Morgunblaðið - 17.01.1996, Síða 1
64 SIÐUR B/C/D
13. TBL. 84. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR17. JANÚAR1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Vopnaðir menn taka farþegaskip á Svartahafi til að vekja athygli á málstað Tsjetsjena
Hóta að sprengja
skípið í loft upp
Ankara, Moskvu, Pervomaískoje. Reuter.
NOKKRIR vopnaðir menn, sennilega Tsjetsjenar, lögðu í gær undir sig
farþegaskipið Evrasíju í tyrknesku hafnarborginni Trabzon við Svarta-
haf. Þeir sigldu á haf út og hótuðu að sprengja skipið í loft upp ef Rúss-
ar létu ekki af umsátri sínu um tsjetsjenska uppreisnarmenn í Dagestan.
Um 255 manns eru í skipinu, flestir rússneskjr, það mun hafa átt að fara
til Sotsíj í Suður-Rússlandi. Rússneskir sérsveitarmenn börðust enn við
tsjetsjenska gíslataka í Dagestan og var mannfall sagt mikið.
Biskup-
innaf
Alnetinu
París. Reuter.
FRANSKI biskupinn Jacques
Gaillot, sem Páfagarður refsaði
fyrir róttækni og vinstristefnu
í fyrra og setti að nafninu til
yfir fornt umdæmi í Afríku,
hefur nú svarað fyrir sig. Hann
prédikar á Alnetinu.
Biskupsdæmi Gaillots er
sunnarlega í Alsír, kennt við
borgina Parteniu sem hefur
verið hulin sandi síðan á mið-
öldum. Netfang biskupsins í
nýja sýndar-umdæminu er
http://www.partenia.fr/.
Gaillot mælir með notkun
smokka til að draga úr út-
breiðslu alnæmis, vill leyfa
prestum að giftast og hvetur
til umburðarlyndis gagnvart
samkynhneigðum. Hann hefur
einnig barist fyrir réttindum
heimilislausra og annarra ut-
angarðsmanna.
Talið var að mennirnir væru fímm
eða sex, líklega Tsjetsjenar eða
Tyrkir af tsjetsjenskum ættum. „Ef
Rússar sleppa ekki 250 vinum okkar
í Norður-Kákasus munum við
sprengja skipið í loft upp á Bosporus-
sundi við Istanbúl,“ sagði leiðtogi
hópsins, er nefndi sig Mohammed,
í samtali við tyrkneska sjónvarps-
stöð. Hann hét að sleppa Tyrkjum
sem um borð væru og sagðist ekki
vera hryðjuverkamaður; stjóm
Rússa bæri ábyrgðina ef manntjón
yrði. Mohammed og menn hans
myndu deyja með farþegunum.
„Þeir sögðust gera þetta til að
vekja athygli umheimsins á atburð-
unum í Tsjetsjníju," sagði Cemil
Serhatli, yfirmaður tyrknesku lög-
reglunnar, í sjónvarpsviðtali.
Mennirnir skutu af vélbyssum,
kröfðust þess að skipstjórinn ræddi
strax við þá og sigldi úr höfn. Hót-
uðu þeir að myrða einn Rússa á tíu
mínútna fresti ella, að sögn frétta-
stofunnar Anatolia. Fréttastofan
hafði eftir rússneskri konu, Nadíu
Naskovu, sem komst undan að
margir hefðu særst í átökunum.
Tyrkneskur lögreglumaður mun
hafa særst.
Fréttir bárust af því að Tsjetsjen-
ar hefðu tekið 30 rússneska gísla
í úthverfi Grozní í gær og haldið á
brott með þá en ekki var fyllilega
ljóst í gærkvöldi hvort um einhvers
konar misskilning var að ræða.
Gíslatakar Tsjetsjena vörðust enn
árásum sérsveita Rússa í þorpinu
Pervomaískoje á landamærum Dag-
estans og Tsjetsjníju. Rússar segja
að 26 gíslar hafi verið frelsaðir eða
látnir lausir; líklegt er talið að yfir
70 séu enn í hönduin Tsjetsjena í
þorpinu.
Tsjúbajs hættur
Skýrt var frá afsögn umbóta-
mannsins Anatolíj Tsjúbajs, aðstoð-
arforsætisráðherra sem stjórnað
hefur einkavæðingarmálum, í
Moskvu í gær. Vestrænir hagfræð-
ingar töldu afsögnina og vaxandi
áhrif harðlínumanna í Kreml geta
merkt að Jeltsín væri að búa sig
undir að friða kommúnista í Dúm-
unni með því að nálgast sjónarmið
þeirra. Yrði þá veittur aukinn stuðn-
ingur við ríkisfyrirtæki og hægt á
baráttunni við verðbólgu.
