Morgunblaðið - 17.01.1996, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 17.01.1996, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 LANDIÐ VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Sveinn Runóifsson landgræðslustjóri á borgarafundi á Hellu Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir HUSFYLLIR var á bogarafundi í Hellubíói þar sem m.a. var fjallað um friðun á Rangárvallaafrétti. Rangárvallaafr éttur illa farinn af uppblæstri Hellu - Á fjölmennum borgarafundi sem haldinn var á Hellu fyrir stuttu flutti Ólafur Arnalds, jarðvegsfræð- ingur RALA, erindi um ástand Rangárvallaafrétts. Kom fram í máli hans að afrétturinn flokkast með fimm verst fömu afréttum á landinu en 41,5 prósent hans eru mjög illa farin af rofi og önnur stór svæði í mikilli hættu verði ekkert að gert. í framsöguerindi Óla Más Aronssonar, oddvita Rangárvalla- hrepps, kom fram að hreppsnefndin hefði samþykkt á síðasta ári að friða afréttinn í áföngum. Skiptar skoðanir um friðun Óli Már Aronsson taldi upp rök með og á móti friðuninni, en þyngst með friðun vega tilmæli Land- græðslunnar og RALA, en önnur atriði svo sem sparnaður sveitarfé- lagsins við smölun og fjallskil, yfír- ráð heimamanna og úrræði þeirra komi til friðunar skiþta einnig miklu máli. Þá nefndi hann einnig ímynd Ekki spurning um hvort heldur hve- nær afrétturinn verður friðaður sauðfjárbúskapar á ofbeittu landi. Rökin á móti friðun eru þau helst að bændur kunna að tapa hlunnind- um og yfirráðum, smölun yrði að fara fram þrátt fyrir friðun, þjóðleg- ar hefðir við smölun, göngur og réttir myndu leggjast af. Margir bændur á svæðinu telji afréttinn ekki svo illa farinn og hafi hann gróið mjög mikið upp á síðustu ára- tugum. Öll beit á auðnum ofbeit Ólafur Amalds jarðvegsfræðing- ur benti á að fáar skepnur þyrfti til að viðhalda auðnum, þar sem sauðféð sækir í næringarríkan ný- græðinginn og auðnirnar grói þess vegna mjög seint upp af sjálfu sér. En með friðun og sáningu tæki þetta mun skemmri tíma. Auk þess væri umhverfi eldfjalla eins og Heklu ekki beitarhæf svæði og væri þ.a.l. nauðsynlegt að friða einnig nærliggjandi afrétti. Friðlýsing Heklu og nágrennis Á síðasta ári kom hópur landeig- enda sem búa nærri Heklu með áskorun til Náttúruverndarráðs um friðlýsingu Heklusvæðisins. Sigur- geir Guðmundsson í ferðamála- nefnd Rangárvallahrepps fjallaði um málið frá sjónarhóli hreppsins sem hann sagði ekki á móti friðlýs- ingu að uppfylltum vissum skilyrð- um. Með friðlýsingu mætti ekki koma í veg fyrir eðlileg afnot land- eigenda, tryggja bæri hugsanlega möguleika til orku- og jarðvinnslu og aðgang ferðamanna að svæðinu. Fyrirhugaðir eru fundir um málið með hagsmunaaðilum. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson HORÐUR Askelsson við æfingar í ísafjarðarkirkju á mánudag. Nýtt orgel vígt í ísafjarðarkirkju Batnandi atvinnuástand á Húsavík Húsavík - Á umráðasvæði Vinnu- miðlunar Húsavíkur, sem er Háls- hreppur til Tjörness ásamt Húsavík, var atvinnuleysi á síðastliðnu ári minna en árið áður. Á árinu 1995 voru greiddar 45.875 kr. í 29.149 daga en árið áður, 1994, 47.687 kr. í 30.111 daga. Minna atvinnuleysi milli ára var á Húsavík, í Skútustaða-, Bárð- dæla- og Tjörneshreppum en meira atvinnuleysi en árið áður var í Aðal- dæla-, Reykdæla-, Ljósavatns-, Háls- og Reykjahreppum. ísafirði - Haldnir verða sérstakir orgeltónleikar í hinni nýju ísa- fjarðarkirlgu miðvikudaginn 17. janúar kl. 20.30 í tilefni af því að verið er að taka þar í notkun nýtt og stórt pípuorgel. Að loknu ávarpi formanns sóknarnefndar mun Hörður Áskelsson, organisti við Hall- grímskirkju, leika á orgelið nýtt tónverk sem Jónas Tómasson tónskáld var sérstaklega fenginn til að senya vegna þessarar at- hafnar en það nefnist Úr guð- spjöllunum - sjö hugleiðingar fyrir orgel. Einnig mun Hörður leika eitt tónverk eftir J.S. Bach og kirkju- kór ísafjarðarkirkju mun syngja nokkur lög við undirleik organ- ista kirkjunnar, Huldu Braga- dóttur. Viðræðum