Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 AÐSEIMDAR GREINAR MORGUNBUAÐIÐ Kostnaður við rekstur sjúkrahúsa hefur minnkað SÍÐUSTU árin hef- ur því stöðugt verið haldið fram af ýmsum aðilum, að nauðsyn- legt hafi verið að lækka útgjöld til heil- brigðismála. Út- gjaldaaukning hafi verið í heilbrigðiskerf- inu frá ári til árs, hvað sem liði _ hag þjóðar- búsins. Útgjöld ríkis- sjóðs hafa árum sam- an verið meiri en tekj- ur og ríkissjóður stöð- ugt þurft að taka lán til að standa undir útgjöldum. Vaxta- byrði ríkissjóðs hefur því stöðugt aukist og er í fjárlögum þessa árs gert ráð fyrir, að ríkissjóður þurfi að greiða yfir 13 milljarða króna í vexti! Flestum hlýtur að vera ljóst, að slíkur hallarekstur ríkissjóðs geng- ur ekki til lengdar. Til að ráða bót á því er um tvennt að ræða: auka tekjur ríkissjóðs og/eða minnka útgjöld. Slíkar ráðstafanir eru yfir- leitt ekki til vinsælda fallnar. Skattahækkanir og minni fjárveit- ingar eru öruggar leiðir til að kalla fram mótmæli. Því er mjög mikil- vægt, að gætt sé fýllstu sanngimi og heiðarleika, þegar reynt er að rétta af fjárhag ríkissjóðs, ef ætlunin er að að gera það í sem mestri sátt við þjóðina. Er rekstur sjúkra- húsa of dýr? Vegna þessa vanda ríkissjóðs hafa fjárveitingar til heilbrigðis- mála vera lækkaðar verulega á undanförnum árum. Útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála voru árið 1994 um 111 þús. kr. á mann eða svipuð upphæð og árið 1987 (verðlag 1994). Hámarki náðu -þessi útgjöld 1991 og voru þá tæplaga 118 þús. kr. á mann eða um 6% hærri en þau voru 1994. Útgjöld sjúkrahúsa voru árið 1994 um 11% lægri en er þau voru hæst árið 1988. Þrátt fyrir þessa miklu útgjalda- lækkun til heilbrigðismála og sjúkrahúsa á undanförnum árum er því enn haldið fram, að nauð- synlegt sé að lækka fjárveitingar til sjúkrahúsa. Vandi ríkissjóðs og þjóðarbúsins kreijist uppstokkun- ar á rekstri og skipulagi sjúkra- húsanna. Sjúkrahúsin í Reykjavík munu þurfa að lækka útgjold sín um 700-800 millj. kr. á þessu ári ef halda á rekstri þeirra innan ramma fjárlaga. Er það virkilega svo, að rekstur sjúkra- húsanna sé að sliga þjóðfélagið? Hvernig er kostnaður við heil- brigðiskerfið í saman- burði við aðrar þjóðir? Sé litið á heilbrigðisút- gjöld sem hlutfall af vergri landsfram- leiðslu í OECD-ríkjun- um kemur í ljós, að á undanförnum árum hafa íslend- ingar ráðstafað álíka miklu .til heilbrigðismála og OECD-þjóðirn- ar að meðaltali. Árið 1992 voru heilbrigðisútgjöld Íslendinga 8,2% af vergri landsframleiðslu, sem var sama hlutfall og hjá OECD-þjóð- unum að meðaltali. íslendingar voru þar í 13. sæti af 24 (sjá töflu). Árið 1994 var þjóðarframleiðsla á mann á íslandi sú níunda hæsta í heiminum. Einungis átta þjóðir höfðu meiri þjóðaframleiðslu á mann, skv. fréttatímaritinu Newsweek 8. janúar sl. Sé litið á fjárlög fyrir 1996 kem- ur í ljós, að fjárveitingar til sjúkra- húsanna í Reykjavík eru um 11 milljarðar, eða um 9% af fjárlög- um. Þótt hér sé vissulega um að ræða tæplega ‘Ao hluta af fjárlög- um ríkisins er vart hægt að segja að þessar fjárveitingar skipti sköp- um varðandi hag ríkissjóðs, þegar tillit er tekið til þess mikilvæga hlutverks sem sjúkrahúsin gegna fyrir alla þjóðina. í fjárlögum eru 6.400 millj. kr. ætlaðar til alls stofnkostnaðar hjá ríkinu. Þar af eru íjárveitingar til stofnkostnaðar (m.a. tækja og búnaðar) sjúkra- húsanna í Reykjavík 275,5 millj. kr. eða um 4,3% af stofnkostnaði skv. A-hluta fjárlaga. Eitt sjúkrahús í Reykjavík? Sýnir þessi samanburður, að nauðsynlegt sé að grípa til slíkra örþrifaráða, að ekki sé hægt að veita sjúku fólki nauðsynlega þjón- ustu eða að öll sjúkrahúsþjónusta verði færð á hendur eins aðila? Er