Morgunblaðið - 17.01.1996, Page 48
L#TT#
alltaf á
Miövikudögnm
MORtíUNBLAÐlÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SlMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSXENTRVM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 17. JANUAR 1996
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Aðalskipulag
Hveravalla kært
STJÓRN Ferðafélags íslands hefur
beint stjómsýslukæru til umhverfis-
ráðuneytisins á hendur hreppsnefnd
Svínavatnshrepps í Austur-Húna-
vatnssýslu vegna þess þáttar stað-
fests aðalskipulags Svínavatns-
hrepps sem lýtur að Hveravalla-
svæðinu.
Stjórn FÍ krefst þess að felldur
verði formlega úr gildi þessi hluti
aðalskipulagsins en til vara er þess
krafist að ráðuneytið, sem hið
æðsta stjómvald í skipulags- og
byggingarmálum, veiti félaginu
formlegt stöðuleyfí fyrir núverandi
aðstöðu þ.m.t. skálum, bifreiða-
stæðum, salernum og tjaldstæðum.
Krafa um ógildingu aðalskipu-
lags Hveravallasvæðisins er m.a.
rökstudd með því að skipulagið
hafi á sínum tíma hlotið staðfest-
ingu skipulagsyfirvalda á röngum
forsendum um * yfirráðasvæði
hreppsins.
Við undirbúning þess hafi verið
brotið gegn höfuðreglum íslensks
stjórnsýsluréttar um sérstakar van-
hæfisástæður og um jafnræði milli
málsaðila og einnig gegn andmæla-
reglunni svokölluðu og meðalhófs-
reglunni sem allar skipta meg-
inmáli við töku stjórnsýsluákvarð-
ana að því er fram kemur í frétt
frá stjórninni.
Bæjarráð Akraness
Kært vegna
hlutabréfasölu
Akranesi. Morgunblaðid.
BJARNI Sveinsson hefur sent fé-
lagsmálaráðuneytinu stjórnsýslu-
kæru á hendur bæjarráði Akraness
vegna sölu á hlutabréfum Akranes-
kaupstaðar í skipasmíðastöð Þor-
geirs og Ellerts hf.
Skömmu fyrir áramót ákvað bæj-
arráð Akraness að selja fyrirtækinu
IÁ Hönnun ehf. hlutabréf Akranes-
kaupstaðar í Skipasmíðastöð Þor-
geirs og Ellerts hf., að nafnverði 7,7
milljónir króna. Hlutabréf þessi voru
seld á genginu 0,65 og þannig
greiddar fyrir þau 5 milljónir. Sama
dag tilkynnti bæjarstjóri Skipa-
smíðastöðinni bréflega um söluna,
en þess má geta að þegar Akranes-
bær seldi umrædd hlutabréf keyptu
kærandi og fleiri hlutabréf í fyrir-
tækinu á genginu 1,0 og í desember
keyptu þannig fimmtán aðilar hluta-
bréf að nafnvirði rúmar 4 millj. kr.
á því gengi.
Þegar bæjarráð ákvað söluna og
afhenti hlutbréfin lá ákvörðun bæj-
arstjórnar ekki fyrir og hafði ekki
fengið neina umfjöllun þar. Þess
vegna telur kærandinn bæjarráð
Akraness hafa farið út fyrir umboð
sitt enda lá umboð ekki fyrir frá
bæjarstjórn um söluna.
I gærkvöld fjallaði bæjarstjórn um
málið og samþykkti söluna með sjö
atkvæðum gegn tveimur og greiddu
þá fulltrúar Framsóknarflokksins
atkvæði gegn tillögunni en við
ákvörðun bæjarráðs studdi fulltrúi
F'ramsóknarflokksins söluna.
Með hliðsjón af sölu hlutabréfa
á genginu 1,0 til 15 aðila telur
kærandinn málsmeðferð bæjarráðs
Akraness alvarlegri þar sem öll rök
hníga að því að bréfín hafi verið
seld verulega undir markaðsverði.
Bjarni segir að eftir að hafa
rætt við bæjarfulltrúa hafi sá grun-
ur læðist að sér að þetta mál hafi
verið illa undirbúið og að sumir
bæjarfulltrúar hafi jafnvel ekki haft
nægar upplýsingar um málið. „Það
hljóta einhvers staðar að vera tak-
mörk fyrir því hvað langt stjórnvöld
geta gengið í að mismuna þegnum
sínum.“
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson.
