Morgunblaðið - 05.05.1996, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
EINAR Bollason og Kolbeinn Pálsson með
vegleg horn, sem þeir fengu frá KKÍ fyrir
vel unnin störf.
ÍSLANDSMEISTARAR karla frá Grindavík
mættu að sjálfsögðu á lokahófið með hinn
veglega bikar.
► KÖRFUKNATTLEIKS-
MENN héldu sitt árlega loka-
hóf á Hótel Sögu á þriðjudags-
kvöldið og var hófið mjög vel
sótt. Sijórn Körfuknattleiks-
sambandins ákvað á fundi
skömmu fyrir hófið að heiðra
tvo heiðursmenn, þá Kolbein
Pálsson, sem lætur nú af for-
mennsku eftir átta ár, og Einar
Bollason, sem verið hefur í
Fögnuður
hjá körfu-
boltafólki
stjórn KKÍ í 17 ár. Stjórnin
samþykkti þetta með öllum
greiddum atkvæðum nema
tveimur, Einar og Kolbeinn
voru ekki mættir! Teitur Ör-
lygsson úr Njarðvík og Anna
María Sveinsdóttir úr Keflavík
voru kjörin bestu leikmenn
mótsins og fjöldi annarra körfu-
boltamanna fékk viðurkenningu
fyrir frammistöðuna í vetur.
MARGOT Kidder fær
hlýjar kveðjur.
Fólk
Ekkián
vina
• MARGOT Kidder sem fannst illa
til reika í húsagarði í Los Angeles
fyrir stuttu hefur fundið það síð-
ustu daga að hún er ekki án vina.
Fyrrverandi mótleikari hennar úr
Súperman, Christopher Reeves,
hringdi í hana nýverið til að óska
henni góðs bata og eins bauð hann
henni að leika með sér í tveggja
manna leikriti, „Love Letters" ef
heilsa hans leyfir, en eins og allir
vita lamaðist Reeves eftir að hafa
dottið af hestbaki.
Einnig fékk Kidder símtal frá
framleiðandanum David Merrick
sem kvaðst áhugasamur um að fá
hana í leiksýninguna „Stieglitz and
O’Keefe" sem verður sýnd á Broad-
way. Þar myndi leikarinn Stacy
Keach leika á móti henni.
Margot Kidder getur sem sagt
huggað sig við það að þegar á bját-
ar standa vinir hennar með henni.
SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 43
„Sédeilis fáguð og
sterk sýning.“
Arnór Benónýsson,
Alþýðublaðinu.
P
„Hafi menn beðið nú um
nokkum tíma eftir að upp
kæmi sýning sem væri hrein
og ómenguð leiklist, þá er
hún komin hér.
Atburðurinn er leikur Helgu
Bachmann. Hér má segja að
maður verði eiginlega
kjaftstopp, því þegar list
leikarans tekur þannig til
vængjanna fýrir alvöru, þá
þarf jaínmikla ritsnilld til að
lýsa því á prenti eins og
leikaragáfu tdl að leika það.
Liggur beinast við að segja:
Þetta er ólýsanlegt. Þetta
verða menn að sjá.“
Eyvindur Erlendsson,
Helgarpóstinum.
„Hún (Helga) gaf elstu
konunni bæði reisn og dýpri
tóna aldurs og reynslu,
hlutverkið er vel unnið,
raddbrigði og svipbrigði nutu
sín vel.“
Gunnar Stefánsson,
Tímanum.
DAVID Letterman vill
breyta og bæta.
Letterman
hugsi
• DAVID Letterman, stjórnandi
„The Late Night Show“ á CBS-
stöðinni bandarísku hefur um mikið
að hugsa þessa dagana. Áhorf á
þátt hans hefur minnkað talsvert
og þarf hann að finna leiðir til að
koma þættinum á toppinn á ný.
Hefur komið til tals að flytja þátt-
inn frá heimastöðvunum í New
York til Los Angeles, en þar væri
væntanlega auðveldara að fá til sín
þekkta gesti úr hæðum Hollywood.
Eins hefur Lettermann íhugað
þann möguleika að láta gesti
stjórna þættinum af og til, eða t.d.
á sex vikna fresti til að lífga upp
hina föstu formúlu þáttanna. Hugs-
anlegt er þó að Letterman sé orðinn
þreyttur á að stjórna þættinum
fimm daga vikunnar, en það hefur
hann gert svo árum skiptir. Hann
lýsir einnig yfir áhuga á að taka
upp hluta þáttarins fyrirfram, og
bæta innskotum inn í hina annars
beinu útsendingu.
GlódÍs GUNNARSDÓTTIR ACE
ElNKAPJÁLFARI DG
ÞDLFIMILEIÐBEINANDI
HEFST NYTT ATAKSNAMSKEIÐ
í FITUBRENNSLU
L.ÍKAMSRÆKT
N Ú
F A R A
MEGA K I L□IN
AÐ VARA S I G
Það verður stíf keyrsla
í heilarRvikur.
Fylgst verður vel
MEÐ DLLUM DG MIKIÐ AÐHALD
SVD ÁRANGURINN VERÐI
SEM BESTUR,
M.A. VIGTUN, MÆLINGAR,
MAPPA FULL AF FRDÐLEIK
DG GÓÐUM HITAEININGA-
SNAUÐUM UPPSKRIFTUM.
Mdrgun dg Kvöldnámskeið
Barnapdssun á mdrganana
Frjáls mæting í aðra tíma
Skráning í síma:
I 5889400
„Frábær og vel unnin sýning.
Textinn er hnyttinn og
persónur spennandi.
Leikurinn er mjög góður.
Helga Bachmann er hreint
afbragð í hlutverki hinnar
gömlu.“
Súsanna Svavarsdóttir.
„Sýningin er hrein og bein.
-Töfrandi leikur og hrífandi
frásögn. Sýning sem ég' hef
beðið eftir.“
Hjáimar H. Ragnarsson.
„Helga Bachmann sýnir á sér
nýja og stórkostlega hlið.“
Helgi Pétursson.
Leikarar:
Helga Bachmann,
Edda Þórarinsdóttir,
Halla Margrét Jóhannesdóttir.
Sýningar:
Sunnudaginn 5/S kl. 20.30
Föstudaginn 10/5 kl. 20.30
Laugardagimi 11/5 kl. 20.30
Miðasalan er opin frá
kl. 17.00-19.00. Annars
miðapantanir í sima 561 0280.
Debetkorthafar Landsbankans
fá 400 kr. afslátt.
Síðustu sýningar.
Kjallara
leikhúsið