Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 11 í .liusinn'fl.iu h> ( \ Ht.U'v VwiÁmWi }>Wl' '-*$>»<{; átjniUiw ÉMi<e lUiif \<*tó ■>'•«»«<■?»-• »4l<ll()Kiy»K«y~»»>»44>*n<-:» u •&:*"** • V HywuMn l»w JreWíUtnW ;>K. .V. <4»VKÍINUMÚT‘^tít* ^Xfh'dic J> jnjíít'ívrtl ^ ivvuwvru>: r>u*Cn.uu »u«i W-~« •»,'>... <J|ÍM » í>«?.ui ‘ÆvAt&Mi Q Qefoauv ZPrwtiU “*'’•*' ^iiífcc Vrttíl Omwfiíiw; *)«vn*í: HKiettS inomt .»¥<•> <><*>v<--4 .u-'yúui; ‘l-ttllOj ttympcu& ÁREIDANLEIKl Vínlandskortsins var nicðal annars drcginn í cfa vcgna þcss hvc útlínur Gratnlands cru nákvæmlega drcgnar. Margar hcímildir frá miðöldum sýna að mcnn vissu sncmma að Grænland cr cyja. Víniand cr sýnt scm eyja vestan Grænlands. Var röngum spummgum svarað? George D. Painter segir í inngangi að nýrri útgáfu Yale University Press á Vínlandskort- inu að hann sé sannfærður um að kortið sé ekki falsað, eins og niðurstöður efnafræði- legrar rannsóknar frá 1973 þóttu benda til. Painter segir nýjar rannsóknir benda til þess að þær niðurstöður séu rangar og að Vín- landskortið hafi verið gert á fimmtándu öld, löngu áður en Kólumbus sigldi til Ameríku. RÍR virtir fræðimenn lögðu nafn sitt að veði þegar Vín- landskotóð var gefið út árið 1965. Aðeins einn þeirra er enn á lífi, George D. Painter, sem ritar inngang að nýrri útgáfu Yale University Press á bókinni um Vínlandskortið, sem kom út í fyrra. Painter segir að rannsóknarstofa Walters McCrone hafi komist að þeirri niðurstöðu árið 1973 að í blek- inu, sem notað var til að teikna kort- ið, hefði fundist efnið anatas, kristöll- uð mynd af títandíoxíð, sem er sjald- gæft í náttúrunni og hefur einkum verið notað í litar- eða þekjuefni á tuttugustu öld. Painter segir að þessi rannsókn hafi verið tæknilegur sig- ur, þar sem mjög erfitt hafi verið að rannsaka kortið án þess að valda skemmdum á því. Hann álítur hins vegar að vísindamennirnir hafi feng- ið nokkuð rétt svör við röngum spurningum. Walter McCrone og samstarfs- menn hans fundu alls fimmtán mis- munandi efni í bleki kortsins og Pa- inter segir að svo mikil efnablöndun sé óhugsandi við nútímaframleiðslu á litarefni úr títandíoxíði. Slík blönd- un sé hins vegar dæmigerð fyrir blek sem notað var á miðöldum. Máli sínu til stuðnings sagði McCrone meðal annars að títan hefði ekki verið uppgötvað fyrr en árið 1791 en Painter bendir á að þótt súrefni hafi ekki verið uppgötvað fyrr en árið 1764 merki það ekki að menn hafi ekki andað því að sér fyr- ir þann tíma. Að sögn Painters er títan níunda algengasta efnið af þeim sem mynda nær alla jarðskorpuna, eða rúm 98,5% hennar, og algengara en nokk- urt þeirra efna sem fundust með því í blekinu. Títan sé nær alls staðar, í öllum lífverum, meðal annars í líkömum manna. Blekið í Vínlandskortinu skiptist í tvö lög, gulbrúna línu úr efnum sem bókfellið saug í sig, og leifar af yfir- borðslagi úr svörtum ögnum, sem bókfellið saug ekki í sig. Svipuð lög eru algeng í handritum frá miðöldum án þess að menn háfi fundið sig knúna til að skýra þau sérstaklega. McCrone hélt því þó fram að hugs- anlegur falsari hefði bætt svarta lag- inu við sérstaklega og síðan „flysjað það upp með því að nudda það til að láta svo líta út sem blekið hafi horfið smám saman“. Painter telur þetta fáránlega tilgátu og segir að 90% yfirborðslagsins hafi máðst af á fimm öldum, meðal annars vegna hreinsunar á því seint á nítjándu öld. Óvænt niðurstada nýrrar rannsóknar Vísindamenn undir stjórn Thomas A. Cahill við Croeker-kjarnarann- sóknarstofnunina í Kaliforníuháskóla rannsökuðu Vínlandskortið árið 1985 og beittu nýrri aðferð sem nefnist PIXE. Hún felst í því að róteindar- geisla úr hringhraðli er beint að sýn- unum og við það myndast rafsegul- geislun sem gerir vísindamönnum kleift að greina öll efnin sem þar eru og mæla þau mjög nákvæmlega á skömmum tíma. Með þessari tækni voru gerðar 159 rannsóknir á öllu blekinu og bókfellinu. McCrone studdist hins vegar við rannsókn á 29 öreindum sem aðeins voru skafn- ar af yfirborði bleksins, sem að