Morgunblaðið - 21.05.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996 11
FRÉTTIR
HALIFAX er helsta hafnar-
borgin á austurströnd
Kanada, en höfnin er frá nátt-
úrunnar hendi talin sú næst-
besta í heimi. í borginni eru
krár og veitingastaðir nánast
á hveiju götuhorni.
Á vegum Verslunarráðs íslands
fóru fulltrúar rúmlega 20 fyrir-
tækja með opnunarflugi Flugleiða
til Halifax í síðustu viku. Þar var
aðallega um að ræða fulltrúa fyrir-
tækja sem þegar hafa verið í við-
skiptum við fyrirtæki á Nova Scot-
ia eða annarsstaðar á austurströnd
Kanada og Bandaríkjanna, en einn-
ig voru í hópnum fulltrúar annarra
fyrirtækja sem voru að þreifa fyrir
sér með viðskiptasambönd. Að sögn
Herberts Guðmundssonar hjá
Verslunarráði hafa íslensk fyrir-
tæki t.d. verið að kanna möguleika
á sölu áfengis til Nova Scotia, og
þannig hefur Viking brugg verið
að kanna með sölu á bjór og áfengi
og kaup á glerumbúðum frá gler-
verksmiðju í Halifax.
Herbert segir að í Nova Scotia
sé eftirspurn eftir meiri fiski frá
íslandi og segir hann ýmsa frekari
möguleika vera á því sviði og þá
einna helst á aukinni sölu á unnum
fiski.
„Við höfum einnig verið að
kaupa þarna heilmikið af rækju,
en sum íslensku fyrirtækjanna hafa
ekki eingöngu verið að selja þangað
fisk frá íslandi heldur einnig verið
að selja fisk milli svæða í heiminum
án þess að hann komi nokkru sinni
hingað til lands. Þannig fer rækjan
sem menn hafa verið að kaupa
þarna gjarnan beint á markað í
Evrópu. Þarna eru ýmsir hlutir í
gangi sem möguleiki er á að verði
að einhveiju meiru, en þetta bygg-
ist mikið á góðum skipasam-
göngum og af hálfu Flugleiða hefur
verið ýtt undir aukin viðskipti svo
þeir geti haft þarna fragtflutn-
inga,“ sagði Herbert.
Góður stökkpallur
íslensk fyrirtæki eru þegar byij-
uð að hasla sér völl í Nova Scotia,
en fyrir tíu árum opnaði Marel hf.
þar söluskrifstofu í Dartmouth fyr-
ir tölvuvogir og annan
tækjabúnað til fiskiðn-
aðar. Þá er Mótun hf.,
sem er í eigu Regins
Grímssonar, með fram-
leiðslu á fiskibátum í
bænum Chester. Bátarn-
ir eru bæði framleiddir fyrir mark-
að í Kanada og til útflutnings, og
eru horfur á að hjá Mótun verði
framleiddir tugir báta á þessu ári.
Að sögn Geirs A. Gunnlaugsson-
ar, framkvæmdastjóra Marels, var
velta fyrirtækisins í Növa Scotia
um 150 milljónir króna í fyrra af
1,1 milljarðs heildarveltu, eða um
15%.
„Við höfum fyrst og fremst ver-
ið að þjóna fiskiðnaðinum í Nova
Scotia, en einnig höfum við verið
að selja fyrir önnur íslensk fyrir-
tæki eins og t.d. Hugrúnu og
DNG. Það er mikill samdráttur í
fiskiðnaðinum i Nova Scotia, en
ég held að menn horfi nú fram á
að þetta fari að batna. Hér er því
að mörgu leyti mjög svipað um-
hverfi og á íslandi. Hérna eru
miklar fiskveiðar og vinnsla og það
eiga að vera ágætir möguleikar
fyrir önnur fyrirtæki en okkur að
ná hér árangri. Þetta hefur nýst
okkur sem ákveðinn stökkpallur
annað, en héðan fórum við að selja
skipavogir í Seattle þar sem við
stofnuðum síðan fyrirtæki, og héð-
an náðum við líka sölunni inn á
austurströnd Sovétríkjanna. Þessi
starfsemi hérna hefur því lagt
ákveðinn grunn að velgengni Mar-
els,“ sagði Geir.
