Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINIMIIMGAR MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 39 hinn eini sanni kvenhestur og hent- aði mér því ágætlega. Enda var sú raunin. Allir sem þekktu afa vissu um orðhittni hans og þá hæfileika að gefa hlutunum nýjan lit. Hefur þetta aukið orðaforða okkar sem umgengust hann og annað slagið heyrist alltaf: „Eins og afi seg- ir . . . “ Afi átti sína hijúfu skel og gat verið orðhvatur en flest áttum við greiða leið undir skelina þar sem bjó elskandi maður með mikla um- hyggju fyrir fjölskyldu sinni. Hann var mikill persónuleiki sem ætíð var gaman að hlusta á. Nú vildi ég að ég geymdi allar hans sönnu sögur. Eg finn ekki fyrir sorg heldur eigingirni yfir að hafa misst slíkan afa en um leið er ég þakklát fyrir allar okkar samverustundir og bý að þeim alla ævi. Við ykkur elsku mamma, móður- bræður og fjölskyldur segi ég: Ver- ið ekki sorgmædd, hann er kominn til ömmu. Ingibjörg Elsa Ingjaldsdóttir. Genginn er nú yfir til betri heima minn gamli og góði vinur, Elías Kr. Kristjánsson. Ekki get ég látið hjá líða að minnast með nokkrum orðum þessa einstaka manns, sem gaf mér svo mikið og var svo góður félagi og vinur. Við kynntumst lík- lega fyrst sumarið 1958 þegar for- eldrar mínir fluttu í Kópavoginn. Elli, eins og hann var oftast kallað- ur, eiginkona hans Ingibjörg Finn- bogadóttir og það sem eftir var heima af börnunum, höfðu fyrir stuttu flutt í nýtt hús sem þau byggðu í Hlégerðinu. Við áttum heima í húsinu beint á móti við götuna, en þarna á nesinu var þá verið að byggja sem mest á þessum árum. Elli hafði byggt sér stóran bílskúr við húsið sitt, og þar rak hann nú bifreiðaverkstæði sitt ásamt öllu tilheyrandi. Kársnesið, fjaran og sjórinn voru nú heldur betur land ævintýranna hjá okkur krökkunum. Þarna voru óbyggð holt og móar, og mikið af gijóti, lyngi og mosagjótum. Þó að mikill tími færi í leiki og útivist í félags- skap jafnaldranna þarna, þótti mér ekki síður áhugavert og spennandi að fá að koma inn á bílaverkstæðið hjá Ella. Það var segin saga að allt- af tók Elli vel á móti slíkri heim- sókn, talaði við þann stutta og leyfði að fylgst væri með því sem þar var að gerast. Fór fljótlega að bera við að Elli kallaði undan bílnum, heyrðu Garðar Hólm, geturðu ekki rétt mér skrúflykil númer þetta eða hitt, eða töngina með flata kjaftinum. Elli hafði einatt þann sið með menn sem hann þekkti eða nágranna, að finna á þá ný nöfn eða bæta viðurnefni við þeirra eigin nöfn. Alltaf kallaði hann mig Garðar Hólm, og ekki man ég eftir að mér þætti það neitt óþægilegt. Seinna komst ég að því hvaðan nafnið var komið en það breytti svo sem engu. Þetta var allt vel meint hjá Ella, hann hafði svo geðfelldan húmor fannst mér, fylgdist alltaf vel með náunganum og okkur krökkunum. Það var á margan hátt sérstakt að búa þarna i þessu umhverfi. Þegar skólinn gaf sitt jólafrí, hóf- umst við þegar handa við að safna í áramótabrennu. Það sem var puð- að, borið í litlu fangi eða dregið á eftir sér í brennuna, að ímynda sér núna hvað mikið var á sig lagt til að gera brennuna sem stærsta. Staðurinn var á auðu lóðinni á ská á móti Ella, við hliðina á húsinu heima. Alltaf fylgdist Elli vandlega með þessu, kom oft út og hjálpaði okkur með stóra hluti þegar þeir voru dregnir að og gaf okkur góð ráð við að hlaða köstinn. Ég man vel eftir fyrsta gamlaárskvöldinu þegar kveikja átti í. .Við strákarnir vorum heldur betur brattir við að reyna það, en það vildi eiginlega ekkert loga. Elli var ekki ljarri frek- ar en áður, og allt í einu var hann kominn með brúsa til okkar sem hann skvetti úr, og svo annan brúsa og fór þá heldur að magnast eldur- inn. Þetta