Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Eigum fyrirliggjandi og útvegum með stuttum fyrirvara ýmiskonar stoð- og hjálpartæki sem létta störfin, auka öryggi og afköst. Leitið upplýsinga. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN SMIÐJUVEGI 70, KÓP. • SÍMI564 4711 • FAX 564 4725 Það er alltaf mikið líf og fjör á kompuhelgum í Kolaportinu. Fyrsta kompuhelgi ársins um helgina ■ Kompubás í Kolaportinu á kr. 1800,- Allir markaðsdagar eru kompudagar í Kolaportinu, en öðru hverju efnir Kolaportsfólk til sérstakra komudaga og er þá gefinn mikill afsláttur af básaleigu hjá þeim sem selja notaða muni. Sala kompudóts hefur reynst fólki góð fjáröflunaraðferð og mörg dæmi þess að fólk hafi haft tugþúsundir upp úr krafsinu. Verð á sölubásum fyrir komudót verður aðeins 1800 krónur á dag um helgina, en er venjulega 2§00 krónur. Þá geta börn og unglingar allar helgar fengið borðmetra á 1100 krónur til að selja kompudót í' - og er jafnan fjöldi þeirra að selja á hverri helgi. Vantar alltaf kompudót “Kompudótið er alltaf jafn vinsælt og við fáum aldrei nóg af slíkum seljendum til okkar” segir Guðmundur G. Kristinsson hjá Kolaportinu. “Með þessum kompudögum um helgina erum við að hvetja fólk til að hreinsa til hjá sér og gera sér pening úr gömlu dóti“. Það finnst flestum gaman þegar þeir láta verða af þessu, ekki síst börnum og unglingum, og ánægjulegt að sjá fólk jafnvel hafa tugþúsundir króna á dag fyrir dót sem annars hefði líklega lent á öskuhaugunum.” Þrjár gullnar reglur Þegar fólk selur kompudót í Kolaportinu er gott að hafa þrjár reglur í huga, að henda engu og koma með sem fjölbreyttastan varning, að setja upp frekar hátt verð í byrjun á meðan fólk er að átta sig á verðmætinu, og síðast en ekki síst að mæta í góða skapinu og hafa gaman af. Kompuklúbbur Kolaportsins Nú hefur verið stofnaður Kompuklúbbur Kolaportsins og eru hátt á annað þúsund seljendur kompudóts frá síðasta ári að fá í hendurnar fyrsta fréttabréf Kompuklúbbsins. Þar er t.d. bent á margvísleg ráð til að ná enn meiri árangri í sölu á kompudóti. Öðrum aðilum sem óska eftir að gerast félagar í Kompuklúbbi Kola- portsins er bent á að hafa samband við skrifstofu Kolaportsins í síma 562 5030. Pantanir á sölubásum um helgar er hægt að gera í sama síma alla virka daga kl. 9-17. ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Engin afþreying fyrir eldri borgara á Skagaströnd ÉG SENDI þennan smá- pistil frá Skagaströnd vegna þess að hérna er ekkert gert fyrir eldra fólk- ið. Við höfum, jú, elliheim- ilið Sæborg. Þar er föndur fyrir það fólk sem þar dvel- ur, en fyrir hina er ekki neitt. Ég er nú komin á áttræðisaldur og segi fyrir mína parta að mér finnst fólk dregið í dilka héma. Það er ekki spilað og ekk- ert félagsstarf fyrir eldra fólkið, nema þá sem dvelj- ast á Sæborg. Það er óhætt að segja að hér húki hver í sínu homi. Það verður að gera eitthvað í þessum málum. Ein sárreið. Hvað heitir lagið? VILHELM hringdi og hafði eftirfarandi að segja: „Fimmtudaginn 19. janúar við dagskrárlok Sjónvarps fengum við að sjá Snæfell- sjökul á skjánum, en undir var sungið lagið Sofðu unga ástin mín. Lagið var mjög vel sungið en ekki var minnst á hver söngkon- an væri. Gætu ekki þulurn- ar tekið upp hinn ágæta sið Sigríðar Amardóttur að kynna alltaf síðasta lag- ið í dagskrárlok?" Spaugstofan alltaf að batna MIG LANGAR að þakka þeim Spaugstofumönnum fyrir frábæra þætti því þeir em sannir gleðigjafar mitt í öllu angrinu sem ríður yfir þjóðina. Þeir em sannkallað- ir listamenn af guðs náð. Elín Dungal. Tapað/fundiö Myndavél tapaðist HINN 13. janúar tapaðist myndavél af gerðinni Yas- hica, sennilega á leiðinni frá Breiðholtskirkju upp að Maríubakka. Finnandi vin- samlega hringi í síma 557-5845. Úr fannst í Keflavík GYLLT kvenúr fannst á Aðalgötu í Keflavík fyrir nokkm. Upplýsingar í síma 421-1317. Úlpa tapaðist BLÁ goretex-úlpa tapaðist á Gullöldinni í Hverafold sl. föstudagskvöld. Sá sem veit um úlpuna er beðinn að skila henni á lögreglu- stöðina í Hverafold. Föndurdót tapaðist FÖNDURDÓT sem sam- anstóð af leir, vír og perl- um, tapaðist á Laugaveg- inum sl. mánudagseftir- miðdag. Finnandi vinsam- leg hringi í síma 551-0445. Armband tapaðist SNÁKLAGA gullarmband tapaðist á Bergstaðastræti fyrir rúmri viku. Finnandi vinsamlega hringi í síma 551-5216 eftir kl. 18. Gæludýr Kettlingar SJÖ vikna kettlingar, frískir, faliegir og kassa- vanir, fást gefíns. Upplýs- ingar í síma 565-1650. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Hvítur leikur og vinnur STAÐAN kom upp á minningarmóti um Paul Keres í Tallinn í byrjun janúar í viðureign tveggja stórmeistara. Vidmantas Malisauskas (2.510), Litháen, var með hvítt og átti leik, en Aleksei Shirov (2.690). Umhugsunartíminn var aðeins 25 mínútur á skákina og það skýrir lík- lega síðasta leik Shirovs, sem var 23. — Dd6- d5?? 24. Rc6! og Lettinn gafst upp. Úrslit á þessu hraðmóti: 1. Ivantsjúk 6‘/2 v. 2-3. Smyslov og Malisauskas 5 v. 4-5. Riho Liiva, Eistlandi og Shirov 4‘/2 v. 6-7. Ehlvest og Rytsjagov, Eistlandi 4 v. 8. Maidla, Eistlandi 2‘A v. Frábær árangur öld- ungsins Smyslovs, en hann er nú síst lakari í stuttum en löngum skák- um. Innsæið nýt- ur sín ekki síður þótt tíminn sé stuttur. Staðan á Ho- ogovensmótinu í Wijk aan Zee eft- ir umferðina á mánudag: A flokkur: 1. ívantsjúk 5 Vz v. af 8, 2-3. Anand og Tivjakov 5 v. 4-6. Topalov, Drejev og Ivan Sokolov 4 v. 7-8. Hiibner og Leki 4 v. 9-11. Gelf- and, Adams og Piket 3 ‘A v. 12-13. Van Wely og Shirov 3 v. 14. Timman 2'/2 v. B flokkur: 1. Bologan 4'/2 v. af 6, 2. Onísjúk 4 v. 3- 4. Van der Wiel og Stripunsky 3'A v. 5-7. Antunes, Nijboer og Del- emarre 3 v. 8-10. Helgi Áss, Van de Mortel og Gild. Garcia 2 ‘/2 v. 11-12. Kuijf og Miles 2 v. HÖGNIHREKKVÍSI Víkveiji skrifar... FRÉTTAÞÁTTURINN 60 mín- útur sem sýndur er á Stöð 2 á sunnudagskvöldum er eitthvert albesta efnið sem sjónvarpsstöðvar bjóða áhorfendum. Viðfangsefnin eru margvísleg, reynsla frétta- mannanna er dýrmæt og yfirsýnin ótrúlega mikil í þessum þáttum. Þar sem skrifari þekkir til er þáttanna beðið með eftirvæntingu og virðist þessi klukkutími ná augum og eyr- um allra aldurshópa. xxx ÝLEGA var fjaliað um ofbeldi og auglýsingamennsku í íþróttum og bent á að íþróttirnar væru orðnar afskræmdar vegna auglýsinga og sjónvarps. Pening- amir hefðu í mörgum tilvikum tek- ið völdin af íþróttunum, ofbeldið væri betri söluvara í sjónvarpi en íþróttamannsleg framkoma og dæmi voru sýnd þessu til staðfest- ingar. Sýnt var hversu miklu auð- veldara það er fyrir íþróttamann að fá auglýsingasamning ef hann er harður í horn að taka og oft á sjónvarpsskj ánum. Sem dæmi var sagt frá tennis- leikara, sem vann það sér til frægð- ar að hætta í miðjum leik á Wimble- don vegna óánægju með dómgæslu og eiginkona kappans bætti um betur og löðrungaði dómarann. Síð- an þá hefur þessi tennisleikari aldr- ei verið settur á hliðarvelli, heldur ævinlega á velli við áhorfendastúk- urnar. Einkum var miðað við Bandaríkin í þessum þætti og með- al annars tekin dæmi úr körfuknatt- leik, ruðningi, ísknattleik, hafna- bolta og tennis. Rætt var við þjálfara drengjaliðs í ruðningi og sagði hann að dreng- irnir, 6-8 ára gamlir, ættu sér ákveðnar fyrirmyndir meðal fullorð- inna og tækju allt upp eftir stjörn- unum. Væri það að sjálfsögðu af hinu góða ef þeir tækju ekki líka upp ósiðina, sem gerðir eru mjög áberandi og sjónvarpsstöðvarnar keppast við að sýna - og endur- sýna. Broslegt var að sjá einn drengjanna skora mark og fagna síðan nákvæmlega eins og ein aðal- stjarnan í hópi atvinnumanna gerði. xxx ÓTT fyrmefndur þáttur hafi verið bandarískur og fjallað um bandaríska íþróttamenn er eigi að síður full ástæða fyrir íþróttaiðk- endur og forystumenn íþróttahreyf- ingar hér að staldra við og íhuga hvað er að gerast. Vissulega er margt ólíkt hér og því sem er að gerast meðal vestrænna stórþjóða, en eigi að síður gætu dýrmætir samningar og von um háar fjárupp- hæðir haft áhrif á íþróttaviðburði hér eins og annars staðar. Aukin harka í íþróttum gæti bent til þessa og þurfa forystumenn að vera á varðbergi svo við lendum ekki í sambærilegum vandamálum og þeim sem lýst var í 60 mínútum nýlega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.