Morgunblaðið - 14.01.1996, Page 37

Morgunblaðið - 14.01.1996, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 37 FRETTIR Seltjarnarnes Almennur fundur um fíkniefnamál SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Seltirn- inga heldur almennan fund um fíkniefnavandann, mánudaginn 15. janúar nk. kl. 20.30 í fundarsal félagsins á Austurströnd 3. Þar munu þrír menn sem hafa verulega reynslu á þessu sviði, flytja framsöguerindi og sitja fyrir svör- um. Framsögumenn eru Jón Friðrik Sigurðsson, sálfræðingur Fangels- ismálastofnunar, Björn Halldórs- son, lögreglumaður í fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykjavík og Einar Gylfi Jónsson, sálfræðingur og deildarstjóri forvarnardeildar SÁÁ. Fundarstjóri verður Jón Hákon Magnússon, bæjarfulltrúi og for- maður fíkniefnanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundurinn er öllum opinn en for- eldrar unglinga eru hvattir til að sækja fundinn, hlýða á framsöguer- indin og nota tækifærið til að fá svör við áleitnum spurningum sín- um, segir í frétt frá félaginu. Milljón á Kínó-miða STÆRSTI vinningur sem upp hefur komið í Kínó-leiknum hefur verið greiddur út. Vinningurinn var ein milljón kr. en sá heppni fékk hann á miða sem hann greiddi 100 krón- ur fyrir. Eðli Kínó-leiksins er að þátttak- endur spila ekki um ákveðinn pott heldur gegn ákveðnum líkum. í frétt frá Islenskri getspá kemur fram að því geti vinningshlutfallið farið vel yfir 100% og það gerðist um síðustu helgi þegar vinningshaf- inn fékk milljónina sína. Þennan dag fengu Kínó-þátttakendur sem sagt meira útborgað en þeir höfðu keypt fyrir. Aftanákeyrsla við Hólmsá TVEIR bílar lentu saman í hálku við Hólmsá á Suðurlandsvegi upp úr klukkan níu í fyrrakvöld. Ökumenn beggja bílanna voru fluttir á slysadeild með sjúkrabíl en að sögn læknis þar voru meiðsl þeirra minniháttar. Kleppsvegur 62 Þjónustuíbúðir aldraðra við Hrafnistu Rvk. Eigum enn óseldar örfáar íbúðir í þessu vinsæla nýja lyftuhúsi fyrir eldri borgara. Leitið frekari upplýsinga á skrifstofu okkar. Naustahlein, raðhús m. bílskúr við Hrafnistu í Hafnarfirði Loksins er komið í sölu eitt af þessum vinsælu raðhúsum fyrir eldri borgara, þar sem rúmgóður bílskúr er innbyggður í húsið. Húsið sem hér um ræðir er mjög glæsilegt og vandað í alla staði og skiptist í rúmgóða stofu og borðstofu, eldhús með vandaðri innréttingu og borðkrók. Flísalagt bað og þvottahús með góðum skápum. Parket og flísar á gólfum. Húsið er laust nú þegar og tengist þjónustukerfi Hrafnistu á DAS. Verð 11,5 millj. Verðum með til sýnis eitt glæsilegasta einbýli í Garðabænum, Sunnuflöt 2, í dag milli kl. 14.00 og 16.00. Húsið er í raun tvær íbúðir á einni hæð og hentar því stórfjölskyld- unni vel, ef þið viljið hafa ömmu og afa eöa unga parið nálægt ykkur, en einnig mætti nýta hluta hússins undir atvinnurekstur. Stærri íbúðin er 213 fm með 4 svefnherbergi og 3 góðar stofur, 3 baðherb. og tvöfaldan bílskúr. Minni íbúðin er 106 fm, 2 svefnh. og 2 stofur, sjálfstæð eining á allan hátt en einnig auðvelt að samnýta með stærra húsinu. Hönnun hússins og innréttingar eru allar [ hæsta gæðaflokki og staðsetning verður vart betri, í jaðri byggðar, endanum á lokaðri götu með hraunið og bæjarlækinn á lóðarmörkunum. Og ekki fælir verðið frá — kr. 24 milljónir!!! Sérstaklega falleg og skemmtileg eign — sölumaður okkar á staðnum í dag. ^ — SUÐURLANDSBRAUT 52 v/FAXATEN - • 1 {\ HUSAKAUP m ♦aitnlgiwviönkipUjni 568 2800 FASTEIGNAMIÐLUN 568 2800 Sl^run lsin|i1rn',i|6Uu y>égheLt a&þú vserirmÁ lyklanœ /? " David Waisglass Gordon Coulthart FRISTUNDANAM KVÖLDNÁMSKEIÐ í MIÐBÆJAR- SKÓLA OG GERÐUBERGI ÍSLENSKA: íslenska, stafsetning og málfræði. ítarleg yfirferð. íslenska fyrir útlendinga I, II, III, IV (í 1. stig er raðað eftir þjóðerni nemenda). Islenska fyrir útlendinga I - hraðferð. Kennt fjögur kvöld í viku. ERLEND TUNGUMÁL: (byrjenda- og framhaldsnámskeið) Danska. Norska. Sænska. Enska. Þýska. Hollenska. Franska. ítalska. Spænska. Portúgalska. Gríska. Búlgarska. Rússneska. Japanska. Arabíska. Kínverska. Talflokkar í ýmsum tungumálum. Áhersla lögð á tjáningu daglegs máls, lesnar smásögur, blaðagreinar o.s.