Morgunblaðið - 28.02.1996, Page 1
64 SÍÐUR B/C/D
49. TBL. 84. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Skoðanakannanir fyrir þingkosningar í Astralíu á laugardag
Forskot bandalags
hægriflokkanna minnkar
Sydney. Reuter.
SKOÐANAKÖNNUN, sem birt var
í Ástraiíu í gær, bendir til þess að
Verkamannaflokkur Pauls Keatings
forsætisráðherra hafi saxað veru-
lega á forskot bandalags hægri-
manna. Efnt verður til þingkosninga
í landinu á laugardag.
Ef marka má könnunina er banda-
lag Fijálslynda flokksins og Þjóðar-
flokksins með aðeins tveggja pró-
sentustiga forskot á Verkamanna-
flokkinn, en það hefur verið um 6-9
stig síðustu tólf mánuði. Verka-
mannaflokkurinn, sem hefur verið
við völd í Ástralíu í 13 ár, er nú
með 40% fylgi og hægriflokkarnir
42%.
„Ef þessi fylgissveifla heldur
áfram verður Verkamannaflokkur-
inn áfram við völd,“ sagði talsmaður
Roy Morgan-visindamiðstöðvarinn-
ar, sem gerði könnunina.
Kynþáttamál í brennidepli
Forystumenn hægriflokkanna við-
urkenndu í gær að deilur um kyn-
þáttamál gætu kostað þá mörg at-
kvæði kjósenda af asískum uppruna.
Einn af frambjóðendum hægri-
manna hefur valdið uppnámi vegna
yfirlýsinga sem hafa verið túlkaðar
sem árásir á fólk af asískum upp-
runa og frumbyggja, Taismaður
stjórnarandstöðuflokkanna sagði að
ummæli frambjóðandans gætu eyði-
lagt margra mánaða starf flokkanna
til að styrkja stöðu sína meðal þessa
kjósendahóps.
Keating hefur notfært sér um-
mælin til að saka hægriflokkana um
að ala á kynþáttafordómum. Leið-
togar samtaka Víetnama og Kín-
verja í Ástralíu, sem eru alls um
hálf milljón, sögðu ljóst að deilan
skaðaði hægriflokkana.
Reuter
Kúbverjar
hvika
hvergi
Havana. Reuter.
ÞRÁTT fyrir mikla gagnrýni fyrir
að hafa skotið niður tvær bandarísk-
ar einkaflugvélar ítrekuðu Kúbveijar
í gær rétt sinn til að veija landið og
fordæmdu nýjar refsiaðgerðir
Bandaríkjastjórnar.
Bandaríkjastjóm hyggst í sam-
vinnu við þingið herða á ný efnahags-
legar refsiaðgerðir gegn Kúbu og er
talið að draga muni úr erlendum fjár-
festingum í eyríkinu. Talsmenn
Kúbustjórnar sögðu að ekki yrði um
mikla breytingu að ræða heldur
áframhald á fjandskap stjórnvalda i
Washington. Kúbveijar hræddust
ekki siíkar aðgerðir.
Kúbverskir útlagar í Miami sögðu
í gær að tvær flugvélar og bátar
yrðu á laugardag send á staðinn þar
sem vélarnar tvær voru skotnar nið-
ur, réttri viku eftir atburðinn. Utlag-
arnir sögðu að um alþjóðlegt haf-
svæði væri að ræða og enginn gæti
bannað þeim að vera þar.
Serbar í Sarajevo fá
Mannskæð-
ur bruni á
Tævan
Stríðsglæpadómstóllinn sakar leiðtoga Serba í Krajina um hermdarverk
ÞRETTÁN manns biðu bana þeg-
ar eldur blossaði upp í átta hæða
byggingu í borginni Taichung á
Tævan í gær. 17 til viðbótar voru
fluttir á sjúkrahús og fjórir þeirra
voru í lífshættu. Á myndinni held-
ur slökkviliðsmaður á barni sem
bjargað var úr byggingunni.
Til ryskinga hafði komið við
bygginguna áður en eldurinn
blossaði upp og talið var að átök-
in hefðu leitt til íkveikju. Tíu dög-
um áður höfðu 17 manns farist í
bruna í gufubaðstofu í borginni.
Mannskæðir eldsvoðar eru tíðir á
Tævan vegna lélegra eldvarna.
