Morgunblaðið - 24.01.1996, Page 34

Morgunblaðið - 24.01.1996, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ + GUÐMUNDUR JÓNSSON Guðmundur Jónsson var fæddur í Reykjavík 7. des. 1914. Hann andaðist á Land- spítalanum 17. jan- úar sl. Foreldrar hans voru Ragn- heiður Kristófers- dóttir og Jón Guð- mundsson sjómað- ur. Guðmundur var einn af fjórum ;systkinum. Elst er Guðrún ekkja og býr í Reykjavík, Svala sem lést 14 ára gömul, yngst er Kristólína, en hún býr í Englandi með fjöl- skyldu sinni. Eftirlifandi eigin- kona Guðmundar er Olöf Þor- steinsdóttir frá Langholti í Flóa, fædd 11. mars 1916. Þau voru barnlaus. Guðmundur ólst upp í Reykjavík og eftir barnaskóla fór hann að vinna. Fyrst vann hann hjá Kolaversl- un Sigurðar Ólafs- sonar. En um ára- mótin 1944-1945 fékk hann vinnu hjá Veiðarfæraverslun O. Ellingsen og þar vann hann til starfs- loka, eða í 40 ár, lengi sem verslun- arstjóri. Guðmund- ur var virkur í VR og sat í samninga- nefnd um kjaramál fyrir félagið og Landssamband ís- lenskra verslunar- manna þar sem hann sat í stjórn um árabil. Hann hefur hlotið gullmerki VR fyrir vel unnin störf. Hann var sömuleiðis virk- ur í Sósíalistafélaginu og síðar í Alþýðubandalaginu þar sem hann sat í miðstjórn um árabil. Útför Guðmundar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. ÞAÐ ER mér bæði ljúft og skylt að minnast heiðursmannsins Guð- mundar Jónssonar. Eg kynntist Guðmundi stuttu eftir að ég hitti manninn minn Jón Dalbú Hró- bjartsson. Guðmundur var þá til- tölulega nýkvæntur Ólöfu Þor- steinsdóttur móðprsystur Jóns. En í lífi Jóns var Óla frænka engin venjuleg kona. Hún var „frænkan" og þegar hún giftist Guðmundi fékk hann sömu tign í virðingarstigan- um. Guðmundur og Óla voru jafnan nefnd bæði í einu og segir það mik- vjð um hversu náið samband þeirra var. Þar ríkti gagnkvæm virðing, þau uppfylltu hvert annað og voru samtaká í öllu sem gert var. Frá því ég kom fyrst inn á heimili þeirra fann ég fyrir þeirri hlýju og gest- risni sem einkenndi heimilið. Guðmundur var miklum mann- kostum gæddur. Hann var ekki fæddur með silfurskeið í munninum og varð snemma að fara að vinna fyrir sér. Formleg skólaganga varð ekki fyrirferðamikil en í skóla lífsins öðlaðist hann þá reynslu og vísdóm sem gagnaðist honum vel allt lífið, og birtist fyrst og fremst í kærleiks- ríkri afstöðu til allra þeirra sem hann umgekkst. Guðmundur aflaði f^ér þekkingar með lestri bóka og var gríðarlega vel lesinn og fróður um hin ýmsu málefni. Hann var mótaður af lífsbaráttu þriðja og fjórða áratugarins sem hann fór ekki varhluta af, og gekk snemma til liðs við verkalýðshreyfinguna, og var trúr henni allt sitt líf. Hann var í raun hinn sanni jafnaðarmað- ur, starfaði innan vébanda Alþýðu- bandalagsins og hefur vafalaust lagt mörgu góðu máli lið. Hann átti um árabil sæti í stjóm Lands- sambands verslunarmanna og vann heilshugar að því að bæta kjör sinn- ar stéttar. Guðmundur skipaði stóran sess í íj'ölskyldu okkar og í þeim ÓIu Attum við slíkan bakhjarl að því verður ekki með orðum lýst. Börnin okkar eignuðust í Guðmundi „afa“ sem þau sakna sárt og verður skarð hans vandfyllt. Það var gott að setj- ast inn í stofu til Guðmundar og ræða við hann. Hann sýndi mikinn áhuga á þeim viðfangsefnum sem við vorum að glíma við og var óþreytandi í að hvetja okkur til dáða. Guðmundur hafði skemmti- legt skopskyn, var