Morgunblaðið - 17.01.1996, Side 31

Morgunblaðið - 17.01.1996, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 31 BALDUR TRAUSTI JÓNSSON + Baldur Trausti Jónsson fæddist í Þverdal i Aðalvík 14. júní 1932. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í Garðabæ 6. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Vídalínskirkju 16. janúar. VINIR berast burt með tímans straumi. Sjálf- sagt er margt til í þess- um orðum skáldsins en hitt veit ég líka að til eru slíkir vinir að þó að þeir hverfi yfir móðuna miklu verða þeir ávallt hjá manni. Einn slíkan vin átti ég í Baldri Jónssyni, eða Bía eins og hann var kallaður af nánustu ættmönnum. Leiðir okkar Baldurs lágu fyrst sam- an á Urðarveginum á Isafirði. Þá var hann í heimsókn hjá frænku sinni kominn til að líta á stórborgarsollinn úr fásinninu á Ströndum. Hann var ekki að trana sér fram en við krakk- arnir drógust að þessum granna svarthærða strák. Það var eitthvað í fari hans og persónu sem kallaði fram hjá okkur forvitni en um leið virðingu. Hann bjó yfir einhveiju sem okkur skorti. Þó þessi fyrstu kynni yrðu stutt, því ekki hafði sveitafólkið langan tíma til frátafa frá sveita- störfum, þá urðu þau undirstaðan að skjótri og náinni vináttu þegar Baldur kom í Gagnfræðaskóla Isa- fjarðar og settist í sama bekk og ég. Sú vinátta hélst æ síðan. Ekki spillti heldur fyrir að hún Guðný, gamla góða konan sem huggaði okkur krakkana á Spítala ísafjarðar á nótt- unni, var amma hans. Löngu næturn- ar þegar gráturinn og ekkinn náðu yfirhöndinni þegar við hugsuðum um það hvort við fengjum nokkum tím- ann að sjá mömmu eða pabba sem höfðu verið send suður á Hælið þeg- ar „hvítidauði" hafði náð heljartaki á allri fjölskyldunni. Já, hann vinur minn hafði margt frá þessari hjarta- hlýju ömmu sinni. Hann mátti ekki sjá tár á vanga öðmvísi en þerra það. En Baldur var ekkert fýrir það að flíka þessum næmleik sínum á tilfínningar annarra. Oft brá hann yfir sig kerksninni eða gráglettninni en kímnigáfa hans var einstök. Þessi hæfíleiki hans að sjá ávallt út spaugi- legar hliðar á lífínu létti honum marga raunina og kætti geð sam- ferðamanna hans oft. Baldur naut ekki síður virðingar skólafélaganna í gagnfræðaskólanum en Hlíðarpúk- anna á Urðarveginum er hann fýrst heimsótti Isaíjörð. Enda var það eng- in furða. Það lék honum flest í hendi og ekki síður í orði. Hann var „popp- stjarna" þess tíma. Lék fyrir dansi á böllum í skólanum og þegar farið var í útilegur í Birkihlíð. Þá þegar kom í ljós hversu vel lesinn hann var og hver ógrynni af ljóðum hann kunni. Þar var hann langtum fremri okkur strákunum á mölinni. Hann vildi gjarnan opna þennan heim skálda fyrir vinum sínum. Ég minn- ist sérstaklega eins atviks er Guð- mundur Hagalín kom í skólann á bókmenntakynningu. Þá sagði Bald- ur við okkur vini sína, „nú sitjið þið kjurrir strákar, steinþegið og hlustið vel“. Flutningur Guðmundar á kvæð- inu Abba labba lá, hefur aldrei gleymst. Við Baldur urðum samferða í Sam- vinnuskólann ári eftir lok gagn- fræðaskólans. Þar vorum við sessu- nautar eins og áður. Þar nutum við frábærra kennara en skólinn var þá ennþá undir skólastjóm Jónasar frá Hriflu. Jónas kom víða við í sínum tímum og tíðrætt var honum um ástina. Einu sinni benti hann í áttina til Baldurs og sagði; „e he sjáið þið til stúlkur," en þær voru fjórar í bekknum, „ef þið viljið kynnast róm- antískum mönnum þá skuluð þið velja menn með svona svart hár.