Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 33 AÐSEIMDAR GREINAR Þriðjungur jafnaldra mínna til sjós hefur farist í sjóslysum NÚ í janúar barst mér í hendur blað er nefnist Útvegurinn, blað þetta er fréttabréf LÍÚ fyrir desember 1995. í umræddu blaði er grein eftir Guðfínn G. Johnsen um sleppibúnaðinn. Nefnir hann greinina Er tímabært að lögleiða notkun hans? Greinin gengur út á það að starfsmenn LÍÚ vilja ekki láta lögleiða búnaðinn þrátt fyrir að búið sé að viðurkenna hann af Siglingamálastofnun ríkisins, ástæður eru að hann hefur ekki hlotið alþjóða viðurkenningu skv. SOLAS, og að þeirra mati stang- ast hann væntanlega á við alþjóða reglur eða reglur ESB. Einnig eru þeir hræddir við að þetta standist ekki samkeppnisreglur, með öðr- um orðum, starfsmenn LÍÚ treysta ekki Siglingamálastofnun né sjómönnunum og samtökum þeirra til að meta þetta, heldur verði að koma til útlendingar, þetta er aðalatriðið í þeirra huga, ekki öryggi eða líf sjómannsins. En lítum á rökin sem G.J. legg- ur fram í grein og bréfi sem hann vitnar til í grein sinni. Þar sem ég hef undir höndum bréfið sem hann sendi í samgönguráðuneytið, ætla ég að birta skilyrðin orðrétt, því einhverra hluta vegna hefur orðið breyting á því í greininni. í bréfínu eru skilyrðin sex en þau eru aðeins orðin fjögur í greininni og orðuð á annan veg enda ætluð öðrum til aflestrar. Þar sem bréfíð er fjórar síður og of langt til að birta það í heild ætla ég aðeins að birta skil- yrðin orðrétt og merkja þau 1 til 6 og gera svo athugasemdir við hvern lið, sjómenn geta svo metið sjálfír umhyggjuna sem þessir menn hafa fyrir lífí þeirra: í Ijósi ofanritaðs hvetur Lands- samband íslenskra útvegsmanna ráðuneytið eindregið til að endur- skoða afstöðu sína og fresti gildis- töku ákvæða 2-8 7 gr. reglugerð- ar nr. 189/1994 þar til eftirtalin skilyrði eru uppfyllt: 1. A.m.k. tveggja til þriggja ára reynsla hefur fengist á búnaðinn við eðlilegar aðstæður og sýnt þyki að hann uppfylli þær vænt- ingar sem til hans eru gerðar. Athugasemdir: Sigmunds- búnaðurinn er búinn að vera um borð í skipum í 10-14 ár og hefur reynst uppfylla þær væntingar sem til hans eru gerðar þegar slys hafa orðið, og komið mjög vel út í skoðunum. 2. Búnaðurinn hlotið alþjóða viðurkenningu skv. SOLAS, þ.e.a.s. búnaðurinn, framleiðslu- og prófunaraðferðir ásamt skoð- unarleiðbeiningum hlotið viður- kenningu s.b. IMO res A689/17. Athugasemdir: Engar reglur eru til sem skylda Siglingamála- stofnun til að krefjast þess að búnaðurinn sé viðurkenndur af SOLAS. Þetta setur LÍÚ eingöngu fram til að tefja málið. Það má benda á að tvö skip hafa verið keypt til Vestmannaeyja á síðustu árum frá Frakklandi, þau voru með gúmmíbjörgunarbáta sem merktir voru með viðurkenningu samkvæmt SOLAS. Þessum bát- um var hent á haugana eins og hveiju öðru drasli, þar sem þeir stóðust ekki kröfur Siglingamála- stofnunar, enda lítið gagn í þeim á neyðarstundu við Islandsstrend- ur. Sömu sögu má segja um björg- unarbúninga sem voru um borð í öðru skipinu. Það er því engin trygging fyrir gæðum að hafa stimpil frá SOLAS. Enda segir Guðfinnur í blaðagrein í Morgun- blaðinu 10. ágúst sl. eftirfarandi: „Þá ber þess að geta að í reglu um prófunaraðferð á sjálfvirkum sleppibúnaði er sérstaklega bent á einn óvissuþátt sem að mínu mati ber að hafa í huga þegar metið er hvort skylda skuli sjálfvirka sleppi- búnaðinn, en þar seg- ir: Prófanir á virkni og hegðun undir yfir- bori sjávar eru gerðar í kyrrum sjó og getur því ekki gefið óyggj- andi niðurstöður í sjó- gangi og sterkum straumi." Með öðrum orðum, það er lítið að marka þessar prófanir að mati Guðfinns. 3. Endurskoðuð hafa verið stærðarmörk þeirra skipa sem búnaðurinn hefur verið skyldaður í. Ekki verður séð t.a.m. hvaða tilefni er til að skylda sjálf- virkan sleppibúnað í skip lengri en 45 m. Athugasemdir: Þarna kemur fram kjarni málsins, starfsmenn LÍÚ sjá enga ástæðu til að setja sleppibúnað í skip stærri en 45 m. Hvaða rök færa skrifstofumenn LÍÚ sjómönnum á þessum skipum? Þegar togarinn Krossanes SH 308 (sem að vísu er undir þessum stærðarmörkum) fórst á Halamið- um í febrúar 1992 og með skipinu hluti áhafnar, gerðist það aðeins á þremur til fimm mínútum, svo naumur var tíminn að skipveijar höfðu ekki allir tíma til að fara í björgunarbúninga. Á þannig augnablikum skiptir tíminn öllu máli, að geta sjósett gúmmíbát á sem fljótvirkastan hátt. Þá má benda á að stærri skip okkar (45 m og lengri) eru farin að leita á fjarlægari mið þar sem ísing- Sigmar Þór Sveinbjörnsson arhætta getur verið mikil og gúmmíbátar fá þá oft á sig ísingu, þá er nauðsynlegt að hafa sleppibúnað sem getur brotið af sér ís. Því miður hafa þessir skrifstofumenn engan áhuga né áhyggjur af því eins og þetta skil- yrði sannar. 