réttsýnn og ótrú- lega víðsýnn. Margar skemmtilegar minningar koma upp í hugann. Við áttum því láni að fagna að ferðast með Ólu og Guðmundi fyrir rúmu einu og hálfu ári um Mið-Evrópu. Guð- mundur var orðinn fótafúinn og bar þess merki að heilsunni var farið að hraka. En hann kvartaði aldrei og lét ekki af að dásama fegurð, veður og sólböð þrátt fyrir að hitinn hafí stundum verið meiri en góðu hófi gegndi. Þessi tími var okkur mjög dýrmætur, sérstaklega þar sem við höfum ekki haft tækifæri til náinna samverustunda síðan, þar sem úthafið hefur skilið okkur að. Um áramótin hittumst við og þá var hann nokkuð bjartsýnn á að geta heimsótt okkur með vorinu til Gautaborgar. En enginn ræður sín- um næturstað. Okkur fannst andlát hans ekki tímabært en þakkarvert er að fá að halda andlegri reisn til síðasta dags og það fékk Guðmund- ur. Við hjónin þökkum samleiðar- sporin með Guðmundi. Hann hefur auðgað líf okkar og verið okkur ómetanlegur stólpi á lífsleiðinni. Guð blessi minningu góðs drengs og styrki Ólu okkar í sorginni. Inga Þóra Geirlaugsdóttir. Það kom okkur í opna skjöldu þegar við systkinin heyrðum þær fréttir að Guðmundur væri dáinn. Dauðinn virðist alltaf koma jafn mikið á óvart, þrátt fyrir að við vitum öll að einhvern tímann þurfa allir að mæta honum. Það er erfítt að lýsa þeim hugsunum sem skjóta upp kollinum þegar svona fréttir berast. Það er fullvíst að okkur systkin- unum þótti öllum afar vænt um Guðmund. Við litum á hann sem eins konar afa okkar. Þau hafa verið ófá skiptin sem við komum á Langholtsveginn til Ólu og Guð- mundar og alltaf var tekið jafn vel á móti okkur. Þolinmæði Guðmund- ar virtist aldrei taka enda sama hversu mikil fyrirferð og læti voru í okkur. Við gátum ieyft okkur ýmislegt sem ekki hefði verið mjög vinsælt heima fyrir. Oft var stofan eins og vígvöllur eftir leiki okkar. Öll munum við eftir bíltúrunum sem hann fór með okkur í. Það var farið niður á höfn oftar en einu sinni og í mörgum tilfellum endaði-ferðin í Ellingsen þar sem að Guðmundur starfaði stærsta hluta ævi sinnar. Ekki má gleyma sundferðunum, en hann var einn af þeim sem stund- aði laugarnar af miklu kappi. Lík- lega hefur hann kennt okkur öllum fyrstu súndtökin. Guðmundur var alltaf vel meðvit- aður um allt sem gerðist í kringum hann. Hann hafði líka fastmótaðar skoðanir um þau mál sem voru í brennidepli í þjóðfélaginu. Það var gaman að ræða við hann um allt milli himins og jarðar. Hann var alltaf tilbúinn að hlusta á það sem við höfðum til málanna að leggja og hefur eflaust haft gaman af vit- leysunni sem kom upp úr okkur. Hann hafði líka alltaf mikinn áhuga á því sem við vorum að gera hverju sinni og hvatti okkur til dáða. Skopskyn Guðmundar var mjög skemmtilegt. Hann átti það til að MINNINGAR Iáta frá sér ýmsar setningar sem komu okkur til að hlæja án þess að hann hafi í sjálfu sér verið að reyna að vera fyndinn. Hann var sem sagt ekki sá sem hló mest af sjálfs síns fyndni. Við eigum öll eftir að sakna Guðmundar mikið og eigum eftir að muna eftir honum sem góðum vini og félaga, manni sem var alltaf tilbúinn að gefa frekar en að þiggja. Elsku Óla okkar, við samhryggj- umst þér innilega og biðjum Guð að varðveita þig í sorg þinni og gefa þér kraft og styrk til þess að takast á við lífið á nýjan hátt. Árni Geir, Ingibjartur, Heiðrún Ólöf og Margrét. Þegar ég kvaddi Guðmund fyrir rúmum