Morgunblaðið - 21.05.1996, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ
8 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996_____________________________
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
Fánar um-
burðarlyndis
PIERRE Cardin, friðarsendiherra
menningarmálastofnunar Samein-
uðu þjóðanna, afhenti á laugardag
Halldóri Ásgrímssyni, utanríkis-
ráðherra sex fána umburðarlynd-
is, sem hannaðir voru í tilefni af
ári umburðalyndis árið 1995. Pi-
erre hefur verið útnefndur frið-
arsendiherra af UNESCO og voru
fánarnir fyrst dregnir að húni við
aðalstöðvar UNESCO í París í
nóvember 1995. Fánana hönnuðu
sex þekktir listamenn, Friedens-
reich Hundertwasser frá Austur-
ríki, Souleymane Keit frá Seneg-
al, Rachid Koraichi frá Alsír, Ro-
berto Matta frá Chile, Robert
Rauschenberg frá Bandaríkjunum
og Dan You frá Víetnam.
Morgunblaðið/Kristinn
Karlmaður dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi
Ók ölvaður og slasaði tvo
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri hef-
ur verið dæmdur í Héraðsdómi Vest-
urlands í fjögurra mánaða fangelsi,
þar af þijá mánuði skilorðsbundna,
fyrir að aka bifreið undir áhrifum
áfengis og fyrir líkamsmeiðingar af
gáleysi.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa 7. september 1995 ekið bifreið
vestur Reykjanesbraut, yfír leyfðum
hámarkshraða og óvarlega miðað við
aðstæður, en sól var lágt á lofti og
beint í vestur.- Við gatnamót Reykja-
nesbrautar og Seylubrautar, rétt ut-
an Njarðvíkur, hafí hann ekið á þrjú
umferðarmerki og lokunarbúkka, en
umferðarmerki þessi gáfu til kynna
vegavinnu, lokun vegarins og að
umferð á þessum kafla væri beint inn
á Seylubraut. í beinu framhaldi af
þessu hafi hann ekið á tvo menn sem
þar voru við malbikunarframkvæmd-
ir, með þeim afleiðingum að þeir
hlutu beinbrot og fleiri meiðsl. Þess
var krafist að maðurinn yrði dæmdur
til refsingar og sviptingar ökuréttar.
Maðurinn viðurkenndi að hafa
neytt áfengis fyrir aksturinn, bjórs
og einhverra snafsa, en kvaðst hafa
hætt að drekka um einni og hálfri
klukkustund áður en hann lagði af
stað á bifreiðinni. Hann sagðist hafa
blindast af sól og lent á búkka og
einhveiju fleiru en hann taldi að
búkkinn hefði lent á mönnunum,
ekki bifreiðin. Hann kvaðst hafa set-
ið inni í bifreiðinni þar til lögregla
kom á vettvang og líklega drukkið
tvær smáflöskur af Gammel dansk
og kannski einn bjór á þeim tíma.
Tekið var blóðsýni úr manninum
og reyndist alkóhólmagn í blóði hans
vera 2,11 prómill.
Ekki var talið sannað að maðurinn
hefði gerst sekur um of hraðan akst-
ur. „Við ákvörðun refsingar er að
líta til þess að ákærði sýndi af sér
stófellt og vítavert gáleysi með
akstri sínum umrætt sinn og olli
með honum töluverðum líkamsmeið-
ingum.
Var tilviljun, að afleiðingar af
háttsemi ákærða yrðu ekki enn al-
varlegri. Við mat á gáleysi ákærða
er óhjákvæmilegt að líta til þess,
að hann hóf akstur bifreiðar sinnar
eftir neyslu áfengis. Ber þessi hátt-
semi ákærða vott um skeytingar-
leysi,“ segir í dóminum.
Maðurinn var dæmdur í fjögurra
mánaða fangelsi, þar af þijá mánuði
skilorðsbundna í þijú ár. Hann var
sviptur ökuréttindum í tvö ár og var
dæmdur til að greiða sakarkostnað.
Dóminn kvað upp Ingi Tiyggvason.
Maðurinn gekkst árið 1978 undir
sátt og hlaut dóm árið 1982 fyrir
ölvunarakstur. Þá hlaut hann dóm
árið 1985 fyrir brot gegn lögum og
reglugerð um ávana- og fíkniefni og
hann gekkst undir sátt á árinu 1988
fyrir umferðarlagabrot.
