Morgunblaðið - 24.01.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAPIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 35
JÓHANNA ÁRNÝ
ING VALDSDÓTTIR
+ Jóhanna Árný
Ingvaldsdóttir
var fædd í Selárdal
við Arnarfjörð 12.
nóvember 1922.
Hún lést á Landspít-
alanum 16. janúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Kristján Ingvaldur
Benediktsson og
Jónfríður Gísladótt-
ir. Bróðir Árnýar
var Benedikt, f. 5.
maí 1925, d. 8. ág-
úst 1989. Árný gift-
ist 21. júní 1946
Leifi Halldórssyni, f. 18. októ-
ber 1918, d. 22. apríl 1990.
Hann var sonur Halldórs Páls-
sonar og Hólmfríðar Björns-
dóttur. Arný og Leifur eignuð-
ust fimm börn, þau
eru: Jóna Fríða, f.
27.6. 1947, gift
Birgi Guðmanns-
syni, Svanhildur, f.
26.11. 1948, gift
Þorvaldi S. Hall-
grímssyni, Krislján,
f. 10.2.1950, kvænt-
ur Margréti Björns-
dóttur, Halldór, f.
4.3. 1954, kvæntur
Onnu Rósu Sigur-
geirsdóttur, Ásta
Sólrún, f. 8.3. 1958,
gift Gesti Ó. Pét-
urssyni. Barnaböm
þeirra em fimmtán og baraa-
barnabörn átta.
Árný verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju í dag og hefst
athöfnin kl. 13.30.
NÚ hefur Adda tengdamóðir mín
gengið á fund skapara síns. Ég
kynntist þessari mætu konu fyrir
réttum 12 árum en þá lágu leiðir
okkar Kristjáns sonar hennar sam-
an. Adda var gift Leifi Halldórssyni
frá Nesi í Loðmundarfirði. Hún var
mjög vel gefin kona, hafði lifað
tímana tvenna og var heill hafsjór
af fróðleik um allt milli himins og
jarðar en hafði þó sérstaklega gam-
an af því að segja okkur frá æsku-
stöðvum sínum í Arnarfirði. Ég
minnist sérstaklega stundanna sem
við fjölskyldan áttum með henni í
eldhúsinu hennar í Naustahlein en
þar sagði hún okkur frá samtíðar-
fólki sínu úr Lokinhamradal við
Arnarfjörð þar sem hún bjó frá fjög-
urra ára aldri til tvítugs. Þvílík var
frásagnarhæfni hennar að hún hreif
okkur með sér langt aftur í tímann
og mér fannst ég stundum vera ein
af persónunum. Hún kunni margar
vísur sem samsveitungar hennar
höfðu ort við hin ýmsu tækifæri,
en það var einn af mörgum hæfi-
leikum hennar að vera fljót að læra-
vísur og ljóð og flytja svo allir hrif-
ust af.
Adda var ákveðin kona en ávallt
réttsýn. Hún trúði á Guð og reyndi
að lifa samkvæmt kenningum
kristninnar, vildi að allir lifðu í sátt
og samlyndi hver við annan og
reyndu að stilla saman strengina
ef eitthvað bjátaði á.
Öll hennar starfsævi snerist um
heimili og fjölskyldu, síðan þegar
barnabömin komu hvert af öðm lét
hún sér afar annt um þau, hlúði
að þeim með hlýju sinni og elsku.
Næstum því daglega hringdi hún
til barnanna sinna til að athuga um
líðan og fá fréttir af því sem fólk
var að gera þá stundina. Þá spurði
hún sérstaklega um barnabörnin
sín, hvemig þeim reiddi af í því sem
þau vom að gera og gladdist yfir
velgengni þeirra. Hún fylgdist einn-
ig vel með litlu barnabarnabömun-
um sínum, sem nú eru orðin átta.
Ömmubömin, sem eldri eru, muna
vel samvemstundirnar með afa og
ömmu í sumarbústaðnum í Þrastar-
skógi þar sem þau nutu þess að
leika sér undir vemdarvæng þeirra.
Það er hveijum manni hollt að
kynnast einstaklingi sem er sannur
að einlægni, góðmennsku og trú á
hið góða í manninum. En þannig
manneskja var tengdamóðir mín.