sögn Painters jafngildir aðeins um 0,01% af blekinu. Niðurstaða PIXE-rannsóknarinn- ar kom mjög á óvart. Títanið reynd- ist ekki eitt af helstu efnunum í blek- inu eins og McCrone hafði talið. Tít- an fannst ekki í helmingi sýnanna og þar sem efnið fannst var það i agnarlitlum mæli. McCrone kvaðst hafa fundið allt að 50% anatas í blekinu, sem jafn- gildir um 30% af þyngd hreins tít- ans, eða um 12% að meðaltali. í PIXE-rannsókninni reyndist hins vegar anatasið mest 0,0062% og 0,00125% að meðaltali, eða lítið brot af því magni sem McCrone áætlaði. Títan fannst ennfremur í svörtu yfirborðsögnunum þótt McCrone hefði haldið því fram að efnið væri ekki þar, enda studdi það kenningu hans um að hugsanlegur falsari hefði teiknað kortið tvisvar sinnum með bleki. Rannsókn Cahills ieiddi í ljós að innri og ytri lög bleksins eru því sem næst algjörlega samsíða, svo aðeins munar innan við 0,1 millimetra. Að sögn Painters er samræmið í lögun- um svo mikið að mannsaugað grein- ir ekki muninn og óhugsandi að fals- ari nái slíkri nákvæmni. Títan í flciri bókfcllum frá niiðöklum Í PIXE-rannsókninni fannst 21 efni í blekinu, sem finnast öll í nátt- úrunni og eru algeng i unnum jarð- efnum frá miðöldum en óhugsandi í nútímaafurðum úr hreinsuðu títani. PIXE-rannsóknin leiddi í ljós að títan er einnig í bókfelli kortsins, þótt McCrone hafi ekki fundið það þar. Með þessari tækni hefur títan enn- fremur fundist í ýmsum öðrum bók- fellum frá miðöldum. Til að mynda fannst efnið í prentletri Guten- bergsbiblíunnar frá 1455 og í mun meira mæli en í kortinu. McCrone taldi að 800-1.000 gráðu hita þyrfti til að breyta anatasi í duft með glóhitun og „óhugsandi“ væri að slíkt hefði verið hægt með þeirri tækni sem beitt var á fimmt- ándu öld. Painter segir hins vegar að ný rannsókn sýni að þetta sé rangt. Vísindamennirnir, sem fram- kvæmdu PIXE-rannsóknina, komust að þeirri niðurstöðu að hún benti til þess að kenning McCrone um að Vinlandskortið væri fölsun ætti ekki við rök að styðjast. „Endurskoða verður þá túlkun að kortið hafi reynst fölsun frá 20. öld,“ segir í skýrslu vísindamannanna. Painter segir að ekki sé lengur hægt að nota efnasamsetningu bleksins sem rök fyrir því að kortið hafi verið falsað. Þvert á móti reyn- ist hún sönnun þess að kortið sé frá miðöldum. Páfabréf sýna ad Grænland var þekkt scm eyja Eva G.R. Taylor var á meðal nokk- urra sérfræðinga í kortagerð sem héldu því fram að Vínlandskortið væri fölsun. Helsta röksemd hennar var sú að útlínur Grænlands á kort- inu væru svo nákvæmar að það gæti ekki verið frá 15. öld. Því var haldið fram að enginn hefði vitað fyrr en á nítjándu öld að Græn- land væri eyja, eins og sést á kort- inu. Taylor kvaðst því ekki „hika við að segja að kortið hefði einfaldlega verið dregið upp eftir landakortábók sem notuð er í skólum nútímans." í frægri lýsingu ágústínusar- munksins Adams frá Brimum (á lífi 1075) af Vínlandi minnist hann þó á „eyjarnar í hafinu mikla, þar sem Grænland er ekki síst“. Athyglisvert er að Adam lýsir einnig Vinlandi sem eyju. Grænland var biskupsdæmi í kaþ- ólsku kirkjunni í fjórar aldir og fyrst- ur biskupanna var Eiríkur Gnúpsson. I opinberum páfabréfum á þessum tíma var Grænland margsinnis nefnt eyja, að sögn Painters; t.a.m. í bréf- um Anastasíusar IV frá 1154, Alex- anders III frá 1180 og Nikulásar III frá 1279. Á sama áratug og Vín- landskortið er taiið hafa v'erið gert var Gregoríus nokkur gerður að bisk- upi yfir „eyjunni Grænlandi“ árið 1440 og Nikulás V nefnir Grænland sem eyju fjórum sinnum í bréfi frá 1448. Höfundur Vínlandskortsins þurfti því ekki að bíða í fjórar aldir eftir því að landkönnuðurinn Robert Edw- in Peary uppgötvaði að Grænland væri eyja. R.A. Skelton, yfirmaður korta- deildar British Museum, varpaði fram þeirri tilgátu að Vínlandskortið væri eina eftirmyndin sem varðveist hefði af eldra korti frá Islandi. Paint- er segir nú tímabært að taka slíkar tilgátur til íhugunar að nýju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.