Morgunblaðið - 21.05.1996, Síða 1
72 SÍÐUR B
113. TBL. 84. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Urslit kosninga í Pétursborg góðs viti fyrir Jeltsín
á skilyrði fyrir
olíusölu
Reuter
ETA sprengir í Cordoba
SPÆNSKUR hermaður beið
bana og þrír slösuðust í
sprengjutilræði aðskilnaðarsam-
taka Baska í Cordoba í gær.
Sprengjan var falin í ruslatunnu
á stoppistöð herflutningabíla.
Talið er að henni hafi verið beint
gegn sneisafullri rútu af her-
mönnum en hún hafi sprungið
aðeins fyrr en ætlunin var, því
rútan átti 200 metra ófarna að
stoppistöðinni er sprengjan
sprakk. Var myndin tekin átil-
ræðisstaðnum.
írakar fallast
Kommúnisti tapar
í borgarstj órakj öri
Moskvu. Reuter.
BORGARSTJÓRINN í Pétursborg,
Anatolí Sobtsjak, og annar umbóta-
sinni, fengu mest fylgi í fyrri umferð
borgarstjórakosninganna á sunnu-
dag og komast í síðari umferðina.
Frambjóðandi kommúnista, Júrí Se-
venard, varð í fjórða sæti með aðeins
10% atkvæða.
Þrír efstu frambjóðendurnir eru
allir umbótasinnar og fengu samtals
67% atkvæðanna. Úrslitin eru góðs
viti fyrir Borís Jeltsín, forseta Rúss-
lands, þótt þau hafi ekki komið mjög
á óvart þar sem Pétursborg hefur
verið eitt af vígjum umbótasinna.
Sobtsjak fékk 29% atkvæða, sam-
kvæmt bráðabirgðatölum sem birtar
voru í gær. Vladímír Jakovlev, að-
stoðarborgarstjóri sem snerist gegn
Sobtsjak, fékk 21,6% og þriðji um-
bótasinninn, Júrí Boldyrev, 17,1%.
Kosið verður á milli Sobtsjaks og
Jakovlevs í síðari umferð kosning-
anna. Þeir hafa báðir lýst yfír stuðn-
ingi við Jeltsín.
Sobtsjak hefur notið mikilla vin-
sælda frá því hann lagðist gegn til-
raunum kommúnista til að senda
skriðdreka inn í Pétursborg í valda-
ránstilrauninni í ágúst 1991. Fylgi
hans hefur þó minnkað og Jakovlev,
sem var áður bandamaður hans, sak-
aði hann um að vera úr tengslum við
borgarbúa og eyða of miklum tíma í
fyrirlestraferðir í útlöndum. Borgar-
stjórinn lýsti hins vegar gagnrýni
Jakovlevs sem „rýtingsstungu í bakið“.
Deilt um þjóðnýtingu banka
Samkvæmt nýrri skoðanakönhun,
sem birt var á sunnudag, hefur Jelts-
ín sótt í sig veðrið að undanförnu
og náð sjö prósentustiga forskoti á
Gennadí Zjúganov, frambjóðanda
kommúnista í forsetakosningunum
16. júní.
Svo virðist sem málflutningur
Jeltsíns í kosningabaráttunni hafi
borið árangur og farið er að bera á
óeiningu meðal kommúnista. Ágrein-
ingur blossaði upp í gær milli Zjúg-
anovs og Viktors Anpílovs, leiðtoga
fylkingar stalínista, sem hvatti fram-
bjóðandann til að vera „djarfari" og
þjóðnýta alla rússneska banka.
Zjúganov sagði hins vegar að eng-
in fyrirtæki yrðu þjóðnýtt kæmist
hann til valda og hvatti stuðnings-
menn sína til að varast „að glopra
út úr sér orðum sem fólki stendur
stuggur af“.
■ Jeltsin íhugar uppstokkun/19
Eistlendingar og Lettar afþakka boð Borísar Jeltsíns
Hafna aðild að SSR
Tallin, Reuter.
LETTAR og Eistlendingar höfnuðu
í gær boði Borísar Jeltsíns Rúss-
landsforseta um að ríkin fengju
aðild að Samveldi sjálfstæðra rikja
(SSR), að sögn yfirvalda.
Jeltsín bauð Lettlandi og Eist-
landi aðild að samveldinu eftir fund
leiðtoga þess í Moskvu sl. föstudag.
Þau tvö ásamt Litháen sögðu sig
úr lögum við Sovétríkin árið 1991
Framtíð rikjanna
í Evrópu
og hafa fráboðið sér öllum tilraun-
um til þess að tengjast samveldis-
löndunum, samtökum tólf fyrrver-
andi sovétlýðvelda, nánari böndum.
Lennart Meri forseti Eistlands
sagði þjóðina hafa hafnað aðild að
SSR fyrir fullt og allt með sjálf-
stæðisyfirlýsingunni 1991. „Okkar
framtíð er í Evrópu," sagði Meri.
