Morgunblaðið - 14.01.1996, Side 48
48 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
GOLF
ísland á
BBC
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
BBC í Englandi geri háifrar
klukkustundar langan þátt um
ísland þar sem áherslan verð-
ur á golf hér á landi. Stjórn-
andi þáttarins verður hinn
þekkti Peter Allis, en hann er
einn þekktasti golfíþrótta-
fréttamaður heimsins. Þáttur-
inn verður sá fyrsti í sex þátta
röð sem hann mun gera um
golf á ýmsum stöðum í heimin-
um og mun hann koma hingað
til lands á þjóðhátíðardaginn,
17. júní. í tengslum við þætti
Allis kemur út bók og þar fær
golf á íslandi gott pláss. Þætt-
irnir verða þrískiptir þannig
að þeir höfði til fleiri en kylf-
inga og verða seldir til sjón-
varpsstöðva víða um heim og
búast framleiðendur við að
um 665 milijónir heimila muni
sjá þá.
rtt-kia »■•/■ ;
Wjk keW M* n « .;•> ;
ihw > W( nxhrí'v ':
ry. "y, •sáirq JswiiOO•» :
’i <V<i <•*<* f .xs* I-y ;
; tv '<Í,> í'.y i»f > :
; 'iKttr*, tír.V? Xxnr. :r. : <rxí O !*•.* :
V.'W.OOS íAíJmtk <k»:
: !/W "> :
; r»+z^i frt o'n/.Aý
t> <:-•}<• \»/' (»*«•(. {:>/*; ' ■>
; „((*« *; S:i >:«« ;-J A> m> •.'• ttí';
; lÁT-fy, * 4 UlXÍ'/»-5» SSW W
; y»M Ktí>s« <M t»* ái>»xs»
: o'bí lMl <|(SSjaM’<;<KOM. k/
I M»(«. t X »X!«tó :»iy /í >»
iw: •<!> l/oi C.':i( I*>J :p <»s >V> !•/!> :
Káí <$!yx>. *:« x>J.*;>« :;<:»:•« i
to » *(#m> U;> 0*:«< «- y. ;
í ;• x !íi>WíhV«.
SiVd*' sxMá *■!■*-tg *&>.< </i *■'■ ;
ö-x:« *♦ CXtfoÁc/oi C?«í; *: Hjídf-xv ;
««*■ !:/«<• !*:»:*:«■ j:i ;
Co»/<.W- ó«d >s u>wí»« ;
Sð'/Cv »!<»! tilSS «< <X vóo- Op>»S"> K> í
6y fvyV/y -r»v Í'V c •» :*H * fc'í' :
p«r.S!> :■>•>>»:s iwiíijKixwiw:•y/.i:> :
teti'ii t.*s. >th> :í '««»; >s»y- ■'<•<« é»
/«.»• ; j.yC«vx4«> >M« <•! ví
<!.* !»r>:<*i ■» W<> 'J *«.'»» k'
íx- !«<*Óyv o««
ly«»y,.M( :> <■: :<.«:»vli pKÖM >*. •'♦•
ix««)I ::xs:'li<A>-»l< «
o‘ 'í'« C/yí^tm'. t vs »>«« ** xí.'íí*
fwxvy AfyW íf >f»/í/jj .1» fw
«■«•■» (»“ 'O'ó ».W owí iwd •• !y/ *»
\M »<s ■>:< :rr<xt>.a V<f <5
>víV> UyK /v-;:ý/,■«:< (.y*: )»■<:
*í«c (kr'Ktí ■///<: w i»Á< «'<x
»* W*/ ■'*■•/>. o *W> W«-<í <ó»
j> s»« Sx»» » a >*<>4c( W-<5 3<v«5
or<5 "XXOf «■? :o?oj! »W*:« t<s:
BWilMl " *■
« <« v«i « *» »>o:
xwo o «né>!< p>.»