Stundum kom það fyrir að ég velti
því fyrir mér hvernig hún færi að
því að halda ró sinni vegna allra
þeirra veikinda sem hún hefur þurft
að ganga í gegnum. Margir hefðu
eflaust misst trúna á hið góða í líf-
inu, en ekki hún Adda. Hún missti
aldrei trúna, var alltaf glöð og bjart
yfir henni alveg sama hvað hún var
veik.
Hér áður fyrr höfðu tengdafor-
eldrar mínir mikla ánægju af því
að ferðast um landið og njóta ís-
lenskrar náttúru en eftir að Leifur
dó fór Adda oft með okkur fjöl-
skyldunni í stuttar ferðir annað-
hvort um nálægar sveitir eða innan-
bæjar og hafði hún alltaf jafn gam-
an af því að fylgjast með uppvexti
byggðar í sveit og bæ. Ávallt vom
þessar ferðir með Óddu ömmu mjög
dýrmætar fyrir okkur og til-
hlökkunarefni, sérstaklega hlökk-
uðu börnin okkar til að njóta sam-
veru ömmu sinnar.
Nú þegar samvemstundum er
lokið í bili lifír minningin um já-
kvæða og þakkláta konu eins og
best sést í orðum hennar sem hún
sagði við okkur síðasta kvöldið fyr-
ir andlátið þegar börnin hennar
fimm og tengdabörn sátu við rúmið
hennar: „Þetta hefur verið dýrðleg-
ur dagur.“
Nú kveð ég þig, elskuleg tengda-
móðir mín, ég veit að þín er sárt
saknað og bið algóðan Guð að
geyma þig.
Margrét Björnsdóttir.
16. janúar sl. lést á Landspítalan-
um í Reykjavík tengdamóðir mín
Árný Ingvaldsdóttir eftir tveggja
vikna dvöl þar að þessu sinni, en
margra ára baráttu við erfíðan sjúk-
dóm.
Adda var borinn og barnfæddur
Arnfírðingur, fædd í Selárdal, en
flutti bamung með fjölskyldu sinni
yfír fjörðinn, að Hrafnabjörgum í
Lokinhamradal. Þar bjó fjölskyldan,
þar til hún var 18 ára, að þau fiuttu
að Hrafnseyri í sömu sveit.
Samtímis þeim á Hrafnseyri
bjuggu prestshjónin séra Jón Kr.
ísfeld og kona hans Auður Hall-
dórsdóttir. Þar kynntist Adda
manni sínum, bróður prestsfrúar-
innar, Leifí Halldórssyni, frum-
mótasmið, frá Nesi í Loðmundar-
firði.
Adda og Leifur giftust árið 1946,
og hófu þá búskap í Reykjavík. Þó
húsnæði væri þröngt í byijun,
stækkaði ijölskyldan fljótt, og var
því ærinn starfí á herðum Öddu
heima fyrir. Má því nærri geta hve
mikið áfall það varð, þegar Adda
greindist með berkla og þurfti að
yfirgefa mann sinn og fjögur ung
böm, það yngsta á fyrsta ári, og
dvelja á Vífilsstöðum, í einangrun
frá fjölskyldu sinni svo mánuðum
skiptí.
Én aftur birti til, og árið 1955
flutti fjölskyldan í nýtt og rúmgott
hús, sem Leifur hafði sjálfur teikn-
að og byggt að mestu leyti i Mel-
gerði 12 í Kópavogi. Þar fæddist
svo fimmta barnið 1958.
Það var vel tekið á móti mér,
feimnum og óhörnuðum unglingi,
þegar ég fór að leggja leið mína á
heimili íjölskyldunnar í Melgerði,
með dóttur þeirra Svanhildi. Strax
frá fyrstu kynnum var mér tekið
sem einum af fjölskyldunni og naut
ég þar mikillar ástúðar og vináttu.
Hjónin Adda og Leifur voru bæði
einstaklega jákvæðar manneskjur,
og samstiga í að taka þátt í því sem
böm þeirra tóku sér fyrir hendur
og ræddu um. Það var algeng sjón
að sjá hóp vinkvenna elstu systr-
anna sitja í holinu og stiganum í
Melgerði, ræða dægurmál líðandi
stundar, og „vandamál unglingsár-
MIIMNIIMGAR
anna“. Tók þá Adda jafnan fullan
þátt í umræðunum, og lagði alltaf
eitthvað gott til málanna.
Ég ferðaðist mikið með fjölskyld-
unni sem unglingur, og em margar
þær ferðir mér ógleymanlegar. Ég
minnist þess hve skemmtileg ferð
það var, þegar við fómm um
bernskustöðvar Öddu, nutum minn-
inga frá gamalli tíð og heimsóttum
ættingja hennar og gamla vini.