var ógleymanlegt, og svo öll blysin og raketturnar og hvellirn- ir. Eftir á að hugsa, þá voru þarna saman komnir flestir aða allir íbúar götunnar, og hvað fólkið skemmti sér vel og var í góðu skapi. Elli og Ingibjörg hugsuðu vel um garðinn sinn, ræktuðu hann vel, settu niður tré og blóm. Ekki var síðri myndarskapurinn þegar reist var girðing um lóðina, „solid“ og falleg, með hlið út að götunni. Ósjaldan mátti sjá Ella úti í garði með sláttuvélina og klippurnar, allt var vel hirt og þeim til sóma. Árin liðu við leik og störf, oft kom ég á verkstæðið til Ella og hélt upptekn- um hætti, fór sjálfur að bauka eitt og annað við hjól og skellinöðrur, og allt var það sjálfsagt hvað Ella varðaði, þó að oft hljóti að hafa reynt á þolrifin í honum. Elli gaf góð ráð í viðgerðum og var alltaf tilbúinn að hjálpa. Þegar Elli fór í bæinn að kaupa varahluti fékk ég ósjaldan að fara með. Við spjölluð- um um hitt og þetta og ekki var ónýtt að fá að sjá um gírskipting- arnar, því bíladellan og áhuginn fyrir vélum og tólum sagði til sín. Óft töluðum við um daginn og veg- inn á verkstæðinu, og þeir sem þar unnu. Elli hafði sínar skoðanir á hlutunum: „Góði gættu vel að því hvaða starf þú velur þér um ævina, farðu alls ekki í bílaviðgerðir, það er tóm vitleysa. Þetta er ekkert nema kostnaðurinn. Farðu heldur í pípulagnir eða rafvirkjun, þá ertu alltaf að vinna í annarra manna húsnæði, í annarra manna_ hita og hefur auk þess betra kaup. í þessum bílaviðgerðum er allt undir lagt, tómur skítur allt í kring um mann. Maður verður að stórvara sig á að eyðileggja ekki húsgögnin, gólf- teppin, bílinn sinn og sjálfan sig með.“ Allt var þetta nú samt sagt í þeirri glettni sem einkenndi Ella svo mjög, og vandalaust var að lesa milli línanna. Elli losnaði eiginlega ekki við mig af verkstæðisgólfinu fyrr en undir tvítugt, en þá fór ég á sjóinn (í annarra manna húsnæði og annarra manna hita). Elli og Ingibjörg fluttu síðar í Hafnarfjörðinn, seldu húsið sitt fal- lega I Hlégerðinu og voru með því að minnka við sig, enda öll börn þeirra flutt út og farinn að búa. í þau 26 ár sem liðin eru síðan leiðir okkar skildu að mestu, höfum við þó oft hist, talast við í síma og heimsótt hvor annan. Eftir að ég flutti utan að landi til Reykjavíkur, gáfust fleiri tækifæri en áður til að hittast. Elli bjó þá ennþá á Álfa- skeiðinu í Hafnarfirði, þá fyrir all- mörgum árum orðinn ekkjumaður. Hann var þó ekki einn, því Guð- björg og synirnir litu til með honum og fylgdust með hvernig hann hefði það. Elli átti alltaf sinn bíl og ók um eins og áður, það var honum nauðsynlegt. Oft hafði hann orð á því við mig, að ekki væru allir mjög tillitsamir í umferðinni, en ef ég set bara upp hattinn, gengur allt bet- ur. Elli hafði nú ekki mikið fyrir stafni á þessum tíma, hafði þó ver- ið við vinnu fram undir þetta. Hon- um hálfleiddist aðgerðarleysið og fór nú svo að ég fór að koma við hjá Ella og taka hann með mér í styttri túra í minni vinnu, á Suður- nesin og jafnvel norður yfir heiðar. Alltaf var Elli jafn skýr í kollinum og mundi flest frá liðnum árum. Verst var að heymin var farin að- gefa sig, svo að samræðumar gengu ekki alltaf eins greiðlega og áður fyrr. Ekki mátti neitt hafa fyrir honum, erfitt var að fá að gefa honum kaffi eða eitthvað að borða í ferðunum, en oftast tókst nú að lempa eitthvað ofan í minn mann þegar við settumst inn ein- hvers staðar. Síðustu árin bjó Elli á Hrafnistu í Hafnarfirði. Héldum við uppteknum hætti þegar færi gafst en ferðirnar voru þá styttri. Ein síðasta ferðin sem ég fór með Ella í bæinn var nú í desember síð- astliðnum, hann þurfti að endurnýja happdrættismiðana sína hjá Há- skólanum. Hann sagði