Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Fundað um starfsemi hlutabréfasjóða Viðskiptí sjóð- anna 40% hluta- bréfaviðskipta Morgunblaðið/Ásdís Canada 3000 fjölgar komum til íslands Átta ferðir á viku ísumar VIÐSKIPTI vegna hlutabréfasjóð- anna námu á bilinu 40-45% af heild- arveltu hlutabréfamarkaðar árið 1995. Viðskipti með hlutabréf sjóð- anna námu alls rösklega 1.800 millj- ónum króna, að meðtaldri frumsölu í sjóðunum. Að auki er áætlað að sjóð- imir hafi keypt hlutabréf í fyrirtækj- um fyrir um 750 milljónir á liðnu ári og er heildarumfang viðskipta er tengjast sjóðunum því tæpir 2,6 millj- arðar króna. Heildarveltan á hluta- bréfamarkaði á sama tíma var um 5,6 milljarðar króna. Þetta kom fram í máli Bjöms Jónssonar, sjóðsstjóra Hlutabréfasjóðsins hf. á morgunverð- arfundi um hlutverk sjóðanna og regl- ur um starfsemi þeirra. Mikil umræða fór fram um starf- semi hlutabréfasjóðanna og stöðuna á íslenskum hlutabréfamarkaði al- mennt á þessum fundi. Friðrik Soph- usson, fiármálaráðherra, sagði að þegar svo væri komið að menn væru að fá skattafrádrátt vegna kaupa á hlutabréfum í sjóðum sem eiga ríkis- skuldabréf þá væri eðlilegt að spyrja hvort þar væri fjármagni skattgreið- enda ráðstafað á eðlilegan hátt. Hann sagði að vænta mætti þess að einhveijar breytingar yrðu gerðar á þessu fyrirkomulagi en fór ekki nánar út i hveijar þær yrðu. „Það er hins vegar rétt að undirstrika að það er stefna ríkisstjómarinnar að örva þáttöku almennings í atvinnufyrir- tækjum og frá mínum bæjardyrum séð, þá væri heppilegast að sú þátt- taka ætti sér stað með beinum hætti, án þess að ég sé að gera lítið úr hluta- bréfasjóðunum." Eru verðbréfafyrirtækin hlutlausir miðlarar? Brynjólfur Bjamason, forstjóri Granda hf., velti upp þeirri spumingu hvort verðbréfafyrirtækin gætu talist hlutlausir verðbréfasalar og ráðgjafar við kaup og sölu hlutabréfa, í ljósi þess að þau reki flest hver eigin hluta- bréfasjóði. Hann benti á að nú fyrir jólin hefðu verðbréfafyrirtækin tekið einn valkost út og kynnt hann sér- staklega, þ.e. hlutabréf í eigin verð- bréfasjóðum. Því vöknuðu eðlilega upp spumingar um hvort þama væri einhver mismunun á ferðinni og hvort vistun sjóðanna væri í réttum hönd- um. Ásgeir Þórðarson, forstöðumaður verðbréfamiðlunar VÍB, sagði að verðbréfafyrirtækin væru að ráð- leggja fólki daglega um kaup á hinum ýmsu tegundum verðbréfa, sem mörg hver væru í vörslu fyrirtækjanna sjálfra, og því væri eflaust erfitt að skera á öll slík tengsl. „Ég held hins vegar að við höfum ráðið mönnum heilt, bæði hvað varðar hlutabréfa- kaup sem og kaup á ýmsum verðbréf- um.“ Auk þessa benti Ásgeir á að engir aðrir aðilar hefðu tekið að sér þetta hlutverk. Baldur Guðlaugsson, stjómarfor- maður Hlutabréfasjóðsins hf., sagði að hlutabréfasjóðimir væm tvímæla- laust góður kostur fyrir einstaklinga, sem oft á tíðum hafi ekki tíma né þekkingu til þess að standa í viðskipt- um með bréf í einstökum fyrirtækjum. Hann benti á að þó svo að deila mætti um hversu miklum hluta fjár- magns síns sjóðimir ættu að verja til kaupa hlutabréfa í einstökum fyr- irtækjum, þá léki enginn vafi á því að þeir hefðu komið með nýtt fé inn í fyrirtækin sem að öðrum kosti hefði ekki skilað sér inn á hlutabréfamark- að. Talsvert var rætt um að of lítið framboð væri á hlutabréfum á mark- aði nú og hefði það óheppileg áhrif á markaðinn. Friðrik Sophusson sagði að skoða þyrfti hvað hægt væri að gera til þess að auka framboð hluta- bréfa og gæti ríkið komið þar inn að hluta með sölu á ýmsum ríkisfyrir- tækjum. Fleiri tóku í sama streng og benti Guðmundur H. Garðarsson, stjómarmaður í Lífeyrissjóði Verslun- armanna, á að nauðsynlegt væri að ríkið seldi ýmis ríkisfyrirtæki og benti í því samhengi m.a. á Búnaðarbank- ann og Póst og síma sem tvo mögu- leika. Stefán Halldórsson, framkvæmda- stjóri Verðbréfaþings, sagði að sú reynsla sem fengist hefði af