Einnig mun ég geyma með mér
minningu frá ógleymanlegum dög-
um nú fyrir nokkrum ámm, er okk-
ur hjónunum gafst kostur á því að
ferðast með Öddu um þær slóðir
aftur, Lokinhamra, Hrafnseyri og
Selárdal og taka þátt í gleði hennar
við að skoða og rifja upp gamlar
minningar frá bernsku hennár og
unglingsárum.
Aldrei getum við hjónin fullþakk-
að þá miklu hjálp og aðstoð, sem
fjölskyldan veitti okkur alla tíð, allt-
af var hún tilbúin að rétta hjálpar-
hönd, óg alltaf vom drengirnir okk-
ar jafn velkomnir til dvalar á heimil-
inu, skemmri eða lengri tíma, hvort
sem var vegna vinnu okkar,
skemmtana eða ferðalaga, og að
sjálfsögðu hvíldi sú dvöl að mestu
leyti á herðum elskulegrar ömmu
þeirra, sem alltaf var til taks.
Skömmu eftir að Adda og Leifur
seldu hús sitt í Melgerði og fluttust
til Reykjavíkur, festu þau kaup á
landspildu austur í Þrastarskógi.
Þar komu þau sér upp hlýlegu sum-
arhúsi og ræktuðu upp fallega gróð-
urvin. Þama leið þeim mjög vel, og
reyndu að eyða þar sem flestum
frístundum meðan heilsan leyfði.
Þarna vildu þau helst alltaf hafa
hjá sér sem mest af fjölskyldu sinni
og vinum, og voru þær ófáar ánæg-
justundirnar sem ég og fjölskylda
mín áttum með þeim þar.
Eftir að Leifur missti heilsuna,
varð hann vistmaður á Hrafnistu í
Hafnarfírði og dvaldi þar, þar til
hann lést 1990.
Um svipað leyti flutti Adda í
nýtt þjónustuhús þar í grenndinni
og sinnti hún manni sínum af ein-
stakri alúð og umhyggju þaðan.
Síðustu árin voru þeim hjónum
báðum erfíð hvað heilsu snerti. Kom
sér þá vel, hve glaðsinna Adda var
og hennar bjarta viðhorf til lífsins,
sem entist henni til hinsta dags.
Og alltaf var Adda jafn glöð þegar
við komum til hennar í heimsókn í
þjónustuhúsið hennar eða í hlýlega
herbergið hennar á Hrafnistu, sem
hún dvaldi í síðasta árið.
Ég bið góðan guð að styrkja alla
ástvini Öddu, sem sakna nú sárt
elskulegrar mömmu, tengda-
mömmu, ömmu, langömmu og vin-
ar.
Guð blessi minningu hennar.
Þorvaldur S. Hallgrímsson.
Mig langar með fáeinum orðum
að minnast Árnýjar tengdamóður
minnar, en hún lést á Landspítal-
anum 16. janúar siðastliðinn. Við
Adda, eins og hún var kölluð, kynnt-
umst fyrir meira en 30 árum, þegar
dóttir hennar, Jóna Fríða, og ég
löðuðumst hvort að öðru.
Fyrstu sporunum í Melgerðið á
heimili Leifs og Öddu fylgdi nokkur
kvíði og feimni, en hlýtt og vin-
gjarnlegt viðmót Öddu gerði fljótt
þann kvíða að engu, og átti ég þar
ótal ánægjulegar stundir sem lifa í
minningunni.
Þegar við ungu hjónakornin
stofnuðum svo okkar eigið heimili
voru heilræði og hjálp Öddu og
Leifs ómetanlegt veganesti. Adda
var alltaf tilbúin að ljá okkur eyra
og aðstóða okkur á allan hátt sem
hugsast gat, og Leifur sem var
listamaður til allra verka, gerði allt
til að leggja okkur lið.
Adda verður ávallt í mínum huga
miðpunktur fjölskyldu sinnar, klett-
urinn sem allir gátu leitað til jafnt
í gleði og sorg. Það eru alltof fáir,
sem hafa þann eiginleika að geta
hlustað eins og hún gerði, og verið
skjólið sem gott var að leita í þegar
á bjátaði. Uppeldi barnanna fimm
og heimilishaldið hvíldi að miklu
leyti á Öddu, því Leifur vann nán-
ast myrkrana á milli. Öddu fórst
það hlutverk svo vel að börnin litu
hana ekki aðeins á hana með virð-
ingu sem góða móður, heldur einn-
ig sem besta félaga og vin.
