Morgunblaðið - 21.05.1996, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Bolli Gústavsson fellst á niðurstöðu siðanefndar í máli biskups
Ekki ástæða til frekari
afskipta af málinu
BOLLI Gústavsson, vígslubiskup á
Hólum, fellst á niðurstöðu siða-
nefndar Prestafélags íslands um
að biskup íslands hafi brotið alvar-
lega af sér gagnvart hinu kirkju-
lega embætti með því að bera út
opinberlega upplýsingar um fund
sóknarprests í Langholtskirkju og
skjólstæðings vegna persónulegra
hagsmuna sinna. Hann hins vegar
sér ekki ástæðu til að hafa frek-
ari afskipti af málinu enda sé ekki
í siðareglum presta ætlast til að
alvarlegu broti sé skotið til emb-
ættis biskups íslands.
Stjóm Prestafélags íslands
gerði bókun á fundi sínum í gær
þar sem því er fagnað að niður-
staða er fengin í málinu og tekið
undir álit Bolla og niðurstöðu
hans. Geir Waage, formaður
stjómar P.Í., segir að stjómin hafi
samþykkt bókunina einróma og
hún telji málinu nú lokið af sinni
hálfu. Það hafi fengið formlegar
lyktir sem skipti veralega miklu
máli.
Ekki tilefni tU að
aðhafast neitt
Þorsteinn Pálsson dóms- og
kirkjumálaráðherra sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hann
myndi ekki grípa til neinna ráð-
stafana í kjölfar niðurstöðu Bolla
þar sem ástæður til þess væra
ekki fyrir hendi. „Það er megin-
niðurstaða hans [Bolla] í samráði
við stjórn Prestafélagsins að ekki
sé tilefni til að aðhafast neitt, og
enn síður væri þá tilefni fyrir mig
að gera það,“ sagði Þorsteinn.
Ekki tókst að ná tali af Ólafí
Skúlasyni biskupi íslands um nið-
urstöðu Bolla.
Bolli sendi stjórn Prestafélags
íslands og dóms- og kirkjumála-
ráðherra niðurstöðu sína 15. maí
sl. í henni er tekið fram að í bréfí
stjómar P.í. til biskups íslands,
dags. 3. apríl 1996, hafí verið ósk-
að eftir því að embætti biskups
íslands kæmi að umfjöllun þessa
máls, er siðanefnd presta taldi
biskup íslands hafa brotið alvar-
lega af sér gagnvart hinu kirkju-
lega embætti með því að bera
opinberlega út upplýsingar um
fund sóknarprests í Langholts-
kirkju og skjólstæðings vegna per-
sónulega hagsmuna sinna; sbr.
álitsgerð siðanefndar P.í. frá 27.
mars 1996.
Mistökin viðurkennd
„Mér dylst ekki, að biskupi ís-
lands var ekki fært að koma að
þessu máli sem úrskurðaraðili, en
jafnframt er ljóst að ekki verður á
nokkurs færi að taka á því á annan
hátt en þann, sem þegar hefur
verið gjört með þeirri yfírlýsingu
siðanefndar P.í. og stjómar P.í.
að biskup íslands hafí brotið alvar-
lega af sér gagnvart hinu kirkju-
lega embætti með því að bera út
opinberlega upplýsingar um fund
sóknarprests og skjólstæðings
vegna persónulegra hagsmuna
sinna,“ segir í niðurstöðu Bolla.
Hann tekur fram að fram hjá þessu
verði ekki litið og jafnframt beri
að hafa í huga að biskup íslands
hafí viðurkennt mistök sín og sent
prestum landsins bréf þar sem
hann harmi þau. Orðalag siða-
nefndar á áliti hennar leiði hins
vegar í ljós að ekki verði lengra
gengið en þegar hafí verið gjört
og ekki beitt þyngri viðurlögum.
■ Bréf BoUa/47
Furðuleg
farar-
tæki
REIÐHJÓL eru til í ýmsum
útgáfum, en gripirnir sem
fyrirfinnast á Hjólbarðaverk-
stæði Hjalta í Hafnarfirði eru
með þeim kostulegustu sem
fyrirfinnast hérlendis. Starfs-
menn þar hafa dundað sér við
að sérsmíða hinar furðulegustu
útgáfur reiðþjóla, sem þeir
nota til að komast út í sjoppu.
