Morgunblaðið - 17.01.1996, Page 16
V
16 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996
FRÉTTIR: EVRÓPA
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Er efnahagurmn of
bágur fyrir EMU?
Brussel, París, London. Reuter.
HÆGARI efnahagsbati í Evrópu en
stjórnvöld margra Evrópusambands-
ríkja vonuðust eftir, veldur því að æ
fleiri draga nú í efa að áformin um
Efnahags- og myntbandalag Evrópu
(EMU) geti orðið að veruleika í árs-
byijun 1999. Athygli efnahagssér-
fræðinga beinist ekki sízt að Þýzka-
landi, en frammistaða Þjóðveija í
efnahags- og peningamálum á
næstu tveimur árum mun ráða úr-
slitum um það hvort EMU-áætlunin,
sem leiðtogar Evrópusambandsins
samþykktu í síðasta mánuði, fær
staðizt.
Embættismenn og stjómmála-
menn keppast hins vegar við að bera
fréttir um nýja kreppu til baka. Alex-
andre Lamfalussy, forseti Evrópsku
peningamálastofnunarinnar (EMI),
sem er fyrirrennari evrópsks seðla-
banka, sagði í viðtali við Financial
Times á mánudag að vissulega hefði
hægt á efnahagsbatanum í Þýzka-
landi og annars staðar í Evrópu. „Ég
er hins vegar ekki jafnsvartsýnn og
margir virðast nú vera, vegna þess
að ég sé enga hefðbundna fyrirboða
niðursveiflu í viðskiptaiífinu," sagði
Lamfalussy.
Hann sagði að ágóði fyrirtækja
hefði ekki minnkað og þau hefðu
heldur ekki aukið skuldir sinar, en
þetta tvennt hefði verið fyrirboði
allra niðursveiflna síðastliðna eina
og hálfa öld.
Yves-Thibault de Silguy, sem fer
með efnahags- og peningamál í
framkvæmdastjóm Evrópusam-
bandsins, tók í sama streng á blaða-
mannafundi í Bmssel og sagði að
grundvallaratriðin í efnahagslífi Evr-
ópusambandsins væru í góðu lagi.
Hann .sagði að jafnvel þótt menn
hefðu mikið ímyndunarafl, væri ekki
hægt að halda því fram að Evrópa
sigldi nú inn í nýja kreppu.
Sameiginleg yfirlýsing Frakka
og Þjóðveija um aðgerðir
Agence Europe greindi frá því á
mánudag að Frakkland og Þýzkaland
hygðust á næstu vikum gefa út sam-
eiginlega yfirlýsingu um aðgerðir til
að styrkja efnahaginn. Öðmm Evr-
ópuríkjum yrði boðið að eiga aðild
að slíkri yfirlýsingu, til þess að að-
gerðirnar fengju „evrópskt yfir-
bragð.“
Þær aðgerðir, sem nauðsynlegar
eru til að ná niður fjárlagahallanum,
geta þó orðið sársaukafullar. Þjóð-
veijar þurfa að ná hallanum niður
úr 3,6% af landsframleiðslu á síðasta
ári niður fyrir 3% markið, sem til-
greint er í Maastrieht. Hans Gunter
Redeker, hagfræðingur hjá Chemieal
Bank í London, segir að til þess að
ná því markmiði verði þýzka stjórnin
að skera niður útgjöld um 50 millj-
arða marka, eða 2.250 milljarða ís-
lenzkra króna. Samneyzlan, sem
hafi stuðlað að auknum hagvexti á
síðasta ári, muni þá dragast saman
og hafa neikvæð áhrif á hagvöxtinn.
Samstarfsörðugleikar stjómar-
flokkanna í Þýzkalandi em sömuleið-
is líklegir til að valda vandræðum,
en ýmsir þingmenn Frjálsra demó-
krata (FDP), samstarfsflokks Kristi-
legra demókrata í stjóminni, vilja
lækka skatta. Theo Waigel fjármála-
ráðherra sagði á mánudag að stjóm-
in myndi falla „innan sekúndu" ef
þingmenn FDP greiddu atkvæði
gegn næstu fjárlögum.
Færi svo að þýzka stjórnin félli
vegna ágreinings um ríkisfjármál,
myndi stjórn Frakklands að margra
mati sömuleiðis missa móðinn í bar-
áttunni við fjárlagahallann og þar
með væm EMU-áformin úr sögunni
í bili.
Michel Camdessus, yfírmaður Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins, kom á mánu-
dag af fundi Jacques Chirac, forseta
Frakklands, og sagði að forsetinn
hefði fullvissað sig um að hann myndi
halda áfram á braut umbóta í velferð-
arkerfínu til að lækka ríkisútgjöldin.
