Morgunblaðið - 05.05.1996, Side 8

Morgunblaðið - 05.05.1996, Side 8
8 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heyrnartæki af nýrri stafrænni gerð komin á markað í Danmörku Greina tíðnisvið tals frá bakgrunnshljóðum STAFRÆN heyrnartæki með örsmáum tölvukubbi verða til sölu á Islandi innan tíðar. DANSKA fyrirtækið Widex kynnti nýja gerð af heyrnartækjum 24. apríl síðastliðinn sem hafa þann eiginleika að hægt er að draga úr bakgrunnshljóðum og auka tíðni- svið tals, tónlistar o.fl. Heyrnartæk- in eru af stafrænni gerð og í þeim örsmár forritaður tölvukubbur sem getur greint á milli tíðnisviðs tals og annarra hljóða. Birgir Ás Guðmundsson, heym- arfræðingur hjá Heyrnar- og tal- meinastöð íslands, sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki vita hvenær tæki af þessari gerð kæmu hingað til lands, en ljóst væri að þau yrðu talsvert dýrari en þær gerðir heyrn- artækja sem hér eru á markaðnum. Birgir sagði tæknina sem heym- artækin byggja á hafa verið þekkta í 20 ár, en til þessa hafi ekki verið hægt að iáta kerfið vinna á 1 volti. Tækin virka á þremur tíðnisviðum og þannig er hægt að auka tíðni- svið tals en dempa hávaðasviðið. Sagði hann að hér væru nú þegar á markaði tæki sem ynnu á ná- kvæmlega sama hátt þótt ekki væru þau stafræn. Henta best fólki með litla heyrnarskerðingu Birgir sagði að Heyrnar- og tal- meinastöð Islands myndi afla sér stafrænna heymartækja og kanna þau þegar dönsku fyrirtækin yrðu tilbúin til að selja þau hingað, en fyrst yrði aflað upplýsinga um hvernig tækin reynast í Danmörku. Hann sagðist ekki vita hvað þau kæmu til með að kosta ef þau yrðu seld hér, en taldi víst að þau yrðu talsvert dýrari en þau tæki sem nú eru markaði hérna. Þar er um að ræða hefðbundin raðsmíðuð heyrn- artæki sem höfð eru á bakvið eyra og kosta notendurna á bilinu 8-10 þúsund krónur og sérsmíðuð tæki í eyra, m.a. þau sem skilja talið frá hávaða, sem kosta á bilinu 15-18 þúsund krónur. Hér á landi eru að sögn Birgis hátt í 10 þúsund manns sem nota heymartæki. „Það er svolítill galli við þessu nýju stafrænu tæki að það þarf að forrita þau, en slík tæki hafa reynd- ar verið þekkt í mörg ár. Við höfum ekki verið mikið með forrituð tæki hérna og er það vegna fjarlægð- anna. Það er ekki hægt að stilla þessi tæki nema í gegnum tölvu á ákveðinn hátt og ef tæki er selt eitthvað út á land og viðkomandi vill einhverja breytingu á hljóð- styrknum þá er ekki nokkur leið til að gera neitt nema senda tækið til okkar þar sem aðstaða er til að forrita það. Hins vegar sé ég það fyrir mér að þessi stafrænu tæki era afar heppileg fyrir þá sem hafa mjög litla heymarskerðingu,“ sagði Birgir. Dagbók frá Kairó RISVAR í viku hringir sorphirðirinn stuttri hringingu á bjöllunni, þá á ég að láta ruslið fram á stiga- pallinn. Hann hringir öllum bjöll- um, þegar hann hleypur upp hæðimar og byijar efst. Hann rogast með stærðarinnar bastk- örfu á bakinu og ef raslið er ekki í lokuðum poka er nokkuð senni- legt að eitthvað verði eftir þegar hann er horfinn í næsta hús. Þessa körfu losar hann svo í gáma við enda götunnar. En það koma ekki bílar og hirða þessa gáma strax, fyrst rannsaka sorphirðar og aðrir gullgrafarar hverfisins raslið og til þeirra kem- ur alls konar fólk að hjálpa þeim að skoða raslið, krakkarollingar og fátæklingar. Þau sortéra allt sem nýtilegt er að þeirra dómi og hafa það á brott með sér. Plast- fiöskur selja þau í endurvinnslu- fyrirtæki, blöð og pappír og fleira. Matarleifar, sem ég hef séð krakk- ana vera að narta í, eru ekki allar lystilegar. í mánaðarlokin hringir sorpar- inn svo langri hringingu á allar bjöllur. Þá er komið að skulda- dögum því hann er ekki á launum hjá öðrum en þeim sem hann tek- ur rasl hjá. Ég hef reynt að rabba við þennan mann eftir að ég er orðin djarfari í egypsku arabísk- unni. En ég skil ekki hvað hann seg- ir eða hann skilur