<Á;/V». (./.« O >.•••. Xv *• .,A*S».\<
'tb'.iy' tíf.■■/!<> '/■«■ fC£ itft. fte Us>4-
K>x<;<>íU «*»:, »> :</inc.y» l»»x-Þ
*»*■■ (v. >:«nI-JI rvýæ </ /fttvx* H>
fceland viay not be an obvious goifing
deslinahon, but llu sunmer days are long and
the exctih nl courses ttnpíy and cheap to þíay.
fco:>»#»v<\x,ft>Á :
m w:f v'-í^yo*/* :
; Kfe'Od ix>i>/ 0 ;
FYRRI opnan af tveimur úr febrúarhefti Golf Monthly, en þar er fjallað um ísland sem ákjósan.
legan vlðkomustað fyrlr kylfinga þrátt fyrlr stutt tímabll.
ísland fær lofsamlega
dóma í þekktu golftímariti
ÞAÐ hefur ekki verið á hverjum degi sem þekktustu golftímarit
heimsins fjalla um ísland og möguleika fólks til að leika golf
hér, enda ef til vill ekki nema von því golftímabilið hér er stutt
og því hafa erlendir kylfingar ekki gert mikið af því að koma
hingað til að leika golf. En á þessu gæti hugsanlega orðið ein-
hver breyting innan fárra ára.
Hið útbreidda golftímarit Golf
Monthly fjallar um ísland á
tveimur opnum í febrúarhefti sínu
sem nýlega kom út, og fæst i Ey-
mundsson en þar á bæ hafa menn
pantað aukaeintök enda viðbúið að
margir vilji lesa vingjarnlega grein
um Island. Þar fjallar Alister Nicol
mjög lofsamlega, í máli og mynd-
um, um ísland sem ákjósanlegan
áfangastað fyrir kylfínga. í inn-
gangi segir Nicol meðal annars:
„Island er ef til vill ekki augljós
áfangastaður kylfinga, en sumar-
dagamir þar em langir og hinir
frábæru golfvellir em meira og
minna tómir og þar er ódýrt að
spila.“
Nicol kom hingað til lands í sum-
ar og fór Peter Salmon, sem sér
um mál kylfinga hjá ferðaskrifstof-
unni Úrval-Útsýn, með honum á
nokkra velli og hreifst Nicol mjög
af landi og þjóð ef marka má grein
hans. Raunar skrifaði hann tvær
greinar og mun sú síðari birtast í
aprílheftinu, sem kemur út í mars,
en þar fjallar hann um Vestmanna-
eyjar og golf þar.
í greininni í febrúarheftinu sem
ber yfírskriftina „Golf í miðnætur-
sólinni“ fjallar Nicol mest um völl
Meistarafélags húsasmiða í Reykja-
vík sem er í landi Kiðjabergs í Ar-
nessýslu og á vart til orð til að lýsa
landslaginu og því miida starfi sem
hefur verið unnið þar og er verið
að vinna. Hann segir að á vellinum
fái ímyndunaraflið að njóta sín,
völlurinn sé mjög krefjandi og ótrú-
lega góður miðað við þær aðstæður
sem íslensk veðrátta býður uppá.
Hann ræðir um lukkuholuna í Kiðja-
bergi og bendir síðan á þá frábæru
hugmynd íslendinga að eiga sumar-
bústaði skammt frá golfvellinum
og nefnir sérstaklega bústað Gunn-
ars Þorlákssonar, sem sé aðeins í
um 5-jáma fjarlægð.
Völlur Oddfellowa Heiðmörk fær
líka góða einkunn hjá Nicol og enn
dáist hann af landslaginu og segir
það þrekvirki að ráðast í að byggja
golfvöll á stað þar sem mann gæti
vart órað fyrir að hægt væri að
hafa golfvöll, úti í miðju hrauni.
Hann heimsækir einnig Golfklúbb
Reykjavíkur og telur að hinn nýi
völlur muni verða einstakur. Hann
minnist á vetrarhörkur hér á landi
og segir frostið koma illa við golf-
velli, en golfvallarstarfsmenn séu
að vinna í málinu. í Leirunni kunni
hann einnig mjög vel við sig og
hrósar vellinum.