líklegt, að sjúkrahúsþjónustan verði ódýrari ef einungis einn rekstraraðili veitir þjónustuna? Er það virkilega svo, spyr Magnús Skúla- son, að rekstur sjúkra- húsanna sé að sliga þjóðfélagið? Vilja neytendur og skattgreiðend- ur engan valkost né samanburð hafa á gæðum og kostnaði við sjúkrahúsþjónustu? Margir þekkja dæmi um sjúklinga og starfsmenn, sem lent hafa upp á kant við til- teknar deildir, en getað fengið úrlausn sinna mála á sambæri- legri deild á öðru sjúkrahúsi. Ein- okun er óskastaða fyrir einokuna- raðilann, en slæmur og hættulegur kostur fyrir neytandann og greið- andann. Það á jafnt við um sjúkra- húsþjónustu sem aðra starfsemi. Fullyrðingar um, að þjóðin hafi ekki efni á að reka tvö svokölluð „hátæknisjúkrahús“, geta vart tal- ist sannfærandi með hliðsjón af framangreindum samanburði og því að innan við 1% af rekstrar- kostnaði Borgarspítala undanfarin ár hefur farið til kaupa á tækjum og búnaði, sem að mestu leyti hefur verið til endumýjunar. Á síðasta ári fóru um 30 millj. kr. til slíkra útgjalda á Borgarspíta- lanum. Einn banki eyðir 200-300 millj. kr. árlega til tölvuvæðingar og svokallaður „hátæknibúnaður“ í hvert fiskiskip kostar tugi eða hundruð milljóna. Höfum við þá efni á því? Hvað sögðu erlendu ráðgjafarnir? Að undanförnu hefur enn á ný verið getið um tillögur erlends ráðgjafarfyrirtækis, sem á að hafa lagt til sameiningu Borgarspítala og Landspítala. í skýrslu þessa fyrirtækis frá 1991, er tekið fram, að í henni komi fram skoðanir stjórnar og starfsmanna Ríkisspít- alanna varðandi stefnu og væntr- ingar um stefnumótun spítalans til langs tíma. Ekki hafi verið kannað að hve miklu leyti væri unnt að uppfylla þær óskir er fram hafi komið. I næsta áfanga átti síðan að kanna hagkvæmni aðal- markmiða Ríkisspítala, kanna að hve miklu leyti framtíðarstefnu- mörkun sé hagkvæm og móta hagkvæma stefnumörkun. Þessi vinna mun ekki hafa farið fram og því lýsir þessi skýrsla fyrst og fremst óskum og sjónarmiðum til- tekinna starfsmanna Ríkisspítal- anna. Niðurstaða Kostnaður hins opinbera við rekstur sjúkrahúsa hefur farið minnkandi síðustu sjö árin, sam- kvæmt upplýsingum Þjóðhags- stofnunar, en er ekki sífellt að vaxa eins og stöðugt er klifað á. Útgjöld íslendinga til heilbrigðis- mála eru í eðlilegu samræmi við það sem gerist hjá öðrum þróuðum þjóðum. Sjúkrahúsin í Reykjavík eru ekki slík byrði á ríkissjóði, að ástæða sé til að grípa til fljótfærn- islegra aðgerða, sem ekki byggjast á efnislegu mati á hvort þær séu hagkvæmar eða ekki. Höfundur er framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar hjá Sjúkra- húsi Reykjavíkur. Klæðningin sem þolir íslenska veðróttu r~ Hvítt Grátt r Blátt Fílabein STiic Leitið ti!btoba ÁVALLT TIL A LAGER ÞÞ &co Þ. ÞORGRIMSSON &CO ÁRMÚLA 29- 108 REYKJAVlK SÍMAR 553 8640/568 6IOO,fax $88 8755. Magnús Skúlason Útgjöld hins opinberatil heilbrigðismála 1980-1994 Á mann í þús. kr. á verðlagi 1994 * 1980 1985 1987 1988 1989 1990 1994 i. Almenn sjúkrahús 46,30 57,50 66,00 66,90 65,40 61,30 59,60 2. Öldrun og endurhæfmg 6,20 9,60 11,70 12,90 14,00 15,90 15,90 3. Heilsugæsla 10,70 13,90 17,00 17,60 18,30 18,90 18,00 4. Lyf og hjálpartæki 6,70 11,30 11,30 11,40 13,30 14,80 13,20 5. Ónnur heilbrigðisútgjöld 3,00 3,40 4,10 5,80 6,00 4,70 4,70 Opinber heilbrigðisútgjöld 72,90 95,70 109,90 114,60 116,90 115,70 111,40 * Heilbrigðisútgjöld hins opinbera staðvirt með verðvísitölu samneyslunnar. Heim- ild Þjóðhagsstofnun. Lyfjabúr sjúkrahúsa NÝLEGA birtist áuglýsing í Spítala- póstinum, starfs- mannablaði Borgar- spítalans (nú Sjúkra- hús Reykjavíkur), þar sem . tilkynnt erum opnun lyfjaafgreiðslu „apóteksins" í spítal- anum. Auglýsingunni er beint til