Boeing og McD Douglas hætt London. Reuter. BOEING Co og McDonnell Douglas Corp hafa lokið könnunarviðræðum um samruna, aðallega vegna þess að samkomulag hefur ekki náðst um verð McDonnells og val á fram- kvæmdastjórum sameiginlegs fyrir- tækis, að sögn Wall Street Journal Europe. Þar með hefur verið fórnað tæki- færi til að koma á fót forystufyrir- tæki í flugvélasmíði í heiminum að sögn blaðsins. Ekkert lát verði á harðri samkeppni á þessu sviði og hvort fyrirtæki um sig muni kanna kaup á öðrum fyrirtækjum. Viðræð- urnar hófust fyrir alvöru í nóvember og vöktu furðu innan beggja fýrir- tækja í fyrstu, en brátt sannfærðust verkalýðsleiðtogar og starfsmenn um að fyrirætlunin hefði ýmsa kosti. CS First Boston og lögfræðifyrir- tækið Cravath, Swaine & Moore komu fram fyrir hönd Boeing í við- ræðunum, em McDonnells til ráðu- neytis voru J.P. Morgan & Co og Davis, Polk & Wardwell. Vildu toppverð Boeing beitti sér fyrir samruna frá upphafi, en fyrirtækin könnuðu einnig möguleika á að selja hvort öðru eignir. Að lokum fékkst Bo- eing ekki til að greiða toppverð, sem framkvæmdastjórar McDonnells fóru fram á. Ef kaup hefðu komið til greina hefði mátt meta McDonnell á 12 milljarða dollara eða enn hærri upp- hæð. Ásakanir um hringamyndun kynnu að hafa valdið miklum vanda. FOKKERVERKSMIÐ JURN AR hafa átt í miklum rekstrarörðugleikum upp á síðkastið. Fokker nær séreftirgabb Amsterdam. Reuter. VERÐ hlutabréfa í hollenzku flug- vélaverksmiðjunum Fokker NV lækkaði um einn þriðja í fyrradag vegna falsaðs símbréfs um meira tap á fyrirtækinu en talið hefur verið, en verðið hækkaði aftur þeg- ar á daginn leið. „Mörgum röngum upplýsingum um Fokker hefur verið dreift á undanförnum vikum, bersýnilega til að hafa áhrif á verð hlutabréfa, og þetta virðist enn eitt dæmi þess,“ sagði Leo Steijn talsmaður. Falsaða símbréfið var með bréf- haus móðurfyrirtækisins Daimler Benz Aerospace (DASA) og var sent hollenzka blaðinu De Volk- skrant um helgina. Hlutabréf í Fokker lækkuðu fyrst um 3,90 gyllini í 6,60, en hækkuðu síðan í 9,70. Verðið var 10,50 gyll- ini við lokun á föstudag þannig að lækkunin nam að lokum aðeins 0,80 gyllinum. Steijn sagði að símbréfið væri greinilega falsað, því að DASA hefði ekki skrifstofu í Dusseldorf sem bréfið kom frá. Auk þess var það á ensku, en ekki þýzku, og óundirritað. > > * I I í í r i Granada nælir sér í 9,2% í Forte , London. Reuter. GRANADA-sjónvarpið hefur nælt sér í 9,2% hlutabréfa í Forte-hótel- fyrirtækinu, sem það reynir að komast yfir fyrir 3.88 milljarða punda. Forte sagði kaupin bera vott um örvæntingu og kveðst öruggt um að geta haldið sjálfstæði sínu. Granada kvaðst hafa keypt bréf- in fyrir milligöngu systurfyrirtæk- is, Allquiet Trading Ltd, og sér- fræðingar í hlutabréfum segja að sigurlíkur Granada virðist aukast með hveijum deginum sem líður. Tilboð Granada rennur út 23. jan- úar. Fréttin varð til þess að hlutabréf í Forte hækkuðu í verði og síðdeg- is höfðu þau hækkað um 15 pens í 381. Hlutabréf í Granada hækk- uðu um 21 pens í 691. Völdunum skipt í stjórn Forte Fyrir skömmu ákvað stjórn Forte að verða við kröfum hluthafa og og aðskilja hlutverk stjórnarform- anns og forstjóra. Sir Rocco Forte, sem gegnir báðum þessum embætt- um, sagði í yfírlýsingu að Sir Anth- ony Tennant yrði framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, en ekki æðsti stjórnandi, frá 1. fehrúar, en Tenn- ant hefur verið varastjórnar- formaður Forte í þijú ár. „Of lítið, of seint“ Granada segir um breytingarnar í stjórn Forte að þær séu „of litlar og of seint á ferðinni" og að ekki sé tekið tillit til óska hluthafa um að nýr forstjóri verði skipaður. „Aðeins titlum er breytt“, sagði forstjóri Granada, Gerry Robinson í yfirlýsingu. „Tennant hefur verið varastjórnarformaður í þijú ár og Forte forstjóri í 13 ár. Frammistaða fyrirtækisins á þessum 13 árum talar sínu máli“. Tennant kallaði ummæli Robin- sons „írskt bull“. I I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.