Morgunblaðið - 17.01.1996, Side 41
;
í Framtíðarmarkaðnum,
10.
Nýjar og eldri bómullar- og ullar-
peysur fyrir börn og fullorðna.
Verð frá kr. 900 -1.900.
Opið frá kl. 12-18 virka daga, 11-17 laugardaga og 13-17 sunnudaga
I
•J- MORGUNBLAÐIÐ
- MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 41
FOLKI FRETTUM
Reuter
Leikur Cher
BANDARÍSKA söng- og leik-
konan Cher sést hér leika
borðtennis á „heimili fyrir
heimilislausa" í London. Hún
var þar stödd í þeim tilgangi
að afhjúpa veggmálverk sem
tók vistmenn þrjú ár að full-
gera.
Icewear - Gcnal
Komið og gerið frábær kaup
4
4
4
4
4
4
Leiðinlegar
Sýningar-
stúlkur
KVIKMYNDIN Sýningarstúlkur,
eða „Showgirls" er meðal leiðin-
legustu mynda síðasta árs, að
mati Leiðindastoftiunarinnar (Bor-
ing Institute) í Bandaríkjunum.
Stofnunin veitir verðlaun fyrir
leiðinlegustu myndir ársins og er
þetta í ellefta sinn sem þau eru
veitt.
Reyndar þykja Sýningarstúlkur
vera svo leiðinlegar að sérstakur
flokkur var fundinn upp íyrir
myndina, Leiðinlegasta kynlífs-
myndin, og er myndin sú eina sem
tilnefnd er í þeim flokki. í tilkynn-
ingu stofnunarinnar segir: „Þessi
mynd, full af gullfallegu nöktu
kvenfðlki, var eyðilögð með óþarfa
söguþræði og samtölum.“
Meðal annarra tilnefndra
mynda eru: „Waterworld" (í
flokknum Leiðinlegasta átaka-
myndin), „Virtuosity“ með Denzel
Washington (Mesta „floppið“) og
„Something To Talk About“ með
Juliu Roberts (sami flokkur).
GINA Gershon og Eliza-
beth Berkley eru væntan-
lega ekki ánægðar með
leiðindastimpil Leiðinda-
stofnunarinnar.
BÆJARBÚLLURNAR, Freydís, Freyja og Guðbjörg taka þátt í
sýningunni af lífi og sál.
Æft fyrir skemmti-
kvöldin Gullárin
SÖNGHÓPURINN Ellismellir (The
Old smells) er byrjaður að æfa fyrir
skemmtikvöldin „Golden Years“, eða
Gullárin, en stefnt er að frumsýningu
í Sæluhúsinu á Dalvík föstudags-
kvöldið 2. febrúar næstkomandi.
Um 20 manns taka þátt í sýning-
unum, þar af 9 söngvarar, en söng-
hópurinn hefur staðið fyrir slíkum
skemmtikvöldum síðustu þijú ár.
Aðalefnið hefur verið flutningur laga
frá árunum 1950-’60 að viðbættu
gríni og glensi. Sungin eru um 30
lög frá þessum tíma og eru söngvar-
ar farðaðir og klæddir í anda þessa
tíma. Sýnt hefur verið á nokkrum
stöðum utan Dalvíkur, sem er heima-
bær sönghópsins, eins og í Grímsey,
Hrísey, Ólafsfirði og Blönduósi og
viðtökur verið góðar.
Ekki hefur verið ákveðið hversu
margar sýningar verða nú í vetur,
sönghópurinn er vel hreyfanlegur og
tilbúinn að mæta í hvaða félagsheim-
ili sem er, á þorrablót, árshátíð eða
aðrar skemmtanir að sögn fram-
kvæmdastjóra sýningarinnar, Ragn-
heiðar Rutar Friðgeirsdóttur á Dal-
KYNNIRINN, Arnar Símon-
arson í hlutverki Doggýs.
vík. Hún bætti við að sýningin tæki
um tvær klukkustundir í flutningi,
en Ellismellir (The Old Smells) sjá
um dansleik að henni lokinni.
UTSALA - UTSALA
10-60% AFSLÁTTUR
Úlpur - íþróttaskór - íþróttagallar - skíðasamfestingar o.fl. o.fl. fyrir börn og fullorðna.
Nýtt kortatímabd
»hummel $
SPORTBÚÐIN
IMÓATÚIXII 17
sími 511 3555