hluta- bréfasölu nú í desember ætti að ýta undir hlutafjáraukningu í fyrirtækj- um, enda lægi það fyrir að hlutbréfa- sjóðimir myndu fjárfesta töluvert í hlutabréfum á næstunni, auk þess sem lífeyrissjóðimir væru tilbúnir til að fjárfesta. Hann sagði ennfremur mikilvægt að lífeyrissjóðimir tækju þátt í því að stuðla að virkni eftir- markaðarins, enda væri það forsenda þess að almenningur hefði áhuga á því að eiga þar viðskipti. Samningar Kringlu og Borgar- kringlu í höfn SAMNINGAR voru undirritaðir í gær milli forráðamanna Kringl- unnar og Borgarkringlunnar um samstarf um rekstur verslunar- miðstöðvanna. Þeir fela í sér að opnað verður á milli bílastæða húsanna og ráðist í veigamiklar breytingar innandyra í Borgar- kringlunni. Um verslunarrekstur þar munu gilda sömu reglur og gilda í Kringlunni. Þá verður stofnað nýtt félag um eign Kringlunnar 4-6 hf. í Borgarkringlunni, Islenska fast- eignafélagið ehf. Hlutafé þess er 500 milljónir króna. Kringlan 4-6 hf., sem er í eigu íslandsbanka, Landsbankans, Iðnlánasjóðs og Iðnþróunarsjóðs, mun eiga 85% hlut í hinu nýja félagi en Húsfé- lag Kringlunnar fær 15% hlut í skiptum fyrir aðgang að bíla- stæðum. Á myndinni sem tekin var við undirritun samninganna eru m.a. þeir Óskar Magnússon, forsljóri Hagkaups, Werner Rassmusson, stjórnarformaður Húsfélags Kringlunnar og Þorgils Óttar Mathiesen, stjórnarformaður Kringlunnar 4-6 hf. KANADÍSKA flugfélagið Canada 3000 mun fjölga komum sínum hing- að til lands næsta sumar og gerir félagið ráð fyrir því að vera með 8 ferðir á viku til Kanada frá 29. apríl og fram til októberloka, að sögn Steinþórs Jónssonar, umboðsmanns Canada 3000 hér á landi. Félagið mun því hafa viðkomu á Keflavíkur- flugvelli 16 sinnum í viku sem er talsverð aukning frá því sem verið hefur. Steinþór segir að einnig standi til að opna skrifstofu félagsins hér á landi í Keflavík. Steinþór segir að formlegt leyfi samgönguráðuneytisins liggi ekki enn fyrir því að félagið fái að taka far- þega um borð hér á landi á leið til Kanada. „Hins vegar höfum við feng- ið vilyrði ráðuneytisins fyrir því að leyfið verði afgreitt nú eftir helgina." Hann segir að í framhaldinu verði unnið að því að fá leyfi fyrir því að félagið taki einnig farþega um borð á leið sinni til áfangastaða í Evrópu. „Það er öllu flóknara en við höfum hins vegar mætt mjög jákvæðu við- horfi hjá flugmálayfírvöldum og sam- gönguráðuneytinu," segir Steinþór. Hann segir að ekki liggi endanlega fyrir hversu. há fargjöldin komi til með að verða, en stefnt sé að því að þau verði mjög hagstæð. Það sé hins vegar ljóst að hægt verði að bjóða upp á enn hagstæðari fargjöld ef leyfi fáist til að selja einnig ferðir til Evr- ópu. Samvinnuferðir-Landsýn munu sjá um farmiðasölu fyrir félagið hér á landi. Steinþór rekur Hótel Keflavík og segir hann að skrifstofa Canada 3000 komi til með að vera þar til húsa. Hann segir að hann hafí hafið viðræð- ur við félagið í tengslum við möguleg áhafnaskipti hér á landi og hafí nú náðst samningar þess efnis og muni áhafnimar gista á Hótel Keflavík. Hann segist jafnframt binda vonir við það að viðkomur Canada 3000 muni auka komur erlendra ferðamanna hingað til lands. Meðal annars sé verið að kanna möguleikann á því að farþegar félagsins hafi hér viðkomu í 2-3 daga áður en þeir haldi áfram til Evrópu. „Þessi möguleiki þýðir líka aukna möguleika fyrir íslenska ferða- menn þvi að net félagsins er mjög þétt og býður upp á ýmsa möguleika í tengiflugi, m.a. áfram til Bandaríkj- anna.