Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fólk
Nýr trygg-
ingayfir-
tannlæknir
•REYNIR Jónsson tannlæknir hefur
verið ráðinn tryggingayfirtannlæknir
hjá Tryggingastofnun rikisins frá 1.
febrúar nk. en Þorgrímur Jónsson
lætur þá af störfum
sem tryggingayfír-
tannlæknir fyrir
aldurs sakir.
Ellefu tann-
læknar sóttu um
stöðuna og var
fengin sérstök
hæfnisnefnd til að
meta umsækjend-
ur. Nefndin taldi fimm umsækjendur
hæfasta og var Reynir Jónsson þar
á meðal.
Reynir lauk prófi í tannlækningum
frá Háskóla íslands árið 1981. Á
árunum 1981-1982 var hann skóla-
tannlæknir í Reykjavík. Reynir lauk
framhaldsnámi í tannvegsfræðum frá
Manitoba-háskóla í Winnipeg í
Kanada árið 1985 og hlaut sérfræði-
leyfi í tannvegslækningum á íslandi
sama ár. Frá desember 1985 hefur
hann rekið eigin tannlæknastofu í
Reykjavík.
Reynir kenndi tannvegsfræði við
Háskóla íslands frá 1986-1989 og
hefur nú kennt þarfrá árinu 1994.
Eiginkona Reynis er Ingibjörg
Georgsdóttir bamalæknir. Þau eiga
fjögur böm.
Tunglið hefur mikil áhrif á sjávarföllin
ÁSTÆÐAN fyrir mikilli sjávar-
hæð við Island í gær og fyrradag
er staða tungls, jarðar og sólar.
Með vissu árabili er staða tungls
og sólar gagnvart jörðu með
þeim hætti að flóðahæð verður
óvenjulega mikil. Sjávarhæð fór
þessa daga upp undir 4,5 metra.
Þar sem veður var stillt sköpuð-
ust engin vandræði af þessum
sökum.
Flóð og fjara verða yfirleitt
tvisvar hvern sólarhring. Þegar
yfirborð sjávar er hæst er sagt
að það sé flóð og fjara u.þ.b. 6
tímum síðar þegar yfirborð sjáv-
ar er lægst. Hækkun og lækkun
sjávar er ekki jöfn frá degi til
dags. Vegna snúnings jarðar og
tunglsins kringum jörðina seink-
ar flóði og fjöru um hér um bil
50 mínútur hvern dag. Aðdrátt-
arafl jarðar heldur sjónum við
jörðina. Sjávarföllin stafa af
meiri áhrifum aðdráttarafls
tunglsins á þann helming jarðar-
innar sem að því snýr hverju
sinni en á hinn helminginn sem
frá þvísnýr og einnig af áhrifum
sólar. Áhrif tunglsins eru þó lið-
lega tvöfalt meiri en áhrif sólar-
innar.
Margt hefur áhrif á sjávarhæð
Fleira kemur til sem eykur á
breytileika sjávarfalla. Tungl-
brautin er ekki alveg réttur
hringur heldur sporbaugur og
þess vegna er fjarlægð tungls frá
jörðu lítið eitt breytileg. Þetta
hefur áhrif á flóðahæðina.
Akveðnum tíma eftir að tungl
er næst jörðu verður flóðahæðin
óvenju mikil og ákveðnum tíma
eftir að tungl er fjærst jörðu
verður flóðahæðin óvenjulega lít-
il. Mest verður flóðahæðin þegar
saman fer fullt eða nýtt tungl
og lítil fjarlægð tungls frá jörðu.
Samkvæmt upplýsingum frá
borgarverkfræðingi í Reykjavík
verður sjávarhæð í Reykjavík
einu sinni á ári 4,4 metrar. Á 10
ára fresti getur sjávarhæð orðið
4,85 metrar. Á 20 ára fresti get-
ur sjávarhæð orðið 4,95 metrar.
Á 50 ára fresti getur sjávarhæð
orðið 5,1 metri og á 100 ára fresti
má búast við að sjávarhæð við
Reykjavík verði 5,2 metrar. Loft-
þrýstingur og veður hafa mikil
áhrif á sjávarhæð. Fari saman
há sjávarhæð og vont veður má
búast við að tjón verði vegna
flóða. Ef veður er gott þegar
sjávarflóð eru óvenju mikil eru
litlar líkur á að Ijón verði á
mannvirkjum vegna flóða.
Hæðarmunur milli flóðs og
fjöru er breytilegur meðfram
stönd landsins. Meðalmunur
flóðs og fjöru við ísland er 0,5-4
metrar en mestur verður flóða-
munur í Breiðafirði um 6 metr-
ar. Landfræðilegar aðstæður
hafa þannig áhrif á flóðahæð.
Samspil tungl- og sólarflóða, horft niður á norðurskaut
i saman. Stórstraumur
Sólarflóð
€
Nýtt tungl
SÓI
€
Tunglflðð
Tungl í fyrsta kvartili.
