Morgunblaðið - 17.01.1996, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Verkefnissljórn um yfirfærslu grunnskóla frá ríki til Reykjavíkurborgar
Stofnuð verði fræðslumið-
stöð í Miðbæjarskólanum
Ráðgjafarmiðstöðvar í sex borgarhverfi
TILLÖGUR verkefnisstjórnar um
breytingar á skipulagi Skólaskrif-
stofu Reykjavíkurborgar þegar
sveitarfélög taka yfir grunnskól-
ana hafa verið lagðar fram í borg-
arráði. í tillögunum er gert ráð
fyrir að öllu starfsfólki skrifstof-
unnar verði sagt upp og að stofn-
uð verði Fræðslumiðstöð Reykja-
víkurborgar með aðsetur í Mið-
bæjarskólanum. Lagt er til að
borginni verði skipt í sex hverfí
og að þar starfi ráðgjafarmið-
stöðvar sem veiti ráðgjöf- og sál-
fræðiþjónustu fyrir Dagvist barna
og grunnskólana. Að sögn Sig-
rúnar Magnúsdóttur, formanns
skólamálaráðs, verður staða for-
stöðumanns auglýst.
Starfsfólk Fræðslu-
skrifstofunnar ráðið
í Reykjavík eru tvær skrifstof-
ur um skólamál, Skólaskrifstofa
Reykjavíkurborgar og Fræðslu-
skrifstofan, sem er ríkisstofnun
en þar hefur öllu starfsfólki verið
sagt upp störfum vegna yfírtöku
sveitarfélaganna á grunnskólun-
um. Að sögn Sigrúnar er gert
ráð fyrir að starfsfólk Fræðslu-
skrifstofunnar verði ráðið til
borgarinnar en í yfírtöku sveitar-
félaganna á grunnskólunum fel-
ist að sveitarfélögin ráði til sín
kennarana, skólastjórnendur og
starfsfólk fræðsluskrifstofa. Til-
lögurnar hafa verið kynntar
starfsfólki Skólaskrifstofu
Reykjavíkurborgar og í skóla-
málaráði.
„Við viljum stofna nýja skrif-
stofu sem við kjósum að kalla
Fræðslumiðstöð borgarinnar,"
sagði Sigrún. „Þannig þykir okk-
ur eðlilegt að öllum verði sagt
upp á skólskrifstofunni svo að
hægt verði að sameina þessar
tvær skrifstofur í eina. Fyrsta
skrefið er að velja þessari nýju
stofnun forstöðumann og hafa
hann með í ráðum um innra
skipulag og verður staðan aug-
lýst.“ Verkefnisstjórnin leggur til
að fræðslumiðstöðin verði til
húsa í Miðbæjarskólanum og að
þar verði einnig til húsa Skóla-
safnamiðstöð borgarinnar, skóla-
stjóri Vinnuskólans og skólastjóri
Námsflokka Reykjavíkur. Sagði
Sigrún að námsflokkarnir væru
þegar fyrir í Miðbæjarskólanum
og vilji væri til að ákveðinn kjarni
yrði þar áfram.
Ráðgjafar- og
sálfræðiþj ónusta
endurskipulögð
'■I tillögu verkefnisstjórnar er
bént á nauðsyn þess að vanda
þjónustu yið börn, foreldra, kenn-
ara og skölastjórnendur. Liður í
því sé endurskipulagning á ráð-
gjafar- og sálfræðiþjónustu Dag-
vistar barna og grunnskólans
með áherslu á samþættingu þjón-
ustunnar. Lagt er til að borginni
verði skipt í sex hverfi og ráð-
gjafarmiðstöð verði í hveiju
þeirra er veiti þessa þjónustu.
VERKEFNISSTJÓRN UM breytingar á skipulagi skólaskrifstofu Reykjavíkur gerir ráð fyrir
að stofnuð verði fræðslumiðstöð í Miðbæjarskólanum.
