Morgunblaðið - 24.01.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 11
FJÁRHAGSÁÆTLUN REYKJAVÍKURBORGAR
Hámarkshraði lækkaður
í Hlíða- og Lækjahverfi
RAKEL Adolphsdóttir bíður við gangbraut við Hlíðaskóla. Morgunbiaðið/Ásdts
Umferðar-
slysum fækkað
um 20% fram
til aldamóta
SAMKVÆMT fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir
auknu framlagi til umferðarörygg-
ismála, að sögn borgarstjóra. Gert
er ráð fyrir að í Hlíða- og Lækja-
hverfi verði afmörkuð 30 km svæði
með þrengingum, hraðahindrunum
og breyttri aðkomu. í undirbúningi
er umferðaröryggisáætlun með það
að markmiði að fækka umferðar-
slysum um 20% fram til aldamóta.
Göngustígur frá
Grafarvogi í Elliðaárdal
í ræðu borgarstjóra við fyrri
umræðu um fjárhagsáætlun borg-
arinnar kom fram að sérstök
áhersla yrði lögð á umbætur útivist-
arsvæða í nýjum hverfum og í Efra-
Breiðholt, sem hafi orðið útundan
í áranna rás. Þá verða hafnar fram-
kvæmdir við friðlandið í Vatnsmýr-
inni með það fyrir augum að vernda
þar enn frekar náttúru og fuglalíf.
Enn fremur er gert ráð fyrir
lagningu göngustíga um borgar-
landið og sagði borgarstjóri að
áætlað væri að leggja göngustíg
úr Grafarvogi og inn í Elliðaárdal,
svo að gangandi og hjólandi íbúar
i Grafarvogi komist að og frá hverf-
inu án þess að fara yfir miklar
umferðargötur.
Af öðrum gatnaframkvæmdum
nefndi borgarstjóri að gerð yrði
vinstri beygja af Reykjanesbraut
inn í Norður-Mjódd, sem mun gera
aðkomu að verslunarmiðstöðinni
aðgengilegri en nú er.
Borgarstjóri sagði að gert væri
ráð fyrir endurbótum í Austur-
stræti á árinu. Gatan væri mjög
slitin enda hafi verið gert ráð fyrir
að Austurstræti yrði göngugata en
ekki að bílar færu þar um eins og
síðar varð. Jafnframt yrði ráðist í
endurbætur í Templarasundi við
Dómkirkjuna en kirkjan ætti af-
mæli á árinu.
Endurbætur yrðu gerðar á
Hverfisgötu sem miðuðu að því að
gera götuna að tvístefnuaksturs-
götu. Samhliða yrði öryggi gang-
andi vegfarenda aukið á götunni
með gönguleiðum yfir hana til móts
við Þjóðleikhúsið, Vitastíg og
Vatnsstíg.
Til framkvæmda á Skólavörðu-
holti verður varið 20 milljónum.
Sagði borgarstjóri að það væri mjög
brýnt að lagfæra svæðið framan
við Hallgrímskirkju.
Aukinn
stjórnunar-
kostnaður
Risna lækkar
um 50%
í SKÝRSLU borgarstjóra með
fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar kemur fram að kostn-
aður af stjórnun borgarinnar
og rekstri borgarskrifstofanna
í Ráðhúsinu er áætlaður um
386,2 milljónir á árinu. Er það
27,9 milljón króna hækkun
miðað við áætlaða útkomu síð-
astliðins árs. Fram kemur að
risna borgarinnar lækkaði um
50% miðað við árið 1994.
í máli borgarstjóra á fundi
borgarstjómar kom fram að á
síðasta ári hafi náðst umtals-
verður sparnaður í risnu- og
ferðakostnaði borgarinnar.
Kostnaður vegna risnu á árinu
1995 var rúmar 14 milljónir
en var 27 milljónir árið 1993
og rúmar 28 milljónir árið
1994.
Halli á rekstri
sundstaða
HALLI á rekstri sundstaða
árið 1996 er áætlaður um 98
milljónir króna, samkvæmt
skýrsju borgarstjóra með fjár-
hagsáætlun Reykjavíkur.
Þar segir ennfremur að
heildarkostnaður við rekstur
sundstaða á vegum íþrótta-
og tómstundarráðs sé áætlað-
ur um 322 milljónir árið 1996
en aðgangseyrir og aðrar tekj-
ur em áætlaðar um 224 millj.