Camdessus sagði enga kreppu á
næsta leiti, heldur væri eðlilegt að
nú hægði lítið eitt á hagvexti. Hann
sagðist jafnframt viss um að Þjóð-
veijum tækist að uppfylla skilyrði
Maastricht.
Reuter
YVES-Thibault de Silguy, sem fer með efnahags- og peningamál
í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sagði á blaðamanna-
fundi í Brussel að hægt hefði á efnahagsbatanum í Evrópu, en
ekki væri um neina kreppu að ræða.
Opnað fyrir sam-
keppni í farsímakerfum
Brussel. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins (ESB) samþykkti
í gær reglur sem skylda ríkis-
stjórnir aðiidarrikjanna til að
koma á samkeppni i farsíma- og
símakerfum sinum.
Samkomulag náðist um regl-
urnar í desembermánuði en ekki
var hægt að samþykkja þær form-
lega fyrr en nú þar sem eftir átti
að þýða þær yfir á öll opinber
tungumál sambandsins.
í reglunum felst að ríkisstjórnir
verða að afnema ríkiseinokun á
farsímakerfum tuttugu dögum
eftir að þær birtast í Official Jour-
nal, lögbirtingarblaði sambands-
ins. Ríkissljórnir verða að gera
framkvæmdastjórninni grein fyrir
því eftir níu mánuði hvernig miðar
að koma reglunum í framkvæmd.
I því felst þó ekki að þær hafi níu
mánaða frest. Reglurnar taka
gildi þegar í stað.
Reglumar vom samþykktar i
skjóli ákvæðis í 90. grein Rómar-
sáttmálans sem heimilar fram-
kvæmdastjórninni að taka ákvarð-
anir af þessu tagi án þess að ríkis-
stjórnir ESB-ríkjanna komi form-
lega við sögu.
Spánn, Portúgal, írland og
Grikkland fá fimm ára aðlögunar-
tíma að nýju reglunum og Lúxem-
borg tveggja ára.
Eitt umdeildasta ákvæði nýju
reglanna er ákvæði sem heimilar
einkafyrirtækjum að byggja upp
eigin dreifingarkerfi án samráðs
við ríkissímakerfin.
„ ^ Reuter
I ATOKUNUM við tsjetsjensku skæruliðana hefur rússneski herinn beitt fallbyssum, eldflaugum,
fallbyssuþyrlum og þungum vélbyssum en í gær veittu þeir enn harða mótspyrnu. Er þetta mál
mjög alvarlegt fyrir Jeltsín enda er óttast, að margir gíslanna hafi látið lífið í sprengjuhríðinni.
Verður Tsjetsjníja
Jeltsín að falli?
Innrásin í Tsjetsjníju átti að vera til marks um styrkleika
en hefur opinberað getuleysi hersins og vanmátt Jeltsíns
London. The Daily Telegraph.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands,
og stuðningsmenn hans lýsa aðferð-
um sínum við að frelsa gísla tsjetsj-
ensku skæruliðanna í Pervoma-
ískoje sem illri nauðsyn, sem gripið
hafi verið til þegar öll önnur ráð
voru þrotin. Hann gæti líka sagt
sem svo, að stjórnmálamenn á borð
við hann sjálfan yrðu stundum að
taka erfíðar ákvarðanir, sem venju-
legir borgarar veigruðu sér við.
Sömu rökin, að allt hefði verið
reynt til þrautar, voru notuð til að
réttlæta innrásina í Tsjetsjníju fyrir
rúmu ári en önnur og mikilvægari
rök komu þá líka við sögu: Þörfin
á að hressa upp á ímynd Jeltsíns
sem hins sterka manns þjóðarinnar.
Sú tilraun mistókst hrapallega.
Herförin til Tsjetsjníju sýndi aðeins
fram á veikleika rússneska hersins
og yfirboðara hans, Jeltsíns, og
getuleysið og spillingin eru nú öllum
augljós. Tsjetsjenskir skæruliðar
hafa auðmýkt yfirvöldin í Moskvu
með því að ráðast í tvígang langt
inn á rússneskt land og það má
ekki gleymast, að ástandið í
Tsjetsjníju er þeim mun mikilvæg-
ara fyrir það, að forsetakosningar
verða í Rússlandi innan hálfs árs.
Jeltsín ætlar að tilkynna fyrir
miðjan febrúar hvort hann gefur
kost á sér í forsetakosningunum en
nú þegar er ljóst, að framganga
stjómarinnar í gíslamálinu verður
harðlega gagnrýnd. Það mun svo
aftur verða til að einangra Jeltsín
og Víktor Tsjernomyrdín, forsætis-
ráðherra hans, og rýja þá öllu
trausti.