Hafsteinn Már Einarsson, verkefnisstjóri hjá ÍM-Gallup
HAFSTEINN Már Einarsson, verk-
efnisstjóri hjá ÍM-Gallup, vísar því á
bug að skoðanakönnun fyrirtækisins
um breytingar á vinnulöggjöfínni,
sem gerð var fyrir félagsmálaráðu-
neytið, sé ekki marktæk. Hann segir
könnunina gefa góða vísbendingu um
afstöðu almennings til málsins.
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri
ASÍ, sagði við Morgunblaðið fyrr í
vikunni að skoðanakönnunin væri
ekki margtæk og að önnur spuming-
in í könnunni fæli í sér ranga fullyrð-
ingu. Hann ásakaði félagsmálaráð-
herra um blekkingar.
„Þessi skoðanakönnun er á engan
hátt leiðandi og þaðan af síður blekkj-
andi,“ sagði Hafsteinn.
Hann sagði að ÍM-Gallup sæi um
að orða spumingamar sem lagðar
Ekki leið-
andi skoð-
ankönnun
væru fyrir fólk í skoðanakönnunum.
Þess væri sérstaklega gætt að orða
spumingamar þannig að þær væru í
jafnvægi og væru hlutlausar. Báðir
svarmöguleikar kæmu fram í spum-
ingunni í umræddri könnun. Haf-
steinn sagðist ekki vera sammála
fullyrðingu Ara um að í seinni spum-
ingunni felist röng fullyrðing. í spum-
ingunni var fullyrt að í frumvarpi
félagsmálaráðherra væri verið að
auka völd hins almenna félaga á
kostnað stjóma og trúnaðarmanna-
ráða. Hafsteinn sagði að um það yrði
tæplega deilt að með því að setja
reglur um lágmarksfjölda þátttak-
enda í atkvæðagreiðslum um verk-
fallsboðun og samninga væri verið
að auka völd hins almenna félags-
manns. Hafsteinn sagði að það væri
í sjálfu sér ekki nýtt að menn deildu
um hvemig ætti að túlka niðurstöðu
skoðanakannanna. Hann sagðist geta
tekið undir að hægt væri að túlka
svarið við fyrri spumingunni með
ýmsum hætti, en í henni var spurt
um aðstöðu fólks til núverandi fyrir-
komulags kjarasamninga. Svör fólks
við þeirri spurningu sem lögð var
fyrir svarendur lægju hins vegar fyrir.
Þjónustumiðstöð bókasafna
Bók er betri
enkók
Regína Eiríksdóttir
jónustumiðstöð bóka-
safna heldur senn
árlegan aðalfund
sinn. Þar verður að sögn
Regínu Eiríksdóttur bóka-
safnsfræðings auk venju-
legra starfa m.a. fjallað um
nýja bókasafnsbúnaðarlínu
og markaðssetningu á nýj-
um bókasafnsbúnaði.
Hveijar eru þessar breyt-
ingar?
- Hingað til höfum við
flutt inn sérhannaðan bóka-
safnsbúnað, Mediamix-
stálhillubúnað, sem hefur
verið notaður bæði í skóla-
bókasöfnum og almenn-
ingsbókasöfnum og eins í
sérsöfnum alls konar stofn-
ana, einnig höfum við flutt
inn annars konar bóka-
safnsbúnað, Softline, sem
er að meiri hluta gerður úr viði.
En til viðbótar við þennan venju-
lega bókasafnsbúnað erum við
að kynna nýjan búnað sem heitir
Exposé.
Hvers vegna eru þið að bæta við
búnaði?
- Það er fyrst og fremst
vegna þess að æ fleiri fyrirtæki
og stofnanir eru að setja upp
bóka- og skjalasöfn og þó svo
þessar stofnanir séu oftast með
svipuð gögn og bókasöfnin þá
hafa þau aðrar þarfír.
Hverjar eru þær?
- Oft eru lítil fyrirtæki að
koma bókasafni sínu fyrir í litlu
rými sem mörgum er aðgengilegt
og óska þar af leiðandi eftir að
búnaðurinn sé sérlega fallegur
fyrir augað. Exposé er mjög fal-
lega hannaður og kemur þar með
til móts við þessar þarfír. Jafn-
framt er þessi búnaður þannig
hannaður að hægt er að nota
hann með hinum tveimur. Síðan
erum við að byija undirbúning
að kynningu á fjórðu gerðinni
af bókasafnsbúnaði, sá er einnig
ætlaður sérstaklega fyrir fyrir-
tæki og stofnanir. Allur okkar
búnaður fyrir bókasöfn er vel
hannaður, ódýr, þægilegur og
auðveldur í uppsetningu og alltaf
hægt að breyta. Gert er ráð fyr-
ir öllum gögnum, svo sem bók-
um, geisladiskum, snældum og
myndböndum og hann er mjög
fjölbreyttur í útliti. Hægt er að
bæta við innréttingum í þennan
búnaði eins og menn vilja og ef
koma ný gögn á markaðinn er
strax hannaður sérbúnaður fyrir
þau.
