1960 keypti hún íbúð í bygg-
ingu að Laugalæk 1, fullgerði hana
og var þar heimili hennar þar til
yfír lauk. Trúlegt þykir mér að
frænku minni hafi þótt rétt að sjá
að hún gæti staðið straum af fyrri
íbúðarkaupunum áður en hún fjár-
festi í bíl. Það. varð einnig um 1960
og varaði bíleign hennar að segja
má til æviloka. Ekki duldist þeim
sem þekktu hana að bíllinn varð
mjög snar þáttur í lífi hennar. Hún
naut þess að vera undir stýri og
Ieggja upp í ökuferð, hvort heldur
var skutlast innanbæjar eða lagt í
langferð út á land. Á sínum tíma
hófst hún handa um byggingu sum-
arbústaðar hjá Stóra-Reykjum í
Flóa. í sambandi við þær fram-
kvæmdir urðu ófáar ferðimar austur
fyrir fjall.
Síðustu æviárin batt hún tryggð
við hjón, búsett uppi í Borgarnesi,
og gerði sér ósjaldan helgarferð
þangað að heimsækja þau. Þá var
svo komið að sumum þeirra er vora
henni nákomnastir var ekki með öllu
áhyggjulaust að vita hana akandi á
vegum úti. Framan af áram vandist
hún akstri á einbreiðum malarvegum
þar sem meginregla var að halda
sig sem mest á miðjum vegi. Þeirri
reglu fylgdi hún síðar þótt ekið
væri á tvíbreiðum vegi með bundnu
slitlagi. Sjálf lét hún stundum svo
um mælt á síðustu æviáram að sér
þætti ekki þess virði að lifa ef hún
gæti ekki ekið bíl sínum og ekki
væri verri dauðdagi en annar að
deyja í honum. Ekki varð henni að
þeirri ósk sinni. Atvikin höguðu því
svo að snemma á árinu sem leið lenti
hún í umferðaróhöppum. Þá
skemmdist bíll hennar veralega og
tók tryggingarfélag hann til sín.
Hans naut hún því ekki síðustu
mánuðina sem hún lifði.
Ellin varð henni að ýmsu leyti
þungbær þegar lengra dró frá starfs-
lokum. Fyrstu árin eftir þau vann
hún heima að pijónaskap og annarri
handavinnu. Ur því dró þegar frá
leið og síðustu æviárin lét hún í ljósi
að hún væri ósátt við hrörnun sína,
líkamlega og andlega. Henni sveið
það sárt að fínna minnið bregðast
sér en trú sinni lífsstefnu vildi hún
til þess síðasta halda frelsi þess sem
býr á eigin heimili og gaf engan
kost á því að yfírgefa íbúð sína og
flytjast á elliheimili. Þannig var
frænka mín sjálfri sér samkvæm til
hinstu stundar, vildi vera sjálfbjarga
og ekki seld undir umsjón og umönn-
un annarra. í minningu okkar sem
áttum samleið með henni á vegferð
lífsins mun hún lifa sem hin stolta,
kjarkmikla kona, hreinskilin og ein-
beitt sem valdi sér ein og sjálf veg
sinn á lífsleiðinni. Sjálfur vil ég að
leiðarlokum þakka margvíslega
hjálp á skólaárunum í Reykjavík sem
og hlýhug og höfðinglegar móttökur
þegar við í fjölskyldu minni áttum
leið til höfuðborgarinnar á liðnum
áratugum. Allra síðast er kveðja og
þökk frá yngri dóttur minni sem
einnig ber Gunnhildar nafnið. Eftir
að hún kom heim frá námi erlendis
fyrir tæpum fjóram áram tókst með
þeim gott samband. Hin eldri lét
frænku sína njóta nafns og þótt hún
í samræmi við stríða skapsmuni
væri ekki ævinlega sátt alla sam-
ferðamenn sína þá sneri sú hlið aldr-
ei að nöfnu hennar.
Guðmundur Gunnarsson.
Um tvítugsaldur flyst Gunnhildur
til Reykjavíkur og fer hún þá mjög
fljótlega að vinna á saumaverkstæði
Andrésar Andréssonar sem þá var
ein stærsta karlmannafatasauma-
stofa á landinu. Hún aflaði sér rétt-
inda sem klæðskerameistari. Hún
mun vera ein fyrsta konan hérlendis
sem fékk þau réttindi. Vann hún að
þeirri iðn sinni alla sína starfsævi.
Hún var ein þeirra er upphaflega
stofnuðu fyrirtækið Últíma og starf-
aði hún hjá því alla tíð sem verk-
stjóri og sniðmeistari. Hún bar hag
fyrirtækisins mjög fyrir bijósti.
Gunnhildur frænka mín var mjög
einbeitt og sjálfstæð kona og hafði
ákveðnar skoðanir, t.d. á pólitík,
réttindamálum kvenna og fleira.
Hún átti sína íbúð, sumarbústað og
bíl sem hún fór allra sinna ferða á
fram á efri ár. Hún hafði yndi af
ferðalögum og ferðaðist mikið bæði
innanlands og utan. Útivist, göngu-
ferðir og fjallgöngur vora henni að
skapi og ef færi gafst stundaði hún
slíkt fram á efri ár og stóð þeim er
yngri voru ekki neitt að baki. Nokkr-
ar ferðir fór hún til Noregs með
norskri vinkonu sinni og einnig með
frændfólki.
Til ísraels ferðaðist hún eitt sinn
með þremur dótturdætrum bróður
síns, en foreldrar þeirra dvöldu þar
um árs skeið, faðirinn við störf í
þágu Sameinuðu þjóðanna. Þarna
dvaldi Gunnhildur ásamt frændfólki
sínu um jól og áramót. Þetta var
mikið ævintýri fyrir hana og minnt-
ist hún oft á þessa ferð.
í tilefni 80 ára afmælis síns bauð
hún einni frænku sinni sem var 55
áram yngri. en hún sjálf í vikuferð
til Kaupmannahafnar til að heim-
sækja þar frændfólk og skemmta
sér. Gunnhildur giftist ekki og átti
ekki afkomendur. Því nutum við
bræðrabörn hennar kannski meira
umhyggju hennar og athygli. Mér
er í barnsminni hve mér þótti hún
góð frænka er hún saumaði á mig
föt og vék ýmsu góðu að lítilli
frænku sinni. Ég leit upp til hennar
og dáðist að sjálfstæði hennar og
áræði.
Er aldurinn færðist yfir hana,
átti hún góðan bakhjarl þar sem
voru Sesselja systir mín og Einar
maður hennar og mat hún þau mik-
ils fyrir umhyggju þeirra.
Fyrir fáum árum kynntist hún
hjónunum Elsu Arnbergsdóttur og
Gísla Sumarliðasyni í Borgarnesi og
tókst með þeim góð vinátta. Hún fór
ófáar ferðir á bílnum sínum upp í
Borgarnes til þeirra og átti þar góðu
að mæta. Vinátta þeirra og um-
hyggja auðgaði líf hennar í ellinni
og er ég þeim þakklát fyrir það.
Ég kveð Gunnhildi frændkonu
mína með virðingu og þökk.
Guðrún Gunnarsdóttir.
UTSALA
20-40% AFSLATTUR
AF ÚTSÖLUVÖRUM
15% staðgreiðsluafsláttur af öllum
flísum meðan á útsölunni stendur
Einstakt tækifæri til að eignast góðar flísar á góðu verði - margar tegundir.
Nokkrar tegundir afganga af 31x31 gólftlísum á kr. 1.270 m?
$0
ÖmSz
StárhöfSa 17 viá Gullinbrú, slmi 5674844.