Morgunblaðið - 14.01.1996, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 14.01.1996, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ STINNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 39 BREF TIL BLAÐSINS Skrattanum skemmt Frá Þórði E. Halldórssyni: SVO margt hefur verið skrifað um ástandið í Langholtskirkju, að varla er á bætandi. Ég get samt ekki stillt mig um að leggja þar nokkur orð í belg. A Þorláksmessu sl. eða 23. des- ember náðu greinarskrifin hvað mestu Qöri. Það fyrsta sem ég rak augun í sambandi við málið var yfir- lýsing frá sr. Sigurði Hauki Guð- jónssyni. Hann segir: „I tilefni við- tals við sr. Flóka Kristinsson í Morg- unblaðinu í dag mun ég svara sví- virðingum hans á hendur frumherj- um Langholtsssafnaðar, sem hann hefur líka haft uppi í útvarpi milli jóla og nýárs. Mig hefur hann oft atað auri skiptir mig engu, en fyrir látna frumheija safnaðarins mun ég svara. Satt er: Guð fer ekki í sumarfrí, en hann gengur framhjá sumum kirkjum, nennir ekki að koma þar við.“ Spurning mín er: Hvernig fór Sigurður að því að vita hvað ætti að standa í Morgunblaðinu samdægurs, eða 23. desember, og ég tala nú ekki um hvað mundi verða í útvarpinu á milli jóla og nýárs? Niðurlagið á yfirlýsingunni „Guð fer ekki í sumarfrí, en hann gengur framhjá sumum kirkjum, nennir ekki að koma þar við“. Það er erfitt að trúa því að slíkir ein- staklingar hafi nokkru sinni hlotið vígslu til starfa í þjóðkirkjunni. Ég trúði því naumast að þessi óþverri kæmi úr munni, eða öllu heldur úr penna prests. Sigurður Haukur talar sem allra minnst um samstarf sitt við séra Árelíus. Undrar mig það ekki. Var ekki séra Árelíus afskap- lega hrifínn af poppmessunum sem Sigurður Haukur innleiddi í Lang- holtskirkju? Og hvers vegna var þeim skyndilega hætt og hafa hvergi skotið upp kollinum síðan? Svari hann því. Það fór ekki leynt að sr. Sigurður Haukur var aðdáandi andatrúar og notaði kirkjuna ti! að útbreiða þann boðskap, enda þótt hann vissi að sá átrúnaður væri stranglega fordæmdur í Biblíunni. Mál málanna í kirkjustyrjöld Langholtskirkju er þó sú staðreynd sem ekki verður hrakin, tilurð gréin- ar sem hjónin Sjöfn Friðriksdóttir og Skúli Jón Sigurðsson skrifa í Morgunblaðið 30. desember. Þar er því haldið fram að sr. Flóki hafi komið í veg fyrir að sonur þeirra hjóna hefði fengið hjónavígslu í kikj- unni 15. júlí, þar sem Sigurður Haukur Guðjónsson átti að gefa þau saman. Séra Flóki segist hvergi hafa komið nálægt þessu máli né vitað um það á nokkurn hátt, en þegar hann var borinn þessum sök- um kynnt sér málið með því að skoða dagbók kirkjunnar. Kirkjuvörður sagði svo frá að Sigurður Haukur hefði haft samband við sig og aftur- kallað pöntun á krikjunni til hjóna- vígslu, sem átti að fara fram 15. júlí. Þetta á ekki að vera nein vand- ræði að kanna svo hið sanna komi í ljós, sé til þess fullur yilji í stað köpuryrða og óhróðurs. Ég tek það sérstaklega fram að ég þekki ekki sr. Flóka Kristinsson né organistann Jón Stefánsson og ætla mér á hvor- ugan að halla, þess vegna skora ég á rannsóknaraðila að kanna þessi mál niður í kjölinn. Úr öllum þeim skrifum um þessi mál standa uppúr fjórar greinar sem skrifaðar eru á vitrænan hátt. í Morgunblaðinu grein 23. desember eftir séra Þor- grím Daníelsson sóknarprest í Norð- ijarðarprestakalli, 29. desember; grein séra Guðmundar Óla Ólafs- sonar prests í Skálholtsprestakalli. Grein Önnu Maríu Pálsdóttur, Hofí, Vopnafirði, og grein frá Kristjáni J. Gunnarssyni fv. fræðsiustjóra. Um skrif sr. Sigurðar Hauks Guð- jónssonar vil ég aðeins segja þetta: Ég samhryggist manninum. Um Langholtskirkju er þetta að segja: Eins og allir geta séð sem nálægt kirkjunni koma, fer það ekki framhjá neinum að hún er í hraðri niðurníðslu. Viðgerðum og máln- ingu er ábótavant. Umhverfi kirkj- unnar er til sárrar skammar, það er