Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Hannes lék síðasta afleiknum SKÁK Skákmiðstööin Faxafeni 12: LANDSBANKA-VISA MÓTIÐ Helgi Ólafsson sigraði Hannes Hlífar Stefánsson í sjónvarpsein- vígi á sunnudag og varð Islands- meistari í atskák í fyrsta sinn. Sextán hófu keppni í úrslitunum, þar af sex stórmeistarar og þrír alþjóðlegir meistarar. LOKIN á sjónvarpseinvíginu urðu söguleg. Fyrri skákin var afar dauf jafnteflisskák, en Hannes sótti hart með hvítu í þeirri seinni. Þeg- ar hvor átti u.þ.b. þijár mínútur eftir á klukkunni var skákin að miklu leyti ótefld og nokkum veg- inn í jafnvægi. Eins og oft vill verða skiptust teflendur á mis- tökum í tíma- hrakinu, en Helgi Hannes missti Ólafsson gersamlega þráðinn. Hann nýtti sér það ekki þegar Helgi lék af sér drottningunni og lenti í erf- iðu hróksendatafli sem honum tókst ekki að verja. Kynnir var Hermann Gunnars- son, en honum til aðstoðar í skák- skýringunum var Jón L. Árnason. Tæknilega hafa þessar útsending- ar stöðugt verið að bátna og sjón- varpsáhorfendur eru í raun mun bétur inni í málum en þegar þeir fylgjast með á venjulegu skák- móti. Það er þó galíi þegar tafl- mennirnir standa ekki á reitunum í tímahraki og koma ekki á tölv- uskjánum. Þá er vonlaust að átta sig á því hvað er að gerast. Þegar seinni skákinni lauk var þannig ekki strax Ijóst fyrir áhorfendur hvemig henni lyktaði. Það mátti helst ráða af svipnum á keppend- um. Á þessu virðast helst tvær lausn- ir, annaðhvort að þyngja taflmenn- ina þannig áð erfiðara verði að fella þá, eða þá að skákstjóri grípi ávallt inn í þegar þeir detta út. Atskákmótið gekk þannig fyrir sig: 1. umferð: Margeir Pétursson - Sigurður Daníelsson 2-0 Hannes H. Stefánsson — Gylfí Þórhallsson 2-0 Jóhann Hjartarson — Halldór G. Einarsson 1 */*— ‘A Helgi Ólafsson - Bragi Þorfinnsson l'A-'A Karl Þorsteins - Jón Ámi Jónsson 2-0 Þröstur Þórhallsson - Bragi Halldórsson 2-0 Friðrik Olafsson - Áskell Örn Kárason l'A-'A Jón L. Ámason - Sævar Bjamason l'A-'A Fjórðungsúrslit: Margeir Pétursson - Jón L. Árnason l'A-'A Hannes H. Stefánsson - Friðrik Ólafsson 1 'A- 'A Jóhann Hjartarson - Þröstur Þórhallsson 0-2 Helgi Ólafsson - Karl Þorsteins 2-0 Undanúrslit: Margeir Pétursson - Helgi Ólafsson 'A-l 'A Hannes H. Stefánsson — Þröstur Þórhallsson 2-1 Úrslit: Hannes H. Stefánsson - Helgi Ólafsson '/*— '/* Seinni sjónvarpsskákin var æsi- spennandi. Hvítt Hannes H. Stefánsson Svart: Helgi Ólafsson Caro-Kann vörn 1. e4 - c6 2. d4 - d5 3. Rd2 — dxe4 4. Rxe4 - Rd7 5. Rg5 - Rgf6 6. Bd3 - e6 7. Rlf3 - Bd6 8. De2 - h6 9. Re4 - Rxe4 10. Dxe4 - Rf6 11. De2 - b6 12. Bd2 - Bb7 13. 