Morgunblaðið - 17.01.1996, Síða 9

Morgunblaðið - 17.01.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 9 FRÉTTIR GUNNAR Gunnarsson, sendiherra íslands í Georgíu, afhendir Eduard Shevardnadze, forseta Georgiu, trúnaðarbréf í viðhafn- arsal forsetaembættisins í þinghúsinu í Tbilisi. Afhenti Shevardnadze trúnaðarbréf GUNNAR Gunnarsson sendiherra afhenti Eduard Shevardnadze, forseta Georgíu, trúnaðarbréf í Tbilisi 9. janúar. Gunnar sagði í gær að þetta væri í fyrsta sinn, sem sendiherra Islands, afhendir trúnaðarbréf í Georgiu frá því að landið fékk sjálfstæði. Gunnar kvaðst hafa átt fundi með Shevardnadze, Irkali Menag- arishvili, utanríkisráðherra Ge- orgíu, og formanni utanríkismála- nefndar þingsins. Að sögn Gunnars fór Shev- ardnadze yinsamlegum orðum um Island og Islendinga og minntist sérstaklega á sjálfstæðisbaráttu íslendinga á sínum tíma. She- vardnadze hefði sagt að Georgíu- menn hefðu fylgst af áhuga með afstöðu Islands til samruna Evr- ópu og lýst yfir því að þeir hefðu mikinn áhuga á að tengjast Evr- ópu böndum. „Hann rifjaði einnig upp þau kynni, sem myndast hefðu á leið- togafundinum, og undirstrikaði að hann hefði verið vendipunktur í samskiptum austurs og vesturs," sagði Gunnar og bætti við að bor- ið hefði á góma að á þessu ári væru tíu ár liðin frá því að Ron- ald Reagan, fyrrverandi Banda- ríkjaforseti, og Mikhail Gorbac- hev, síðasti leiðtogi Sovétríkjanna, funduðu í Reylgavík. Að sögn Gunnars ræddi Shev- ardnadze einnig ástandið í Georg- íu undanfarin ár. Erfiðleikar vegna átaka í landinu hefðu leitt til ófremdarástands í efnahags- málum, en nú hefði tekist að koma á pólitískum stöðugleika í kjölfar yfirburða sigurs Shevardnadze í síðustu forsetakosningum og bættur efnahagur myndi fylgja. Einnig stæðu vonir til að leysa mætti deilur um Abkhazíu með aðstoð Rússa. „Shevardnadze lýsti áhuga á samvinnu við Islendinga um fiskveiðar og jarðhita,“ sagði Gunnar, sem er sendiherra íslands í Rússlandi með aðsetur í Moskvu. „Hann lagði til að komið yrði á samstarfsverkefni um jarðhita- mál.“ MaxMara _____Mari____________ Hverfisgötu 52-101 Reykjavik - s. 562-2862. - kjarni málsins! (iTSAI.V — ÍITSAIyV — ÚTSAI.V — ÍTSAI.V — (iTSAI.A — ÍITSALA Útsala - Útsala 40-70% afsláttur T.d. ullarstuttfrakkar, krepbuxnadress, kjólar, blússur, pils o.fl., o.fl. Elðlstorgl 13, 2. hœð, (Ath.: Stretsbuxurnar eru ekki á úlsölunni). yflr torgtnu, (ITSALA — (ITSAI.A — ÍITSALA — IITSALA — (iTSALA — ÍITSALV sfml 552-3970. Opið kl. 9-19 tískuverslun Rauðarárstíg 1, sími 561 5077 Ríkisvíxlar! Fjármálastjórai - sjóðir - stofnanir - fyrirtæki • Ríkisvíxlar hafa fjölmarga kosti við fjárstýringu. • Ríkisvíxlar eru örugg skammtímaverðbréf með tryggri ávöxtun. Þau eru skráð á Verðbréfaþingi íslands sem tryggir greið viðskipti við kaup og sölu. • Ríkisvíxlar eru tæki til að skapa þann hreyfanleika aÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið við Hverfisgötu) sími 562 6040, fax 562 6068. sem þú þarfnast. Ríkisvíxlar eru til í 500.000,1.000.000 og 10.000.000 kr. einingum og fáanlegir með mismunandi gjalddögum. Hafðu samband við ráðgjafa Þjónustumiðstöðvar rfkisverðbréfa um tilboð á vexti á ríkisvíxlum. Sími 562 6040. i Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum OOTT FÓLK / SlA - 426

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.