Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 51
BRIDS
II in s j ó n G u ð m . P á 11
Arnarson
VESTUR hugsar sig um í
langan tíma áður en hann
trompar út gegn spaða-
slemmu suðurs.
Vestur gefur; AV á
hættu.
Norður
♦ 6
V 843
♦ K7642
♦ KD65
Suður
♦ ÁKDG875
? ÁD9
♦ Á9
♦ 8
Vestar Noritar Austar Suður
3 lauf Pass Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Suður tekur þrisvar spaða
og það kemur í Ijós að vestur
á tvo, en austur þtjá. Hvað
svo?
Það virðist blasa við að
spila laufi. Drepi vestur á
ásinn, friast tveir siagir á
laufhjónin og þá þarf ekki
að spila frekar. En vestur
er ekki skyldugur til að taka
á laufásinn. Hann hefur
augu í höfðinu og sér eins
vel og sagnhafi hvaða afleið-
ingar það hefur. Hann mun
því dúkka og þá þarf hjarta-
kóngur að liggja fyrir svín-
ingu. Sem hann gerir ekki.
Norður
♦ 6
V 843
♦ K7642
♦ KD65
VesUir Austur
♦ 93 ♦ 1042
V K102 IIIIH ♦ G765
♦ 3 111111 ♦ DG1085
♦ ÁG109432 ♦ 7
Suður
♦ ÁKDG875
V ÁD9
♦ Á9
♦ 8
Vjssulega getur sagnhafi
byijað á því að spila hjarta
á níuna, því hann á enn inn-
komu á tígulkóng til að svína
drottingunni síðar. En það
dugir ekki: Vestur drepur á
hjartatíu og spilar sig út á
tígli. Og þá erum við komin
að kjama málsins. Áður en
suður spilar laufi að hjónun-
um, ætti hann að leggja nið-
ur tígulás!! Vestur á þá enga
útgönguleið þegar hann fær
slaginn á hjartatíu.
LEIÐRÉTT
Fjárhagsáætlun
Garðarbæjar
Þau mistök voru gerð í
grein um fjárhagsáætlun
Garðabæjar fyrir árið
1996 að fram kom að
skuldir myndu hækka um
rúmar 26 milljónir. Rétt
er hins vegar að skuldir
eiga að lækka um sömu
fjárhæð árinu. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar
á mistökunum.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót o.fl. lesend-
um sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynning-
arnar þurfa að berast
með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir helgar. Fólk getur
hringt í síma
569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329 eða á
netfangið gusta-
@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Dagbók
Morgunblaðsins,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík.
I DAG
Farsi
HÖGNIHREKKVÍSI
ÞETTA er tómstundaherbergið
hans Guðmundar.
Pennavinir
ÞAU mistök áttu sér stað
í pennavinadálki í gær, að
sérstakt tákn í netfangi við-
komandi féll niður af
tæknilegum ástæðum. Því
birtum við ósk konunnar
aftur:
TUTTUGU og átta ára
bandarísk hjúkrunarkona
með’ mikinn áhuga á ís-
lenskri þjóð, sögu hennar,
menningu og tungumáli,
auk áhuga á bókmenntiim,
kvikmyndum, alls kyns tón-
list og útivist. Þá hefur hún
áhuga á að læra íslensku.
Hægt er að senda henni
tölvupóst (netfangið er
ambattr @ aol.com) en hún
kýs þó fremur að skrifast
á upp á gamla móðinn:
Bobbie Delayne Dix-
son,
221 E. Spring St.,
Enton,
Ohio 45320,
V.S.A.
TUTTUGU og tveggja ára
þýsk stúlka sem stundar
nám í dýralækningum. Hún
skrifar á ágætri íslensku
og vill skrifast á við penna-
vini á okkar ylhýra og ást-
kæra máli:
Ina Leverköhne,
Bleichenstrasse 3-5,
D-30169 Hannover,
Germany.
FIMMTUG ensk kona sem
reynir að læra íslensku af
bókum vill eignast penna-
vini. Vonast til að geta með
bréfaskriftum fengið svör
við spumingum sínum um
íslenskuna og býðst til að
segja pennavinum sínum til
um ensku í staðinn:
Elisabeth Palmer,
“Woodlanders“,
Hastingleigh,
Ashford,
Kent.
STJÖRNUSPÁ
cftir Frances Drakc
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert fær um að leysa
flest mál og þarft lítt á
aðstoð að halda.
Hrútur
(21.mars- 19. apríl)
Hugsaðu þig um tvisvar áður
en þú þiggur ráð, sem ekki
þjóna hagsmunum þínum.
Félagslífið heillar þig ekki
þegar kvöldar.
