Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ! Stafrænt áskriftarsjónvarp Slegist um bandarískt efni í Evrópu Evrópsk sjónvarpsfyrirtæki gera nú hvað þau geta til að komast yfír bandarískt efni í þeirri von að stafrænt áskriftarsjónvarp um gervihnetti höfði til áhorfenda. Morgunblaðið/Kristinn EVRÓPUBÚAR standa nú frammi fyrir stórauknu framboði á sjónvarpsefni. Mikil ásókn í kvikmyndir og framhaldsþætti frá Bandaríkjunum þykir þó gefa til kynna að það verði einsleitt. HAFIN er hörð barátta milli evrópskra dreif- ingaraðila um kaup á sem mestu af banda- rísku sjónvarpsefni. Sem dæmi um þessa ásókn má nefna að eitt fyrirtæki, Kirch-samsteypan í Þýskalandi, hefur fest kaup á bandarísku efni fyrir upphæð sem svarar til 235 milljarða króna á þessu ári. Það er byltingin sem er yfirvof- andi í sjónvarpsmálum sem ræður þessari gífurlegu ásókn í banda- rískar kvikmyndir og skemmti- efni. Með því að hafa nógu mikið af slíku efni í boði vonast evr- ópsku sjónvarpsfyrirtækin ti! þess að vinna hylli almennings þegar stafrænt áskriftarsjónvarp um gervihnetti verður að veruleika. Samstarf sjónvarpsrisa í fyrra juku stóru bandarísku fyrirtækin umsvif sín um heil 14% á Evrópumarkaði. Alls var selt efni fyrir 1,27 milljarða Banda- ríkjadala, um 83 milljarða króna. Þjóðveijar voru stórtækastir, náðu í efni frá Bandaríkjunum fyrir rúma 25 milljarða króna. Arið áður höfðu þýsku fyrirtækin keypt efni fyrir tæpa 20 milljarða. „Kostnaðurinn við að hefja stafrænar sendingar gerir að verkum að mörg stærstu fyrir- tækin hafa fyllst ótta og hafín hefur verið samvinna fyrirtækja sem áður hefði verið öldungis óhugsandi," segir Paul Styles, fjölmiðlafræðingur sem starfar við KPMG-ráðgjafarfyrirtækið í Lundúnum. Þróunin er vissulega í þessa áttina. Nú hefur Compagnie Lux- embourgoise de Télédiffusion (CLT) gengið til liðs við bresku Sky-samsteypuna, hið þýska Bertelsmann AG og frönsku stór- fyrirtækin Canal Plus SA og Hav- as SA. Fyrirtækin hyggjast í sam- einingu kynna nýjan afruglunar- búnað, sem komið verður fyrir á heimilum og taka mun við staf- rænum gervihnattasendingum. Þessi búnaður mun ekki geta tek- ið við útsendingum Kirch-sam- steypunnar og öfugt. Canal Plus ríður á vaðið Canal Plus hóf á dögunum staf- rænar sendjngar fyrst fyrirtækja í Evrópu. Áætlanir fyrirtækisins gera ráð fyrir að ein og hálf millj- ón heimila gerist áskrifendur fyrir aldamót. Rúmlega 850.000 áskrifendur þarf til að útsending- ar standi undir kostnaði og ekki er gert ráð fyrir hagnaði af rekstr- inum fyrstu fímm árin. Canal Plus stendur frammi fyr- ir samkeppni því fyrirtækin TFl, M6. France Television og Compagnie Luxembourgeoise de Télédiffusion hyggjast í samein- ingu hefja stafrænar útsendingar í Kaupæðið á bandarísku efni sem er hafið er ekki aðeins merki- legt fyrir þær sakir hversu miklar upphæðir um er að ræða. Margir sérfræðingar hafa miklar efa- semdir um að almenningur hafi áhuga á þessari nýju tækni. Full- yrt er að alþýða manna í Evrópu muni upp til hópa ekki reynast tilbúin til að auka útgjöld sín á þessu sviði. Kannanir gefa til kynna að þetta geti verið rétt. Nú í apríl- mánuði gerði frönsk stofnun og tímaritið L’Express könnun á við- horfi almennings. Um 40% þeirra Frakka sem þátt tóku kváðust taka nýjum sjónvarpsrásum fagn- andi. Þrír af hveijum fjórum sögð- ust hins vegar ekki vera tilbúnir til að greiða sérstaklega fyrir mynd eða íþróttaviðburð í sjón- vargi. „í Þýskalandi geta menn þegar valið úr 30 stöðvum og þar er framboðið á efni einfaldlega of mikið,“ segir Helmut Thoma, framkvæmdastjóri RTL-sam- steypunnar. Áhorfendur eru að- eins tilbúnir til að borga aukalega fyrir kvikmyndir og íþróttavið- burði. En hvers vegna skyldu þeir gera það þegar þeir hafa aðgang að 1.600 bíómyndum á ári hveiju?