tveimur vikum var hann glaður í brágði og kátur að vanda. Honum leið vel, sagði hann og ekki hvarflaði að mér að ég væri að kveðja hann í hinsta sinn. Hann var bjartsýnn þrátt fyrir sjúkdóminn og ég hafði á tilfínningunni að hann langaði að njóta lífsins svolítið leng- ur. Þótt Guðmundur væri ekki afi minn upplifði ég hann jafnan sem slíkan, enda kom hann þannig fram við mig og mér leið alltaf eins og ég væri hjá afa og ömmu þegar ég var hjá Ólu og Guðmundi. Á stundu sem þessari hrannast auðvitað upp minningar, en minn- ingarnar um Guðmund eru aliar góðar. Mér er sérstaklega minnis- stætt þegar við bræðurnir fengum að vera yfir nótt hjá Ólu og Guð- mundi. Þá voru flestar óskir upp- fylltar og ósjaldan fórum við í sund og langa bíltúra um bæinn, sem gjarnan enduðu heima á Langholts- veginum með pönnukökum eða öðru góðgæti. Seinni árin var ómissandi að fara öðru hvetju í heimsókn til þeirra, fá í nefíð hjá Guðmundi og njóta með honum lystisemda lífsins og spjalla um heima og geima, og hjá honum kom maður aldrei að tómum kofunum, því þrátt fyrir háan aldur fylgdist hann með öllum málum og var vel að sér. Það voru líka ánægjulegar stundir sem við áttum saman sumarið 1994 þegar þau hjónin komu ásamt foreldrum mínum og systrum i heimsókn til mín hingað til Karlsruhe. Þá var reyndar sjúkdómurinn farinn að segja til sín hjá Guðmundi, en hann bar sig vel að vanda og auðséð var að hann naut þess að vera í góðu veðri og í öðru umhverfí en venju- lega. Þau hjónin hafa reyndar gert víðreist, og borið augum marga fagra staði, og eiga eftirminnilegar stundir frá ferðalögum sínum. Það var alltaf gaman að fylgjast með þeim hjónúnum, hvernig þau nutu þess að vera i návist hvor ann- ars og augljóst var að ástin þeirra á milli blómstraði. Það er einkenni- leg tilhugsun að hugsa til þess að Guðmundur sé dáinn, það mun taka mig dágóðan tíma'að átta mig á því að hann er farinn og kemur ekki aftur. Missirinn er mikill og ég mun sakna hans mikið. En ég er þakklátur fyrir allar þær stundir sem ég fékk að eyða með honum, þá hvatningu og uppörvun sem hann gaf mér með þeirri lífsgleði og bjart- sýni sem einkenndi hann. Fyrir mína hönd og Helgu Sigríð- ar sendi ég samúðarkveðjur til Ólu frænku, og allra þeirra sem Guð- mundur var kær, og bið þeim öllum Guðs blessunar. Ingibjartur Jónsson. Fallinn er frá mætur maður, minnisstæður þeim sem kynntust honum fyrir mannkosti, dugnað og samviskusemi. Guðmundur Jónsson hóf störf hjá Verslun 0. Ellingsen 1945 og naut strax mikils trausts bæði eigenda og samstarfsmanna. Elstu starfsmenn muna þá tíð, í kringum páska, að Guðmundur lagði oft nótt við dag til að þjóna Færey- ingum og var oft erfitt að gera þeim til geðs. Þá þurfti að útvega öll veiðarfæri, kost, beitusíld og olíur ásamt mörgu öðru. Þetta var ákaf- lega vandasamt starf og ekki á allra færi að þjóna þeim því, eins og þá þótti sjálfsagt, voru þeir oft ve! við skál og hávaðasamir. Guðmundur varð verslunarstjóri í veiðarfæradeild þegar hún var opnuð í Tryggvagötu 1956 og áfram yfir nýju búðinni þegar fyrirtækið flutti út á Granda 1974, og allt þar til hann fór á eftirlaun 1984. Guð- mundur var ákaflega vinsæll maður og naut trausts þeirra mörgu við- skiptavina er versluðu við fyrirtæk- ið. Hann var hjálpsamur og vildi allt fyrir alla gera. Hann var mikill félagshyggjumaður og var meðal annars í stjórn Landsambands