írv. VERKLEGAR GREJNAR: Fatasaumur. Bútasaumur. Skrautskrift. Postulínsmálun. Bókband. Glerskurður. Teikning. Málun. Módelteikning. Handmennt. Tréskreytilist. AÐSTOÐ VIÐ SKÓLAFÓLK OG NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN Stærðfræði á grunnskóla- og framhaldsskólastigi. Nemendur mæta með eigið námsefni og fá aðstoð eftir þörfum. Fámennir hópar. Stafseming og málfræði. ítarleg yfirferð. DANSKA, NORSKA, SÆNSKA, ÞÝSKA, SPÆNSKA fyrir 6-10 ára gömul böm til að viðhalda kunnáttu þeirra í málunum. Byrjendanámskeið í þýsku og spænsku. NÝNÁMSKEIÐ: íslam. Upphaf, einkenni og saga. Samanburður við önnur trúarbrögð og þýðing íslam í samtimanum. Kennari: Dagur Þorleifsson. Fyrrverandi Júgóslavía. Saga og trúarbrögð. Áhrif pólitískrar sögu, trúarbragða- óg hagsögu á viðhorf þjóðanna, örlög þeirra og samskipti innbyrðis og út á við. Kennari: Dagur Þorleifsson. Kínverska 1. Kennari: María Chang. Kinvcrska II. Kennari: Fenglan Zou. Listasaga. Fjallað verður um helstu timabil listasögunnar frá upphafi myndgerðar fram á okkar daga. Kennari: Oddur Albertsson. Ritlist I. Að skrifa fyrir börn. Kennarar: Elísabet Brekkan og Árni Árnason. Ritlist II. Framhaldsnámskeið. Kennarar: Elísabet Brekkan og Árni Árnason. Samskipti og sjálfscfli fyrir konur. Kennari: Jórunn Sörensen. Handvcrk - blönduð tækni. Kennari: Jóhanna Ástvaldsdóttir. Öskjugcrð. Kennari: María Karen Sigurðardóttir. Innritun fcr frarn í Miðbæjarskólanum, Fríkirkju- vegi l,dagana 18. og 19.janúar kl. 16.30-19.30. Upplýsingar í síma 551 2992. Prófadeild-grunnskóli-framhaldsskóli Innritun stendur yfir. oreign Sími: 533-4040 Fax: 588-8366 Opiö mánd. - föstud. kl. 9 -18 og laugard. kl. 11 -14. sunnudaga kl. 12 -14. Dan V.S. Wiium hdl. lögg. fa.stcigna.sali - Ótafur Guðmundsson. sölustjón Birgir Georgsson sölum.. Hörftur Haiöarsoo. sölum. Ericndur Daviökson - sölum FASTEIGNASALA - Armúla 21 - Revk.iavík - Traust og örugg Þiónusta Kóngsbakki — 4ra herb. Rúmgóð 4ra herb. íbúð á 3. hæð (efstu). Þvottahús og búr innaf eld- húsi. Parket. Laus fljótleg. Áhv. veðdeild 1,7 millj. Verð 7,2 millj. 6237. Trönuhjalli — Kóp. Glæsilega innréttuð 3ja herb. íbúð á 3. hæð. Vandaðar innr. Parket. Þvottaherb. í íbúð. Stærð 92 fm. Áhv. 6,1 millj., greiðslubyrgði 32 þús. á mánuði. 6566. Kársnesbraut — bílskúr Rúmgóð 3ja herb. íbúð á 2. hæð ásamt innb. bílskúr. Góðar innrétt- ingar. Fallegt útsýni yfir sjóinn. Stærð íbúðar 85 fm + bílskúr 25 fm. Áhv. 2,2 millj. byggsjóður. Verð 8,3 millj. Chun verði refsað harðlega Seoul. Reutcr. STJÓRN og stjórnarandstaða í Suður-Kóreu eru sammála um, að Chun Doo Hwan, fyrr- verandi forseta, verði refsað harðlega fyrir spillingu í valda- tíð sinni á árunum 1980-’88. „Það kom okkur mjög á óvart hve miklu fé hann hafði safnað í leynisjóði sína,“ sagði Sohn Hak-kyu, talsmaður stjórnarflokksins, Nýja Kóreu- flokksins, en Chun hefur verið sakaður um að hafa tekið við um 18 milljörðum ísl. kr. í mútum frá stórfyrirtækjum í landinu. Auk þess er hann ákærður fyrir uppreisn vegna valdaránsins 1979. Roh Tae-woo, sem tók við af Chun sem forseti, hefur einnig verið ákærður fyrir spillingu og stjórnarandstaðan ber Kim Young-sam, núver- andi forseta, sömu sökum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.