Morgunblaðið - 18.02.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.02.1996, Blaðsíða 18
.18 B SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNOAUGÍÝS/NGAR Skrifstofumaður Skrifstofumaður óskast í vélsmiðju á suð- vesturlandi. Þarf að geta unnið sjálfstætt. Aðstoðum við útvegun húsnæðis. Skriflegar umsóknir, með upplýsingum um ald- ur, menntun og fyrri störf, sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 26. febrúar „Vélsmiðja - 520“. Örtölvutækni ehf a umboðið á íslandi auglýsir eftir tæknimönnum í þjónustudeild Sóst er eftir tæknimönnum með menntun og reynslu á einu eða fleiri af eftirfarandi sviðum: • Open VMS • UNIX • Windows NT • Cisco netbúnaði • Internet prótókólum og þjónustu. • Novell í boði eru spennandi störf fyrir metnaðar- fullt fagfólk. Starfsþjálfun fer fram bæði inn- anlands og utan. Skriflegar umsóknir, merktar STARFSUM- SÓKN, sendist til Örtölvutækni ehf., Skeif- unni 17, 108 Reykjavík. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 27. febrúar nk. a Örtölvutaekni ehf. er framsækið fyrirtæki með trausta eiginfjár- stöðu. Félagið er m.a. umboðsaðili fyrir Digital Equipment Corp- oration og Cisco Systems sem eru leiðandi fyrirtæki hvort á sínu sviði. FLUGLEIDIR Reykjavík Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast á næturvaktir á vistheimilið (grunnröðun Ifl. 213). Einnig eru lausar kvöld- og helgarvaktir. Möguleiki er að ráða hjúkrunarfræðinema sem lokið hafa þriggja ára námi á kvöld- og helgarvaktir og til sumarafleysinga. Höfum leikskólapláss. Upplýsingar veita ída Atladóttir, hjúkrunar- forstjóri og Þórunn A. Sveinbjarnar, hjúkrun- arframkvæmdastjóri í síma 553 5262 og 568 9500. Reiknistofa bankanna óskar að ráða kerfisfræðing/ forritara Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi há- skólapróf í tölvunarfræði, viðskiptafræði, verkfræði, tæknifræði eða kerfisfræði frá TVÍ og/eða umtalsverða reynslu við kerfissetn- ingu og forritun. Við bjóðum fjölbreytt og umfangsmikið verk- efni á sviði bankaviðskipta, sveigjanlegan vinnutíma, góða starfsaðstöðu og veitum nauðsynlega viðbótarmenntun, sem eykur þekkingu og hæfni. Launakjör eru samkvæmt launakjörum sér- fræðings í kjarasamningi SÍB og bankanna. Umsóknarfrestur er til 29. febrúar 1996. Upplýsingar um stöðuna veitir framkvæmda- stjóri kerfissviðs reiknistofunnar, Ármúla 13, 108 Reykjavík, sími 569 8877. Umsóknum skal skilað á þartil gerðum eyðu- blöðum, er fást hjá Reiknistofu bankanna. Leiðarstjórnun Á markaðssviði Flugleiða hf. eru nú laus störf á sviði leiðastjórnunar. Það svið ber ábyrgð á hagkvæmni flugáætlunar félagsins og verð- leggur sætaframboð eftir þeirri eftirspurn sem sölukerfið myndar. Rekstur markaðs- kerfa s.s. bókunarkerfa heyrir einnig undir svið leiðarstjórnunar. í boði eru mjög krefjandi störf hjá einu öflug- asta fyrirtæki landsins. Við leitum að starfsmönnum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði: • Háskólamenntun nauðsynleg, framhalds- menntun æskileg. • Góð þekking á markaðsfræðum. • Mjög góð tölvuþekking. • Rökrétt hugsun og góð talnameðferð. • Skilningur á grunnþáttum í tölfræði. • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði. Verið er að leita að metnaðarfullum og dríf- andi einstaklingum sem eru tilbúnir til þess að leggja mikið á sig til að ná árangri í starfi. Umsóknum skal beint til Þóris Þorvarðarson- ar, Hagvangi, Skeifunni 17, 108 Reykjavík, merktar: „Flugleiðir" og skal þeim skilað í síðasta lagi 26. febrúar 1996. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar annast heiibrigðis-, matvæla-, mengunar- og um- hverfiseftirlit í lögsagnarumdæmi Reykja- víkur. Heilbrigðiseftirlitið býður upp á krefj- andi og áhugaverð viðfangsefni. Starfs- menn eru 17 talsins með fjölbreytta mennt- un og reynslu að baki. Heilbrigðisfulltrúi Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur óskar eftir að ráða í starf heilbrigðisfulltrúa. Starfið felst í almennu heilbrigðiseftirliti á heilbrigðissviði. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf í heilbrigðiseftirliti, dýralækn- ingum, líffræði, matvælafræði eða hafa sambærilega menntun. • Vera sjálfstæður og skipulagður í starfi, hafa góða framkomu og eiga auðvelt með að tjá sig í töluðu og rituðu máli. Nánari upplýsingar um starfið veitir Auður Bjarnadóttir frá kl. 9-12. Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs merktar: „Heilbrigðisfulltrúi" fyrir 1. mars nk. RÁÐGARÐURhf STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF FURUGERÐI5 108 REYKJAVÍK 533 1800 Héraðs- lögreglumenn Tveir héraðslögreglumenn óskast til starfa hjá embættinu sem fyrst. Upplýsingar veitir undirritaður á skrifstofu embættisins og í síma 456 7222. Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Bolungarvík, 16. febrúar 1996. Sýslumaðurinn í Bolungarvík, Jónas Guðmundsson. Vaktstjóri - verslunarstjóri Olíufólagið hf. er í stöðugri sókn á markaðnum. Félagið byggir sókn sína á þjónustu, snyrtimennsku og gæðum. Með nýjungum í tækni og þjón- ustu hefur félagið skipað sér á fremsta bekk meðal sinna jafningja. Olíufélagið hf. óskar eftir að ráða vakt- stjóra/verslunarstjóra á bensínstöðvar sínar. Vaktstjóri/verslunarstjóri þarf að vera ýms- um kostum búinn. Hann er yfirmaður sem þarf að sýna frumkvæði í hugsun og athöfn- um. Hann þarf að vera þjónustulipur í hví- vetna og hafa mikla ábyrgðartilfinningu. Ef þú telur þig hafa ofangreinda kosti og ert metnaðarfullur einstaklingur sem hefur áhuga á að starfa hjá framsæknu fyrirtæki er þetta kannski rétta starfið fyrir þig. Umsókn, með greinargóðum upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgreiðslu Mbl. merkt: „ESSO - 517“ fyrir 23. febrúar nk. Allar umsóknir eru meðhöndl- aðar sem trúnaðarmál. W Vinnuimðluii Reykjavíkurborgar Túlkaþjónusta hjá Miðstöð nýbúa Upplýsinga- og menningarmiðstöð nýbúa, sem rekin er á vegum íþrótta- og tómstunda- ráðs, óskar eftir að ráða starfsmann til að hafa umsjón með túlkaþjónustu á vegum miðstöðvarinnar. Um er að ræða hlutastarf, sem er bæði fjölbreytt og krefjandi. Helstu verkefni eru: • Sýna frumkvæði í uppbyggingu starfsins. • Skipuleggja námskeið fyrir túlka (sí- og endurmenntun). • Kynna þjónustuna fyrir stofnunum Reykja- víkurborgar og ríkisins. Hæfniskröfur: • Stjórnunarhæfileikar. • Menntun á sviði félagsvísinda eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi. • Kunnátta í einu eða fleirum erlendum tungumálum. • Lipurð í mannlegum samskiptum. • Þekking á notkun ritvinnslu og töflureiknis (Excel) og grunnþekking á bókhaldi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar og Reykja- víkurborgar. Umsóknarfrestur er til og með 1. mars nk. Umsóknum skal skila til Vinnumiðlunar Reykjavíkurborgar, á eyðublöðum sem þar fást. Nánari upplýsingar veitir Kristín Njálsdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar nýbúa, Faxafeni 12, í síma 568 2605 á skrifstofutíma. Engjateigur 11 • Sími 588 2580 • Fax 588 2587

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.