Aðdráttarkraftar tungls og
sólar vinna hvor gegn öðrum
Smástraumur
Sólarflóð
SÓI
Fullttungl.
Aðdráttarkraftar tungls
ogsólarverkasaman.
Stórstraumur
Sói
Tungl í þriðja kvartili.
Aðdrattarkraftar tungls og
sólar vinna hvor gegn öðrum
Smástraumur
Tungl i þriðja kvartili
Sól
1994
Læknum voru ekki gefnar réttar
upplýsingar eftir líkamsárás
Engir áverkar
voru sjáanlegir
ARI Jóhannesson, yfirlæknir við
Sjúkrahús Akraness, segir að þegar
stúlkan, sem ráðist var á aðfaranótt
laugardags, hafí komið til skoðunar
strax eftir árásina hafi ekki komið
fram réttar upplýsingar um það fyr-
ir hveiju hún hefði orðið. Engir
áverkar hafí verið sjáanlegir og hún
hafi því verið send heim eftir ræki-
lega skoðun.
Ari segir að stúlkan og vinkona
hennar hafí sagt að stúlkan hefði
fengið olnbogaskot í höfuðið. Hún
hefði fallið við og staðið upp aftur.
Aldrei hafi verið minnst á að um
alvarlega líkamsárás hefði verið að
ræða. „Sagan sem við fáum er ekki
samkvæmt því sem síðar kemur í
ljós,“ segir Ari.
Hann segir að stúlkan hafi verið
skoðuð rækilega, höfð svolitla stund
á sjúkrahúsinu og síðan leyft að fara
heim. Það hafi ekki verið fyrr en hún
kom aftur á sjúkrahúsið um morgun-
inn, þá orðin mjög lasin, að augljóst
hafí verið hvað gera þurfti og þá
hafí engra lýsinga þurft við. „Þá var
greinilegt að eitthvað alvarlegt hafði
gerst,“ segir hann.
Mat alltaf
einstaklingsbundið
Ari segir að ekki sé óalgengt að
fólk komi inn á sjúkrahúsið eftir að
hafa lent í ryskingum og gefí lýsing-
ar svipaðar þeirri sem stúlkan gaf.
„Mat er alltaf einstaklingsbundið og
ekki hægt að gefa út neina allsherjar-
reglu um hvemig bregðast skuli við.
Á svona nóttu getur komið fjöldi
manns sem lent hefur í ryskingum,
áfengi hefur oft verið með í spilinu,
og það er ekki hægt að halda hveij-
um og einum eftir hér. Hins vegar
verða svona atvik alltaf til þess að
menn endurskoða vinnureglur sínar
og það munum við gera án þess að
ég sé að segja að þama hafí verið
staðið rangt að. Það á eftir að skoða
það betur,“ segir Ari.
Morgunverðarfundur
Föstudaginn 26. janúar 1996, Skála,
2. hæð Hótel Sögu frá kl. 8:00 - 9:30
Rétt fólk í réttar stöður
Starfsmannagreining - Vinnustaðagreining
Larry Hadfield
Hér á landi er staddur einn helsti sérfræðingur
Bandaríkjanna á sviði starfsmannagreiningar,
Larry Hadfield, starfsmaður The Gallup
Organization. Af því tilefni boðar Félag viðskipta-
fræðinga og hagfræðinga til morgunverðarfundar
föstudaginn 26. janúar kl. 8:00-9:30.
Á fundinum mun Larry Hadfield fjalla um:
Hvetjandi starfsumhverfi.
Hvernig má mæla hæfni og frammistööu fyrirtækja
á sviði starfsmannastjórnunar.
Árangursríkar aðferðir við starfsmannaval.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Opinn fundur-gestir veikomnir
Kennarar vilja sérstök
lög um réttindamál sín
FULLTRÚARÁÐSFUNDUR
Kennarasambands íslands sam-
þykkti í fyrradag að setja það sem
skilyrði fyrir áframhaldandi aðild
sambandsins að vinnu við undirbún-
ing flutnings grunnskólans frá ríki
til sveitarfélága, að sett verði sér-
stök lög um réttindi kennara og
skólastjóra.
Eiríkur Jónsson, formaður KI,
segir að fallist stjórnvöld og Alþingi
á þetta skilyrði sé_ ekkert því til
fyrirstöðu af hálfu KÍ, að flutningur-
inn geti átt sér stað 1. ágúst 1996
eins og ráðgert hefur verið. Verði
ekki fallist á skilyrðið muni KÍ draga
sig út úr viðræðum um flutninginn.
Eiríkur sagði að kennarar væru
þokkalega sáttir við álit nefndar sem
fjallaði um réttindamál grunnskóla-
kennara við flutning grunnskóla frá
ríki til sveitarfélaga. „En við setjum
það sem skilyrði að gengið verði frá
þessu í sérstakri löggjöf um kenn-
ara og skólastjóra. Astæðan fyrir
því að við setjum þetta skilyrði er
sú að það er verið að endurskoða
lögin um réttindi og skyldur ríkis-
starfsmanna og lög um fæðingaror-
lof. Ef við sleppum hendinni af
málinu núna í febrúar má allt eins
búast við að lögum verði breytt síð-
ar á árinu og þar með væri verið
að skerða réttindi sem við erum að
semja um núna.