Greinargerð sjálfstæðismanna
Flutningur í
Miðbæjarskóla
illa ígrundaður
BORGARRÁÐSFULLTRÚAR
Sjálfstæðisflokksins lögðu fram
greinargerð á fundi borgarráðs
vegna tillagna verkefnisstjórnar
um yfírfærslu grunnskólans. Þar
kemur fram að tillögur um flutn-
ing nýrrar stofnunar, Fræðslum-
iðstöðvar, í Miðbæjarskólann séu
illa ígrundaðar. Skólinn sé elsta
skólabygging borgarinnar og mis-
ráðið að breyta honum í skrif-
stofuhúsnæði.
Rangt að segja upp
starfsfólki
í greinargerðinni kemur fram
að sjálfsagt sé að stofna eina
miðstöð skólamála í stað tveggja
áður, en að sjálfstæðismenn telji
rangt að segja starfsfólki Skóla-
skrifstofu upp störfum vegna
þessa. Lýst er stuðningi við tillögu
um að sameina aðstöðu fyrir sér-
fræði- og sálfræðiráðgjöf bæði
leikskóla og grunnskóla og dreif-
ingu á þessari þjónustu út í hverf-
in. ítrekað er að núverandi hús-
næði Skólaskrifstofu við Tjarnar-
götu verði nýtt áfram sem mið-
stöð skólamála. Með tilfærslu
verði unnt að koma því við án
mikils kostnaðar. Hugmyndir R-
listans um að nýta húsnæði Mið-
bæjarskólans fyrir fræðslumið-
stöð séu afar óheppilegar og
kostnaðarsamar. Húsnæðið sé
nýtt af Námsflokkunum, Miðskól-
anum, Tjarnarskólanum og
Kvennaskólanum.
Miðskólanum sagt upp
Þá segir: „Svo virðist sem búið
sé að segja Miðskólanum upp
húsnæðinu og Tjarnarskóli og
Kvennaskóli munu ekki geta nýtt
þá aðstöðu sem skólarnir höfðu
ef breyta á húsnæðinu í skrif-
stofubyggingu. Þá er Námsflokk-
um Reykjavíkur nánast úthýst og
því óvíst um skipulag og framtíð-
arhlutverk þeirra."
Bent er á að Miðbæjarskólinn
sé elsta húsnæði borgarinnar sem
byggt er sem skóli og afar misráð-
ið að breyta þessu skólahúsnæði
í skrifstofubyggingu þegar 100
ára afmæli skólans nálgast. Með
því að breyta byggingunni megi
búast við umtalsverðum kostnaði,
þar sem reikna má með meiri
þörf fyrir endurnýjun en í nýju
húsi. Skólasafnamiðstöð hafi flutt
úr Miðbæjarskólanum fyrir
nokkrum árum, þar sem óttast
var um burð hússins og þrengsl
tilfinnanleg.
Tillaga um að flytja starfsemi
Skólasafnamiðstöðvar og Vinnu-
skólans séu og gagnrýniverðar,
þar sem báðar stofnanir séu ný-
komnar í húsnæði sem kostaði
tugi milljóna að innrétta.
Stafnes tók niðri í Sandgerðishöfn
Ahöfnin rumskaði
ekki við strandið
STAFNES KE, 200 rúmlesta stál-
bátur frá Sandgerði, strandaði á
leirbotni í höfninni í Sandgerði í
fyrrinótt. Átti hann þá skammt
ófarið í grjótgarðinn. Oddur Sæ-
mundsson skipstjóri segir að land-
festar bátsins hefðu slitnað eins
og tvinni í miklum sjógangi, en
að öðru leyti var stillt veður, um
tvö vindstig að vestan þegar þetta
gerðist.
Oddur sagði að helmingur
áhafnarinnar hefði verið kominn
um borð í bátinn upp úr kl. 1 að-
faranótt þriðjudags. Skipverjar
hefðu þá treyst landfestar vegna
sjógangs en síðan háttað í koju.
Um kh 3.30 kom mikil fylla inn í
höfnina og slitnuðu sex sverar
landfestar bátsins sem rak upp á
leirbotn. Oddur sagði að festingin
á leirbotninum hefði verið svo
mjúk að áhöfnin hefði ekki rumsk-
að við strandið.
