Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 25 LISTIR Deilt um íslenska kvikmyndagerð BLAÐAMAÐUR Arbeiterbladets norska (12.1.’96), Kari Einertsen, er óskaplega hneykslaður á því að breska kvikmyndatímaritið Premi- ere nefnir engan norskan kvik- myndagerðarmann í yfirliti sínu yfir 100 ára sögu kvikmyndarinnar. I janúarhefti tímaritsins hafa 100 bestu myndirnar verið valdar og eru langflestar þeirra bandarískar en einnig er almenn umfjöllun um myndir frá öðrum þjóðum. Þar er norskra kvikmynda að engu getið, segir Kari, og bendir á í vandlæting- artón að íslendingum sé aftur á móti hampað. „Hinir fáfróðu blaðamenn tíma- ritsins," segir Kari, „skeita hvorki um Arne Skouen, Nils Gaup né kvikmyndahátíðina í Haugasundi. Þess í stað skrifa þeir fallega um íslenska leikstjórann Friðrik Þór Friðriksson og íslensku kvikmynda- hátíðina, kvikmyndahátíð sem í heild sinni fer fram í 17 sæta kvik- myndasal.“ Eiður Guðnason, sendiherra ís- lands í Noregi, fann sig knúinn til að svara þessum árásum á íslenska kvikmyndagerð og sendi Arbeiter- bladet bréf (19.1/96) þar sem hann segir meðal annars að kannski þyki blaðamönnum Premiere myndir Friðriks Þórs einfaldlega betri en norsku myndirnar sem þeir hafa séð. „Og ef svo er,“ heldur Eiður áfram, „þá hefur það ekkert með fáfræði að gera, heldur smekk sem Rómveijar til forna töldu ekki hægt að deila um.“ Eiður segir að sér kæmi ekki á óvart þótt sumir landa sinna myndu líta á þessi skrif norska blaða- mannsins sem öfund. „Sjálfur er ég ekki viss,“ bætir Eiður við, „en erfitt er að sjá hvaða ástæður liggja að baki þessum skrifum.“ Eiður segir að íslendingar eigi því að venjast að vinir þeirra, Norð- menn, eigni sér Leif Eiríksson og Snorra Sturluson og kalli jafnvel íslendingasögurnar norrænar. „Fá- ir áttu hins vegar von á þvi að reynt yrði að gera lítið úr vinnu íslenskra samtímalistamanna.“ Að lokum upplýsir Eiður norska blaðamanninn um íslensku kvik- myndahátíðina sem jafnan fari fram í Háskólabíói, að hún hafi verið sótt af mörgum kunnum kvik- myndagerðarmönnum og sé að auki elsta kvikmyndahátíð Norðurlanda, fyrst haldin árið 1978. í lok greinar segir Eiður að það sé ef til vill ekki aðeins á Bretlandi sem til séu fá- fróðir blaðamenn. Mynd í heilu lagi VEGNA mistaka var skorið af mynd sem prýddi grein Braga Ásgeirssonar um dýrustu mál- verkin 1995 í Menningarblaðinu síðastliðinn laugardag. Birtist hún hér með í heilu lagi um leið og beðist er velvirðingar á mistökun- um. Nýjar bækur Thor Vilhjálmsson • FUGLAR á ferð er flokkur erinda sem flutt voru um Thor Vilhjálmsson, skáldskap hans og listfræði, á þingi Félags áhugamanna um bókmenntir vorið 1995 ítil- efni sjötugsaf- mælis hans. „Fjalla þau um höfundar- feril Thors frá ýmsum sjónar- hornum og opna sýn inn í fjölbreytileika verka hans og mikilvægi í íslenskri bók- mennta- og menningarsögu,“ seg- ir í kynningu. Höfundar eru Aðalsteinn Ing- ólfsson, Ástráður Eysteinsson, Eysteinn Þorvaldsson, Friðrik Rafnsson, Kristján Jóhann Jóns- son, Ragnhildur Richter, Sigurður Pálsson, Silja Aðalsteinsdóttir, Þorleifur Hauksson og Þröstur Helgason. Helga Kress sá um útgáfuna. Fuglar