Tillaga nefndarinnar er að lög og
reglugerðir um kennara flytjist yfír
og kjarasamningurinn sömuleiðis og
við getum ekki sætt okkur við að
einn aðili málsins, í þessu tilviki rík-
isvaldið, hafí sjálfdæmi um hvernig
það breytir réttindum okkar og að
við séum bundin af kjarasamningi á
móti.“
Ótti við að réttindi
verði skert síðar
Aðspurður sagði Eiríkur rétt að
réttindum opinberra starfsmanna
yrði ekki breytt nema Alþingi tæki
um það sérstaka ákvörðun. „Ef allir
aðilar málsins, ríkið, kennarar og
sveitarfélög, ná samkomulagi um
réttindamálin núna og um það sett
sérstök löggjöf, teljum við að litlar
líkur séu á að Alþingi rífí þá lög-
gjöf upp einhveijum mánuðum eftir
að hún hefur verið sett.“
Eiríkur sagði að talsverðrar tor-
tryggni gæti meðal kennara út í þá
endurskoðun sem nú stæði yfir á
lögum um réttindi og skyidur opin-
berra starfsmanna og reglum um
fæðingarorlof. Kennarar ættu eng-
an fulltrúa í nefndum sem væru að
íjalla um þessi mál. Kennarar vildu
búa þannig um hnútana að þeim
samningi um réttindi kennara, sem
verið væri að ganga frá núna, yrði
ekki breytt síðar á þessu ári.
Ný kröfugerð undirbúin
í ályktun fulltrúarráðsfundar KÍ
er vakin athygli á því að núgildandi
kjarasamningar kennara og ríkisins
renna út 1. janúar 1997 og nauðsyn-
legt sé að taka tillit til þess við flutn-
ing tekjustofna frá ríki til sveitarfé-
laga, að verulegar launahækkanir
verði með nýjum samningi. Fundur-
inn fól stjórn og kjararáði KÍ að
hraða undirbúningi að kröfugerð
vegna nýs kjarasamnings við sveit-
arfélögin.
Skattlagning hlunninda
jarðar að hámarki 0,5%
YFIRFASTEIGNAMATSNEFND
hefur kveðið upp úrskurð sem felur
í sér að skattlagning hlunninda sem
fylgja jörðum sem ejngöngu eru
notaðar til landbúnaðár skuli vera
að hámarki 0,5% af álagningar-
stofni. Iílunnindi sem þessi hafa
fram að þessu víða verið skattlögð
allt að 1% eða meira af álagningar-
stofni.
Ábúandi jarðar á Vesturlandi vé-
fengdi réttmæti ákvörðunar viðkom-
andi sveitastjórnar að leggja 1%
fasteignaskatt á hlunnindi jarðarinn-
ar. Frá þessu er sagt í Bændablaðinu
17. janúar síðastliðinn.
Skatturinn var lagður á eftir að
sveitarfélag það sem bóndinn bjó í
var sameinað öðrum sveitarfélögum.
Áður hafði skattlagningin numið
0,36% af álagningarstofni. Bóndinn
kærði skattlagninguna til yfírfast-
eignamatsnefndar.
Laxveiðiréttindi
ekki fasteign
í úrskurði nefndarinnar segir m.a.
að laxveiðihlunnindi sem fylgi jörð
séu ekki fasteign samkvæmt lögum
um skráningu og mat fasteigna.
Hlunnindi séu fasteignaréttindi sem
metin eru með jörð og eru hluti henn-
ar nema þau hafi löglega verið frá
henni skilin. Samkvæmt lögum sé
fasteignum skipt í tvo gjaldflokka
við álagningu fasteignaskatts. Af
fyrri flokknum skuli fasteignaskatt-
ur vera allt að 0,5% af álagingar-
stofni en allt að 1,12% af seinni
flokknum. Undir fýrri gjaldflokk
falla íbúðir og íbúðarhús ásamt lóð-
arréttindum, erfðafestulönd ogjarð-
eignir sem ekki eru nytjaðar til ann-
ars en landbúnaðar, útihús og mann-
virki á bújörðum sem tengd eru land-
búnaði, og sumarbústaðir ásamt
lóðaréttindum.
í úrskurðinum segir að óumdeilt
sé að viðkomandi jörð sé eingöngu
nytjuð til landbúnaðar. Jörðinni fylgi
veiðiréttindi sem séu hluti jarðeign-
arinnar í skilningi ákvæða laga um
fyrri gjaldflokkinn. Úrskurðarorð
yfirfasteignamatsnefndar er á þá
leið að álagður fasteignaskattur á
viðkomandi jörð skuli ekki vera
hærri en 0,5% af álagningarstofni.