„Þetta fór nú betur en á horfð-
ist. Það kom mikil fylla inn á flóð-
inu. Þetta gerist stundum í þess-
ari átt. Við kölluðum eftir aðstoð
og björgunarbáturinn Hannes
Hafstein var kominn til okkar rétt
STAFNES KE er 200 tonna stálbátur. Hann strandaði
á leirbotni í Sandgerðishöfn í fyrrinótt.
um kl. fjögur. Hann ristir svo
grunnt að hann komst alveg upp
að Stafnesi svo þetta gekk mjög
vel. Báturinn var laus að framan
og aftan en sat fastur í leir á
miðjunni. Kafarar könnuðu
skemmdirnar en þær virtust
óverulegar," sagði Oddur. Bátur-
inn fór út í róður skömmu síðar.
Um miðjan dag í gær sagði Oddur
að mokveiði væri á miðunum og
átti hann von á því að aflinn eftir
daginn yrði 25-30 tonn af stórum
þorski.
Söluskýrsla ÁTVR
Afengis-
sala jókst -
tóbakssala
minnkaði
HEILDARSALA áfengis og tóbaks
ÁTVR á síðasta ári nam 12.523
milljónum króna. Áfengissalan nam
7.940 milljónum króna og tóbakssal-
an 4.583 milljónum króna. Alls seldi
ÁTVR um 10,4 milljónir lítra af
áfengi á síðasta ári _sem er 8,45%
aukning á milli ára. í alkóhóllítrum
talið er aukningin 3,37% milli ára.
Þessar tölur eru þó ekki samanburð-
arhæfar þvi 1. desember 1995 hófu
heildsalar sölu á áfengi til veitinga-
húsa og ÁTVR hætti á sama tíma
allri dreifíngu á áfengi annarri en
þein-i er fram fer í vínbúðum sem
sala til viðskiptavina. I sölutölunum
er ekki talin sala ÁTVR til skipa,
fríhafnar eða til útflutnings.
Mest aukning varð í bjórsölu á
síðasta ári. Alls seldust um rúmlega
átta milljónir lítra á árinu en rúmlega
7,2 milljónir lítrar árið 1994 sem er
10,8% aukning milli ára. Mestur sam-
dráttur varð hins vegar í sölu á
brennivíni. Tæplega 81 þúsund lítrar
seldust á árinu en 98.554 lítrar árið
1994 sem er 18% samdráttur.
Samdráttur varð í sölu á öllum
tegundum af tóbaki á síðasta ári
miðað við 1994. Sala á vindlingum
dróst saman um 3,06% milli ára.
Alls seldust rúmlega 369 milljónir
vindlinga 1995 en tæplega 381 millj-
ón vindlinga 1994. Sala á vindlum ,
1995 nam rúmlega 11,2 milljónum
stykkja en 11,4 miiljónum 1994.
Heildarsala reyktóbaks árið 1995
nam 12.090 kg en 12.852 kg árið
1994. Heildarsala nef- og munntób-
aks nam 12.200 kg en 12.600 kg
árið 1994.
Andlát
ELÍSA-
BET JÓ-
HANNS-
DÓTTIR
ísafirði. Morgunblaðið.
ELÍSABET Jóhannsdóttir frá
ísafirði, sem gekkst undir hjarta-
og lungnaaðgerð á Salgrenska
sjúkrahúsinu í Gautaborg í Svíþjóð
í apríl á síðasta ári, lést í Sal- i
grenska sjúkrahúsinu síðdegis á
mánudag.
Elísabet hélt áleiðist til Svíþjóðar
ásamt eiginmanni sínum, Torfa
Einarssyni, í febrúar 1992 og hafa
þau dvalið ytra síðan þá. Frá því
að aðgerðin var framkvæmd á síð-
asta ári hefur líðan Elísabetar verið
eftir atvikum en á laugardag veikt-
ist hún alvarlega og lést á mánudag.
Elísabet var 46 ára gömul, fædd
18. desember 1949. Hún lætur eft-
ir sig eiginmann, Torfa Einarsson,
fóstursoninn Símon Barða Haralds-
son og barnabörn. Minningarathöfn
um Elísabetu fer fram í Svíþjóð.
Útför hennar fer fram frá ísafjarð-
arkirkju og verður auglýst síðar.