Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 14
14 ÞRJÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ Sæluvikuundirbúningur Skagfirðinga Dægurlagakeppni í fullum gangi Sauðárkróki - Árleg Sæluvika Skagfirðinga hefst 28. apríl nk. og verður eins og oftast áður vel til hennar vandað og mikið um að vera víða um héraðið. Kvenfélag Sauðárkróks hefur nú fest í sessi árlega dægurlagakeppni í.tengslum við Sæluvikuna og verða úrslit keppninnar fimmtudaginn 2. maí. Morgunblaðið/Sig. Jóns. HLUTI af félögnnum ásamt leiðbeinendum í Útskeifi á Selfossi ánægðir með vinnuna. Mor^unblaðið/Atli Vigfússon AÐSTÖÐUSKÚR Garð- ræktarfélags Reykhverf- inga hefur stækkað um nær 100 fm. Garðræktarfélag Reykhverfinga Viðbygging við að- stöðuskúr Laxamýri - Framkvæmdum við viðbyggingu Garðræktar- félags Reykhverfinga við að- stöðuskúr fyrirtækisins er nú senn að ljúka, en í haust var ákveðið að stækka það hús- rými sem ætlað er til flokkun- ar á grænmeti. Til stendur að kaupa nýja og afkastameiri flokkunarvél og þarf hún mun meira pláss en sú eldri sem fyrir er. Þá mun rýmkast mjög á umbúðageymslu og kæli auk þess sem aðstaða fyrir starfs- fólk batnar, en oft hefur verið þröng á þingi á mestu anna- dögum sumarsins þegar upp- skera er mikil. Á síðustu árum hafa verið miklar framkvæmdir hjá fé- laginu og mörg hús byggð, en fyrirtækið framleiðir um 20% af ölium tómötum í landinu auk mikils magns af öðrum tegundum grænmetis. Útskeifur vinnur að hestamennsku unglinga Selfossi ÚTSKEIFUR er heiti á ungl- ingaklúbbi sem starfar við Sói- vallaskóla og á vegum félags- miðstöðvar Selfoss. Klúbburinn samanstendur af unglingum sem hyafa áhuga á hestamennsku og vinnur ötullega að því áhuga- máli sínu. í klúbbstarfinu er kennd meðferð og hirðing hesta ásamt því sem farið er í útreið- artúra þegar líður að vori og mót haldin. Til að fjármagna einn af lengri túrunum tóku unglingarnir sér það fyrir hend- ur að bjóða hestamönnum á Sel- fossi upp á þrif á reiðtygjum fyrir ákveðna þóknun. Góð við- brögð fengust hjá hestafólki og nóg var að gera hjá krökkunum. Eftir daginn lágu síðan glans- andi hnakkar og vel smurðar ólar. Fyrirkomulag keppninnar er með þeim hætti að öllum er heimil þátt- taka en aðeins koma til álita þau lög og þeir textar sem ekki hafa áður birst opinberlega og skal þeim skilað inn undir dulnefndi fyrir 1. febrúar. Kvenfélagið hefur fengið til liðs við sig Magnús Kjartansson, hljómlistar- mann, sem mun annast útsetningar á þeim tíu lögum sem komast í úrsli- takeppnina, en einnig mun Magnús stjórna hljómsveitinni sem lögin flyt- ur og annast frágang laganna til upptöku á geisladisk og hljómsnældu sem kemur út úrslitakvöldið. Glæsileg verðlaun eru í boði og má því vænta mikillar þátttöku, en á síðasta ári þegar bárust 37 lög til keppninnar sigraði lagið Þegar sólin sest eftir Geirmund Valtýsson í flutn- ingi Ara Jónssonar. Þá mun Leikfélag Sauðárkróks frumflytja verk eftir Jón Ormar Ormsson, gamanleik með söngvum sem gerist í Skagafírði á bannárun- um og nefnist Sumarið fyrir stríð og er höfundurinn að leggja lokahönd á verkið þessa dagana. Leikstjóri verð- ur Edda Vilborg Guðmunsdóttir og munu æfingar hefjast í byijún febr- úar. í ’ Safnahúsinu verður listsýning svo sem hefð er fyrir og mun Sælu- vikan hefjast með opnun hennar, en þar verða einnig kynnt úrslit vísna- keppni Safnahússins. Að sögn Páls Kolbeinssonar, for- manns Bifrastarstjórnar, sem annast undirbúning og skipulag Sæluvik- Akranesi - íþrótta- og æskulýðs- nefnd Akraness heiðraði á dögun- um ungt íþróttafólk sem unnið hafði til Islandsmeistaratitils í íþrótt sinni á síðasta ári, alls 42 einstaklinga. Það hefur tíðkast á undanförnum árum að slík viðurkenning hafi ver- ið veitt ungu afréksfólki í íþróttum á Akranesi. íþróttafólkinu var boðið til kvöldverðar og þar afhenti Sig- ríður Guðmunsdóttir, formaður íþrótta- og æskulýðsnefndar, viður- kenningamar. Gísli Gíslason, bæj- arstjóri og Jón Runólfsson, formað- ur í A, ávörpuðu viðstadda og hvöttu unnar, verður vikan í nokkuð svipuðu formi og undanfarin ár, en stefnt hefur verið að því að ná sem mestri breidd í dagskráratriðum þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Ekki sagði Páll enn komna endanlega mynd á dagskrána en sagði Ijóst að kórarnir í héraðinu myndu eins og alltaf setja mikinn svip á vikuna með söng og gamanmálum. Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson ÍÞRÓTTAFÓLKIÐ sem vann til viðurkenninga á Akranesi ásamt Gísla Gíslasyni, bæjarsljóra, Jóni Runólfssyni, formanni ÍA, Guðbjarti Hannessyni, formanni Bæjarráðs og Sigríði Guðmunsdóttur, formanni íþrótta- og æskulýðsnefndar Akraness. íþróttafólk heiðrað á Akranesi afreksfólkið til frekari afreka. Að þessu sinni kom íþróttafólkið úr fimm íþróttagreinum, þrír úr bad- minton, fimm eru sundmenn, þrír úr karate, tveir íþróttamenn fatl- aðra og 29 knattspyrnustúlkur sem urðu meistarar í 2.-3. flokki kvenna. Morgunblaðið/Hilmar Siguijónsson INGVAR Friðriksson, umsjónarmaður ungl- ingadeildarinnar. Björgunar- sveitin Ársól Líflegt starf í unglinga- deildinni Reyðarfirði - Fyrir skömmu tóku 19 unglingar á aldrinum 14-18 ára þátt í skyndihjálp- arnámskeiði í húsi björgunar- sveitarinnar Þórðarbúð. Nám- skeiðið nefndist Skyndihjálp 1 og leiðbeinandi var Bjarni Halldór Alfreðsson. Nám- skeiðið hófst snemma á laug- ardag og því lauk seint á sunnudag með verklegri æf- ingu þar sem slys var sviðsett. Ingvar Friðriksson er um- sjónarmaður unglingadeildar- innar og hann var ánægður í lok námskeiðsins. Hann sagði mikinn áhuga hjá krökkunum en yfir 20 ungiiðar eru í sveit- inni. Starf sveitarinnar felst í fundum sem haldnir eru með jöfnu millibili, námskeiðahaldi og útiveru. Fyrir áramót var námskeið í meðferð áttavita og nú er beðið eftir snjónum svo hægt sé að byggja snjóhús og fara í gönguferðir með olríAí f\Cr ÍCÍIYIP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.