Þessu kynntist ég svo enn betur
þegar mín eigin börn litu heiminn.
Elska hennar og umhyggja gerði
það að þau sóttust eftir samvistum
við hana, og ekkert var þeim
ánægjulegra en að fá að gista hjá
ömmu og afa. Allt til hins síðasta
hafa þau deilt með henni vænting-
um sínum og draumum, og því á
hún sinn þátt í að móta framtíð
þeirra og afstöðu til lífsins.
En umhyggja Öddu náði einnig
langt út fyrir fjölskylduna og af-
komendur, því um langt árabil hef-
ur hún eftir bestu getu stutt dreng
í fjarlægu landi. Þetta er fósturson-
ur minn sagði hún og sýndi okkur
mynd af honum, því henni þótti
mikilvægt að geta miðlað þangað
sem þörfín var stór.
Þrátt fyrir langvarandi og erfíð
veikindi var Adda alltaf jafn glöð í
bragði og tók frekar þátt í áhyggj-
um og gleði annarra en að ræða
sína erfiðleika. Hún var einnig svo
næm á að sjá spaugilegu hliðar
mála, þess vegna átti hún kannski
svo auðvelt að eignast góða vini.
Adda kvaddi þennan heim í faðmi
barnanna sinna, sem sakna hennar
sárlega eins og við öll. En ef þessi
tilvera á jörðinni er aðeins einn
áfangi, eins og flestir vilja trúa á,
þá er Adda eflaust nú í hópi ástvina
sem voru farnir á undan henni, og
sú vitneskja gerir okkur söknuðinn
léttbærari.
Hjartans þökk fyrir samveruna,
minningin verður ávallt greypt í
hugann um hugljúfa, mæta konu
og vin.
Birgir.
Nú er lokið erfíðum veikindum
Öddu ömmu okkar. Okkur bama-
börnin langar að minnast hennar
og kveðja í þessum orðum. Hún
amma var mjög stór þáttur í tilveru
okkar. Hún var alltaf tilbúin til að
hlusta og fylgjast með því sem var
að gerast í lífi okkar. Þolinmæði
hennar og hluttekning var ótak-
mörkuð, betri ömmu er ekki hægt
að hugsa sér.
Það er eitt máltæki sem lýsir
hugarfari Öddu ömmu svo vel, en
það er: „Sælla er að gefa en þiggja."
Því hún amma var alltaf svo gjaf-
mild, bæði á veraldlegar en þó ekki
síður á andlegar gjafir, sem virtust
vera óþijótandi hjá henni. Allt sem
amma gerði fyrir okkur var svo inni-
legt og beint frá hjartanu og það
eina sem hún vildi í staðinn var að
sjá okkur gleðjast.
Áður en afí dó, fórum við oft með
þeim í sumarbústaðinn og ýmis
ferðalög. Það var alltaf svo margt
sem þau vildu gera fyrir okkur og
það var ætíð mikið tilhlökkunarefnij
þegar eitthvað stóð fyrir dyrum. I
sumarbústaðnum í Þrastarskógi var
skógi vaxið landið okkur sem stór
leikvöllur. Við réðum okkur sjálf,
byggðum kofa og margt annað með
hjálp afa. Alltaf var samt gott að
koma inn aftur til ömmu og fá eitt-
hvað gott í svanginn. Þar var aldrei
komið að tómum kofunum.
Fjölskylda okkar er orðin stór,
börn ömmu eru 5, barnabörnin 15
og langömmubömin orðin 8. Oft
hittist þessi stóri hópur heima hjá
ömmu á hátíðisdögum. Þá var mikið
ijör. Það að hafa fjölskylduna ná-
lægt sér og að geta tekið á móti
henni og átt þátt í öllum málum,
gleði og sorg, var henni mikils virði.
Þegar við heimsóttum ömmu var
alltaf sest niður í eldhúsinu eða sjón-
varpskróknum og eitthvað lagt á
borð fyrir okkur. Eftir að henni
varð erfiðara um gang bað hún
okkur að ná í sjálf, alltaf varð að
gera gott við gestina. Hún hafði
alltaf sælgæti í nammiskálinni og
það var nauðsynlégt að fá sér mola
og svo einn í nesti þegar maður
fór. Þótt við séum mörg orðin ríg-
fullorðin voru það svona hlutir, að
vera ennþá ömmubarnið í huga
hennar, sem voru svo greinileg
merki um elsku hennar til okkar.