Um 6,3% aukning
til menningarmála
1,1 milljarður króna
til íþrótta, tómstunda
og æskulýðsmálefna
S AMANLÖGÐ framlög til menn-
ingarmála eru áætluð 567,2 millj-
ónir króna að frádregnum endur-
greiðslum, segir í skýrslu borgar-
stjóra með fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar. Er þetta 6,3%
hærri upphæð miðað við áætlun
síðasta árs, en þá fóru útgjöld
málaflokksins tæplega 29 milljón-
ir fram úr áætlun.
Fram kemur að verkefni borg-
arinnar á sviði menningarmála
fari sífellt vaxandi og að nærri
láti að borgin sé hálfdrættingur á
við ríkissjóð. Reykjavík sem höf-
uðborg gegni margþættum skyld-
um umfram önnur sveitarfélög og
nú hafi hún verið útnefnd sem ein
af níu menningarborgum Evrópu
árið 2000.
Borgarbókasafnið
Þá segir að kostnaður af rekstri
Borgarbókasafns að frádregnum
endurgreiðslum sé áætlaður 177,1
miljj. Reiknað er með að heim-
sóknir í útlánsdeildir safnsins hafi
verið tæplega 540 þúsund árið
1995 en það er um 7% aukning frá
árinu 1994. Útlánatalning sýni
nær 20 þúsund eininga aukningu
á útlánum yfir sama tímabil. Safn-
ið rekur fimm útibú og tvær bóka-
bifreiðar auk þess sem stefnt er
að því að opna nýtt útibú í kjall-
ara Grafarvogskirkju fyrir lok
ársins.
Rúmar 46 millj.
vegna sýninga
Til Kjarvalsstaða, Ásmundar-
safns og sýninga erlendis verður
varið samtals 46,1 miljj. en Lista-
safn Reykjavíkur hefur einnig
umsjón með allri listaverkaeign
borgarinnar. Auk þess skipulegg-
ur safnið sýningar á verkum eftir
íslenska og erlenda listamenn.
Gert er ráð fyrir 12 sýningum á
árinu á Kjarvalsstöðum, þar af
einni á íslenskri byggingaiist og
tveimur sýningum í Asmundar-
safni. Á árinu er gert ráð fyrir
kynningu á íslenskri myndlist í
Prag, Vilníus og Kaupmannahöfn.
Auk þess mun Listasafn Reykja-
víkur taka þátt í gerð farandsýn-
ingar á verkum eftir Erró í Aust-
urríki og Þýskalandi.
Óeðlilega stór
hluti kostnaðar
Fram kemur að Ljósmyndasafn
Reykjavíkur hefur á undanförnum
árum verið látið bera óeðlilega
stóran hluta kostnaðar af sýning-
arhaldi annarra borgarstofnana.
Á liðnu ári var kostnaður við
rekstur safnsins 13,9 millj. í stað
9,5 millj. samkvæmt fjárhagsáætl-
un. Standa vonir til að á næsta
ári verði unnt að halda kostnaði
í lágmarki og eru 7,1 millj. á áætl-
un til safnsins.
Árbæjarsafn
Framlag til reksturs Árbæjar-
safns, fornleifarannsókna í Viðey,
Vefstofu og Laufásvegar 43 verð-
ur 51,6 miRj. Á árinu er fyrirhug-
að að ljúka endurbyggingu Lækj-
argötu 4 í meginatriðum og opna
hana á 40 ára afmæli safnsins
árið 1997.
Leikfélag Reykjavíkur
Framlag til Leikfélags Reykja-
víkur er áætlað 140 millj. Fram
kemur að sérstökum vinnuhópi
hafi verið falið að yfirfara rekstur
Borgarleikhússins og Leikfélags
Reykjavíkur. Hópurinn hafi skilað
skýrslu, sem byggt verður á og
var í fyrra samþykkt aukafjárveit-
ing til Leikfélagsins. Til Listahá-
tíðar í Reykjavík, sem haldin veð-
ur í sumar verður varið 14 millj.
og er gert ráð fyrir jafnháu fram-
lagi úr ríkissjóði.
FJÁRVEITING til æskulýðs-, tóm-
stunda og íþróttamála verður 1,1
milljarður árið 1996 samkvæmt fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar.
Kostnaður við rekstur æskulýðs-,
tómstunda- og atvinnumála fyrir
ungt fólk er áætlaður 283,4 milljónir
króna. Gert er ráð fyrir að rekstur
íþróttahúsanna við Seljaskóla, Aust-
urberg og við Dalhús í Grafarvogi
verði í umsjá íþrótta- og tómstunda-
ráðs. Kostnaður vegna íþróttahús-
anna auk Laugardalshallar, Laugar-
dalsvalla og félagavalla er áætlaður
53,7 milljónir. Þar af eru um 20,7
milljónir vegna valla íþróttafélag-
anna.