“ Barátta Kirch og RTL Kirch-samsteypan hefur látið mest til sín taka við kaup á efni frá Bandaríkjunum og er nú hafið mikið „tilboðastríð" á milli Kirch og RTL. Slegist er um réttinn til að sýna kvikmyndir og framhalds- þætti frá MCA. Kirch hefur hins vegar gert samning við Discovery Communications Inc. og mun sýna fræðsluefni og annað sem unnið hefur verið á vegum fyrirtækisins auk þess sem Kirch ráðgerir að hefja rekstur sambærilegrar rásar í Þýsklandi. I nýliðnum mánuði gekk Kirch síðan frá samstarfssamningi við Viacom Inc. sem tekur til sýning- arréttar á kvikmyndum og fram- haldsþáttum frá Paramount-kvik- myndafélaginu. Að auki verður dreift efni frá MTV Europe og VH-1 tónlistarrásinni auk annars efnis frá Viacom. Samningurinn er til tíu ára og er talinn hljóða upp á um 117 milljarða. króna á þessu tímabili. Spenna eykst í samskiptum Albana og Serba Carí Bildt áhyggju- fullur vegna Kosovo Bosníumenn handtaka tvo meinta stríðsglæpamenn Aþenu. Reuter. CARL Bildt, fulltrúi Evrópusam- bandsins í málefnum Bosníu, lýsti á fimmtudag yfir þungum áhyggj- um af þróun mála í Kosovo-héraði en þar hefur spenna í samskiptum Albana og Serba farið ört vaxandi að undanfömu.Bildt, sem staddur var í Aþenu.lýsti þeirriskoðun sinni að ofbeldisverk og spenna í Kosovo gæti ógnað fyrirliggjandi sam- komulagi um frið í Bosníu. Hvatti hann stjórnvöld í höfuðborgum Al- baníu og Serbíu til að sýna stillingu. „Ég hef þungar áhyggjur af þeim erfiðleikum sem einkennt hafa ástandið í Kosovo nú nýverið," sagði Bildt. „StjórnVöldum í Belgrad, Kosovo og Tirana ber að leita pólití- skrar lausnar og koma í veg fyrir að meiriháttar spennuástand skap- ist,“ bætti hann við. Púðurtunna Sérfræðingar hafa löngum haft áhyggjur af þvi að upp úr kunni að sjóða í Kosovo. Þetta er sérlega eldfimt svæði, héraðið tilheyrir Serbíu en Serbar telja það heilagt landsvæði þar sem upphaf þjóðríkis þeirra má rekja þangað. Af þeim tveimur milljónum manna sem þar búa eru hins vegar 90% Albanar. í fyrri viku sprungu tvær sprengjur í Kosovo og lét 12 ára albanskur drengur lífið í annarri þeirra. Áður höfðu fimm Serbar verið drepnir að því er talið er i hefndarskyni fyrir morð á albönsk- um námsmanni. Bildt kvaðst vera þeirrar skoðunar að Serbar gætu ekki gert sér neinar vonir um hag- sæld og stöðugleika án tilslakana í Kosovo. „Serbía getur ekki talist Evrópuríki á meðan stöðug kúgun fer fram í Kosovo. Slíkt er einfald- lega óhugsandi." Bildt vék einnig að Radovan Karadzic, leiðtoga Bosníu-Serba, sem sakaður hefur verið um stríðs- glæpi. Hann sagði það ekki þjóna hagsmunum Serba að Karadzic hefði enn afskipti af málefnum Bosníu. Hann væri einangraður og fyrir það mætti þjóð hans líða. Meintir stríðsglæpamenn handteknir Á fímmtudag skýrði talsmaður stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna í Haag frá því að tveir múhameðstrúarmenn sem sakaðir hafa verið um illvirki í stríðinu í fyrr- um Júgóslavíu hefðu verið handtekn- ir í Bosníu. Mennimir eru ásamt tveimur öðrum taldir ábyrgir fyrir stn'ðsglæpum sem framdir voru í Celebici-fangabúðunum í Bosníu árið 1992 þegar níu Serbar voru myrtir. Reuter Kreflast hertra byssulaga UM 2.500 manns kröfðust þess í gær að lög um byssueign yrðu hertar í kjölfar fjöldamorðanna á eynni Tasmaníu um síðustu helgi er geðsjúkur og vopnaður maður myrti 35 manns. Safnaðist fólkið saman í Hyde Park í Sydn- ey og bar skilti á borð við það sem hér sést en á því voru mynd- ir af flestum fórnarlömbunum undir spurningunni „Hversu margir verða að deyja til viðbót- ar?“. Fundi Eystra- saltsráðs lokið Ný orku- áætlun rædd „ÞAÐ bar ekki á öðru en að sæmi- leg sátt væri á milli Rússa og leið- toga Eystrasaltsríkjanna eftir óformlegar viðræður á föstudags- kvöld og ræðu Tsjernomyrdíns for- sætisráðherra Rússlands í morgun," sagði Davíð Oddsson, forsætisráð- herra en hann sat leiðtogafund Eystrasaltsráðsins sem lauk í Visby á sænsku eyjunni Gotlandi í gær. í gærmorgun var kynntar loka- ályktanir fundarins auk þess sem Tsjernomyrdín ávarpaði fundinn. Að sögn Davíðs lýsti hann þvi' m.a. yfir að Rússar settu sig ekki upp á móti hugsanlegri aðild Eystrasalts- ríkjanna þriggja að Evrópusam- bandinu. Á meðal þess sem rætt var á fundinum voru aðgerðir í umhverf- is- og orkumálum og sagði Davíð að ekki hefðu verið teknar ákvarð- anir um nákvæmar aðgerðir og framlög til umhverfísmála en sam- þykkt hefði verið að hafa samráð um hreinsun sjávar á Eystrasalts- svæðinu. Þá hefði verið samþykkt að vinna að nýrri orkuáætlun fyrir það. Ljóst væri að kjarnorka yrði eftir sem áður aðalorkugjafinn en að gera ætti nýja áætlun um hvern- ig nýta mætti orkuna betur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.