Þeir Hjalti Þórisson, Egill
Jónsson, Ingvar Ólafsson og
Óskar Ævarsson hafa smíðað
þijú reiðþjól síðustu vikurnar
úr ýmsum hlutum sem þeir
hafa fundið í Sorpu. Með einu
hjólanna, sem rúmar þrjá hjól-
reiðamenn sögðust þeir í gríni
ætla með í samkeppni við
Limmósínuleigu í Hafnarfirði.
„Við reynum að smíða nýtt hjól
fyrir hveija sjoppuferð til að
bregða stelpunum. Reynum að
hafa þau eins furðuleg og hægt
er. Aðalskoðun er með skoðun-
arþjónustu við hliðina á okkur
og á einu hjólanna er aksturs-
bann. Þeim leist svo illa á grip-
inn,“ sagði Hjalti í gamansöm-
um tón í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann kvað þá ekki vera á
leiðinni að framleiða reiðhjól
af þessu tagi. Á þriggja manna
reiðhjólinu stýrir sá fremsti,
miðjumaðurinn lijólar bara
með og ræður engu, en sá sem
situr aftast ræður gírskipting-
unni. Allir geta bremsað. Á
öðru hjóli situr hjólreiðamað-
urinn á annan metra frá jörðu
og stýrið liggur enn hærra.
Þriðja hjólið er einskonar út-
gáfa af mótorhjóli, sem hippar
völdu á sínum tíma.
Sýni tekin í Digranes- og Hjallaskólum vegna hundasýningar í íþróttahúsi
Tífalt fleiri ofnæmisvak-
ar mældust í skólastofu
SÝNATAKA í Digranes- og Hjallaskólum hefur
leitt í ljós tífalt meira af hundaofnæmisvaka í
kennslustofu en í íþróttahúsi daginn eftir hunda-
sýningu. Mælt var í stofunni fyrir sýningu og
áður en bömin komu í skólann. Hundasýningin
var haldin í íþróttahúsi Digranesskóla, sem nem-
endur Hjallaskóla nýta einnig, fyrstu helgina í
mars, og fór Hundaræktarfélag íslands fram á
að mælingin yrði gerð. Mótmæli komu fram vegna
sýningarinnar, meðal annars fyrir hönd foreldra
sem eiga böm með ofnæmi.
Unnur Steina Bjömsdóttir, sérfræðingur í
ofnæmissjúkdómum, sem tók sýnin, segir að leitað
hafí verið að fems konar ofnæmisvaka í einni af
skólastofum Hjallaskóla fyrir sýningu og íþrótta-
húsi Digranesskóla 24 og 48 tímum eftir að henni
lauk.
Um er að ræða rykmaurana dermatophagoides
ptemissinus og dermatophagoides farinae, og
eggjahvítusamband í hársekk hunda og katta, sem
nefnt er Can d I í hundi, og Fel d I í ketti.
„Það mælist ekkert í útblásturslofti loftræsti-
kerfís, á veggjum eða gólfí, fyrir sýningu en tölu-
vert magn ofnæmisvaka á gólfi og veggjum
íþróttahússins meðan á henni stendur. Síðan
mæiist ekkert á gólfinu en örlítið í útblæstrinum
24 og 48 tímum eftir sýningu," segir hún.
Ofnæmisvakinn er mældur í nanógrömmum í
hverju rykgrammi og segir Unnur Steina að á
meðan sýningin stóð yfír hafi fundist 2.600 na-
nógrcmm af Can d I í hveiju grammi og 16 nanó-
grömm af Fel d I á gólfí hússins. Daginn eftir
hafí mælst 105 nanógrömm af Can d I í loftræsti-
kerfínu, en ekkert af Fel d I. Segir hún ennfrem-
ur að kattaofnæmi sé mun alvarlegra en hundaof-
næmi, sem sé algengara.
Aðstæður ákjósanlegar í íþróttahúsinu
„Mælingin í skólastofunni leiddi hins vegar í ljós
töluvert magn af hunda- og kattaofnæmisvaka á
stólum og gólfí. Þar fundust 1.050 nanógrömm af
Can d I í hveiju grammi af ryki á stól, eða helming-
ur þess sem mælist meðan á sýningunni stendur,
og 875 nanógrömm af Fel d I í rykgrammi á stólun-
um. Engir rykmauraofnæmisvakar mældust hins
vegar, sem er merkilegt miðað við það sem þekk-
ist erlendis frá, þar sem rykmauraofnæmi er mun
algengara," segir Unnur Steina.