Enn er ekki ljóst hvort Jeltsín
gefur kost á sér til endurkjörs í
kosningunum í júní. „Ég held að
enginn geti aukið sigurlíkur hans
því að stefna hans er gjörsamlega
gjaldþrota og hrunin," sagði
Gennadíj Zjúganov, leiðtogi komm-
únista, á þingi í gær. Ætlunin var
að Dúman ræddi vantrauststillögu
sem umbótaflokkurinn Jabloko hef-
ur borið upp á ríkisstjórn Víktors
Tsjernómýrdíns forsætisráðherra.
■ Fellir Tsjetsjnya Jeltsín?/16
Reuter
LIÐSMAÐUR flokks úr sér-
sveitum Rússa við Pervom-
aískoje reynir að hugga grát-
andi félaga sinn sem missti
vin er herflokkurinn gerði
áhlaup á stöðvar Tsjetsjena í
þorpinu í gær. Tölum um
mannfall í Pervomaískoje bar
ekki saman en hernaðarsér-
fræðingar töldu víst að tugir
manna væru þegar fallnir. Á
litlu myndinni sést Naskova
segja frá skipstökunni í
Trabzon og flótta sinum.
Irakar minn-
ast Persa-
flóastríðs
ÍRÖSK sljórnvöld skýrðu í
gær frá umfangsmiklum há-
tiðarhöldum í tilefni þess að í
dag eru fimm ár frá því Persa-
flóastríðið hófst með loftárás-
um bandamanna á Bagdad og
fleiri skotmörk. Átökunum
lauk nokkrum vikum síðar
með ósigri Iraka. Fyrr í vik-
unni sagði stjórn einræðis-
herrans Saddams Husseins að
aflétta bæri viðskiptabanni
Sameinuðu þjóðanna vegna
þjáninganna sem það hefði í
för með sér fyrir íraskan
almenning. Á myndinni er íbúi
í Bagdad að kaupa í matinn
og heldur á stöflum af pen-
ingaseðlum; óðaverðbólga
geisar í landinu.
Starfsemi erlendra fréttastofa í Kína
Skorður við fréttum
af efnahagsmálum
Pekinj;. Reutcr.
STJORNVÖLD í Kína hafa tak-
Reuter
markað fréttaflutning af kínversk-
um efnahagsmálum og snúið þar
með af þeirri braut, sem Deng
Xiaoping markaði með efnahags-
umbótunum 1979. Óttast er, að
þetta geti gert út af við þann vísi
að fjármálamarkaði, sem hefur ver-
ið að myndast í landinu.
í yfirlýsingu stjórnarinnar er
borið við þjóðaröryggi og sagt, að
erlendar fréttastofur verði að fara
að reglum Xmbua-fréttastofunnar
kínversku. Þá er þeim hótað refs-
ingu, sem „ófrægja" Kína. Stefnu-
breytingin hefur valdið ótta í Hong
Kong sem hverfur undir yfirráð
Kína á næsta ári. Fjármálaumsvif
eru geysimikil í bresku nýlendunni
og ljóst að skorður af þessu tagi
myndu valda miklum vanda ef þær
giltu einnig þar.
Geta eyðilagt
fjármálamarkaðinn
Samkvæmt nýju reglunum er
Kínveijum bannað að kaupa fréttir
beint af erlendum fréttastofum en
þau viðskipti, sem verða, eiga að
fara eftir gjaldskrá, sem Xinhua
ákveður. Hefur hún átt undir högg
að sækja gagnvart erlendum frétta-
miðlum að undanförnu en óvíst er
hvort nýju reglunum er ætlað að
bæta stöðu hennar á markaðnum
eða hvort verið er að koma á stalín-
ískum upplýsingahöftum.
Ýmsir óttast, að reglurnar geti
gert að engu þróun kínversks fjár-
málamarkaðar. „Markaðurinn
þrífst á áreiðanlegum upplýsingum
- ekki á áróðri," var haft eftir kín-
verskum upplýsingaráðgjafa, sem
ekki vildi láta nafns síns getið. Þá
ber öllum hagfræðingum saman
um, að fijálst upplýsingaflæði sé
hornsteinn hins efnahagslega upp-
gangs í landinu. Nýju reglurnar
geta líka komið í veg fyrir, að Kína
fái aðild að Alþjóðaviðskiptastofn-
uninni, WTO.