0-0-0 - Dc7 14. Hhel - Hd8!? Eftir þetta er ljóst að svarti ; kóngurinn verður að standa á miðborði eða kóngsvæng. Venju- lega er langhrókað. Það gerði Ld. Karpov gegn Andrei Sokolov á heimsbikarmótinu i Belfort 1988, en hann tapaði þó þeirri skák. Nú fær Hannes hættuleg sóknarfæri. 15. Re5 - c5 16. Bb5+ - Ke7 17. Bf4 - Be4 18. Dc4 - Bd5 19. Dc3 - c4 20. Bg3 - Hc8 21. Ba6 - Re4 22. Hxe4?! - Bxe4 23. d5 - exd5 24. Bxc8 - Hxc8 25. f3 - f6 26. fxe4 - Bxe5 27. Bxe5 - Dxe5 28. Da3+ - Dd6 29. Dxa7+ - Hc7 30. Db8 - d4 31. Dg8!? - g5 32. Dg7+ - Ke6 33. Dxh6 - Df4+ 34. Kbl - Dxe4 35. Dh3+ - g4? Nú lendir svártur aftur í erfíð- Ieikum. Hann má vel við una eftir 35. - Kf7. 36. Dg3 - Kd7 37. Df2 Bæði 37. Dc3! og 37. Hel! vom sterkari leikir. 37. - d3 38. cxd3 - cxd3 39. Dd2 - Ke6?? Helgi leikur af sér drottning- unni, en Hannes sér ekki 40. Hel, sem hefði tryggt honum íslands- meistaratitilinn. Rétt var 39. - f5! 40. Dxd3+ - Ke6 og upp kæmi sama staða og í skákinni. 40. Dxd3?? - f5 Svartur er orðinn öraggur með jafntefli, þótt hann sé peði undir og endataflið teflir Hannes illa. Eftir næsta leik hans snýst taflið endanlega við. 41. g3? - Hh7! 42. Dxe4+? - fxe4 43. Hd2 - Ke5 44. Kc2 - e3 45. Hd8 - Hxh2+ 46. Kdl - Ke4 47. b4 - Hxa2 48. Hf8 - Kd3 49. Hd8+ - Ke4 50. Hf8 - Hg2 51. Hf4+ Kd3 og hvítur gafst upp. Torfi er óstöðvandi Torfi Leósson vann Sævar Bjarnason, alþjóðlegan skákmeist- ara, í níundu umferð á Skákþingi Reykjavíkur á föstudaginn. Úrslit í öðrum skákum á toppnum voru hagstæð fyrir Torfa og hann hefur nú heils vinnings forskot á næstu menn. Torfi, sem er aðeins 17 ára, hefur ekki verið talinn í hópi okk- ar allra efnilegustu skákmanna fram að þessu og hefur fyrst og fremst teflt fyrir ánægjuna, m.a. stundað það að beita gömlum og djörfum fórnum í byijunum. En á Guðmundar Arasonar mótinu í Hafnarfirði í desember náði hann frábærum endaspretti og móður- inn er greinilega ekki ennþá runn- inn af honum. Torfi á nú frábæra möguleika á því að verða skák- meistari Reykjavíkur. Eftir er að tefla tvær umferðir. Sú tíunda fer fram á miðvikudagskvöldið kl. 19.30 og sú síðasta á föstudags- kvöldið á sama tíma. Staðan eftir 9 umferðir: 1. Torfi Leósson 8 v. 2. -6. Sigurður Daði Sigfús- son, Júlíus Friðjónsson, Björn Þorfinnsson, Hrannar Baldurs- son og Bergsteinn Einarsson 7 v. 7.-10. Sævar Bjarnason, Ein- ar Hjalti Jensson, Áskell Örn Kárason og Ólafur B. Þórsson 6 72 v. 11.-15. Haraldur Baldursson, Bragi Halldórsson, Jóhann H. Ragnarsson, Kristján Eðvarðs- son og Ögmundur Kristinsson IDAG SKÁK Umsjón Margcir Pétursson Hvitur á leik STAÐAN kom upp á Hoogovens-stórmótinu í Wijk aan Zee í Hol- landi. Vasíli Ivantsjúk (2.735) var með hvítt og átti leik, en Aleksei Shirov (2.690), Lettlandi, var með svart. Lettinn lék síðast 20. — Hd8-d7 og fór þar eftir ráðlegging- um stórmeistarans Beljavskís, Úkraínu, í ný- legu hefti alfræðibókar- innar um skákbyijanir. 