mér þá að þetta yrði í síðasta sinn sem hann ætlaði að endurnýja, hann hefði hvort eð er aldrei unnið neitt, en það gerði ekkert til. Heyrnin var nú orðin ansi léleg hjá honum síð- ustu misserin, og heilsan farin að dala mikið, en alltaf var samt gamli góði karakterinn þarna fyrir innan, sem gaman var að hitta og ná sam- bandi við. Ég veit að aðrir, sem betur til þekkja um ætt og uppruna Ella, munu skrifa um hann hér, en EIli lést 17. janúar sl. að Hrafnistu í Hafnarfirði. Ég veit að hann hafði lifað viðburðaríka ævi á umbrota- tímum íslensks þjóðfélags, og svo sannarlega mundi hann tímana tvenna, frá moldarkofum til glæsi- húsa okkar tíma, fátækt til velsæld- ar á þessu okkar blessaða landi. Ég bið nú góðan Guð að taka vel á móti honum og veita honum verð- ugan sess, þar sem hann hittir gengna ástvini og félaga frá fyrri tíð. Takk fyrir allt og allt Elli minn. Megi góður Guð styrkja synina og dótturina, svo og alla fjölskyld- una, ættingja og vini sem nú sjá á bak Elíasi, sem reynst hefur þeim vel svo lengi. Garðar Sigurvaldason. t Ástkær fóstri minn og uppeldisbróðir okkar, KRISTJÁN JÓNASSON frá Hellu á Fellsströnd, andaðist í Borgarspítalanum þann 6. janúar sl. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Elín Jóna Gunnarsdóttir, Magnús Ólafur Óskarsson, Anný L. Guðmundsdóttir, Jóhanna Tryggvadóttir. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEFÁNJÓNSSON fyrrv. bifreiðastjóri, Grænumörk 5, Selfossi, sem lést 16. janúar sl., verður jarðsung- inn frá Selfosskirkju fimmtudaginn 25. janúar kl. 13.30. Sigrún Ólafsdóttir, Jenný D. Stefánsdóttir, Þórarinn Björnsson, Steinar Stefánsson, Guðrún Ólafsdóttir, Gunnar B. Guðmundsson, Helga Jónsdóttir og barnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, HILDIGUNNUR GUNNARSDÓTTIR (Stella) frá Helluvaði, Jórufelli 10, Reykjavík, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 22. janúar. Anna Gunnarsdóttir, Jón Arnar Sigurjónsson, Kristinn Gunnarsson, Ásdís Gunnarsdóttir, Gunnar S. Gunnarsson, Anna Jóhanna Jónsdóttir og barnabörn. t Elskuleg systir okkar og mágkona, BRYNHILDUR STEINGRÍMSDÓTTIR, Lindasíðu 2, Akureyri, lést á heimili sínu að kvöldi laugardags- ins 20. janúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 30. janúar kl. 13.30. Þórhildur Steingrímsdóttir, Tómas Steingrimsson, Ragnhildur Steingrímsdóttir, Sigurður Karlsson. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNA JÓHANNESDÓTTIR frá Gaul, lést í Sjúkrahúsi Akraness 21. janúar. Útförin verður gerð frá Akraneskirkju föstudaginn 26. janúar kl. 14.00. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KARL KRISTJÁN KARLSSON stórkaupmaður, sem andaðist að kvöldi 16. janúar, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 25. janúar kl. 13.30. Ingvar Jónadab Karlsson, Guðrún Soffía Karlsdóttir, Hildur Halldóra Karlsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnbarnabarn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jóhanna ÁRNÝINGVALDSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju í dag, miðvikudaginn 24. janúar, kl. 13.30. Jóna Fríða Leifsdóttir, Svanhildur Leifsdóttir, Kristján I. Leifsson, Halldór Leifsson, Ásta Sólrún Leifsdóttir, Birgir Guðmannsson, Þorvaldur S. Hallgrímsson, Margrét Björnsdóttir, Anna Rósa Sigurgeirsdóttir, Gestur Ó. Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innnilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur, SVANHILDAR GUÐBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR, Stífluseli 6. Helga Hákonardóttir, Þór Garðarsson, Hildur Hákonardóttir, Þorgeir Guðmundsson, Magnús Hákonarson, barnabörn og systkini.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.