eins og óhrjálegur malarkambur. Samt sem áður er oft í viku hverri lagt mergð bíla, fólks serri er að sækja konserta og aðrar óviðkom- andi samkomur kirkjunni, sem þar eru haldnar og greiddur er aðgangs- eyrir inná mætti halda að kirkjan væri flugrík, en það sést ekki á neinu. Ég er ekki kirkjunnar maður, allra síst nú, enda þótt ég búi við hlið hennar. Hins vegar tekur mig sárt að sjá musterið sem minn góði vinur séra Árelíus Níelsson lagði alla sína krafta og umhyggju í að byggja, verða að útliti líkara gripa- en Guðshúsi. Það er sorgleg staðreynd að menn, bæði prestvígðir og aðrir, skuli láta helgustu daga ársins fara í það að skemmta skrattanum. ÞÓRÐUR E. HALLDÓRSSON, Sólheimum 23, Reykjavík. hrAunhamar FASTEIGNA & SKIPASALA Miðleiti - Rvík - 3ja - lyfta Nýkomin í einkasölu glæsileg 3ja-4ra herb. íb. 102 fm á 4. hæð í nýl. lyftuh. á þessum vinsæla stað, í nýja miðb. 2 rúmg. svefnh., stofa, borðstofa. Suðursv. Sér- þvottaherb. o.fl. Parket. Bílskýli (innangengt). Verð 10,5 millj. Sóleyjarhlíð - Hf. - 4ra m/sérinng. Nýkomin í einkasölu mjög falleg og rúmg. ný ca 120 fm íb. á 1. hæð m. sérinng. og sérgarði. Áhv. húsbr. ca 6,3 millj. Verð 9,5 millj. Krókamýri - Gbæ - einbýli Nýkomið glæsil. einl. einb. m. bílskúr, samtals 200 fm. 4 svefnh. Góð staðs. Hagst. lán. Verð 15,8 millj. Fjallalind - Kóp. - parh. - frábært verð Nýkomið í einkasölu glæsil. parh. á einni hæð m. innb. bílsk., samtals 150 fm. Afh. fullb. utan, tilb. u. trév. innan. 4 svefnh. Teikn. á skrifst. Frábært verð, 9,9 millj. Selbrekka Kóp. - raðhús - 2 íbúðir Skemmtil. og vel umgengið tvíl. raðh. með innb. bílsk., samtals 250 fm. Á neðri hæð er 2ja herb. íb. Útsýni. Verð 12,7 millj. Upplýsingar gefur: Hraunhamar, fasteignasala, sími 565 4511. Tjarnarmýri - Seltjarnarnesi NAMSAÐSTOÐ við þá sem vi£ja rui Cemjra í skóía • grunnskóla • framhaldsskóla • háskóla Við bjóðum einnig: • fullorðinsfræðslu • námsráðgjöf • flestar námsgreinar • stutt námskeið - misserisnámskeið • litlir hópar - einkakennsla • reyndir kennarar Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17.00-19.00. Fax 557 9458. Nemendaþjónustan sf. Þangbakka 10, Mjódd. Til sýnis og sölu sunnudag milli kl. 14 og 16 Tjamarmýri 11, 3ja herb. fullb. íbúð ásamt stæði í bílageymslu. Ú FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ? Borgartúni 31,105 Rvík, s. 562 4250. Lögfr.: Pétur Þór Sigurðsson. hdl. Ein 2ja herb. íb. á jarðh. Ein 3ja herb. íb. á 1. hæð. Einn besti staður í bænum. LÆKJARGATA 6B - TIL SÖLU - af lífi og sál! ® 5510090 Breiðvangur - tvær íbúðir á verði einnar Stórskemmtileg og glæsileg. 181 fm eign sem skiptist í 120 fm neðri sérh. sem telur 3-4 herb. ásamt 32 fm bílsk. auk 2ja herb. 61 fm íbúðar í kj. m. sérinng. 7708. Opið hús ídag frá kl. 14-17 Tunguheiði 14, Kóp. Gullfalleg 97 fm 3ja herb. íb. ásamt 25 fm fokh. bílsk. Húsið er allt ný steni-klætt. íbúðin er fallega innréttuð með sér- þvottahúsi. Parket, flísar. Eign í sérfl. Áhv. 4,1 millj. byggsj. + lífeyrissj. Verð aðeins 7,9 millj. Eignaskipti möguleg. Magnús og Kristjana bjóða ykkur vel- komin í dag milli kl. 14-17. Laugavegur 147 - 3. h. Sérlega hugguleg og rúmg. 2ja herb. íb. í 6-íb. nýviðg. steinh. íbúðin er öll nýmáluð og mikið endurn. Áhv. 2,3 millj. Verð 4,7 millj. Ekki missa af þessari. Sólrún býður ykkur velkomin í dag milli kl. 14-17, (efsta bjalla í húsinu). Um 575 fm verslunar- og skrifstofuhúsnæði á fjórum hæðum í hinni einu og sönnu Lækjargötu í Reykjavík. Húsnæðið þarfnast lagfæringar, sér í lagi hvað innréttingar snertir, en býður upp á mikla möguleika svo sem verslunar- rekstur, veitingarekstur, skrifstofur eða að hluta þess sé þreytt í íbúðir. Ýmis skipti koma til greina. Teikningar á skrifstofu. Áhvílandi 14,5 miilj. hÓLl Skipholti 50B, 2. hæð t.v. 511-1600

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.