21. Dg7!! (1 heftinu er aðeins gefíð upp 21. Bxc5 — Bxc5 og siðan 22. Dg7.) 21. - Bxg7 22. fxg7 - Hg8 23. Rxc5 - d4 (Eftir 23. - Hc7 24. Rxb7 - Dxb7 25. Hdl stendur svartur einnig höllum fæti.) 24. Bxb7+ - Hxb7 25. Rxb7 - Db6 26. Bxd4! - Dxd4 27. Hfdl — Dxb2 (Lakara var 27. - Dxb2 28. Hxa7) 28. Rd6+ - Kb8 29. Hdbl - Dxg7 30. Hxb4+ - Kc7? (Betri vöm var 30. — Ka8) 31. Ha6 - Hb8 32. Hxa7+! (Einfaldara en 32. Hb7+ - Hxb7 33. Re8+) 32. - Kxd6 33. Hxb8 - Dg4 34. Hd8+ - Kc6 35. Hal og Shirov gafst upp, því hann getur ekki varið peðið á c4. Byijunin var Bot- vinnik-afbrigði Slav- nesku-varnarinnar: 1. d4 — d5 2. c4 — c6 3. Rc3 - Rf6 4. Rf3 - e6 5. Bg5 — dxc4 6. e4 — b5 7. e5 - h6 8. Bh4 - g5 ,9. Rxg5 — hxg5 10. Bxg5 - Rbd7 11. exf6 - Bb7 12. g3 - c5 13. d5 - Db6 14. Bg2 - 0-0-0 15. 0-0 - b4 16. Ra4 - Db5 17. a3 — exd5 18. axb4 — cxb4 19. Be3 — Rc5 20. Dg4+ — Hd7 og upp er komin staðan á stöðu- myndinni. Ívantsjúk sigraði í A flokki. Helgi Áss Grétars- son stórmeistari stóð sig með ágætum í B-flokki, hlaut 5'A vinning af 11 mögulegum. Helgi gerði jafntefli við stigaháa stór- meistarann Bologan frá Moldavíu í síðustu um- ferð. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Fundir fyrir vímuefna- neytendur ÓNEFNDUR vímuefna- neytandi sem er óvirkur hringdi í Velvakanda og vildi benda fólki á að hægt er að fara á fundi þar sem óvirkir neytend- ur styðja hveijir aðra. Fundimir eru hjá NA- samtökunum, Narcotic Anonymous, og eru svip- að uppbyggðir og AÁ- fundir, þ.e. fólk getur þar talað um mál sín fijálst og óhindrað og hópurinn stendur saman. í kjölfar vímuefnaum- fjöllunar flölmiðlanna nýverið er ágætt að það komi fram hvar þeir sem við vanda eiga að stríða geta sótt sér aðstoð. Fundirnir eru haldnir á mánudagskvöldum 'kl. 21 í Hinu húsinu (Gamla Geysishúsinu) við Aðal- stræti og á föstudags- kvöldum kl. 21 í Templ- arahúsinu við Eiríks- götu. Tapað/fundið Næla tapaðist NÆLA, sem er gamall erfðagriþur, tapaðist við Skipholt 70 miðvikudag- inn 10. janúar sl. Hafí einhver fundið næluna er hann beðinn að hringja í síma 562 2361. Gæludýr Síamsköttur leitar að heimili FJÖGURRA ára síams- köttur, ljúfur og blíður, fæst gefíns vegna sér- stakra ástæðna. Uppl. í síma 561 3398. Með morgunkaffinu FINNST þér skipta máli hvernig fjárhagur okkar er? Hversu mikið viltu lána? HVERNIG væri að leyfa mér að komast að, svo ég geti fylgst með leiknum? ÞAR sem Jónatan er einn mikilvægasti viðskiptavinur okkar, ætla ég að drekka úr skörðótta bollanum í dag. EN gaman að þú skulir vera að skrifa æviminningar þínar. Ertu ekki til í að hafa sam- band við mig þegar