4. Lokið hefur verið endurskoðun íslenskra sérákvæða, umfram ákvæði ESB tilskipun- ar um öryggi hski- skipa og samræmingu þeirra við tilskipunina eins og samtökin óskuðu eftir í bréfi til Siglingamálastofnunar (A.G.) 27. október sl. Athugasemdir: Þarna sjá LÍÚ- menn gott tækifæri til að vinna á móti búnaðinum, því þeir eiga auðvitað mann í þessari endur- skoðunarnefnd eins og í öllum nefndum sem fjalla um þessi mál. Ég segi gott tækifæri vegna þess að þeirra orð virðast hafa meira vægi í samgönguráðuneytinu en hjá öðrum samtökum. Þetta hefur berlega komið í ljós við baráttu sjómanna fyrir sjálfvirka sleppi- búnaðinum. Þegar til umræðu var í haust að fresta gildistöku reglu- gerðar um sjósetningarbúnað sendu eftirtaldir aðilar frá sér áskorun til samgönguráðuneytis- ins: Farmanna- og fiskimanna- sambandið, Sjómannasambandið, öll sjómannafélögin í Vestmanna- eyjum, og Siglingamálastofnun ríkisins taldi ekki rétt að fresta gildistöku reglugerðar, síðan má benda á að Utvegsbændafélag Starfsmenn LÍÚ eru ekki að hugsa um öryggi sjómanna, segir Sigmar Þór Svein- björnsson, heldur pen- ingalega hagsmuni. Vestmannaeyja gerði samþykkt að þessu yrði ekki frestað, enda hafa útgerðarmenn í Vestmanna- eyjum verið í forystu hvað varðar öryggismál sjómanna og eru for- göngumenn hvað gálgann varðar, en LÍÚ drengirnir sögðu nei og samgönguráðuneytið og ráðherr- ann beygðu sig fyrir því afli sem virðist ráða íslandi í dag. 5. Staðfest að krafa um sjálf- virkan sleppibúnað gangi ekki í berhögg við ákvæði ESB tilskipun- ar um öryggi fiskiskipa. Athugasemdir: Sjómenn, metið það sjálfír hvort verið er að hugsa um öryggi ykkar eða eitthvað ann- að! Eða þurfum við að fá leyfi ESB til að bjarga lífi íslenskra sjó- manna? 6. Fróðlegt væri einnig að fyrir lægi mat Samkeppnisstofnunar á því hvort það samrýmist sam- keppnislögum að skylda tiltekinn aðila til að kaupa búnað sem ein- ungis■ er framleiddur af einum aðila. En það var t.a.m. megin ástæða þess að ESB féllst ekki á að taka til umfjöllunar hvort setja ætti kröfu um slíkan búnað íESB- reglur um öryggi fiskiskipa. Athugasemdir: Þetta sjötta skil- yrði sannar okkur enn einu sinni að starfsmenn LÍÚ eru ekki að hugsa um öryggi sjómanna heldur einhveija peningalega hagsmuni, ég segi það enn og aftur og stend við það, að þeim mönnum serrí ' haga sér þannig er nákvæmlega sama um líf sjómanna. í umræddri grein undrast Guð- fínnur að Farmanna- og fiski- mannasambandið og Sjómanna- sambandið skuli standa með sínum mönnum í þessari baráttu fyrir bættu öryggi þeirra, það hneykslar hann að þessir menn ásamt Sigl- ingamálastofnun skuli ekki kok- gleypa rökin í áróðursbréfí LÍÚ. Hann endar grein sína á því að segja við okkur sem reynum að vinna að bættu öryggi sjómanna' að við ættum að skammast okkar fyrir að taka ekki mark á starfs- mönnum LÍÚ. Hann gefur í skyn að við vinnum ekki af heilum hug. Að endingu vil ég fræða þessa menn á hvers vegna ég og margir aðrir hér í Vestmannaeyjum vinna að bættu öryggi sjómanna. Ég er fæddur árið 1946 og var ásamt 47 peyjum í Gagnfræðaskóla Vest- mannaeyja, af þessum 47 drengj- um völdum við 12 drengir okkur sjómennsku sem ævistarf, fjórir af þessum tólf hafa farist í þremur sjóslysum, eða 33%. Þetta er ein- ungis minn árgangur, margir tug- ir ungra manna frá Vestmannaeyj- um hafa á undanförnum 25 árum látið lífíð við störf sín, sömu sögu er að segja allt í kringum landið. Óvenju fáir sjómenn fórust á síð- asta ári eða aðeins þrír, en þeir voru allir frá Vestmannaeyjum. Það er undarlegt að samtök útgerðarmanna, LÍÚ og SÍK, skuli setja menn til höfuðs okkur sem erum að reyna að bæta öryggi sjómanna. Nær væri fyrir þessi samtök að vinna með okkur að^ þessum málum en ekki á móti. Höfundur cr umdæmisstjóri Sigl- ingnmálastofnunar í Vestmnnnn- eyjum og áhugnmaður um örygg- ismál sjómnnna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.