ís- lenskra verslunarmanna og í samn- inganefnd fyrir félagið. Ef erfiðleik- ar steðjuðu að einhveijum vinnufé- laganna var gott að leita til Guð- mundar, fá góð ráð og njóta samúð- ar og vináttu hans. Eins og áður sagði byijaði Guð- mundur hjá Verslun 0. Ellingsen 1945 og var þar samfellt í 40 ár og var alla tíð farsæll í starfi. Hann stundaði sund af miklu kappi og varla kom það fyrir að hann færi ekki í laugarnar í hádeginu. Um leið og við þökkum Guð- mundi hið góða samstarf biðjum við honum Guðs blessunar. Konu hans og öðrum aðstandendum vottum við okkar innilegustu samúð. Samstarfsmenn hjá Ellingsen. Einn af mínum bestu vinum úr baráttu síðustu áratuga, Guðmund- ur Jónsson, er látinn, en hann var jafnan kenndur við þann vinnustað, er naut lengstum starfskrafta hans, Ellingsen verslunina í Reykjavík. Hér eru fáein þakkarorð að skilnaði. Guðmundur var dagfarsprúður en kátur í vinahópi enda vinmarg- ur. Hann fór ekki fram með hávaða eða fyrirgangi og hann setti jafnan fram skoðanir sínar og vilja áreitn- islaust, þótt það væri gert með málefnalegum þunga og festu. Það eru ekki margir menn, sem ég hef þekkt um dagana, sem báru virð- ingu fyrir skoðunum annarra með jafnfalslausum hætti og Guðmundur í Ellingsen. Ekki lét hann þó hrekja sig af leið. Hann fletti hispurslaust öllum umbúðum burtu í leit að kjarna hvers máls og var einkar fundvís. Hógværð hans, félagslyndi og greind greiddu mjög götu hans j samskiptum við aðra menn. Guðmundur var hlýr og ljúfur persónuleiki. Það var mikil lífsfyll- ing að vera samferða slíkum manni og eiga hann að vini. Þegar litið er til baka, streyma bjartar minningar upp í hugann, hvort sem það er frá ferðalögum um landið með öðrum góðum félögum, þorrablótum og gleðskap, kappræðufundum eða frá verkfallsátökum. Fyrir þetta allt ber mér að þakka. Guðmundur hafði alltaf mikinn áhuga á stjómmálum og við vorum saman í Sósialistaflokknum og Al- þýðubandalaginu svo áratugum skipti. Á þeim vettvangi var hann íhugull og rökfastur, lagði alltaf gott til mála og var mannasættir. Hann mætti á alla fundi, sem hann var boðaður á, hvort sem þeir vom úti eða inni og tók þátt í flestum aðgerðum og átökum, sem efnt var til á vegum flokks eða verkalýðs- hreyfingar. Guðmundur var verkalýðssinni í þess orðs bestu merkingu. Hann átti aldrei í vandræðum með að sam- ræma hina faglegu baráttu í sínu stéttarfélagi, Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur, sem hann sinnti af heiðarleika og hlutlægni, hinum pólitísku markmiðum sínum með heildarhagsmuni launamanna í landinu fyi-ir augum. Þess vegna var hann ætíð í verklýðsmálaráði flokks- ins og þar var hlustað grannt eftir þvi sem hann sagði. Verður honum seint þakkað framlag hans í þeim efnum. Sár harmur er nú kveðinn að Ólöfu Þorsteinsdóttur eiginkonu hans og fjölskyldu. Ég og kona mín, Ragna, vottum þeim innilega samúð. . ...... Ingi R. Helgason. Guðmundur Jónsson, sem andað- ist 17. þ.m., á áttugasta og öðru aldursári, var einn af traustustu og virkustu félagsmönnum Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur um margra áratuga skeið. Hann gekk í VR þegar hann hóf störf hjá Veið- arfæraverslun 0. Ellingsen í Hafn- arstræti 15, um áramótin 1944/45. Hann hefur verið mjög virkur félags- maður allt frá þeim tíma eða í rúm- lega 51 ár. Þegar breyting var gerð á VR 1955 og það varð einungis skipað launþegum, var