þú kemur að deginum sem ég lánaði þér 20 þúsund krónurnar? Víkveiji skrifar... HÉR í BLAÐINU birtist í fyrra- dag auglýsing á síðu B 13 frá veitingahúsinu Aski við Suður- landsbraut, sem er gott veitingahús eins og þeir vita, sem þar hafa borðað. í auglýsingu þessari segir í fyrirsögn: Carvery aðeins á sunnu- dögum. Hvað skyldi þetta nú þýða? Geta almennir íslenzkir blaðalesendur áttað sig á því, hvað hér er verið að auglýsa? Víkveiji stendur í þeirri trú, að Morgunblaðið birti einungis auglýsingar á íslenzku og alla vega fylgi íslenzk þýðing með, ef auglýs- ing er birt á erlendu tungumáli, þar sem henni kann að vera beint til hópa útlendinga hér á landi. Hvað þýðir Carvery í þessu sam- bandi? Hvers vegna er þetta erlenda orð notað í auglýsingunni? Að vísu má segja, að í meginmáli auglýsing- arinnar komi fram, um hvað er að ræða. Þar segir: „í boði er heil- steikt nautakjöt, svínakjöt og lambakjöt, sérstaklega niðursneitt fyrir þig.“ En hvers vegna má fyrir- sögnin ekki líka vera á íslenzku? Og hvað veldur því að Morgunblað- ið birtir auglýsingu með útlendri fyrirsögn? Víkveija þætti fróðlegt að fá svör við þessum spurningum. xxx AÐ HAFA orðið miklar fram- farir í rekstri hinna einka- reknu útvarpsstöðva með tilkomu tveggja stöðva, sem senda aðallega út klassíska tónlist. Sígilt FM á heiður skilinn fyrir að hafa rutt brautina en með fullri virðingu fyr- ir þeirri stöð er Víkveiji þeirrar skoðunar, að Klassík FM standi feti framar. Tónlistarval á þeirri stöð er til fyrirmyndar. x x x ASAMA TÍMA og útvarpsstarf- semin hefur tekið stórstígum framförum verður hið sama því miður ekki sagt um sjónvarpsstöðv- arnar. Að vísu hefur Víkverji ekki aðgang að Stöð 3 og er þess vegna ekki dómbær um þá sjónvarpsstöð en svo virðist, sem aukin sam- keppni hafi fremur orðið til þess að auka útsendingar á lélegu efni hjá íslenzka útvarpsfélaginu hf. Það myndefni, sem í boði er hjá Sýn er með þeim hætti, að það er ekki umræðu vert. Þótt við og við séu góðar myndir sýndar á Stöð 2 er alltof mikið af lélegu efni á þeirri stöð, en kannski er það veruleikinn í sjónvarpsstöðvum yfirleitt. XXX OG SENNILEGA er reynsla flestra þeirra, sem aðgang hafa að gervihnattastöðvum sú sama og Víkveija, að lítið er horft á þær stöðvar nema í algeram und- antekningartilvikum. Sky sjónvarps- stöðin er augljóslega nær áhugamál- um okkar íslendinga í fréttaflutningi en CNN. Síðastnefnda stöðin virðist einungis áhugaverð, ef eitthvað er um að vera í heiminum. En yfírleitt er fréttaflutningur þessara steðva beggja svo yfírborðslegur að þangað er lítið að sækja. Getur það verið, að sjónvarpsver- öldin hafi ekki upp á annað að bjóða?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.