ekki hvers vegna ég er að hnýsast í hans mál, eins og það hvað hann beri mikið úr býtum á mánuði. Hann hefur fimm hús og ég veit að hvert þeirra er með 10 íbúðum. Því get ég svo sem án hans hjálp- ar reiknað út að hann hefur 50 íbúðir sinnum 2 pund=100 pund á mánuði. Plús eitt aukapund sem hann hefur gert mér að greiða af því ég er útlendingur en þeir fuglar era sjaldséðir í hverfinu mínu. Mánaðarlaun hans eru því 2.020 kr. Fyrir utan það sem hann getur nýtt og selt: þá er hann líklega kominn í 121 pund. Um sorp- hirðingu og aðdáenda- bréf í há- loftunum Sorphirðirinn í hverfínu þar sem Jóhanna Kristjónsdóttir býr hefur vakið forvitni hennar og hún reynt að rabba við hann eftir að vera orðin djarfari í egypsku arabísk- unni. En hún skilur ekki hvað hann segir eða hann skilur ekki hvers vegna hún er að" hnýsast í hans mál Kannski er það ekki svo slæmt þegar kennari í barnaskóla ríkis- ins fær 140 pund eða um 2.800 kr. á mánuði. Nú eru laun og laun varhuga- vert samanburðarefni en þótt það sé langtum ódýrara að lifa hér en heima er munurinn ekki í sam- ræmi við þetta. Einatt er mér gáta hvernig fólk getur dregið fram lífið af launum sínum og milljónir geta það alls ekki. Það fólk kaupir engar nýjar flíkur handa krökkunum sínum á fyrri eða seinni Eidhátíðum né fyrri og seinni páskum og það fer held- ur ekki í ferðalög. Jafnvel þótt þau séu þrisvar sinnum ódýrari en fyrir útlendinga. Það er margt umhugsunarefn- ið fyrir aðkomumanneskju hér, fleira en sorphirðar og launakjör. Til dæmis pósturinn. Stundum berst póstur svo skjótt að blekið er varla þomað. En oftast tekur það þó óratíma. Og sum bréf skila sér aldrei. Nú er kannski komin skýring á því af hverju óvenju fá bréf bárust um skeið hingað á heimilið. Á neðstu hæðinni búa yfirhjón hússins. Þau taka til dæmis á móti rafmagns-, vatns- og gas- mönnunum og rukka svo íbúana. Og þau taka á móti póstinum. Þau eru kristin eins og aðrir íbúar þessa húss teljast vera og höfðu haft á orði að þau ætluðu að skreppa til dóttur sinnar. Þau nefndu ekki hveijum hefði verið falið þáð ábyrgðarstarf að annast póstinn. Viku seinna eða svo, þegar ég var að koma heim sá ég að það hefði láðst að gera viðhlítandi ráð- stafanir. Á gangstéttinni var á flögri bréf sem reyndist vera til mín og þegar ég aðgætti á verönd- ina þeirra var á víð og dreif póst- ur til mín og annarra íbúa. Séu yfirhjónin ekki nógu fljót að grípa póstinn sem er hent inn á veröndina - ég tala nú ekki um þegar þau fara frá í tíu daga - þá svífur pósturinn bara af stað. Því eru þau þar kannski núna - bréfin sem ég var að vonast eftir og fékk ekki - á sveimi í háloftunum yfir Kairó. Sum gætu endað hjá gullgröfur- um sem selja þau í endurvinnslu. Rafmagnseftirlitið Rafmagn á að um gangast með varúð BergurJónsson Rafmagnseftirlit rík- isins hefur eindreg- ið varað við fyrir- mælaverki erlends lista- manns, sem meðal annars var kynnt hér í Morgunblað- inu 1. maí síðastliðinn. Sam- dægurs varaði Bergur Jóns- son rafmagnseftirlitsstjóri við því að almenningur færi að fyrirmælunum. - Þetta er ekkert lista- verk í mínum huga heldur dauðagildra og ekkert ann- að. Mér finnst ekkert snið- ugt við þetta, nema síður sé. Það gremjulegasta er að höfundurinn gerir sér ljósa grein fyrir hættunni sem af þessu stafar. Samt viðhefur hann aulafyndni í sambandi við hættuna. Þetta tæki er mjög hættulegt vegna þess að hlutirnir sem nota á í fyrir- mælaverkið eru til á hveiju heim- ili og það er ekki flókið að setja þetta saman. Hættan er sú að fólk fari sér hreinlega að voða. Stálsigtið er hluti af rafleiðsl- unni og sé tækið í sambandi getur fólk fengið lífshættulegan straum af því að snerta það. Ef einhveijum dytti í hug að búa þetta til og skildi við það í sambandi væri þar um beina lífshættu að ræða. Það varð alvarlegt slys fyrir nokkru þegar unglingar voru að fikta við rafmagnsþræði og