Valdis Birkavs utanríkisráð-
herra Lettlands sagði að sambandi
við samveldið hefði verið hafnað í
þjóðaratkvæði, einnig með lögum
frá 1991 og í þriðja lagi er þingið
lagði grundvöll utanríkisstefnu
landsins.
Reuter
aði í gærmorgun er afstaða íraka
spurðist út en hækkaði aftur. Fór
fatið af Brent-olíu til afhendingar í
júlí niður í 16,75 dollara en hækkaði
er á daginn leið og kostaði 18,61
dollara í lok viðskipta. Sérfræðingar
sögðu útlit fyrir að olíuverð færi
hægt og sígandi lækkandi vegna
offramleiðslu ríkja í samtökum olíu-
söluríkja (OPEC). Spáði stofnun í
London, sem Yamani fyrrverandi
olíuráðherra Saudi-Arabíu veitir for-
stöðu, því að olíufatið yrði komið
niður fyrir 15 dollara í haust.
Tekið var fyrir olíusölu frá írak
er írakar réðust inn í Kúveit í ágúst
1990. Endurkoma þeirra á markaði
reynir á OPEC og talið er að samtök-
unum muni reynast erfitt á fundi
5. júní nk. að takmarka fram-
leiðslukvóta frá því sem nú er eða
draga úr offramleiðslu. Ræður þar
miklu að framleiðsluríkin hafa mörg
hver ráðist í dýrar fjárfestingar við
endurnýjun vinnslubúnaðar.
Valdaráni afstýrt
SPENNA var í Dhaka, höfuðborg
Bangladesh, í gær eftir að Abdur
Rahman Biswas forseti hafði sett
yfirmann hersins, Abu Saleh Mo-
hammad Nasim, af vegna
meintra áforma hans um að
steypa forsetanum af stóli. Her-
sveitir hliðhollar Biswas tóku sér
stöðu umhverfis forsetahöllina
og þangað var stefnt mörgum
þungavopnum, en hér er einn
margra skriðdreka sem þar tók
sér stöðu. Óttast var að sveitir
hliðhollar Nasim hershöfðingja
myndu rísa upp vegna brottvikn-
ingar hans. Svo virtist í gær-
kvöldi sem forsetinn hefði stjórn
á gangi mála.
Þögnin
ennþá
gulls ígildi
Cambridge. Reuter.
NOTKUN farsíma hefur verið
bönnuð á bókasafni Cam-
bridge-háskólans, einnar virt-
ustu menntastofnunar Bret-
lands, vegna kvartana frá
stúdentum sem enn finnst
þögnin vera gulls ígildi.
„Annar
hver maður
er með síma
upp á vasann
og það
hringdi orðið
stöðugt.
Gangarnir
voru eins og
á símstöð,"
sagði aðstoð-
arbókavörður
háskólans en nú hefur stúdent-
um verið skipað að slökkva á
símunum áður en þeir koma
inn í safnbygginguna.
Washington, London. Reuter.
ÍRAKAR féllust loks í gær á skil-
yrði, sem Sameinuðu þjóðirnar (SÞ)
höfðu sett fyrir því að þeir fengju
að selja oliu til þess að fjármagna
kaup á matvælum, iyfjum og öðrum
lífsnauðsynjum. Talsmaður banda-
rískra stjórnvaida sagði að ákvörð-
unin hefði verið orðin löngu tímabær
og hún væri sigur fyrir SÞ og til-
raunir stofnunarinnar til að knýja
stjórn Saddams Husseins einræðis-
herra tii að draga úr neyð írasks
almennings.
Samkvæmt samkomulaginu fá
írakar að selja 700.000 föt á dag í
hálft ár, fyrir jafnvirði tveggja millj-
arða dollara, en það samsvarar 130
miiljörðum króna. írökum hefur
staðið þessi olíusala til boða í rúmt
ár en hafa til þessa sett sig upp á
móti skilyrðum SÞ um eftirlit með
því að tekjur af olíusölunni rynnu
til mannúðarmála en ekki hernaðar-
uppbyggingar.
Olía lækkaði í verði á heimsmark-
*
AI lækkar
London. Rcuter.
ÓÐAGOTSSALA á kopar á
markaði í London í gær varð
til þess að framboð jókst á öðr-
um málmum með þeim afleið-
ingum að umtalsverð verðlækk-
un varð á áli, tini og blýi.
Áltonnið seldist á 1.535 doll-
ara í gærmorgun og hafði lækk-
að um 86 dollara frá því á föstu-
dag. Hefur verðið ekki verið
lægra í tæp tvö ár, eða frá í
ágúst 1994. Síðdegis þokaðist
verðið hins vegar aftur upp á
við er kaupendur freistuðu
kostakaupa.