Segir hún jafnframt að magnið sem mældist í
loftræstikerfí íþróttahússins sé ekki mikið. „En
sá sem er með slæmt ofnæmi og astma, þarf
óskaplega lítið magn til þess að kalla fram ein-
kennin. Þeir einstaklingar eru hins vegar fáir.“
Hvað skólastofurnar varðar segir hún þekkt að
astmi versni til dæmis mjög mikið hjá bömum
með kattarofnæmi þegar skóli hefjist aftur að
hausti. Enda sé vitað að gæludýrahald hafí aukist
mjög mikið á undanfömum árum.
Unnur Steina segir loks að varasamt sé að yfír-
færa niðurstöðumar úr mælingu í íþróttahúsi
Digranesskóla því aðstæður þar séu ákjósanlegar.
Mjög auðvelt sé að þrífa húsið og engin sam-
skeyti á gólfdúk.
STUTT
Munn-
tóbak sett
í bann
TILLAGA um að áfram verði
heimilt að flytja inn og selja
munntóbak hér á landi féll
naumlega þegar greidd voru
atkvæði á Alþingi í gær um
efnisgreinar nýs tóbaksvarna-
frumvarps.
Framvarpið gerir ráð fyrir
því að bannað verði að flytja
inn, framleiða og selja munn-
tóbak og fínkornótt neftóbak.
Össur Skarphéðinsson Al-
þýðuflokki og Ógmundur Jón-
asson Alþýðubandalagi lögðu
til að undanskilja munntóbak
innflutnings- og sölubanninu
en tillaga þeirra var felld með
28 atkvæðum gegn 24 og tveir
sátu hjá. Atkvæði féllu ekki
eftir flokkslínum, til dæmis
greiddi Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra atkvæði með tillögu
Össurar og Ögmundar.
Þriðja og síðasta umræða um
frumvarpið er eftir á Alþingi.
Tilboð í
skólaakstur
STJÓRN Innkaupastofnunar
hefur samþykkt að leggja til
við borgarráð að tekið verði
rúmlega 20,3 milljóna króna
tilboði Hópferðamiðstöðvarinn-
ar ehf., í skólaakstur í Reykja-
vík. Lagt er til að samið verði
til tveggja ára fyrir rúmar 40,6
milljónir.
Tíu tilboð bárust í aksturinn
og átti Léttfeti ehf. lægsta boð,
rúmar 14,4 millj. Næstlægsta
boð var frá Hópferðamiðstöð-
inni og þriðja lægsta boð átti
Allrahanda ísferðir ehf., sem
bauð rúmar 20,5 millj. Þá bauð
Ingi Erlendsson rúmar 22,3
millj. og Guðmundur Jónasson
ehf. bauð rúmar 23,6 millj.
Þjóðminja-
safn fékk
hornið
ÍSLENSKUR velunnari Þjóð-
minjasafnsins bauð í gær
25.000 krónur danskar, eða um
275.000 krónur íslenskar auk
uppboðsgjalda, fyrir drykkjar-
hom frá 16. öld sem boðið var
upp á Sjálandi í gær. Ekki tókst
að bjóða í hitt íslenska hornið,
sem er frá 1687, og var einnig
falt, að sögn Þórs Magnússonar
þjóðminjavarðar.
Drykkjarhornið er skorið út
með helgimyndum og höfða-
letri og segir Þór það kær-
komna viðbót við önnur drykkj-
arhom safnsins.
Skoðar börn
sem þurfa lif-
ur og nýra
BANDARÍSKUR skurðlæknir
og prófessor við Temple há-
skóla í Fíladelfíu í Bandaríkj-
unum kemur hingað til lands í
júní til þess að skoða tvö ís-
lensk börn, sem þurfa á líf-
færaígræðslu að halda.
Börnin eru 1 og 12 ára og
þurfa ígræðslu á lifur og nýra.
Viðar Eðvarðsson bamalæknir
og nýmasérfræðingur við
Landakotsspítala segir að
koma læknisins, Stevens Dunn
sem vinnur við spítala heilags
Kristófers, spari Trygginga-
stofnun ríkisins tvær milljónir.
Ekki stendur til að gera að-
gerðirnar hér að Viðars sögn.