“ Canada 3000 var sett á fót árið 1988 og hefur vaxið mjög hratt. Fé- lagið á nú 16 flugvélar, 11 af gerð- inni Boeing 757-200 og 5 af gerðinni A320 Airbus. Það flytur árlega um tvær milljónir farþega. Bandaríska stórblaðið Wall Street Journal fjallar um uppsögn Ólafs Jóhanns hjá Sony Undrabamsfor- stjórinn bak við marg- miðlunarstarfsemina BANDARÍSKA stórblaðið The Wall Street Journal skýrir í gær frá þeirri ákvörðun Ólafs Jóhanns Ólafssonar að láta af störfum hjá Sony. í fyrir- sögn blaðsins segir: Olafsson hjá Sony hættir: Byggði upp margmiðl- unarumsvifín. Frétt WSJ sem virðist hafa haft aðgang að traustum upplýsingum um umbrotin innan Sony-samsteyp- una á liðnum mánuðum, segir að Ólafur Ólafsson, 33 ára „undra- barns“-forstjóri sem byggt hafi upp margmiðlunarveldi Sony Corp“ hafi látið af störfum, og hann sé hinn síðasti af nokkrum æðstu yfirmönn- um samsteypunnar sem hverfi úr yfirstjórninni. Sagt er að uppsögn Ólafs komi flórum mánuðum eftir að honum hafi fyrirvaralaust verið vikið sem forstjóri Sony Interactive Enterta- inment, sem verið hafi fyrirtækið sem hélt utan um öll umsvif fyrirtæk- isins á sviði margmiðlunartækni. Starfinu hafi fylgt að hafa yfirum- sjón með velheppnaðri markaðssetn- ingu Sony Playstation leikjatölvunni í N-Ameríku. Brottvikning Ólafs hafi komið í kjölfar djúpstæðs ágreinings við yfir- menn hans í Tókíó um verðlagningu á leikjatölvunni og markaðssetningu. Honum hafí þó að lokum verið leyft að verðleggja kerfið á 290 dollara í stað 350 eða 400 dollara en deilum- ar kostað hann stuðning innan sam- steypunnar. Frá því að leikjatölvan kom á mark- að síðasta haust hafi selst rúmlega 800 þúsund tæki í N-Ameríku en auk þess 4 milljónir leikja. Heildartekjur á heimsvísu séu taldar muni nema upp undir milljarði dollara á ijárhags- árinu sem lýkur í mars, segir WSJ. Fram kemur að þegar Ólafi var vikið hafi heyrt undir hann um 10 þúsund starfsmenn, þar á meðal þeir sem störfuðu hjá Sony Entertainment í Evrópu sem hefur bækistöðvar í London. Sem stjómarformaður fyrir- tækis Sony sem annast stefnumótun tækniþróunar undir það síðasta hafi Ólafur hins vegar ekki verið falin nein rekstrarleg ábyrgð. „í ljósi þess hvers við höfum áorkað og þeirrar staðreyndar að gamanið er farið af þessu, var kominn tími til þess fyrir mig að hverfa að öðru,“ hefur blaðið eftir Ólafí Þó að hann færist undan því að tjá sig frekar við blaðið segir það að álitið sé að nokkur af helstu fyrirtækjum skemmti- og útgáfu- iðnaðarins hafi nú þegar borið í hann víumar. Talsmaður Sony segir það eitt um brotthvarf Ólafs að hann hafi hætt til að snúa sér að öðrum hugðarefn- um. Skjótur frami Wall Street Journal rekur einnig að Michael P. Schulhof og helsti stuðningsmaður Ólafs, hafi sjálfum verið vikið úr forstjórastól Sony í Ameriku í leikfléttu sem að baki hafi staðið aðalforstjóri Sony, Nobuyuki Idei. í fyrradag hafí síðan verið tilkynnt að Martin Homlish væri að hverfa úr forstjórastarfi Sony Computer Éntertainment í Ameríku eftir stuttan stans og færi aftur til starfa hjá risavöxnu rafeindafyrir- tæki samsteypunnar. Rakið er að Schulhof hafi ráðið Ólaf til sín sem ungan mann meðan hann stundaði enn eðlisfræðinám við Brandei-háskóla þar sem Schulhof hafði einnig numið hjá sama prófess- or. Þegar Ólafur hafi lýst því yfir að hann hyggðist hverfa frá skólan- um hafi prófessorinn óskað eftir því við Schulhof að hann teldi Ólafí hug- hvarf en Schulhof þá í stað þess ráðið Ólaf árið 1985 og sent hann til San Jose í Kaliforníu, þar sem Sony var þá að byggja upp jaðar- tækjaframleiðslu sína fyrir tölvur. í framhaldi af því hafi Ólafur ver- ið gerður að forstjóra Sony Electr- onic Publishing árið 1991, fyrirtæki sem byggt var upp frá grunni. Þar hafi Ólafur stjórnað ýmsum tilraun- um Sony til að hasla sér völl á sviði margmiðlunardiska (CD-Rom). Þeg- ar hins vegar þessar tilraunir á margmiðlunarsviðinu skiluðu ein- ungis miðlungsárangri, hafi Ólafur á síðasta ári ákveðið að stokka upp starfsemina og veðja nánast öllu á Playstation leikjatölvuna. Það hafi reynst snjöll ákvörðun því að leikja- töívan hafi fengið frábæra dóma hjá fagritum um sjónvarps- og tölvuleiki auk þess sem í hugbúnaði hafi kom- ið fram leikirnir Warhawk og NFL GameDay sem náð hafi metsölu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.