“ I tilfelli Baldurs hafði meistarinn rétt fyrir sér. Hann hafði mikinn næm- leika fyrir allri fegurð, hvort sem hún fólst í manneskju, umhverfí eða list- um. Þessi skynjun hans setti oft hugarflug.og drauma á fleygiferð. Sú vinátta sem við hnýtt- um í æsku hefur ávallt verið traust. Kvöldið áður en hann lést áttum við ánægjulegt samtal eins og svo oft áður. Þá var honum tíðrætt um æskustöðvamar og sólargeislana sína bamabörnin eins og svo oft í seinni tíð. Baldur hefur til margra ára átt við heilsubrest að stríða, en í því stríði eins og öðmm hefur hans styrka stoð verið hans ágæta eiginkona, Vigfúsína Thorarensen Clausen. Ég vil með þessum línum senda henni og öllum ættingjum innilegar samúðarkveðjur um leið og ég kveð æskuvin og þakka honum fyrir hans tryggu og löngu vináttu. Haukur Helgason. Baldur Tr. Jónsson fyrrv. fram- kvæmdastj. varð bráðkvaddur á heimili sínu á þrettánda dag jóla, 6. janúar sl. Baldur fæddist í Þverdal í Aðalvík og ólst upp hjá foreldrum sínum á nýbýli þeirra Borg úr landi Garða Sæbólsmegin í Aðalvík. Bald- ur ólst upp við öll venjuleg störf land- búskapar og sjóróðra. Um sextán ára aldur fór hann að heiman alfarinn; með skóla stundaði hann þá sumarat- vinnu í síldarverksmiðjunni í Djúpu- vík í Reykjarfirði á Ströndum. Að loknu samvinnuskólaprófí hóf hann störf hjá Helga Benediktssyni útg. í Vestmannaeyjum. Þar hlaut hann góða reynslu, sem nýttist hon- um vel við fyrirtækjarekstur síðar. Jónas frá Hriflu skólastj. réð honum að taka það starf að loknu prófi; taldi hann betur náttúraðan fyrir þær sviptingar, sem gerðust í útgerðar- vafstri, en skrifstofuvinnu hjá ein- hveiju kaupfélagi eða í opinberum rekstri enn síður. Baldur var í tvö ár hjá Helga Ben. í Vestmannaeyjum. Var síðan verslstj. hjá Kaupfélagi Suðumesja í tvö ár en eftir það gerðist hann framkvstj. hjá íshúsfélagi ísfírðinga hf. tuttugu og tveggja ára að aldri. Það varð síðan starf hans blómann úr ævinni að stjórna fyrirtækjum í útgerð og fískvinnslu. . Baldur var athugull og fylginn sér í þessum störfum. Hann var hug- myndaríkur og hafði frumkvæði að ýmsum framkvæmdum. Útgerð var honum sérstaklega hugleikin. Hann lét sér mjög annt um þau fyrirtæki, sem hann stjómaði og þá einnig starfsmenn þeirra. Baldur var mjög skapríkur maður og liann átti það til að ijúka upp, ef honum þótti að hann ætti ósanngirni að mæta og þyrfti að veija rétt eða hagsmuni fyrirtækja sinna eða starfsmanna sinna. En reið- in rauk fljótt úr honum og eftir litla stund var hann aftur orðinn blíður á manninn. Gagnvart starfsmönnum sínum stillti hann skap sitt vel og batt ævilöng vináttubönd við marga þeirra. I öllu dagfari var hann vinsam- legur og tillitssamur. Baldur þjáðist frá ungum aldri af of háum blóðþrýstingi og árið 1976 varð hann fyrir hjartaáfalli. Hann þurfti að fara í hjartaaðgerð til Lund- úna og var lengi að ná sér eftir það. Raunar gekk hann ekki heill til skóg- ar síðan og þurfti jafnaðarlega að taka meðul við þessum sjúkdómi, sem að lokum varð hans banamein. Ég undirritaður kynntist Baldri fljótt eftir að ég kom til starfa hjá Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna árið 1958 og varð okkur vel til vina og hefir haldist síðan. Við höfum og lengst af starfsævinni átt töluvert saman að sælda meðal annars sem sameignarmenn í Langeyri hf. Góður vinskapur tókst og með konu hans Vigfúsínu og okkur hjónum. Einkasonurinn Jón Dofri var þeim