Morgunblaðið - 05.05.1996, Side 18
18 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
4
Árangnrsrík
lyfjameðferð
Ráðstefnuna sátu um 350
norrænir heimilislæknar en
hún var haldin á vegum
lyfjafyrirtækisins Pfizer, sem er
alþjóðlegt fyrritæki.„Hluti af fram-
halds- og viðhaldsmenntun lækna
er í samvinnu við lyíjaiðnaðinn,
einkum 'er varðar nýjungar í með-
ferð sjúkdóma. Á þessari ráðstefnu
var m.a. kynnt ný meðferð vegna
þvagfæravandamála hjá körlum
með of stóran_ blöðruhálskirtil,"
sagði Jóhann Ágúst Sigurðsson
læknir. „Stór hluti karlmanna fær
upp úr miðjum aldri einhver vanda-
mál við að kasta af sér vatni sem
stafar oftast af stækkun á blöðru-
hálskirtlinum. Verið var á þessari
ráðstefnu að kynna nýja meðferð
við þessum vanda. Árangur af
þeirri lyfjameðferð sem áður
Um síðustu helgi var haldin í Borgarleikhús-
inu í Reykjavík ráðstefna norrænna iækna.
Jóhann Ágúst Sigurðsson læknir var
fundarstjóri. í samtali við Guðrúnu
Guðlaugsdóttur sagði hann frá því helsta
sem drepið var á, svo sem nýrri lyfjameð-
ferð við stækkun blöðruhálskirtils og að
rannsóknir sýndu að fólk verður önugra með
aldrinum en persónuleikagerð þess breytist
hins vegar ekki eftir 25 ára aldur.
þekktist kom oft ekki
í ljós fyrr en eftir
fjóra til sex mánuði.
Hin nýja lyfjameð-
ferð sem þarna var
kynnt gefur hins
vegar árangur innan
tveggja vikna. Um
er að ræða svokall-
aða „alfablokkun"
sem slakar á sléttum
vöðvum í blöðruhál-
skirtlinum og kemur
þannig í veg fyrir að
viðkomandi einstakl-
ingur sé á sífelldu
næturrölti til þess að
kasta af sér vatni.
Þetta hefur hins veg-
ar engin áhrif á kyn-
líf, hvorki bætir það né gerir það
verra. Stækkun á blöðruhálskirtli
er að jafnaði aldursbundið fyrir-
bæri sem stafar m.a. af minnkaðri
hormónaframleiðslu.
Á þessari ráðstefnu kom fram
að skapgerð fólks breytist með
aldrinum, fólk verður önugra og
vegna einangrunar er því jafn-
framt hættara við þungiyndi en
öðrum. Þetta hefur leitt til þess
að menn eru meira vakandi fyrir
að greina þunglyndi hjá eldra fólki
og gefa því viðeigandi meðferð.
Ný þunglyndislyf hafa komið á
markaðinn sem hafa mjög litlar
aukaverkanir og því hefur notkun
þessara lyfja aukist mjög mikið á
síðustu árum. Aukningin er þó
ekki eingöngu meðal |
aldraðra heldur líka í
öðrum aldurshópum.
Hér á landi hefur orðið |
mikil aukning á lyíjag-
jöf vegna þunglyndis á
síðustu árum. Læknar
telja mikinn ávinning
af þessu í þá veru að
bæta líðan aldraðs fólks
og annarra í flóknu 1
samfélagi nútímans.
Fram kom einnig á )
ráðstefnunni í Borgar-
leikhúsinu að rann- .
sóknir sýna að eftir 25 *
ára aldur breytist per-
sónugerð fólks ekki í
grundvallaratriðum.
Þannig að eiginleikar
sem fólk hefur, svo sem glaðlyndi,
hógværð, samviskusemi og fleira
helst. Veikleikar, svo sem áfengis-
sýki, átfíkn, trassaskapur og þess
háttar er væntalega komið í ljós
fyrir 25 ára aldurinn og viðhelst |
gjarnan nema eitthvað sérstakt |
komi til. Hins vegar minnkar for-
vitni fólks snarlega upp úr miðjum
aldri, sömuleiðis nýjungagirnin.
