Morgunblaðið - 05.05.1996, Page 1
80 SÍÐUR B/C/D
101. TBL. 84.ÁRG.
SUNNUDAGUR 5. MAÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Framkvæmdir í Ártúnsbrekku
VEÐRIÐ hefur leikið við vegagerðarmenn Vesturlandsvegar og gengur verkið sam- uppslætti fyrir nýja brú yfir Elliðaár, þar
í Ártúnsbrekku, sem vinna nú að breikkun kvæmt áætlun. Meðal annars er unnið að sem myndin er tekin í vikunni.
Hóta allsheijarverkfalli
vegna niðurskurðar
Helsinki. Morgunblaðið.
Di Pietro fær
ráðherrastól
Róm. Reuter.
ANTONIO Di Pietro, fyrrverandi
rannsóknardómari á Italíu, lýsti því
yfir í gær að hann hygðist ekki stofna
eigin stjórnmálaflokk og að hann hefði
þegið boð um ráðherrastól í næstu
ríkisstjórn landsins. Kvaðst Di Pietro
hafa sent Romano Prodi, leiðtoga mið-
og hægrimanna, símbréf þar sem hann
sagðist reiðubúinn að taka við ráðu-
neyti opinberra framkvæmda, þegar
Prodi yrði fengið umboð til stjórnar-
myndunar. ítalska fréttastofan ANSA
hafði eftir Prodi að hann hefði spurt
Di Pietro hvort hann væri reiðubúinn
að taka þetta embætti að sér. í sím-
bréfinu til Prodis biður Di Pietro hann
að líta á sig sem „utanaðkomandi
tæknikrata“ í verðandi ríkisstjórn, þar
sem hann líti ekki á sig sem stjórn-
málamann að atvinnu.
Þingið veitir
Aznar umboð
JOSE Maria Aznar, leiðtogi hægri-
manna á Spáni, fékk í gær umboð
þingsins til stjórnarmyndunar. Hlaut
Aznar 181 atkvæði af 350 á þinginu.
Flokkur hans hlaut 156 þingsæti í síð-
ustu kosningum og vantaði 20 sæti upp
á hreinan meirihluta. Mun stjórn hans
njóta stuðnings flokks Katalóna og
fulltrúa Kanaríeyja.
50 fórust í Súdan
SÚDÖNSK flugvél í innanlandsflugi
fórst í fyrrinótt og allir sem um borð
voru, fimmtíu manns. Lenti vélin í
sandbyl og fórst er flugsljóri reyndi
nauðlendingu. Hún var á leið frá Wau
i suðurhluta landsins til Khartoum.
Flestir um borð voru háskólanemar og
hermenn.
Skarpskyggn
flugfreyja
SKARPSKYGGNI flugfreyju British
Airways varð þremur bandarískum
sjómönnum til lífs en hún rak augun
í alelda skip þeirra úr 34.000 feta
hæð. Flugfreyjan, Jane Savage, kvaðst
hafa litið út um glugga vélarinnar,
sem var á leið frá Heathrow til New
York, í þann mund sem létti til yfir
ströndinni við Massachusetts. Sá hún
reyk liðast upp frá sjónum og lét flug-
stjórann vita, sem hafði samband við
bandarísku strandgæsluna. Fundust
mennirnir fljótt en þeir höfðu komist
um borð í björgunarbát.
HELSTU verkalýðsfélög Finnlands hafa boð-
að til allsherjarverkfalls í mótmælaskyni við
þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að skerða
framlög til hinna atvinnulausu. Eins sólar-
hrings verkfall verður á föstudag í næstu
viku, 10. maí, hafi ríkisstjórnin ekki látið
af stefnu sinni í þessu efni fyrir þann tíma.
Komi til þessa verkfalls verður það hið
viðamesta í Finnlandi frá árinu 1956. Það
eru aðildarfélög SAK, sem svipar til Alþýðu-
sambandsins á íslandi, og STTK-samtak-
anna, sem gefið hafa út tilkynningu um verk-
fall. Bandalag háskólamanna ákveður á
mánudaginn hvort það tekur þátt í verkfall-
inu.
Verði allsheijarverkfall að veruleika mun
Finnland einangrast. Hvorki skip né flugvél-
ar verða í ferðum á milli landa. Innanlands
munu lestir ekki ganga og ferðir áætlanabif-
reiða leggjast af. Bankar og flestar verslan-
ir verða lokaðar og öll iðnframleiðsla mun
einnig stöðvast.
Verkfallsboðunin kom í kjölfar þess að
fimm fiokka ríkisstjórn Paavos Lipponens
forsætisráðherra ákvað að skerða rétt manna
til fullra atvinnuleysisbóta. Stéttarfélög hafa
sakað ríkisstjórnina um samningsbrot þar
sem þjóðarsátt náðist í fyrra með þeim fyrir-
vara að réttur atvinnulausra yrði ekki skert-
ur úr hófi fram. Ráðamenn telja hins vegar
að þessi niðurskurður hafi verið með eðlileg-
um hætti.
Slæm staða ríkissljórnarinnar
í stjómmálalegu tilliti þykir staða ríkisstjórn-
ar Lipponens orðin heldur slæm vegna þessara
átaka við verkalýðshreyfmguna. Innan stjóm-
arinnar eru tveir vinstri flokkar; jafnaðarmenn
og Vinstra bandalagið. Verkalýðsarmur Jafn-
aðarmannaflokksins og mikill hluti félaga í
Vinstra bandalaginu eru algjörlega andvígir
stefnu ríkisstjómarinnar.
Lipponen forsætisráðherra neyddist til
að hóta afsögn og stjórnarslitum til þess
að fá þingflokk jafnaðarmanna til að sam-
þykkja niðurskurðartillöguna. Vinstra
bandalagið varð hins vegar að fresta af-
greiðslu málsins um nokkra daga til að af-
stýra klofningi.
Lauri Ihalainen, formaður verkalýðssam-
bandsins SAK, segist tilbúinn að ræða málið
á nýjan leik. Það er hins vegar ólíklegt að
ríkisstjórnin taki að semja við launþegasam-
tökin um slík mál. Stjórnarandstaðan hefur
þegar gagnrýnt ríkisstjórnina harkalega fyr-
ir að hafa gengið allt of mikið til móts við
aðila vinnumarkaðarins. Meirihluti ríkis-
stjórnarinnar er traustur en stjórnmálaský-
rendur benda á að Lipponen þurfi að sýna
að hann sé óháður verkalýðsfélögunum.
RANNSOKNIR STYÐJA
ALDUR VÍNLANDSKORTSINS
Á sinni syllu
í fuglabjargi
heimsviöskipta
VIÐSKIPnfflVINNULÍF
Á SUNNUDEGI
Seiðkonan
í Pottagöldrum
22
iunijíi*! s mi
fijj stíifl m mt sem
nn fBftií m\ fi