hjónum Baldri og Sínu mikill ljós- geisli og gleðigjafí í lífinu. Ekki sízt urðu sonardæturnar Baldri ríkuleg uppspretta gleði og hamingju hin síðustu ár. Hafði hann ævinlega orð á því þegar við hittum hann eða áttum tal við hann í síma. Við Þorgerður sendum Vigfúsinu, Jóni Dofra og fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðj- um þeim líknar í harmi þeirra. Jafn- framt biðjum við Baldri góðrar heim- komu eftir vistaskiptin. Helgi G. Þórðarson. Félagar í Framsóknarfélagi Garðabæjar og Bessastaðahrepps kveðja nú formann sinn Baldur T. Jónsson. Undanfarin tvö ár hafði Baldur gegnt þessu starfi í félagsskap okk- ar af einstakri trúmennsku og áhuga þrátt fyrir veikindi sín. Á þessum tíma urðu allmiklar breytingar á högum Framsóknarfélagsins, veru- leg endurnýjun átti sér stað og keypt var húsnæði undir starfsemina. Segja má að öll hálfvelgja hafi verið Baldri mjög á móti skapi, eins og Vestfírðinga er háttur. Annað- hvort skyldi skrefið stigið til fulls eða alls ekki. Baldur, sem sagðist koma úr félagsþroskuðu umhvei'fí að vestan var oft undrandi yfír meintu kæruleysi og áhugaleysi fé- lagsmanna og oft gat fokið í minn mann vegna þessa. Þó leiðir okkar Baldurs hafí ekki legið saman nema síðustu 2 til 3 árin urðu kynni okkar allnáin þennan tíma. Baldur þreyttist seint á að hleypa okkur sem yngri vorum kapp í kinn og sagði gjaman því til stað- festingar að vestur á fjörðum hefði ungum mönnum verið helst treyst- andi fyrir skipstjórn. Þeir hefðu haft kappið og þorið og því aflað betur en hinir sem eldri voru. Merkilegt þótti mér að Baldur ólst upp í Aðal- vík á Hornströndum, byggð sem fyrir löngu er aflögð. Ræddum við oft um lífsbaráttuna og náttúrufar þar norðurfrá. Ekki er að efa að þessi uppmni Baldurs mótaði per- sónu hans sterkt. Skömmu fyrir andlát Baldurs áttum við langt sam- tal um framtíð byggðar á Vestíjörð- um. Afstaða hans sem Vestfírðings var allsérstæð, en hann áleit að eng- inn mannlegur máttur gæti stöðvað fólksflóttann frá Vestfjörðum. Það væri sama hvað samgöngur yrðu bættar og sú óværa sem hreiðrað hefði um sig í fólkinu yrði ekki svo auðveldlega kæfð. Á aðalfundi Framsóknarfélags Garðabæjar og Bessastaðahrepps nú í haust tilkynnti Baldur að hann gæfí ekki kost á sér til áframhald- andi stjómarstarfa fyrir félagið. Hann fór ekki leynt með þá skoðun sína að Framsóknarflokkurinn væri í vondum félagsskap í ríkisstjóm með Sjálfstæðisflokknum. Enda mótaðist stjórnmálaskoðun og lífs- sýn Baldurs mjög svo af samhjálp og félagshyggju, en auðhyggja og sérgæska var honum ekki að skapi. Baldur dæmdi þó ekki fólk eftir stjórnmálaskoðunum, vini átti hann í öllum flokkum og mér er ekki ör- grannt um að hann hafi verið með mestu aðdáendum Matthíasar Bjarnasonar. Minningin um góðan dreng lifir og fyrir hönd Framsóknarfélags Garðabæjar og Bessastaðahrepps sendi ég eftirlifandi eiginkonu Bald- urs, Vigfúsínu Clausen, syni hans og tengdadóttur innilegustu samúð- arkveðjur. Einar Sveinbjörnsson. Frændi minn og vinur Baldur Trausti Jónsson frá Borg í Aðalvík er látinn. Andlát hans þurfti ekki að koma okkur, sem þekktum hann, á óvart, því hann hafði verið hjarta- veill um árabil og hlífði sér hvergi. Hugur hans stóð þó ávallt til stórra verka í framhaldi af glæsilegum starfsferli, ekki síst á Ísafjarðarár- unum þar sem hann lét mest til sín taka. Hann varð ungur forstjóri ís- húsfélags ísfirðinga hf. og síðar Hraðfrystihússins