Einnig var rætt á ráðstefnunni
um meðferð við viðvarandi berkju-
bólgu og andþyngsla. Lögð var
áherslu á það að sýklalyf kæmi
sjaldnast að gagni við þessum sjúk-
dómum og sömuleiðis hafa innönd- k
unarsterar sennilega lítil áhrif í
bataátt í langvarandi berkju-
bólgu,“ sagði Jóhann að lokum. p
Jóhann Ágúst
Sigurðsson
ÞORSTEINN Gíslason þvag-
færaskurðlæknir er einn úr
hópi nokkurra lækna sem tek-
ur þátt í rannsókn á vegum
lyfjafyrirtækisins Pfizer, sem
fyrir skömmu stóð fyrir ráð-
stefnu í Borgarleikhúsinu
meðal norrænna lækna. I sam-
tali við Morgunblaðið sagði
Þorsteinn að í rannsókn þess-
ari væri verið að athuga verk-
un svonefndra alfablokkera á
einkenni útfrá stækkun á
blöðruhálskirtil, en yfir sextíu
prósent karlmanna yfir fimm-
tugt hafa slík einkenni á ein-
hverju stigi.
„Það þarf ekki að með-
höndla alla þessa menn, en
sumir þurfa á meðferð að
halda,“ sagði Þorsteinn.
„Fram til þessa hefur verið
algengast að beita skurðað-
gerð. Þá er farið með verk-
færi í gegnum þvagrásina og
heflað innan úr kirtlinum.
Vöxturinn sem í honum hefur
myndast er þá fjarlægður og
skelin af kirtlinum skilin eftir.
Afleiðingarnar geta orðið þær
í sumum tilvikum að breyting
verður á sáðláti og um fimm
prósent karlanna verða getu-
lausir við slíka aðgerð. Auk
þess eru menn frá vinnu fjórar
til sex vikur að henni lokinni.
Sú hugmynd vaknaði fyrir
allnokkrum árum hvort ekki
væri hægt að beita lyfjum,
annaðhvort til þess að koma
í veg fyrir aðgerðina eða
seinka henni. Tvenns konar
lyfjahópar komu á markaðinn
í framhaldi af þessu. Annars
vegar lyf, Proscar, sem
minnkar kirtilinn, ég hef tekið
þátt í rannsókn á því lyfi líka.
Hins vegar eru svo lyf sem
heita alfablokkerer og virka
þannig að þau slaka á sléttum
vöðvum við blöðruhálsinn og
í blöðruhálskirtlinum, þannig
að þvagið fær greiðari útrás.
í síðari tilvikinu er kirtillinn
óbreyttur að stærð, en það
slaknar á honum. Með því að
minnka þannig þrýsting á þva-
grásina fæst betra flæði og
einkennin minnka. Nú eru
menn farnir að hugsa til þess
að nota þessi lyf saman.
Alfablokkerar eru annars
notaðir til þess að lækka blóð-
þrýsting, áhrif þeirra á sléttu
Nú er hægt að
hj álpa mörgum
vöðvana eru eins
konar aukageta.
Alfalbokkerer
hafa ekki áhrif á
kyngetu manna,
og stækkun á
blöðruhálskirtlin-
um ein og sér hef-
ur heldur ekki
áhrif á hana, eins
og algengt er þó
að fólk álíti. Það
eru miklu frekar
aðrir þættir sem
hafa áhrif á breyt-
ingu á kynlíf karla
til hins verra. Svo
sem æðasjúkdóm-
ar, minnkað blóðflæði og því
um líkt.
Við erum núna, nokkrir ís-
lenskir læknar, að vinna að
því að bera saman tvær teg-
undir af alfablokkerum til
þess að sjá hvor er
hentugri. Of
snemmt er að tjá sig
um það mál, hitt sér
maður að þessi lyf
hafa sannarlega
áhrif í þá átt að
þvagflæði verður
betra og aukaverk-
anir virðast tiltölu-
lega fáar, þær helst-
ar að blóðþrýsting-
ur lækkar um of, en
slíkt er þó sjald-
gæft,“
Gagnar þetta
þeim mönnum sem
hafa fengið sýkingu
í blöðruhálskirtilinn og hann
stækkað af þeim sökum?