í lok greinar sinnar segir Nicol
að hið litla land í Norður-Atlants-
hafi hafí hingað til verið þekktast
meðal útlendinga fyrir margskonar
útiveru svo sem hestaferðir, lax-
veiði, heitt vatn og annað í þeim
dúr. „En, þið megið hafa mín orð
fyrir því, golf á íslandi er alveg
einstakt. Flórída og Spánn em það
ekki. ísland er svo sannarlega
spennandi, hressandi og óvenjulegt
fyrir kylfínga,“ segir Nicol og vill
þakka það elju og metnaði landans
við að byggja upp góða golfvelli.
Síðasta setningin er heldur ekki
slæm auglýsing fyrir ísland og ís-
lendinga: „ísland hefur einnig einn
stóran kost til viðbótar - fólkið er
það vingjarnlegasta og gestrisnasta
í öllum golfheiminum.“ Ekki slæm
einkunn frá manni sem ferðast um
allan heim til að skrifa um golf og
golfvelli. ,
KÖRFUBOLTI
Mikið
skorað
Það hefur ávallt ríkt mikil
keppni á milli Knicks og Bost-
on Celtics, en þessi lið mættust í
fyrrinótt og hafði Knicks betur.
Dana Barros, bakvörður Celtics,
átti möguleika á að ná að gera
þriggja stiga körfu í 90 leikjum í
röð, en það tókst ekki, þrátt fyrir
þijú slík skot undir lok leiksins.
Don Nelson, þjálfari Knicks, setti
þrjá menn á Barros í lokin þannig
að hann gæti ekki náð NBA-meti
sínu í 90 leiki og var M.L. Carr,
þjálfari Celtics, ekki ánægður með
það. „Ég var ekki ánægður með
þessa ráðstöfun þjálfarans," sagði
hann eftir leikinn en hann henti
knettinum í Nelson er þeir gengu
til búningsherbergja. Barros gerði
hins vegar 24 stig og tók 11 frá-
köst en hjá Knicks var Ewing með
37 stig.
Það þurfti að framlengja í
Phoenix þegar Suns tók á móti
Dallas. Tony Dumas gerði 39 stig
og hefur aldrei gert eins mörg stig
í einum leik, en úrslitin urðu
140:130. Jason Kidd krækti sér í
sjöttu þreföldu tvennuna á ferlin-
um, hann gerði 33 stig, tók 10
fráköst og átti 16 stoðsendingar.
Vlade Divac gerði 25 stig fyrir
Lakers er liðið vann meistara Ho-
uston með einu stigi. Divac tók auk
þess 11 fráköst en þeir Eddie Jon-
es, 23 stig, og Nick Van Exel, sem
gerði 20 stig, áttu einnig góðan
leik. Þetta var sjötti sigur Lakers
á Houston í síðustu sjö leikjum þar
sem liðin hafa mæst í deildar-
keppninni. Sam Cassell gerði 27
stig fyrir Rockets og Olajuwon 24,
en Robert Horry var ekki með.
Orlando lék án O’Neals og
Horace Grant en lagði þó Bucks.
Dennis Scott gerði 37 stig fyrir
Magic og Penny Hardaway 30 en
Glenn Robinson gerði 31 fyrir
Bucks og Vin Baker 29 en kapp-
arnir tóku 11 fráköst hvor.
Úrslit leikja í fyrrinótt urðu:
Boston - New York.........92:105
New Jersey - 76ers........80:107
Orlando - Milwaukee........93:88
Washington - Sacramento ....117:88
Phoenix - Dallas.........130:140
Denver - Cleveland.........90:83
Utah - San Antonio........94:101
Seattle - Miami...........113:81
Vancouver - Golden State..95:104
LA Lakers - Houston......101:100
KORFUKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNI KKI
Jón Kr. Gíslason, landsliðsþjálfari, spáir í undanúrslitaleikina
Tvísýnt á Akranesi
UNDANÚRSLITIN íbikar-
>keppni karla íkörfuknattleik
verðaí dag, sunnudag, en þá
mætast kl. 16. Haukar og Þór
frá Akureyri annars vegar og
hins vegar Akranes og KR.