Naut
(20. april - 20. mafl (tft
Þú ert á þeytingi árdegis, og
hefur mörgu að sinna. Þótt
þú getir afkastað miklu, ætt-
ir þú ekki að afþakka boðna
aðstoð.
Tvíburar
(21.maí-20.júní)
Afköstin verða ekki mikil í
dag, því það er margt sem
truflar. Hafðu samt ekki
áhyggjur, því framundar er
betri tíð.
Krabbi
(21. júní - 22. júlf)
Þú hefur áhyggjur af vanda-
máli vinar, því afleiðingar
þess geta bitnað á þér. Ef
þú sýnir þolinmæði finnur
þú lausnina.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Þótt þig skorti áhuga f dag,
ættir þú að reyna að einbeita
þér við vinnuna, því margt
þarf að gera. Vinafundur
bíður þín í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Varastu óþarfa örlæti í garð
kunningja, sem reynir að
misnota sér velvild þína.
Hugsaðu frekar um fjöl-
skylduna.
V^g
(23. sept. - 22. október)
Þótt vinnuvikan sé rétt ný-
hafin, ert þú með hugann
við komandi helgi og hvað
þér stendur þá til boða.
Hafðu þolinmæði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú nýtur fjöiskyldulífsins, og
rnikill einhugur ríkir á heim-
ilinu. Þegar kvöldar áttu von
á góðum gestum í heimsókn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Þú kemur miklu í verk fyrir
hádegið, en síðdegis getur
misskilningur valdið töfum.
Slakaðu á heima þegar
kvöldar.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Þú hefur tilhneigingu til að
slá slöku við í vinnunni í
dag. Reyndu að taka þig á,
því þannig getur þú stórbætt
stöðu þína.
Vatnsberi
(20. janúar — 18. febrúar)
Það er margt, sem freistar
þín í dag, en þú ættir að
reyna að sinna því sem gera
þarf í vinnunni. Slakaðu svo
á í kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þótt þér finnist hægt ganga
í vinnunni í dag, miðar þér
í rétta átt, og allir eru reiðu-
búnir til að aðstoða.
Stjörnuspána á að lesa sem
(iægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
morgunoiaoio/Arnor nagnarsson
SIGURSVEITIN í parakeppninni. Talið frá vinstri: Sverrir
Ármannsson, Esther Jakobsdóttir, Ásgeir Ásbjörnsson og
Dröfn Guðmundsdóttir.
Parasveitakeppnin 1996:
Sveit Estherar Jakobs-
*
dóttur Islandsmeistari
BRIDS
Bridshöllin
Þönglabakka
PARASVEITAKEPPNIN
1995
Helgina 27.-28. janúar
SVEIT Estherar Jakobsdóttur sigr-
aði í parasveitakeppninni, sem fram
fór um helgina. 24 sveitir spiluðu
16 spila leiki með Monrad-fyrir-
komulagi og voru spilaðar 7 um-
ferðir.
Það er eins gott fyrir forsvars-
menn þessarar keppni að hafa allar
reglugerðir á hreinu því nú, annað
árið í röð, urðu tvær sveitir efstar
og jafnar. í reglugerð var þess get-
ið að ef tvær sveitir yrðu jafnar
væri útkoma andstæðinganna í
mótinu reiknuð út. Sveit Estherar_
fékk 800 stig út úr þessum saman- ;
burði en sveit Ljósbrár Baldursdótt-
ur varð að láta sér lynda annað -
sætið með 763 stig.
Þessar tvær sveitir urðu langefst-
ar í mótinu en lokastaða efstu sveita ;
varð annars þessi:
Esther J akobsdóttir 134
Ljósbrá Baldursdóttir 134
Erla Siguijónsdóttir 121 „
Harpa 120
Kristjana Steingrímsdóttir 118
Á.T. 118
Stefanía Sigurbjömsdóttir 116
Guðrún Jóhannesdóttir 113
Sólrún Júlíusdóttir 112
í sigursveitinni spiluðu ásamt
sveitardrottningunni þau Sverrir
Ármannsson, Asgeir Ásbjörnsson
og Dröfn Guðmundsdóttir. Keppnis-
stjóri var Jakob Kristinsson.
Arnór Ragnarsson
Útsalan í fullum gangi
ENN MEIRIVERÐLÆKKUN!
Pósthússtræti 13, við Skólabrú
Verslun með vandaðan kvenfatnaö
Romano
kvenskór
Verð: 2.495,-
Tegund: 7531
Stærðir: 36-41
Litir: Svart, blátt, o.fl.
Ath.: Ymsar hælategundir
Póstsendum samdægurs