„ Já, þessi lyf virðast geta
dregið úr einkennunum. Þetta
læknar hins vegar ekki
blöðruhálskirtilsbólgu. Rétt er
að fram komi að einkenni sem
koma fram við stækkun á
blöðruhálskirtli eru nánast
þau sömu og koma fram við
illkynja vöxt í blöðruhálskirtl-
inum. Menn sem hafa einkenni
eiga að láta lækni skoða sig,
láti þreifa á kirtlinum og
mæla að auki ákveðið efni í
blóðinu sem nefnt er PSA, til
þess að útiloka að um illkynja
vöxt geti verið að ræða. Ein-
kennin kalla hins vegar oft
ekki á lyfjameðferð strax og
því síður á aðgerð. Þau kalla
á skoðun.“
Hver eru einkennin sem
kalla á skoðun?
„Tíð þvaglát að deginum,
ef menn vakna til þess að
kasta af sér þvagi einu sinni
eða oftar á nóttu. Ef það er
bið eftir því að þvagbunan
fari af stað, ef það er leki
eftir þvaglát og ef menn eiga
erfitt með að halda í sér.“
Menn geta ekki fundið
þessa stækkun sjálfir?
„Menn verða varir við ein-
kennin en það er ekki hægt
að gera neina sjálfskoðun eins
og t.d. konur geta skoðað
brjóst sín. Það er ljóst að eftir
því sem fleiri karlmenn ná
háum aldri, því algengari
verða sjúkdómar í blöðruhál-
skirtlinum, bæði góðkynja og
illkynja. Hingað til hefur verið
algengt að menn láti sig hafa
það að vera með þessi ein-
kenni, kannski af ótta við að
þurfa að fara í aðgerð. Þó
finnst mér umræðan um þessi
mál hafa opnast mikið á síð-
ustu misserum. Sumir hafa
reyndar mjög stórar blöðru-
hálskirtil án þess að hann gefi
einkenni. Það er þó sjaldnar.
Til eru líka aðrir sjúkdómar
sem valda þessum einkennum,
Þorsteinn
Gíslason
svo sem þrengingar í þvagrás,
illkynja vöxtur og fleira. Ein-
kennin geta átt við aðra sjúk-
dóma og þess vegna er nauð-
synlegt að láta lækni skera
þar úr um.“
Er blöðruhálskrabbamein
algengt?
„Það er orðið algengasta
krabbamein meðal karla. Það
er vel á annað hundrað manna
á hverju ári sem greinast með
krabbamein í blöðruhálskirtli.
Við læknar erum áfram um
að reyna að greina það
snemma, við álítum að yngri
einstaklinga, þá sem eru undir
sjötugu, sé hugsanlegt að
lækna með því að fjarlægja
blöðruhálskirtilinn. Miklar
framfarir hafa einnig orðið í
meðferð á blöðruhálskrabba-
meini, þótt það uppgötvist
ekki fyrr en á því stigi að það
sé kómið út fyrir kirtilinn. Það
er ástæða til að ætla að fjölg-
un krabbameinstilfella sé ekki
aðeins bundin því að fleiri
karlmenn nái háum aldri held-
ur sé um raunverulega aukn-
ingu að ræða, það þarf þó að
skoðast betur. Orsakir þessa
meins þekkja menn ekki en
það virðist þó hafa eitthvað
með hormónajafnvægið að
gera. Sumir vilja tengja þetta
fæðuvali, en það hefur ekki
tekist vel. Líklegt virðist þó
vera að það sé eitthvað í okk-
ar vestræna umhverfi sem
veldur þessu í auknum mæli,
þetta er algengast í Norður-
Evrópu og Bandaríkjunum,
það er athyglisvert að í Japan
er þetta fátítt, ef Japanir flytj-
ast hins vegar til Bandaríkj-
anna þá er næsta kynslóð á
eftir komin með aukna tíðni.
Það hefur aldrei tekist að sýna
fram á að bólgur í blöðruhál-
skirtli vegna sýkinga hafi
neitt með krabbamein í kirtl-
inum að gera, né heldur góð-
kynja stækkun á honum. Það ,
er hins vegar mikilvægt að
menn sem hafa einkenni sem
gætu bent til hugsanlegs
krabbameins láti skoða sig
strax, það má gera heilmikið
í málunum, hvort heldur er
um að ræða góðkynja eða ill-
kynja stækkun á blöðruhál-
skirtli, nú er hægt að hjálpa
mörgum."
r
i
i
í
»
í
I
»
p
í
i
i
i
»
1