Eitt einkenndi allar heimsóknir
okkar til ömmu. Hún kom alltaf út
í glugga og vinkaði bless um leið
og keyrt var úr hlaði. Það breyttist
ekkert í veikindum hennar. Þegar
við vorum komin langleiðina úr her-
bergi hennar á Hrafnistu og síðustu
dagana á Landspítalanum veifaði
hún okkur á alveg sama máta. Þá
sneri maður sér alltaf við í dyra- . ^
gættinni og veifaði til baka.
Þrátt fyrir mikil veikindi í langan
tíma var hún amma alltaf bjartsýn
og kát, þannig minnumst við henn-
ar. Nú kveðjum við hana með sökn-
uði, en vitum að hennar beið afí,
sem var okkur öllum svo kær.
Barnabörnin.
Dag einn fyrir tæpum sex árum
fórum við Guðmann að heimsækja
Öddu ömmu hans. Ég var að hitta
hana í fyrsta sinn og hálfkveið því.
En Guðmann sagði það óþarfa, hún
myndi taka mér vel. Hún tók vel á
móti okkur og áhyggjur mínar
hurfu eins og dögg fyrir sólu. Eftir
nokkrar heimsóknir leið mér líkt
og ég væri eitt af barnabörnum
hennar.
Adda hafði svo mikla ástúð og
hlýju að gefa, að þegar við hittum
hana var eins og ég hafí alltaf ver-
ið hluti af fjölskyldunni.
Adda varð mér strax kær og mun
ég alltaf minnast hennar með sömu
hlýju og hún gaf mér. Guð gefi
börnum hennar, tengdabörnum og
barnabörnum styrk í sorg þeirra.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi, df
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Anna Lilja.
Með fáeinum línum vil ég minn-
ast föðursystur minnar, sem lést á
Landspítalanum þriðjudaginn 16.
janúar sl.
Jóhanna Ámý, eða Adda eins og
hún var alltaf kölluð heima í Vallar-
gerði, var eina systkini pabba, en
hann lést fyrir rúmum 6 ámm.
Adda líktist afa mínum, var ætíð
létt og vinsamleg. Ég man enn eftir
því þegar ég fór einn í fyrsta skipti,
líklega rúmlega þriggja ára, yfir í
næstu götu „upp í Melgerði" að
spyija eftir Hadda frænda mínum,
sem er einu ári yngri en ég. Þá kom
Adda til dyra, glaðvær og hlý. Þetta
viðmót fann ég ætíð síðan.
Hvorki pabbi né Adda bám til-
fínningar sínar á torg. Ég fann það
þó áþreifanlega hvem hug þau báru
hvort til annars systkinin í viðmóti
þeirra við börn hins. Hversu vel
Adda tók mér undantekingarlaust
og hversu innilegur pabbi var við
Hadda, þegar hann kom til mín í
Vallargerði.
Ekki er hægt að minnast Öddu^
án þess að nefna mann hennar Leif,
sem lést fyrir rúmum fímm árum.
Þau vom mikil fyrirmyndarhjón og
var allt heimilislíf einstakt. Bömin
þeirra fímm fengu því gott vega-
nesti út í lífið og bera foreldram
sínum gott vitni.
Vinnugleði og reglusemi þeirra
hjóna var slík að af bar. Það var
eins með Öddu og pabba að þau
helguðu líf sitt fjölskyldum sínum
og var þeim eins farið og ömmu og
afa.
Það er eðlilega margs að minnast
við fráfall frænku minnar. Minning-
ar sem ég mun alltaf geyma og
engan skugga bar á og eiga hreint
ekki lítinn þátt því hversu vel ég
minnist bemskuáranna.
Ég votta Nönnu, Diddu, Bóba,
Hadda, Ástu og fjölskyldum þeirra
mína dýpstu samúð og ber ykkur
innilegar samúðarkveðjur frá móður
minni og systkinum.
Guðmundur Benediktsson.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta-
skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
Senda má greinar til blaðsins á netfang
þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs-
ingar þar um má lesa á heimasfðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina og hálfa örk
A-4 miðað við meðallfnubil og hæfilega
línulengd — eða 3600-4000 slög. Höf-
undar eru beðnir að hafa skfrnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.