á ferð er 115 síður. Guten- berg-Steindórsprent prentaði. Út- gefandi er Bókmenntafræðistofn- un Háskóla íslands, Háskóiaút- gáfan. Hversdagslíf Bækur Terry McMillan njóta mikilla vin- sælda í heimalandi hennar, Bandaríkjunum. Nú hefur verið gerð kvikmynd eftir einni þeirra, „Waitingto Exhale“ ÞÓ AÐ gagnrýnendur séu ekki á eitt sáttir um ágæti bóka banda- rísku skáldkonunnar Terry McMill- an, hafa milljónir landa hennar séð ástæðu til að festa kaup á þeim og nú hefur verið gerð kvikmynd eftir næstsíðustu bókinni, „Waiting to Exhale", sem sló aðsóknarmet um jólin. „Allt og sumt sem ég gerði var að segja sögu,“ segir McMillan hógværðin uppmáluð í samtali við The Observer Hún er 43 ára, einstæð móðir hins ellefu ára gamla Solomons. Bækur hennar lýsa lífi bandarískra blökkukvenna á tilgerðarlausan hátt. Sögufléttan kann að vera fá- brotin en lesendur, ekki síst konur, hafa fallið fyrir kvenpersónum hennar sem basla í gegnum lífið, hafa áhyggjur af þyngdinni, hár- greiðslunni og hinu kyninu. Karl- arnir eru upp til hópa vandræða- gemsar, fíkniefnaneytendur og kvennabósar. „Með þessu er ég ekki að segja að allir karlmenn séu skepnur, heldur að konurnar sem ég skrifa um hafi fallið fyrir skepn- um. Sumir halda að mér sé illa við karlmenn en það er ekki satt,“ seg- ir McMillan. „Ég er hrifin af karl- mönnum, það er verst hvað margir þeirra eru heimskir." Hún er ekki sérstaklega hrifin af þeim góðu móttökum sem „Wait- ■ ing to Exhale“ hefur hlotið, finnst hún ekki það tímamótaverk sem sumir lesendur hennar vilja vera láta. Skýringuna á hinum góðu móttökum kann að vera að fínna í þeirri staðreynd að lítið hefur verið skrifað um daglegt líf blökku- kvenna og þær taka öllum slíkum bókum fagnandi. „Gallinn er hins vegar sá að McMillan skrifar skáld- sögur, ekki bækur til sjálfshjálpar, og konur eiga það til að gleyma því,“ segir sálfræðingurinn Sonia Stephen. Fyrri bækur McMillan eru TERRY McMillan segist láta hverjum degi nægja sína þján- ingu. Það hafi hún lært er hún fór í afvötnun en hún var háð áfengi og lyfjum í fjögur ár. „Disappearing Acts“ og „Mama“ en það var sú fyrmefnda sem vakti fyrst athygli á McMillan. „Waiting to Exhale“ skaut henni hins vegar upp á stjömuhimininn árið 1991. Hún var á toppi metsölulistans bandaríska ásamt „Secret of Joy“ eftir Alice Walker og „Jazz“ Toni Morrison. Báðar hafa þær sett ofan í við McMillan og það sámar henni. „Ég hef sent þeim báðum hamingju- óskir þegar þær hafa sent frá sér bækur og það særir mig óneitanlega að þær hafi ekki gert slíkt hið sama,“ segir skáldkonan, sem hefur nýlokið við fjórðu bókina en hún nefnist „How Stella Got Her Groove Back“. McMillan var aðeins þijár vikur að skrifa hana, segist hafa haft söguna tilbúna í kollinum. HHHHHMHHHHHiHHHHH^^^^B^nHHM (0) I E S S O ÞJÓNUSTA - s n ý s t u m þ i g Olíufélagiðhf —50ára — Ánægjuleg þjónusta Starfið á ESSO stöðinni tengist auðvitað bflum að miklu leyti. Einn mikilvægasti hluti þess eru þó engu að síður kynni við þá viðskiptavini sem með viðmóti sínu hvetja starfsmenn ESSO til að veita enn betri þjónustu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.