Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 19
_____________VIÐSKIPTI____________
Norðmenn leyfa olíuleit
Ósló. Reuter.
NORÐMENN hafa boðið olíu- og
gasfyrirtækjum leyfi til að bora á
46 svæðum samkvæmt nýrri
stefnu, sem veitir hveiju fyrirtæki
aukinn hlut.
Jens Stoltenberg orkuráðherra
sagði að tilboð hefðu verið gerð
16 af 19 fyrirtækjum, sem sótt
hefðu um leyfi til leitar í 15. sinn.
Fyrirtæki, sem hafa fengið til-
boð um þátttökurétt og rekstrar-
leyfi, eru Amoco Norway, BP
Norway, Esso Norge, Norsk
Hydro, Mobil Development
Norway, Phillips Petroleum Norsk,
Saga Petroleum, Norske Shell og
Statoil.
Stoltenberg sagði á blaða-
mannafundi að beinn fjárhagsleg-
ur hlutur ríkisins (SDFI) mundi
minnka í 30% að meðaltali úr 37%
þegar leyfin voru veitt í 14. sinn
fyrir nokkrum árum.
Fyrirtækin 16 munu geta skipt
með sér 18 vinnsluleyfum á 13
stöðum nálægt gömlu olíu-
svæðunum í Norðursjó og á 22
hættulegri svæðum vestur af
Noregi.
Fyrirtæki, sem er aðeins boðinn
þátttökuhlutur, eru Norsk Agip,
Amerada Hess Norge, Norske
Conoco, Elf Petroleum Norge,
Enterprise Oil Norwegian, Fina
Production Licenses og Total
Norge.
11 milljarðar rúmmetra
Stoltenberg sagði að svæðin 46,
sem eru 10 færri en voru til at-
hugunar fyrir ári, hefðu að geyma
um 34% nýtanlegra birgða á
norska landgrunninu.
Þær birgðir eru taldar nema
sem svarar 11 milljörðum rúm-
metra af olíu og þar af höfðu
aðeins 15% verið nýttir í árslok
1994.
Sérfræðingar segja meiri líkindi
til að ný svæði finnist í Norðursjó
en á hafinu milli Islands og Nor-
egs. Þar hefur sama sem engin
vinnsla átt sér stað, en ef ný svæði
finnast þar verða þau líklega
stærri.
Olíuvinnsla Norðmanna nemur
rúmlega þremur milljónum tunna
á dag og þeir eru annar mesti olíu-
útflytjandi heims, næstir á eftir
Saudi-Aröbum.
Muniö eftir spjallþætti David
Letterman í kvöld kl. 23:00
Stóraukinn
hagnaður
Microsoft
Seattle. Reuter.
MICROSOFT hefur skýrt frá því að
hagnaður fyrirtækisins hafí aukizt
um 54% á síðasta ársfjórðungi, að
miklu leyti vegna mikillar sölu á eink-
atövum, sem flestar hveijar eru seld-
ar með nýju Windows 95 stýrikerfi.
Hagnaðurinn jókst um 575 millj-
ónir dollara, eða 90 sent á hluta-
bréf, á þremur mánuðum til desem-
berloka og var aukningin talsvert
meiri en spáð hafði verið í Wall
Street. Á sama tíma 1994 nam hagn-
aður Microsofts 373 milljónum doll-
ara, eða 60 sentum á hlutabréf.
Sala jókst um 48% í 2.20 milljarða
dollara úr 1.48 milljörðum. Rekstrar-
tekjur námu 87 sentum á bréf sam-
anborið við 84 sent sem sérfræðingar
höfðu spáð.
Bob Herboid yfirrekstrarstjóri
kvað þessa metútkomu sýna að æ
fleiri notendur um allan heim væru
að koma sér upp búnaði sem fyrir-
tækið framleiddi. Hlutabréf í Mic-
rosoft hækkuðu um 2,75 dollara í
87,625, þótt reikningsyfirlitið væri
birt eftir lokun. Síðan hækkuðu bréf-
in í 89 dollara.
-----» ♦ »
Finnskum
GSM-notend-
um mun fjölga
Helsinki. Reuter.
TVÖ helztu fjarskiptafyrirtæki Finna
gerir ráð fyrir að notendur stafrænna
GSM farsíma muni tvöfaldast í ár
eftir mikinn uppgang í fyrra. Ríkis-
fyrirtækið Telecom Finland gerir ráð
fyrir um 200 þús. nýjum GSM not-
endum á næsta ári og er það nær
tvöföldun á núverandi notendafjölda.
Aðalkeppinautur Tele, Radiolinja
Oy Ab, gerir einnig ráð fyrir að GSM
viðskiptavinir fyrirtækisins muni tvö-
faldast fyrir lo’k þessa árs í 250.000.
Um fimmti hver Finni notar far-
síma í dag en Tele gerir ráð fyrir
því að rúmlega helmingur lands-
manna verði orðnir notendur fyrir
aldamót.
Námskeið sem borgar sig frá fyrsta degi:
UmsjónTölvoneta
Ef þú vilt minnka rekstrarkostnað við tölvunetið þitt
er jjetta námskeið fyrir þig. Námskeið
fyrir þá sem vilja sjá um rekstur tölvuneta!
36 klst námskeið, kr. 44.900,- stgr.
ÍNámskeið á þriðjudögum og laugardögum
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuráögjof • námskeiö • utgáfa
Grensásvegi 16 • sími 568 8090
Raðgrciðslur Euro/VISA
hk 95094
Eigendur spariskírteina ríkissjóðs athugið!
VAXTAKJÖRDAGURINN
AÐ NÁLGAST
Fáðu þér
spariskírteini ríkissjóðs
með gullnum kaupbæti:
H
991 l.fl.D
Kr.1000.000
VERÐTWGGD
Sf^RISKÍRrnEllNI
RÍKISSJÓUUR ÍSIANDS
•JltlK Kt.NNtlOr, Afl HANN smhuar
!f
! .1 M.iUt r, .
1 “*'*» I irA,
■A <!*• ~ tviwt.
.. .. A I rrtu r«M,LuK
Ij ó-tt»n Vy
r* VJo-Hnaw kt., a.»
wKbmi IW»W..
J
rfiiLtkýSSk.
fv.m,«.)!»■ wv (
VÍB
Átta góðar ástceður til að
fjárfesta í Sjóði 5
1. Alltaf innleysanleg - enginn fastur gjalddagi.
2. Stöðug ávöxtun - 7,0% raunávöxtun sl. 5 ár.
3. Auðvelt að fylgjast með verðmæti bréfanna.
4. Engin fyrirhöfin - ekkert umstang.
5. Hægt að kaupa fyrir hvaða íjárhæð sem er.
6. Sérfræðingar sjá um ávöxtun.
7. Eignarskattsfrjáls.
8. 100% ábyrgð ríkissjóðs.
SJÓÐUR 5 HJÁ VÍB
c. 10%
A. Spariskírteini rikissjóös
+
B. Óverðfryggð ríkisverðbréf
C. Húsbréf
B. 25% A. 65% Sjóður 5 hjó VIB
FORYSTA í FJÁRMÁLUM!
Leggdu inn gamla sparishírteinið
...og fáðu margþcettan kauphœti
VlB
VERÐBREFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi Islands •
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560-8900. Myndscndir: 560-8910.
MATTURINN