Minningar-
Ijós í Súðavík
ÞESS var minnzt í gær, að ár
var liðið frá snjóflóðunum sem
féllu á Súðavík og í Reykhóla-
sveit með þeim afleiðingum að
fimmtán manns fórust. Aðstand-
endur minntust ástvina við leiði
þeirra og sérstök athöfn var í
Dómkirkjunni í Reykjavík í gær-
kvöldi. Á Súðavík var farin blys-
för, minningarljós tendruð og
haldin bænastund og í gærkvöldi
var helgistund í kirkjunni.
■ Dagur tilfinninga/24
-----*—4-4--------
„4 á slysadeild
FJÓRIR voru fluttir á slysadeild
eftir að tveir fólksbílar skullu saman
á mótum Jaðarsels og Kambasels
um kl. 19.15 í gær.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Reykjavík hlutu þrír minni-
háttar meiðsl. Sá fjórði þurfti hins
vegar að fara í rannsókn. Draga
þurfti bílana af slysstað.
Útboð vöru og þjónustu fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelii
Forval hefur verið auglýst
vegna tíu verkefna
FORVAL hefur verið auglýst vegna
tíu verkefna eftir að ákveðið var að
bjóða út kaup á vöru og þjónustu
fyrir varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli. Varnarmálaskrifstofa utanrík-
isráðuneytisins vill ekki gefa upp
nöfn þeirra fyrirtækja, sem hafa
tekið þátt í forvali, upphæð tilboða
eða kostnaðaráætlun vegna ein-
stakra verkefna. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins er þó, a.m.k.
í sumum tilfellum, um talsverðan
sparnað að ræða miðað við fyrra
fyrirkomulag.
Samkvæmt upplýsingum frá
varnarmálaskrifstofu var akstur
með starfsmenn varnarliðsins boðinn
út nú í mánuðinum, en gildandi
samningur við Sérleyfísbifreiðir
Keflavíkur rennur út 1. febrúar. Enn
hefur ekki verið samið við verktaka.
Greining á blýinnihaldi málningar
var boðin út og samið við Iðntækni-
stofnun. Rekstur bókunarskrifstofu
er að útboði loknu í höndum Kefla-
víkurverktaka. Samið var við Z-
brautir og gluggatjöld um fram-
leiðslu og uppsetningu gluggatjalda.
Holræsahreinsun hf. fékk samning
um að hreinsa holræsi á svæðinu.
Samið var um kaup á uppþvottavél
fyrir mötuneyti við A. Karlsson hf.
Þá hefur verið auglýst forval
vegna útgáfu á tímariti varnarliðs-
manna, White Falcon, en verkefnið
hefur enn ekki verið boðið út. Búið
er að auglýsa forval vegna pökkunar
og flutnings á húsmunum. Gildandi
samningar þar um við Icepak hf.,
Propack hf. og P. Árnason vöru
framlengdir til 1. júlí og verður verk-
efnið boðið út í apríl eða maí.
Loks hefur verið samið við verk-
taka um afhendingu á möl og sandi,
en ekki hefur enn verið tilkynnt við
hvern var samið.
Talsverður sparnaður
Varnarmálaskrifstofan telur sig
ekki geta upplýst hveijir hafi tekið
þátt í forvali vegna þessara verk-
efna, enda verði hún að gæta fyllsta
trúnaðar við viðskiptaaðila. Skrif-
stofan gefur heldur ekki upplýs-
ingar um kostnaðaráætlun vegna
hvers verks eða upphæð þeirra til-
boða, sem tekið hefur verið. Þannig
liggur ekki fyrir hver sparnaður
varnarliðsins er af útboði vöru og
þjónustu. Morgunblaðið hefur hins
vegar upplýsingar um að í sumum
tilfellum að minnsta kosti sé hann
talsverður.
Samningar um kaup vöru og þjón-
ustu fyrir varnarliðið voru gefnir
fijálsir 1. apríl 1995, um leið og
einkaréttur Islenskra aðalverktaka
og Keflavíkurverktaka á fram-
kvæmdum og viðhaldi á Keflavíkur-
flugvelli var afnuminn í þeim tilfell-
um, sem Mannvirkjasjóður Atlants-
hafsbandalagsins kostar verkin.