Norðurtanga og í þessum störfum hreif hann menn með sér í uppbyggingu, lét reisa hús og byggja skip og hvatti menn til dáða. Hann var skapmaður mikill en jafnframt tilfinninganæmur og mikill félagi og vinur samstarfs- manna sinna. Hann var stórhuga athafnamaður, greindur og kjark- mikill húmoristi sem naut sín vel á þeim vettvangi sem hann kaus sér í lífinu. Forusta og mannaforráð fóru honum vel, því þrátt fyrir lund- erni eldhugans var hann drengur góður. Hann hefði vafalaust talið að þessi minningargrein mín væri meingöll- uð, þar sem ekkert væri um ártöl og enn minna um ættfræði, en til að bæta hér örlítið úr, er rétt að geta þess að ættir Baldurs liggja bæði í Þingeyjarsýslu og Húnavatns- og þegar slík bætiefni blandast vestfirsku blóði hlýtur skýringin að liggja í augum uppi. Þótt atvinnulífið tæki mestan tíma . á meðan Baldur var og hét, voru áhugamál hans margvísleg. Hann átti gott og vandað bókasafn sem hann umgekkst með virðingu og gleði, enda komu menn ekki að tóm- um kofunum hjá honum. Ættfræði og saga skipuðu stóran sess í lífi hans og engan þekki ég sem var betur að sér um samferðamenn sína og ættmenni. Þá var hann sérlega vel að sér í mannkynnssögu og hreinn sérfræðingur í sögu stríðsár- anna. Þar tel ég að kynni hans af bresku hermönnunum í Aðalvík á tímum seinni heimsstyijaldarinnar hafí mótað áhuga hans, en hann dáðist mjög að Bretum og breskum hefðum. Tónlistin var eitt af áhugamálum Baldurs frænda míns. Hann var mjög músíkalskur, spilaði á harm- oniku og píanó, en ánægjulegast fannst honum að ég held að spila í lúðrasveit. Margar góðar minningar eru tengdar Lúðrasveit ísafjarðar þar sem hann var einn af máttar- stólpum og spilaði á básúnu. Á ísa- fjarðarárunum hóf hann að stunda hestamennsku og hélt því áfram eftir að hann fluttist til Hafnarfjarð- ar og síðar í Garðabæ og reyndar byggði hann sér hesthús í Súganda- firði, þegar hann tók að sér fram- kvæmdastjóm fyrir Fiskiðjuna Freyju í nokkur ár. Hestamennskan færði honum mikla gleði á meðan heilsan leyfði, en þegar hann fann að hann gat ekki sinnt hestum sínum sem skyldi, var ekki annað að gera en hætta. Baldur Jónsson var pólitískur maður. Hann hafði numið hjá Jónasi frá Hriflu í Samvinnuskólanum og fylgdi alla tíð samvinnuhugsjóninni. Hann var einn af máttarstólpum Framsóknarflokksins, en gat þó ver- ið afar harður gagnrýnandi og hellti oft úr skálum reiði sinnar, ef honum mislíkaði við forustumenn flokksins. + Bára Alla Júlíusdóttir fæddist 23. júlí 1946 í Hafn- arfirði. Hún lést 22. desember siðastliðinn og fór útförin fram frá Víðistaðakirkju 29. desem- ber. Nú ertu heimsins laus úr leik því lokið stríði er. Ég veit þú hugi allra átt sem eitthvað kynntust þér. En kærleiksgeislar krýna þig við kvöldsins sólarlag og bami sínu er moldin mild, við minnumst þess i dag. (Elías Þórarinsson, Vestfirsk ljóð.) Mig langar að minnast Báru vin- konu minnar og starfsfélaga með nokkrum fátæklegum orðum, en hún lést í Borgarspítalanum 22. desember eftir erfið veikindi. Það er mikil eftirsjá að Báru því hún var afar góður starfsfélagi og vin- ur, en mest er eftirsjáin hjá eigin- manni hennar og elsku börnunum sem voru augasteinar hennar, for- eldrum og systkinum. Báru kynntist ég fyrir nokkrum árum þegar hún fór að vinna með mér á gæsluvellinum við Kirkjuveg í Hafnarfírði, og siðan á Miðvangin- um. Mér líkaði strax vel við Báru enda var ekki annað hægt, hún var þannig