starfsfólks, ellilífeyrisþega og ör- yrkja og þeim boðin sérkjör umfram aðra — væntanlega al- menna — viðskipta- vini. Auglýsingin , ber með sér að „sjúkrahúsapótekið“ hafi heimild til almennrar lyfjasölu en þar tel ég stjórnendur sjúkra- hússins fara offari í túlkun laga. í Lyfjalög nr. 93/1994 segir að sjúkrahúsum sé „heimilt að starf- rækja sérstök sjúkrahúsapótek sem hafa umsjón með og bera ábyrgð á öflun og varðveislu lyfja og eftirlit með notkun þeirra á einstökum deildum." Aðeins í tveimur tilvikum er „sjúkrahúsapóteki" heimilt að af- greiða lyf til annarrar notkunar en á deildum sjúkrahússins, og er það til sjúklinga sjúkrahússins sem eru að útskrifast og til göngu- deildarsjúklinga, og þá einungis gegn lyfseðlum merktum viðkom- andi sjúkrahúsi og útgefnum af læknum sjúkrahússins. Samkvæmt lögum er augljóst að starfsemi „sjúkrahúsapóteka“ er verulega frábrugðin starfsemi apóteka og verður hvergi séð að ætlun löggjafans hafi verið að færa almenna lyíjadreifingu inn í sjúkrahúsin. Starfsemi apóteka er lögvernduð og má einungis nota heitið „apótek“ yfir lyfjaverslanir sem reknar eru af handhöfum lyf- söluleyfa. Því er nafnið „sjúkra- húsapótek“ villandi þar sem það bendir til hlutverks og þjónustu, sem ekki er ætlast til af löggjafanum að sjúkrahús annist. Stjórnendur Borg- arspítalans lýstu yfir áformum sl. vor um að vænst væri 25 milljón króna aukinna sértekna með sölu lyfja til sjúklinga úr apóteki. Væntanlega hefur þar verið um að ræða sömu mistúlkun á ákvæðum Lyfjalaga um „sjúkrahúsapó- tek“. Enda þótt vel sé skiljanleg leit stjórnenda sjúkrahúsa um nýj- ar leiðir til aukinna sértekna, hag- Hvergi verður séð, segir Jón Þórðarson, að ætlun löggjafans hafi verið að færa almenna lyfjadreifingu inn á sjúkrahúsin. ræðingu og sparnað, þá er rekstur apóteka samkvæmt lögum ekki hiutverk sjúkrahúsa. Það hlýtur að teljast eðlileg krafa til stjórnar Sjúkrahúss Reykjavíkur, að hún lagi starfsemi „sjúkrahúsapóteksins“ að settum lögum og þar sem orðið „apótek“ hefur ákveðna merkingu í huga fólks og samkvæmt lögum væri eðlilegt að nota annað orð um lyfjaafgreiðslu sjúkrahússins, t.d. lyfjabúr. Höfundur er apótekari. Jón Þórðarson Breyta þarf lög- um um kjör forseta Islands NÚ, ÞEGAR for- setakosningar nálg- ast, er að koma í ljós að allmargir ætla sér í framboð. Eins og nú horfir við má ætla að frambjóðendur verði a.m.k. 8-10 og þá flestir mjög frambæri- legir. Því má gera ráð fyrir að atkvæði skipt- ist á nokkuð marga, þannig að enginn fái jafn afgerandi fylgi og í fyrri forsetakosn- ingum. Sú staða getur vel komið upp að sigur- Sú staða getur vel kom- ið upp, segir Björn Matthíasson, að sigur- vegarinn hafi ekki nema 15-20% atkvæða á bak við sig. vegarinn hafi ekki nema 15-20% atkvæða á bak við sig. Það þýðir um leið að 80-85% kjósenda höfn- uðu sigurvegaranum, og er það afleitt vega- nesti fyrir næsta for- seta íslands í upphafi vegferðar. Það er því nauðsyn- legt að breyta 11. gr. laga um framboð og kjör forseta íslands nr. 36/1945, þannig að sigurvegarinn verði ekki lengur sá sem hæstri atkvæðatölu hefur náð, eins og nú segir í lögunum, held- ur verður að koma á tveimur kosningarum- ferðum, þar sem kosið verður í síðari umferðinni milli þeirra tveggja er flest atkvæði hlutu í fyrri umferðinni. Með því einu er hægt að tryggja að forseti íslands hafi stæðilegan hluta at- kvæða á bak við sig og geti starf- að með raunhæft umboð frá þjóð- inni. Það er ekki seinna vænna að Alþingi taki málið strax til með- ferðar, því að þessi breyting verð- ur áreiðanlega umdeild og þingið þarf sinn tíma til að vinna úr henni fyrir vorið. Höfundur er hagfræðingur. Björn Matthíasson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.