Er ekki til sérhannaður íslenskur
bókasafnsbúnaður?
- Mér vitanlega er enginn
sem sérhæfir sig í búnaði fyrir
bókasöfn hér á landi. Að sjálf-
sögðu hafa verið smíðaðar hillur
í bókasöfn hérlendis,
en þá er ekki auðvelt
að bæta inn i eftir þörf-
um.
Eruð þið með fleiri
nýjungar?
- Við höfum að undanförnu
verið í samstarfi við forstöðu-
menn almenningsbókasafna og
verið að aðstoða þá við að fá til-
boð í alls konar vörur sem eiga
að vekja athygli á bókasafni sem
stofnun. Þeir eru búnir að láta
hanna sérstakt merki fyrir bóka-
söfn sem á bæði að vera á vegvís-
un fyrir utan bókasöfn og einnig
á bréfsefni og fleiru. Þeir ætla
einnig að útbúa með þessu merki
boli, penna, merki o.s.frv. í kynn-
ingartilgangi. Þegar hefur verið
► Regína Eiríksdóttir er fædd
í Reykjavík árið 1955. Hún lauk
stúdentsprófi frá Fjölbrauta-
skólanum á Akranesi og BA-
prófi í bókasafns- og upplýs-
ingafræði frá Félagsvísinda-
deild Háskóla íslands. Hún
starfaði á Landsbókasafni ís-
lands frá árinu 1987 og þar til
á síðasta ár er hún gerðist
starfsmaður hjá Þjónustumið-
stöð bókasafna. Hún er fráskil-
in og á tvær dætur, Maríönnu
og Asdísi Berglindi.
gert svolítið í þessa veru og fram-
leiddir bolir með áletrunum eins
og Bókasöfn ... góður kostur og
þeir djarfari segja: Bók er betri
en kók.
Hvaða hlutverki gegnir Þjón-
ustumiðstöð bókasafna?
- Þjónustumiðstöð bókasafna
er sjálfseignarstofnun sem sett
var á stofn fyrir tæpum tuttugu
árum, þá í sambandi við skrán-
ingu á bókum safna. Skráningar-
hlutverkið er alltaf að minnka,
þótt enn kaupi lítil bókasöfn um
land allt annaðhvort skráningu í
spjaldskrá eða skráningu í tölvu-
tæku formi. Hlutverk stofnunar-
inar er einnig að flytja inn eða
kaupa hérlendis og hanna búnað
og vörur fyrir bókasöfn, t.d. til
viðgerða á bókum. í fyrirtækinu
vinna núna þrír starfsmenn í
fullu starfí. í stjórninni sitja fimm
aðilar sem kosnir eru af Bóka-
varðafélagi íslands og Félagi
bókasafnsfræðinga. Stjórnin hef-
ur það hlutverk að vera stefnu-
mótandi um starfsemi stofnunar-
innar hvað varðar bókasafnsmál-
in og öll þessi störf eru unnin í
sjálfboðavinnu, nema störf föstu
starfsmannanna.
Hvers vegna var þörf á að koma
á fót svona stofnun?
- Það var vegna þess að erfið-
lega gekk að fá ýmsa
sérvöru og mikill
kostnaður fylgdi því að
hvert safn þyrfti að
útvega sér allan.búnað
sjálft í stað þess að
geta leitað til sérhæfðrar stofn-
unar sem gerir í raun ekki annað
en fylgjast með búnaði og hönn-
un á bókasöfnun erlendis og Iíka
hér á landi.
Er gróðavænlegt að reka svona
stofnun?
- Því fer fjarri. Það er fyrst
og fremst verið að hugsa um að
gera bókasöfnin sem best úr
garði til þess að auka áhuga al-
mennings á þeim og fá fólk til
þess að lesa sem mest og líða
sem best á bókasöfnunum.
Ný bóka-
safnsbún-
aðarlína