Kemur gíslamálið í veg fyrir
framboð Jeltsíns?
Innrásin í Tsjetsjníju og það, sem
síðan hefur gerst, virðist aðeins
sýna, að ráðamennirnir í Kreml eru
ekki neinir stjórnvitringar, heldur
viðvaningar, sem reyna að breiða
yfir eigið klúður með því að beita
aflsmunum.
Borís Jeltsín er augljóslega að
renna sitt síðasta skeið sem forseti
Rússlands. Atburðirnir í Pervoma-
ískoje munu ekki verða til að halda
á loft minningu hans sem „sterka
mannsins". Meiri líkur virðast á,
að hann verði uppnefndur „Blóðugi
Borís“ h'kt og síðasti keisarinn, sem
fékk viðurnefnið „Blóðugi Nikulás"
eftir að tugir manna voru skotnir
á götum Pétursborgar 1904.
Uppslátturinn sem brást
í augum margra Rússa er valda-
tími Jeltsíns ekki síður tengdur
blóðugum átökum en umbótum og
endalokum kommúnismans. Sumir
kenna honum um óöldina eftir að
Sovétríkin hrundu, um uppreisnar-
tilraun þingsins og slátrunina í
Tsjetsjníju.
Ráðgjafar Jeltsíns höfðu rétt fyr-
ir sér þegar þeir ákváðu, að smá-
stríð í Tsjestjníju gæti orðið honum
til mikils framdráttar. Skjótur sig-
ur, lítið mannfall og sjónvarps-
myndir af fagnandi Tsjetsjenum
hefðu verið mikill uppsláttur fyrir
forsetann.
Vandamálið er, að stríðið hefur
hvorki verið lítið né eingöngu bund-
ið við Tsjetsjníju. Jafnvel þeir, sem
varkárastir eru, áætla, að 40.000
manns hafi fallið og Tsjetsjenar
hafa flutt átökin yfír á rússneskt
land. Hver einasta kista, sem heim
kemur með lík rússnesks her-
manns, ætti að minna Jeltsín á, að
Tsjetsjníjustríðið er ekkert smámál
í Kákasusfjöllum. Það hefur haft
afgerandi áhrif á forsetatíð hans
og rússneskan almenning.
Góma hættuleg-
an kókaínfursta
Mexíkóborg. Reuter.
JUAN Garcia Abrego, höfuðpaur
fíkniefnahringsins Flóasamsteypan,
var handtekinn nálægt borginni
Monterrey í Mexíkó á sunnudag og
framseldur á mánudag til Banda-
ríkjanna þar sem hans bíða réttar-
höld. Hann er einn umsvifamesti
forsprakki fíkniefnasmyglara, sem
gómaður er í Mexíkó.
Garcia Abrego er 51 árs banda-
rískur ríkisborgari. Talið er að hann
hafi smyglaði kókaíni að verðmæti
20 milljarða dollara, jafnvirði 1.300
milljarða króna, á ári til Bandaríkj-
anna.
Alitið er að hann hafí varið um
50 milljónum dollara á mánuði í
mútur og það orð fer af Garcia
Abrego, að hann hafi haft það til
siðs að taka ákvarðanir um morð á
andstæðingum sínum á 17. degi
hvers mánaðar.
Bandaríska alríkislögreglan hef-
ur haft Garcia Abrego á lista sínum
yfir 10 eftirsóttustu glæpamenn.
Hefur hann gengið undir ýmiss
konar dulnefnum, svo sem dúkkan,
lávarðurinn, verkfræðingurinn,
stjórinn, sá þolinmóði, karlinn og
forstjórinn.
Mjög hefur verið reynt að hafa
hendur í hári Garcia Abrego og
hefur hann verið á stöðugum flótta
í rúmt ár. Talið er að hann hafí af
þeim sökum ekki haft full tök á
samtökum sínum. Svo var þrengt
að honum á tíma í fyrra að sam-
verkamenn hans reyndu þá að
semja um uppgjöf hans.
Garcia Abrego var ekki talinn
Reutcr
Juan Garcia Abrego í höndum
réttvísinnar áður en hann var
framseldur í fyrradag.
hættulegasti kókaínfrusti Mexíkó
er hann var klófestur. í fyrra var
Amado Carrillo Fuentes, fertugur
forsprakki Juarez-gengisins, talinn
hættulegri. Hann gengur undir við-
urnefninu himnalávarðurinn.