Flestir eru á því að Haukar, sem
hafa verið á mjög góðri siglingu,
muni hafa Þór en erfiðara sé að spá
um leik ÍA og KR á Akranesi. Hauk-
ar og Þór hafa leikið einn leik í vetur
og þar höfðu Haukar betur, 86:74, á
sínum heimavelli. Morgunblaðið sló á
þráðinn til Jóns Kr. Gíslasonar lands-
liðsþjálfara og bað hann að spá. „Ég
held að Haukar hafi það,_en það er
erfíðara að spá um leik LA og KR.
Annars hefur það margoft sýnt sig
að það er ógemingur að spá fyrir um
úrslit, sérstaklega í bikarleikjum.
Staðan í deildinni segir ekkert um
það hvemig bikarleikir fara.
Haukar eru mjög sterkir um þessar
. mundir og helsti styrkur þeirra er
breiddin. Þar er til dæmis ekki nóg
að stöðva Jón Amar því þó hann
geri bara fjögur stig í leik þá eru
aðrir sem taka við. Hins vegar stytt-
ist alltaf í tapleikinn eftir því sem
sigurleikjunum fjölgar, en ég held
samt að Haukar fari alla leið. Jón
Guðmundsson þjálfari Þórs veit samt
hvað er í húfí, úrslitaleikurinn í Höll-
inni, og til að Þór eigi möguleika á
sigri verður Kristinn [Friðrikssonj að
detta í mikið stuð og Williams líka,
en Haukar hafa óbilandi trú á sjálfum
sér þessa dagana og þeir hafa þetta,“
segir Jón Kr.
IA og KR hafa leikið þrívegis í
deildinni í vetur. KR vann fyrstu tvo
leikina, 101:88 á Akranesi og 115:88
á Nesinu. Síðasti leikurinn var leikinn
10. desember á Akranesi og þá höfðu
heimamenn betur 106:100 eftir fram-
lengdan leik. Af þessu má ljóst vera
að allt getur gerst, en það er einnig
ljóst að mikið er skorað í leikjum
þessara liða.
„Það er erfitt að spá um þennan
leik. KR-ingar eru með sterkara lið
en á móti kemur að Skagamenn eru
á heimavelli og þeir hafa náð langt
í bikamum ef ég man rétt. Banda-
ríski leikmaðurinn hjá ÍA, Milton
Bell, er mjög góður og KR-ingar hafa
ekki beint verið í stuði eftir. áramótin
þannig. Þeir hafa samt Jonathan Bow
og ég þekki það manna best að hann
leikur aldrei betur en þegar mikið
liggur við. Ég held því að þetta verði
ekta bikarleikur, alveg fram í síðustu
SÓkn.
Svo veltir maður því fyrir sér hvað
sé best fyrir íþróttina. Hvaða úrslita-
leikur dragi að flesta áhorfendur. Ég
gæti best trúað að íjölmargir KR-ing-
ar kæmu á úrslitaleikinn ef þeir kom-
ast þangað þó svo það hafí ekki ver-
ið fjölmenni á leikjum liðsins í deild-
inni. Það hefur einnig sýnt sig að
þegar lið komast óvænt í úrslitin, eins
og Snæfell til dæmis, þá koma marg-
ir áhorfendur með þeim og Skaga-
menn myndu örugglega fjölmenna í
Höllina ef ÍA kemst í úrslit,“ sagði
Jón Kr. Gíslason landsliðsþjálfari.
Morgunblaðið/Bjarni
ÞAÐ má búast yið erfiðum leik hjá KR-lngunum Lárusl Árna-
syni og Óskarl Kristjánssyni á Akranesi í dag.