Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 23
LISTIR
Myndbrot flatarins
MYNPLIST
Listhús B9
MÁLVERK
Þórdís Amadóttir. Ópið virka daga
kl. 10-18, laugard. kl. 12-18, suunud.
kl. 14-18 til 19. febrúar. Aðgangur
ókeypis.
ÞVÍ hefur stundum verið haldið
fram, að sú afstraklist sem tengist
helst geometríunni (flatarmáls-
fræðinni) sé í raun ein beinskeytt-
asta tilraunin sem gerð hefur ver-
ið til að samþætta myndlist og
vísindi. Stærðfræðin er óumdeild-
ur grunnur þessarar myndgerðar,
og útkoman í fletinum minnir oft-
ar en ekki á það niðurbrot rýmis-
ins, sem stærðfræðin mælir fyrir
um eftir lögmálum horna og lína.
Þetta kann að vera áhorfandan-
um efst í huga þegar hann nálg-
ast málverk Þórdísar Árnadóttur.
Við nánari athugun kemur fljótt
í ljós að slík einföldun stenst ekki.
Sumar línur myndanna reynast
ögn sveigðar, litfletir og einkum
áferð þeirra vísa á stundum til
þriðju víddarinnar fremur en að
raðast hlið við hlið, og litaspjaldið
í heild býður upp á fjölbreytni, sem
erfitt er að tengja við hreinræktuð
vísindin ein saman.
Þórdís stundaði nám í Mynd-
listaskóla Reykjavíkur, en fór síðar
til Danmerkur og útskrifaðist þar
úr Listaakademíunni á Pjóni 1990.
Hún er hér að halda sína fjórðu
einkasýningu, auk þess sem hún
hefur tekið þátt í tveimur samsýn-
ingum. Sýningunni hefur lista-
konan gefið yfirskriftina „Heila-
brot“, en í málverkunum gengur
hún einkum út frá hvössu þríhyrn-
ingaspili, sem sem bjartir litir tak-
ast á í fletinum.
Það er mikill leikur í þessum
verkum, sem njóta sín ágætlega í
rýminu. Myndbyggingin er mjög
þétt, þar sem bjartir gulir, rauðir
og hvítir fletir takast á við dekkri
litbrigði af grænum og bláum.
Þessi átök eiga ásamt áferðinni
sjálfri mestan þátt í að skapa þá
tilfinningu fyrir dýpt í fletinum,
sem kemur fram við nánari skoð-
un. Þannig vísar leikurinn inn í
flötinn, fremur en að liggja ein-
vörðungu á yfirborðinu.
Þessi myndbrot flatarins virka
vel á augað, og eru þannig ágæt
byijun á myndmáli Þórdísar. Listin
er vissulega í sífelldri þróun, en
hér á landi átti geometrísk af-
straktlist sinn blómatíma fyrst og
fremst á sjötta og sjöunda ára-
tugnum, og hefur ekki risið upg
af áberandi krafti hin síðari ár. í
ljósi þessa verður áhugavert að sjá
með hvaða hætti listakonan mun
halda áfram að þróa þetta mynd-
mál nú undir lok aldarinnar.
Eiríkur Þorláksson
Nýjar bækur
• SIÐFERÐI og stjórnmál hefur
að geyma sjö erindi sem flutt voru á
ráðstefnu Siðfræðistofnunar um sið-
ferði stjórnmála. í ritinu eru eftirtald-
argreinar; Samdráttur og siðbót
eftir Halldór Reynisson; Stjórnmál,
frjálslyndi og siðprý’ði eftir Gunnar
Helga Kristinsson; Tæknileg tök á
siðferðislegu viðfangsefni.
Draumsýn og veruleiki eftir Sigríði
LiIIýju Baldursdóttur; Hvaða siða-
reglur telur þú mikilvægast að
stjómmálamaður haldi í heiðri?
eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur;Um siðferði í stjómmálum eft-
ir Arna Sigfússon; Stjómmál, lög
og siðferði eftir Sigurð Líndal og
Siðvæðing stjórnmála eftir Vil-
hjálm Árnason. Ennfremur ritar
Páll Skúlason inngang. Ritstjóri er
Jón A. Kalmansson.
Siðferði og stjórnmál er 85 bls.
að stærð. Bókin er til sölu íhelstu
bókabúðum ogkostar 1.190 kr.
Utgefandi er Siðfræðistofnun
Háskóla Islands og Háskólaút-
gáfan annast dreifingu.
Póstsendum samdægurs
Biostep
inniskór
Verð: 7.295,-
Tegund:9819
Stærðir: 40-46
Litir: Svartur, brúnn
Ath.: Fótlaga, breiðir og þægilegir
Ioppskórinn
Veltusundi við Ingólfstorg,
sími 552 1212
Peugeot
á aðeins 1.668.000 kr.
M| Það er staðreynd að Peugeot er sérlega þægilegur í akstri. Sætin, fjöðrunin og aksturseiginleikarnir
[« eiga engan sinn líka. Ekki nóg með að Peugeot sé þægilegur bíll, heldur er hann með fallegt og klassískt
yfirbragð, uppfyllir ströngustu öryggiskröfur og er sérlega vel búinn:
• Kraftmikil 1800 cc bensínvél
• VÖkva- og veltistýri með loftpúða
• Hliðarárekstravörn og bílbeltastrekkjarar
• 470 lítra farangursrými, stækkanlegt í 1640 lítra
• Fjarstýrðar samlæsingar
• Upphituð framsæti
• Einnig fáanlegur með einstakri dieselvél
á aðeins 1.695.000 kr.
Komdu í Jöfur og reynsluaktu Peugeot 405 skutbíl.
Þá kemst þú að raun um að allt sem sagt er um ágæti
Peugeot á svo sannarlega við rök að styðjast.
19 4 6-1996
Nýbýlavegur 2
Síml: 554 2600
1 K&frl