persóna, svo hlý og vildi öllum vel. Við gátum trúað hvor Gagnrýni hans var þó, að því er mér fannst, oftast réttmæt og mun hann eigi sjaldan hafa verið forustumönn- um Framsóknarflokksins til ráðu- neytis í mikilsverðum málum. Þá _ naut hann virðingar fjölmargra ' ráðamanna í öðrum flokkum og leiddi menn oft til samstarfs þótt sjónarmið væru ólík. Hann var sam- vinnumaður í þess orðs fyllstu merk- ingu. í einu af síðustu símtölum okkar frænda, en síminn var ávallt nær- tækur, ræddi hann af miklum þunga um misréttið í þjóðfélaginu. Hann varaði við þeirri þróun, sem orðið hefur nú síðustu árin, að sífellt stærri hópur fólks býr nú við fátækt- armörk á sama tíma og stóreigna- menn verða sífellt ríkari. Honum van - mikið niðri fyrir og taldi að Fram- sóknarflokkurinn þyrfti virkilega að athuga sinn gang í þessum efnum. Þá taldi hann að vinna mætti bug á atvinnuleysinu með róttækum, þjóð- legum aðgerðum, sem tækju fyrst og fremst mið af hagsmunum íslend- inga sjálfra, en dró í efa að ráðherr- ar og þingmenn hefðu kjark til að gera það sem gera þyrfti. Hann var raunsær maður. í þessum fátæklegu kveðjuorðum hef ég ekki minnst á konu Baldurs, Vigfúsínu Thorarensen Clausen, en allt frá því þau kynntust hvort öðru, ung að árum, hafa þau ekki mátt hvort af öðru sjá. Hjónaband þeirra var engin lognmolla, til þess að svo^- hefði verið hefðu þau þurft að vera ólíkari, en í gegnum lífíð hafa þau stutt hvort annað, virt og elskað. í erfíðum veikindum Baldurs hefur Vigfúsína sýnt mikinn dugnað og kjark, þótt hún sjálf gangi ekki heil til skógar. Sonur þeirra Baldurs og Vigfúsínu er Jón Dofri, sem ásamt konu sinni Láru hefur fært þeim þijár yndislegar afa og ömmu stelp- ur. Þær sjá nú á bak góðum afa, sem þrátt fyrir veikindi sín afrekaði m.a. að smíða fyrir þær lítið hús,^ sem mun minna þær á hann þar sem það stendur í garðinum þeirra. Hann afi þeirra lét verkin tala, liann var stórbrotinn maður sem við söknum mjög. Við heimilisfólkið að Skipagötu 2 á ísafirði þökkum Baldri Jónssyni ánægjulegar samverustundir. Þær verða ekki fleiri að sinni. Við sendum Vigfúsínu, Jóni Dofra og Láru og dætrunum þeirra svo og þeim öðrum, er stóðu Baldri Jónssyni nærri, hug- heilar samúðarkveðjur. Magnús Reynir Guðmundsson. annarri fyrir ýmsu, og það fór ekk- ert lengra. Bára var sérstaklega barngóð, henni fannst hún eiga alla þessa litlu anga, og eftir að hún veiktist kom hún í heimsókn þegar hún treysti sér, svona aðeins til að hitta börnin sín og knúsa þau svolít- ið. Svona var Bára. Við Lóa eigum eftir að sakna hennar mikið á Mið- vanginum. Við Bára áttum langt símtal stuttu áður en hún fór aftur á spítal- ann, og hún var svo bjartsýn, nú færi hún að koma til okkar aftur þegar liði á vorið og allt yrði eins og áður. Það hvarflaði ekki að mér að þetta væri í síðasta sinn sem ég talaði við hana, en svona er lífið, við vitum sem betur fer aldrei hvað næsti dagur ber í skauti sér, henni hefur kannski verið ætlað eitthvert annað hlutverk Guðs um geim. Ég kveð elsku Báru og bið henni Guðs blessunar í nýjum heimkynn- um. Elsku Harpa mín, Davíð, Geir, foreldrar og systkini, ég bið góðan Guð að styrkja ykkur og blessa við þennan mikla missi, en minningin um góða konu og móður lifir með okkur sem þekktum hana. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Blessúð sé minning Báru. * Jóna Einarsdóttir. BARA ALLA JÚLÍUSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.