118 millj. vegna
félagsmiðstöðva
í skýrslu borgarstjóra með fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar,
kemur meðal annars fram að á veg-
um íþrótta- og tómstundaráðs eru
starfræktar átta félagsmiðstöðvar.
Áætlaður kostnaður við rekstur
þeirra er 118 millj. Rekstur smíða-
valla heyrir undir íþrótta- og tóm-
stundaráð og að þeim meðtöldum er
kostnaður vegna sumamámskeiða á
vegum ráðsins í hverfum borgarinnar
áætlaður 35,6 millj. Fram kemur að
unnið er að endurskipulagningu sum-
amámskeiða í samstarfí við Skóla-
skrifstofu, með samræmda þjónustu
þeirra og iieilsdagskólans í huga.
Samstarf við skóla
Bent er á að á vegum íþrótta- og
tómstundaráðs, fari einnig fram
umfangsmikið félags- og tómstunda-
starf í samstarfí við grunnskóla borg-
arinnar. Áætlaður kostnaður er 27,6
millj, en tæplega 16 millj. greiðast
af Skólaskrifstofu. Samtals er því
varið um 43,4 millj. til félags- og
tómstundastarfs í gmnnskólum. A
síðasta ári voru þátttakendur 7.180.
Framlag til starfsemi vegna nýbúa
er áætlað 8,9 millj. Um er að ræða
ýmsa félags- og tómstundastarfsemi
og upplýsingamiðlun í samstarfí við
Námsflokka Reykjavíkur og mennta-
málaráðuneytið, auk sérstakra verk-
efna fyrir atvinnulausa nýbúa með
stuðningi Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs.
Starfsemi Hins hússins flutti í
Geysishúsið á síðasta ári en þar fer
fram fjölbreytt starfsemi fyrir ungt
fók á aldrinum 16-25 ára. Kostnað-
ur af rekstri hússins er áætlaður
24,8 millj.
Atvinnumál ungs fólks
I skýrslunni kemur fram að
íþrótta- og tómstundaráð hafi á und-
afömum misserum beitt sér í at-
vinnumálum ungs fólks. Fjárveiting
vegna þessa var um 112 millj. á síð-
asta ári og voi-u um 500 unglingar
og aðrir starfsmenn ráðnir í sérstök
sumarverkefni auk um 440 sem
ráðnir voru í átaksverkefni. Árið
1996 er áætlað að ráða sérstaklega
um 200 skólanema til sumarstarfa
og er gert ráð fyrir 26 millj. vegna
þessara úrræða. Að auki má gera
ráð fyrir að hlutur ráðsins í fjárveit-
ingum vegna átaksverkefna geti orð-
ið allt að 25 millj. Þá hefur Reykja-
víkurborg í samvinnu við Iðnskólann
staðið fyrir starfsmenntunarnámi
yfir sumarmánuðina. Námið nær til
atvinnulausra ungmenna á aldrinum
16-20 ára og er miðað við 200 nem-
endur í hverri lotu. Á síðasta ári
sóttu yfír 500 ungmenni um þau 200
pláss sem fyrir hendi voru. í fjár-
hagsáætlun er ráðgert að veija 20
millj. til samskonar verkefnis fyrir
allt að 200 nemendur og er gert ráð
fyrir að um 200 störf skapist vegna
verkefnisins.
Skíðað og skautað
fyrir 45,7 milljónir
KOSTNAÐUR við skautasvell og
skíðasvæði á vegum Reykjavíkur-
borgar er áætlaður samtals 45,7
milljónir, samkvæmt skýrslu borg-
arstjóra með fjárhagsáætlun
Reykj avíkurborgar.
Skíða- og skautasvæði á vegum
borgarinnar heyra undir íþrótta-
og tómstundaráð. í skýrslu borgar-
stjóra kemur fram að kostnaður við
skíðasvæði innan borgarmarkanna,
skautasvella í hverfum og við
skautasvellið í Laugardal sé áætlað-
ur um 20,3 millj. Ennfremur er
áætlað að hlutur borgarsjóðs í
kostnaði af rekstri skíðasvæðanna
í Skálafelli og Hengli og rekstri
Bláfjallasvæðisins verði 25,4 millj.