Hagstætt verðlag
Á kynningunni, sem hefst í Há-
skólabíói á morgun, verður lögð
áhersla á að kynna Nova Scotia
sem áhugaverðan stað fyrir íslend-
inga að sækja heim í sumarleyfum
sínum. Um 1,1 milljón ferðamanna
kemur til Nova Scotia á ári hveiju
og er stærstur hluti þeirra Banda-
ríkjamenn, en tekjur af ferðaþjón-
ustu í fylkinu nema sem svarar 50
milljörðum J<róna á ári. Ferðaþjón-
ustan er vel skipulögð og þótt flest-
ir ferðamannanna sæki fylkið heim
á sumrin og haustin er líka anna-
tími á öðrum árstímum. Meðalhiti
á sumrin er á bilinu 16-24 gráður
en á veturna er meðalhitinn h-3
gráður. Nova Scotia er láglauna-
svæði og verð á gistingu og þjón-
ustu þar hagstætt. Algengt verð á
næturgistingu er um 2.000 krónur
fyrir tveggja manna herbergi, og á
íjögurra stjörnu hóteli í
miðborginni kostar gist-
ingin um 6.500 krónur
í tveggja manna her-
bergi. Kvöldmatur á
fýrsta flokks veitinga-
stöðum kostar í kringum
eitt þúsund krónur fyrir manninn,
en alls kyns sjávarréttir eru áber-
andi á matseðlunum. Hægt er að
fá góðan málsverð á hinum fjöl-
mörgu veitingastöðum í Halifax
fyrir um 500 krónur og algengt
verð á bjórglasi er 125 krónur.
Geraldine Beaton hjá ferðamála-
ráði Halifax segir að fjölmargar
verslanamiðstöðvar í Halifax og
nágrenni ættu að höfða sérstaklega
til íslendinga vegna lágs verðlags,
en sem dæmi um verð á fatnaði
má nefna að Levi’s gallabuxur kosta
um 2.500 krónur parið og Nike
íþróttaskór fást á um 3.000 krónur.
„Fyrir fólk í fríi er fjölmargt að
gera hér, fyrir utan að gera góð
innkaup í verslunum borgarinnar.
Halifax er hafnarborg og allt sem
viðkemur siglingum er mjög áber-
andi og býður upp á ýmsa mögu-
leika.- Fólk hérna er vingjarnlegt
og næturlífið hefur upp á margt
að bjóða, en hér er fyrsta flokks
spilavíti og fleiri krár miðað við
íbúafjölda en í nokkurri annarri
borg. Þá erum við í nálægð við
óspillta náttúruna og á fáeinum
mínútum er meðal annars hægt að
komast til fyrirtaks baðstranda og
njóta gestrisni þeirra fjölmörgu
sem stunda þjónustu við ferðamenn
á landsbyggðinni."
Frekari mögu-
leikar á auk-
inni sölu á
unnum fiski
Forseti Is-
lands heið-
ursdoktor í
Halifax
FRÚ Vigdísi Finnbogadóttur, for-
seta íslands, var veitt heiðursdokl
orsnafnbót við Saint Mary’s há-
skólann í Halifax í Nova Scotia í
síðustu viku þegar hún var þar i
heimsókn í tilefni af opnunarflugi
Flugleiða til Halifax. Athöfnin fór
fram á útskriftarhátíð skólans í
stærstu íþróttahöll Halifaxborgar
að viðstöddu miklu fjölmenni. Eft-
ir að frú Vigdís hafði ásamt þrem-
ur öðrum verið formlega gerð að
heiðursdoktor flutti hún ræðu þar
sem hún gerði að umtalsefni sögu
Guðríðar Þorbjarnardóttur, fyrsti
evrópsku móðurinnar í Nýja
heiminum. Sagði hún Guðríði
dæmi um það sem konur gætu
fengið áorkað og hvatti þá 800
nemendur, sem voru að útskrifast
frá háskólanum, til að taka hana
sér til fyrirmyndar.
Við komuna til Nova Scotia
opnaði frú Vigdís ásamt John
Savage, forsætisráðherra Nova
Scotia, formlega flugleiðina milli
Islands og Nova Scotia við athöfn
á flugvellinum í Halifax. Meðan á
heimsókn hennar til Nova Scotia
stóð heimsótti frú Vigdís m.a.
fylkisstjóra Nova Scotia í embætt
isbústað hans í Halifax.
Honda Civic 1.4 Si er búinn 90 hestafla 16 ventla vól með tölvustýrðri fjölinnsprautun.
Upptak er 10.8 sek. í 100 km/klst meöan eyðslan viö stööugan 90 hraöa er aðeins 5,4 lítrar á 100 km.
Honda Civic fylgja rafdrifnar rúður og speglar, þjófavörn, samlæsingar, vökva- og veltistýri,
útvarp/segulband, sportinnrétting, samlitir stuðarar og spoiler, sem er með innbyggðu bremsuljósi, o.tl.
Styrktarbitar eru í hurðum. Lengd: 419**cm. Breidd: 169,5 cm. Hjólhaf: 262***cm.
Tveggja ára alhliða ábyrgð fylgir öllum nýjum Honda bifreiðum og þriggja ára ábyrgð er á lakki.
Tökum aðra bíla uppí sem greiðslu og lánum restina til allt að fimm ára.
*álfelgur eru aukabúnaöur á mynd. **stærstur í sýnum flokki. ***mesta hjólhaf f millistærðarflokki.
VATNAGARÐAR 24
S: 568 9900
liestöfl
sameinar glœsilegt útlit.
óviðjafnanlega aksfurseiginleika,
ríkulegan sfaðalbúnað,
I og
eínstaka hagkvcBmni í rekstri.
mikil
Verðið stenst allan samanburð
1.384.000,-