Reuter
ÖLDRUÐ kona úr röðum Bosníu-Serba í Uijas-hverfi í Sarajevo heldur á teppi og bíður þess að
verða flutt á brott i gær. Fimm borgarhverfi Serba eiga öll að vera komin undir yfirráð sambands-
ríkis múslima og Króata, þ. e. ríkisstjórnarinnar í Sarajevo, fyrir 20. mars.
alþjóðlega neyðaraðstoð
Sarajevo, Haag. Reuter.
SERBAR í úthverfum Sarajevo fóru
hörðum orðum um leiðtoga sína í gær
og sögðu þá hafa svikið loforð um
að senda bíla til að ná í þá sem vildu
komast á brott áður en hverfin féllu
undir yfirráð sambandsríkis múslima
og Króata í vikunni. Alþjóða Rauði
krossinn ákvað í gær að veita flótta-
fólkinu neyðaraðstoð.
Búist er við að allt að 60.000
manns muni flýja frá hverfum Serba.
Þeir óttast að múslimar og Króatar
muni hefna sín á Serbum sem eftir
verða í Sarajevo. Umferðarteppa
hefur verið á hetstu vegum frá borg-
inni til lýðveldis Bosníu-Serba undan-
farna daga. Rauði krossinn telur að
um 25.000 manns, einkum sjúkiingar
og gamalt fólk, hafi brýna þörf fyrir
mat, lyf og önnur hjálpargögn.
Sameinuðu þjóðirnar afléttu í gær
efnahagslegum refsiaðgerðum gegn
Bosníu-Serbum. Er talið að þessi
ákvörðun muni styrkja nýjan forsæt-
isráðherra þeirra, Rajko Kasagic, í
sessi en hann er talinn hófsamur.
Kasagic átti í gær fund í Banja Luka
með tveini starfsbræðrum sínum,
annars vegar frá sambandsríki músl-
ima og Króata og hins vegar Bosníu.
Náðist samkomulag um að vatns-
leiðslur til múslimaborgarinnar
Gorazde, sem er umlukt svæðum
Serba, yrðu opnaðar í fyrsta sinn í
fjögur ár.
Stríðsglæpadómstóliinn í Haag hóf
í gær þriggja daga vitnaieiðslur
vegna máls Milans Martic, leiðtoga
Serba í Krajina-héraði, sem er sak-
aður um að hafa fyrirskipað klasa-
sprengjuárásir á Zagreb er urðu sjö
óbreyttum borgurum að bana í fyrra.
Serbar hafna framsali
Svíinn Eric Östberg, saksóknarinn
í málinu, sagði árásirnar á Zagreb
„hermdarverk" og brot á alþjóðaregl-
um sem ætlað er að vernda óbreytta
borgara á stríðssvæðum. Klasa-
sprengjur dreifa hundruðum málm-
kúlna yfir stórt svæði og geta valdið
miklu manntjóni. Dómstóllinn ákærði
Martic í júlí í fyrra.
Martic hefui' dvalist í Banja Luka
í Bosníu og neita Serbar þar að fram-
selja hann. Vitnaleiðslur jafngilda
ekki réttarhöldum þar sem dómstóll-
inn getur ekki réttað yfir meintum
stríðsglæpamönnum að þeim fjar-
stöddum.
Verjandi eins af hershöfðingjum
Bosníu-Serba, Djordje Djukic, sem
stjórnvöld í Sarajevo létu handtaka
ásamt öðrum liðsforingja vegna
gruns um stríðsglæpi og fluttur var
til Haag, krafðist þess í gær að
Djukie yrði þegar látinn laus. Hann
væri saklaus og hefði auk þess sætt
barsmíðum af hálfu bosnískra lög-
reglumanna.
■ Þarfir fólksins/8
■ Öryggisráðið harmar/16
-----» ♦ «----
Ciinton
öflugur
Washington. Reuter.
NÝ skoðanakönnun, sem Gallup-
stofnunin gerði um lielgina fyrir
CNN/USA Today meðal flokksbund-
inna kjósenda í Bandaríkjunum og
birt var í gær, gefur til kynna að
Bill Clinton forseti muni sigra í for-
setakjörinu í nóvember.
Ef Bob Dole yrði frambjóðandi
repúblikana myndu 40% styðja hann
en 56% Clinton. Munurinn yrði enn
meiri ef frambjóðandinn yrði Lamar
Alexander, hann fengi 37% gegn
56%. Clinton myndi sigra Pat Buc-
hanan með 59% gegn 35%.