Morgunblaðið - 24.01.1996, Page 22

Morgunblaðið - 24.01.1996, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Fyrri hluti einleikaraprófs þriggja nemenda með Sinfóníuhljómsveit Islands í Háskólabíói Heimunnn er orðinn svo lítill SINFONIUHLJOMSVEIT Is- lands og Tónlistarskólinn í Reykjavík efna til tón- leika í Háskólabíói annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Eru þeir fyrri hluti einleikaraprófs þriggja nemenda Tónlistarskólans í Reykjavík, Ásu Briem píanóleikara, Einars Jónssonar básúnuleikara og Gústavs Sigurðssonar klarínettu- leikara. Hljómsveitarstjóri er Bem- harður Wilkinson. Tónleikamir hefjast á forleik að ópemnni Cosi fan tutte eftir Wolf- gang Amadeus Mozart en að honum loknum mun kastljósið beinast að Gústav Sigurðssyni sem flytja tnun Klarínettukonsert eftir sama tón- skáld. „Þetta er eini konsertinn sem Mozart skrifaði fyrir klarínettu og jafnframt síðasta verkið sem hann kláraði," segir Gústav og bætir við að hann sé af mörgum álitinn besti konsert sem skrifaður hefur verið fyrir hljóðfærið. „Það er mjög merkilegt fyrir þær sakir að klarín- ettan var tiltölulega nýkomin fram á sjónarsviðið þegar konsertinn var saminn. Sjálfur hef ég þekkt hann mjög lengi og valið var því tiltölu- lega auðvelt. Það er alltaf krefjandi að spila Mozart.“ Jafnframt er á efnisskránni Konsert fyrir básúnu og hljómsveit eftir Launy Grondahl. Einleikari verður Einar Jónsson. „Grondahl er vissulega ekki eitt af stóm 'nöfnunum í tónbókmenntunum en í þessu úthverfí tónlistarinnar fínnast ekki margir bitastæðir kon- sertar. Mér fannst mikilvægast að verkið sem ég spilaði gæti höfðað til fólks sem veit ekki mikil deili á básúnunni og konsert Grondahls uppfyllir þau skilyrði. Hann er hnitmiðaður og grípandi," segir Einar. Frumkraftur og viðkvæmni Ása Briem mun flytja Píanókons- ert nr. 2 op. 102 eftir Dmitri Sjost- akovítsj ásamt sinfóníuhljómsveit- inni. „Þetta er mjög skemmtilegur og margþættur konsert. í stóram dráttum má segja að fyrsti kaflinn einkennist af miklum frumkrafti, sá næsti af viðkvæmni og sá síð- asti af fáránleika og margbreytileg- um takti. Síðasti kaflinn er nokkuð sérstakur með hliðsjón af því að framkoma Sjostakovítsj einkenndist af gráum húmor en ekki kátínu. Hann mótaðist mjög af aðstæðum { Sovétríkjunum," segir Ása en konsertinn samdi tónskáldið fyrir son sinn árið 1957. Seinni hluti einleikaraprófs þre- menninganna felst í einleikstónleik- um í vor. Ekkert þeirra hefur þó enn ákveðið stað og stund. En hvað tekur við að því loknu? „Ég ætla í framhaldsnám erlend- is,“ segir Gústav sem fyrstur verður fyrir svömm. „Líklegast til Þýska- Morgunblaðið/Ásdís EINAR Jónsson básúnuleikari, Ása Briem píanóleikari og Gústav Sigurðsson klarínettuleikari verða í sviðsljósinu með Sinfóníuhljómsveit íslands annað kvöld. lands en þar er rík blásarahefð og gott að læra. Að öðru leyti er ég opinn fyrir öllu enda auðvelt að komast í tæri við fjölbreytt listalíf í stórborgum Evrópu." Ása talar í sama anda: „Ég ætla að halda áfram að læra eins lengi og ég get. Eftir einleikstónleikana í vor mun ég hins vegar fara í frí til Indlands til að búa mig undir næstu törn.“ Síðan heldur hún áfram: „Ég er að vinna í umsóknum um þessar mundir og leiðin Iiggur í nám til Evrópu næsta haust - helst til Englands. Annars langar mig til að kynnast mörgum kennumm og sem flestum viðhorfum til tónlistar. En þegar allt kemur til alls byggist tónlistamám fyrst og fremst á manni sjálfum.“ Einar gerir ráð fyrir að taka sér frí frá námi næsta vetur og snúa sér að kennslu. „Hugmyndin er hins vegar að fara fljótlega í framhalds- nám og hef ég þá Bandaríkin, Bret- land og Norðurlöndin efst í huga. Ég á mér hins vegar engan drauma- kennara." Snýst um einkaframtakið Þremenningarnir bera ekki kvíð- boga fyrir framtíðinni - atvinnu- horfur séu ágætar. „Þetta snýst alfarið um einkaframtakið," segir Gústav og heldur áfram, „og þótt sagt sé að atvinnuhorfur séu ekkert sérlega góðar í dag getur það verið fljótt að breytast." Öll langar þau að starfa hér á landi í framtíðinni en segja að út- lönd séu alls ekki fráhrindandi starfsvettvangur. „Ég hef aldrei búið erlendis og langar að prófa það áður en ég tek endanlega ákvörðun. Síðan er heimurinn orð- inn svo lítill að stökkið þarf alls ekki að vera svo stórt,“ segir Ása. Þau sjá heldur ekki ástæðu til að óttast hinn harða heim atvinnu- mennskunnar á þessu stigi málsins. „Við komumst fijótlega að því hvar við stöndum og hvernig við erum undir samkeppnina búin,“ segir Gústav og bætir við að tónleikarnir annað kvöld eigi án efa eftir að skilja eftir sig mikla reynslu og styrkja þau sem listamenn. „Það er virkilega ánægjulegt að fá tæki- færi til að koma fram með atvinnu- sinfóníuhljómsveit og forréttindi sem nemendur njóta almennt ekki erlendis." Söng- skemmtun á Hvolsvelli SÖNGNEMENDUR frá Tónlistar- skóla Ámesinga og Tónlistarskóla Rangæinga halda sameiginlega söngskemmtun á Hvolsvelli fímmtudaginn 25. janúar kl. 21. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem nemendur þessara skóla halda sameiginlega tónleika. Fram koma ellefu einsöngsnem- endur, fímm frá Árnesingum og sex frá Rangæingum og era Ár- nesingamir nemendur Ingveldar Hjaltested en Rangæingarnir nem- endur Jóns Sigurbjömssonar. Munu þeir flytja íslensk og er- lend lög, en einnig munu Rangæ- ingarnir syngja nokkur lög saman. Þetta er í annað sinn sem söng- deild Tónlistarskóla Rangæinga heldur sjálfstæða tónleika, en þeir fyrstu voru fyrir ári í sal skólans. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. Hugsaðu vel um húðina þína. Marja Entrich sér um sína. Gakktu við í Grænu línunni. Græna línan L n u <í a v e g i 4 6 Húðráðyjof - bætiefnaráðgjö/ -kjarni máhins! SÖGUSVIÐIÐ er braggahverfin vestur á Melum. Leitað að braggabúum TÖKUR Á kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Djöflaeyj- an, sem byggð er á svokölluð- um Eyjabókum Einars Kára- sonar, hefjast um miðjan febr- úar og munu að líkindum standa fram í apríl. í aðalhlut- verkum verða Baltasar Kor- mákur, sem fer með hlutverk Badda, Sigurveig Jónsdóttir, sem leikur Karólínu, Sveinn Geirsson, sem leikur Danna bróður Badda, og Halldóra Geirharðsdóttir, sem fer með hlutverk Dollíar. Magnús Ól- afsson mun leika Hreggvið kúluvarpara og líklegt er að meðal annarra leikara verði Eggert Þorleifsson og Sigurð- ur Sigurjónsson. Auglýst hefur verið eftir aukaleikurum í myndina og segja aðstandendur hennar að þeim sé ætlað að leika braggabúana sem verða í hóp- atriðum myndarinnar, til dæm- is í senum frá dansleik og brúð- kaupsveislu. Umsælqendur mega vera á öllum aldri, af öllum stærðum og gerðum. Voff, voff LEIKLIST Leikfélag Hafnarfjarðar IIINN EINI SANNI SEPPI Eftir Tom Stoppard. Leikstjóri: Lár- us Vilþjálmsson. Leikendur: Gunnar Guðmundsson, Axel Axelsson, Katrín Þorláksdóttir, Valdimar Valdimars- son, Eva Sigurðardóttir, Huld Ósk- arsdóttir, Smári Johnsen, Lárus Vil- hjálmsson, Bepjamin J. Kline. Leikmynd og búningar: Allir í Seppa. Ljós: Gunnar Guðmundsson, Kjartan Þórisson. Hljóð: Ragnar Unnarsson Bæjarbíói, Hafnarfirði. Frumsýning, 20. janúar. Á ÞESSU ári era liðin sextíu ár frá stofnun Leikfélags Hafnar- fjarðar. Og ef dæma má af þess- ari uppfærslu á Seppa er engin ellimörk að sjá á félagsmönnum, því flestir sem taka þátt í sýning- unni eru ekki einu sinn komnir á besta aldur. Ánægjulegt er að sjá að ungt fólk skuli ekki verða sinnu- leysinu að bráð sem fylgir skjámöt- unarfaraldrinum sem ríður yfir þjóðina. Leikfélagið ætlar að fagna þessum tímamótum með ýmsum hætti á leikárinu, og er þessi litla, skemmtilega sýning fyrsti Iiðurinn í hátíðahöldunum. Anddyrið í Bæj- arbíói þjónar sýningunni ágætlega og eru áhorfendur í svo mikilli nánd við verkið að minnstu munar að þeir dragist sjálfír inn í atburða- rás þess, eða hvað: Hveijir voru þessir gagnrýnendur sem fóru allt í einu að skipta sér af framvindu leikritsins? Texti Stoppards er að venju ATRIÐI úr Sönnum seppa. ísmeygilegur eins og svartar sokkabuxur: Það er alltaf einhvem veginn hægt að koma meiru í hann en ætla mætti, slík er margræðnin og vísanafjöldinn. Áhugaleikararn- ir fara glettilega vel með hlutverk sín og maður sá hvernig rennslið liðkaðist eftir því sem á leið sýning- una, enda erfitt að leika í svona miklu návígi við áhorfendur. Leikmynd er einkar smekkleg og persónur hæfilega ýktar. Hinn eini sanni Seppi er góð blanda af hinu fyndna og furðulega. Leikfé- lag Hafnarfjarðar býður hana í upphafi afmælisársins, og hún er með sanni ágæt klukkutíma skemmtun. Ekki spillir heldur fyrir að handan götunnar er eitt af bestu kaffihúsum landsins. Guðbrandur Gíslason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.