Guðmundur kosinn í trúnaðarmannaráð félagsins og hefur hann verið í því lengst af síðan og allt til dauðadags. Guð- mundur hefur setið flest öll þing Landssambands ísl. verzlunarmanna frá stofnun þess 1957 og einnig öll þing ASÍ frá því að verslunarmenn fengu aðild að ASÍ 1964. Hann hef- ur um áratuga skeið verið þátttak- andi í samninganefndum VR og LÍV. Áður en Guðmundur hóf störf hjá Ellingsen vann hann um ellefu ára skeið hjá Sigurði Ólafssyni, kola- verslun, við að flytja kol til bæj- arbúa, sem á þeim tíma kyntu hús sín með kolum. Þá kynntist hann vel bæjarlífinu og peningaleysinu hjá almenningi á þessum árum. I starfí sínu hjá Ellingsen hafði Guðmundur mikil tengsl við atvinnulífið, bæði í Reykjavík og úti á landi. Á starfs- ferli sínum kynntist Guðmundur því vel athafnalífi þjóðarinnar og hafði hann mikla og sterka tilfinningu fyrir lífsafkomu fólks. Það var því mikill styrkur fyrir verslunarmenn að njóta þekkingar og reynslu Guð- mundar, þegar tekist var á í kjara- samningum. Hann vék sér aldrei undan að fylgja fast eftir málum sem hann taldi að hefðu kjaralega þýð- ingu. Hann var fylginn sér en flutti mál sitt ætíð af sanngirni, stutt sterkum rökum mikillar lífsreynslu. Miklar breytingar hafa orðið á kjörum fólks frá því að Guðmundur fór að taka þátt í félagsstarfinu og leggja baráttunni fyrir bættum kjör- -um verslunarmanna lið. Sem dæmi má nefna styttingu dagvinnutímans úr 48 stundum í 38 stundir, lengingu orlofs úr tveimur vikum í rúmar fimm, stofnun Lífeyrissjóðs verzlun- armanna, sem nú er einn stærsti og traustasti lífeyrissjóður landsins, aðild að atvinnuleysistryggingasjóði, stofnun orlofssjóðs, sem á 41 orlofs- hús og íbúðir, stofnun sjúkrasjóðs, sem m.a. hefur staðið að byggingu hjúkrunarheimilisins Eirar, þar sem margir aldraðir félagsmenn VR, sem misst hafa heilsuna, fá nú aðhlynn- ingu og umönnun. Allt hefur þetta kostað mikla bar- áttu og fórnir og var Guðmundur Jónsson mjög virkur þátttakandi í þeirri baráttu. Spor hans liggja í ferli allra þessara mála. í rúma fjóra áratugi fórnaði hann miklum tíma og kröftum í baráttunni fyrir bætt- um kjörum verslunar- og skrifstofu- fólks, sem menn njóta í dag og i framtíðinni. Guðmundur taldi það eina dýrmætustu kjarabót, sem VR hafði samið um, þegar það fyrst allra félaga samdi við vinnuveitendur um lífeyrissjóð árið 1955. Hann sagði að sú kjarabót yrði aldrei ofmetin. Guðmundur sá VR verða stærsta og öflugasta stéttarfélag landsins. Honum þótti mjög vænt um stéttar- félagið sitt og hann mætti á alla fundi, sem félagið boðaði til, og tók virkan þátt í öllu starfí þess. Hann var sæmdur gullmerki VR á 90 ára afmæli félagsins hinn 27. janúar 1991, fyrir mikil og góð störf í þágu félagsins. Nú þegar Guðmundur Jónsson 'er kvaddur hinstu kveðju flyt ég honum einlægár þakkir í nafni Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur fyrir allt hið mikla og góða starf sem hann innti af hendi í þágu félagsins og unnið var af mikilli einlægni og trú- mennsku. Persónulega þakka ég honum áratuga góð kynni, sem aldr- ei bar skugga á. Guðmundur var sérstakt ljúfmenni og hafði góð áhrif á umhverfí sitt. Ég sendi eftirlifandi konu hans, Olöfu Þorsteinsdóttur, einlægar samúðarkveðjur. Magnús L. Sveinsson. 0 Fleirí minning-argreinar um Guðmund Jónsson bíða birtingar ogmunu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.