ætluðu að hrekkja félaga sinn. Það er ekki sama hvar fólk fær straum í sig. Ef straumur fer um hjarta- svæðið, frá hönd til handar, eða hönd til fótar þá þarf ekki sterkan straum til að valda hjartastoppi og bana manni. Hvert er hlutverk Rafmagnseft- irlits ríkisins? - Það er að sjá til þess að raf- magn sé notað á réttan og örugg- an hátt. Að raflagnir og rafföng séu lögleg og þannig útbúin að þau valdi ekki slysum og tjóni. Þetta er gert með beinu og óbeinu eftirliti. Við löggildum fagmenn til rafvirkjunarstarfa og fylgjumst með áð þeir séu ábyrgir fyrir þeim verkum sem þeir inna af hendi. Þá er stunduð fræðsla fyrir al- menning og fagmenn. Við fylgj- umst með því að samræmdar al- þjóðlegar reglur séu í heiðri hafð- ar. Það eru til evrópskir staðlar um rafföng og við fylgjumst með því að þau sem era hér á markaði fullnægi settum reglum. Þjóðirnar hafa ekki sett samræmdar reglur um raflagnir en við aðhæfum er- lendar reglur þörfum okkar hér á landi. Koma rafmagnsslys til ykkar kasta? - Já, við eigum góða samvinnu við Rannsóknarlögreglu ríkisins og önnur lögregluyfirvöld um rann- sókn á slysum og tjónum sem verða af völdum rafmagns. Sérfræðingar okkar era kallaðir til í slíkum tilvikum. Á árun- um 1984-94 urðu 54 slys af völdum rafmagns, 49 þess- ara slysa urðu af lágspennu, yfir- leitt 230 volta spennu sem er al- gengust á heimilum. Tvö slysanna voru dauðaslys og annað þeirra orsakaðist af lágspennu. Þá má nefna að af þessum 54 slysum urðu rafiðnaðarmenn fyrir 34 slysum. Þeir eru enda oft að vinna við hættuleg skilyrði þar sem sérstakrar aðgátar er þörf. Treystir fólk um of & öryggis- búnað á borð við vartappa og leka- liða í sambandi við rafmagn? ►Bergur Jónsson, rafmagns- eftirlitsstjóri rikisins, er fæddur í Reykjavík 16. apríl 1934. Berg- ur varð stúdent frá MR 1954 og lauk prófi í rafmagnsverk- fræði frá Technische Hoch- schule í Miinchen í Þýskalandi 1961. Hann starfaði hjá Siem- ens-Schuckertwerke AG í Þýskalandi og Landsvirkjun þar til hann tók við starfi rafmagns- eftirlitsstjóra ríkisins 1979. Bergur hefur einnig verið stundakennari við Tækniskóla Islands og Háskóla Islands. Hann hefur gegnt fjölda trún- aðarstarfa fyrir Verkfræðinga- félag Islands og skátahreyfing- una. Bergur hefur unnið mikið að smíði nýyrða í raftækni. Hann hlaut heiðursmerki Verk- fræðingafélagsins 1990. Eigin- kona Bergs er Ingunn Guð- mundsdóttir bókasafnsfræðing- ur. - Fólk verður að gæta ítrustu varkárni í allri umgengni við raf- magn, hvort sem það vinnur bein- línis við raflagnir eða notar raf- tæki í daglegu lífi. Þessi öryggis- tæki eru bakhjarl, en það á aldrei að treysta á að öryggisbúnaður hljóti að vemda og þess vegna geti menn verið kærulausir. Ég vil fyrst og fremst benda fólki á að það hugleiði þær hættur sem leynast á heimilinu af völdum rafmagns - ef ekki er rétt að hlut- unum staðið. Ef raflögn er ekki í lagi eða ef fólk misnotar rafmagn á einhvem hátt. Rafmagn er í sjálfu sér ekki hættulegt ef menn kunna að um- gangast það. Tilgangurinn með fræðslu um örugga umgengni við rafmagn er ekki að hræða fólk, en okkur verður að vera ljóst að af rafmagni getur stafað mjög raunveruleg hætta ef það er mis- notað á einhvern hátt. Eins ef umbúnaður rafmagns- ins, jafnt raflagnimar eða raftækin, er ekki í lagi. Ef fólk hefur ein- hvem grun um að raf- magnstöflur eða rafmagnstæki á heimilinu séu ekki í lagi á það að fá löggilta fagmenn til að skoða rafbúnaðinn og meta hvort að- gerða sé þörf. Það getur verið dýrt að hafa rafmagnið í ólagi. IIús brenna af völdum lélegra raf- lagna og rafmagnstaflna. Við höf- um séð það oft á undanförnum árum að það hefur kviknað í hús- um vegna þess að rafmagnstöflur hafa verið ofhlaðnar eða eitthvað farið úrskeiðis sem veldur svo miklum hita að það kviknar í. Af rafmagni getur stafað mikil hætta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.