Morgunblaðið - 21.05.1996, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Sala hluta-
bréfa í
Jarðborun-
um hafin
SALA á hlut Reykjavíkurborg-
ar og ríkissjóðs í Jarðborunum
hefst í dag. Hlutabréfm verða
seld á genginu 2,25 og verða
hlutabréf að nafnvirði tæpar
44 milljónir króna seldar í
fyrsta áfanga. Söluverðmæti
bréfanna er því tæpar 100
milljónir. Hámarksskammtur
til hvers einstaklings er 250
þúsund kr. að söluvirði, eða 111
þúsund að nafnvirði.
Sölugengið er nokkuð lægra
en gengi síðustu viðskipta með
bréfin á Verðbréfaþingi, en það
var rúmlega 2,7. Ragnar Hann-
es Guðmundsson, umsjónaraðili
með sölu bréfanna hjá Kaup-
þingi, segir þó að ekki sé verið
að selja bréfín á of lágu gengi.
Hann bendir á að innra virði
fyrirtækisins sé nú 2,04 og því
sé þetta nokkuð yfír því. V/H
hlutfall fyrirtækisins miðað við
þetta gengi sé 17, sem sé í
meðallagi.
Þá verði einnig að taka tillit
til þess að markvisst sé verið
að selja bréfín í smáum
skömmtum en ætla megi að
gengið hefði orðið annað ef
ekki hefði verið miðað við
mræddar hámarksfjárhæðir.
Gert er ráð fyrir því að ríkis-
sjóður muni selja 20% hlut til
viðbótar í Jarðborunum ef sala
bréfanna nú gengur vel. Er þar
um að ræða röskar 47 milljónir
króna að nafnvirði.
Óróleiki á
evrópskum
mörkuðum
London. Reuter.
HÆKKUN dollars stöðvaðist í
gær. Beðið er eftir hagtölum
frá Þýzkalandi og nokkuð hefur
dregið úr ánægju með fréttir
um aukinn innflutning til Jap-
ans og minni viðskiptahalla.
Dollarinn komst ekki í yfír
1,54 mörk þrátt fyrir verkföll
opinberra starfsmanna í Þýzka-
landi og væntanlega tikynn-
ingu um peningamagn í umferð
í apríl.
Dollarinn hækkaði í 107,35
jen fyrst eftir opnun í Evrópu
samanborið við 106,67 jen á
föstudag, þegar tilkynnt var í
Tókýó að viðskiptahalli Japana
hefði minnkað um 65,5% í apríl.
Síðdegis fengust 107,5 jen
fyrir dollar, en gengið var
óstöðugt. „Erfíðlega gengur að
koma dollarnum hærra,“ sagði
sérfræðingur í London.
í Þýskalandi bíða menn nán-
ari upplýsinga um efnahags-
stöðuna og talið er að þær geti
Ieitt til þess að vextir þokist
upp á við að nýju.
Vísitölur
standa í stað
BYGGINGARVÍSITALA eftir
verðlagi um miðjan maí reynd-
ist vera 209,8 stig og er óbreytt
frá því í apríl. Þessi vísitala
gildir fyrir júní 1996.
Siðastliðna tólf mánuði hefur
vísitalan hækkað um 2,9%.
Undanfarna þijá mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 0,4% sem jafngild-
ir 1,7% verðbólgu á ári.
Þá hefur Hagstofan reiknað
launavísitölu miðað við meðal-
laun í apríl 1996. Er vísitalan
147,4 stig, óbreytt frá fyrra
mánuði.
Samsvarandi launavísitala,
sem gildir við útreikning
greiðslumarks fasteignaveð-
lána, er 3221 stig í júní 1996.
Samstarf
um fjár-
mögnun við
Hollend-
inga
IÐNAÐAR- og viðskiptaráðu-
neyti, Iðnþróunarsjóður og holl-
enski fjárfestingarsjóðurinn
FMO undirrituðu á þriðjudag
viljayfirlýsingu um samstarf við
fjármögnun íslenskra verkefna
erlendis.
FMO er sjóður sem er í eigu
hollenska ríkisins (51%), stærstu
viðskiptabanka Hollands (40%) og
hollenskra einkafyrirtækja (9%).
Sjóðurinn hefur fjármagnað
verkefni í yfir 60 ríkjum og eru
heildareignir um 2 milljarðar
Bandaríkjadala, að því er segir í
frétt.
FMO hefur víðtæka sérþekk-
ingu og reynslu af fjármögnun
verkefna í flestum þeirra ríkja
sem íslenskir aðilar hafa sýnt
áhuga á að starfa í og því er
mikill fengur að þessu samstarfi.
Samkvæmt yfirlýsingunni
munu FMO og Iðnþróunarsjóður
taka upp formlegt samstarf um
fjármögnun verkefna á vegum
íslenskra fyrirtækja í þróunar-
ríkjunum. Þá mun FMO einnig
veita Iðnþróunarsjóði aðstoð
varðandi mat á verkefnum og
veita ráðgjöf varðandi samstarf
við aðra alþjóðlega sjóði og fyrir-
tæki, sem FMO er þegar í sam-
starfi við. Gerður verður form-
legur samstarfssamningur milli
sjóðanna á grundvelli fyrr-
greindrar viUayfirlýsingar.
Hlutabréf Sláturfélagsins
seldust upp á fyrsta degi
HLUTABRÉF í B-deild stofnsjóðs
Sláturfélags Suðurlands, sem boðin
voru út í gærmorgun á almennum
markaði, seldust upp síðdegis. Bréf-
in voru samtals að nafnvirði 65
milljónir króna og voru seld á geng-
inu 1,5 þannig að söluandvirði
þeirra nam alls 97,5 milljónum. Þar
af keyptu forkaupsréttarhafar um
5,5 milljónir að nafnvirði.
Jóhann ívarsson, forstöðumaður
hjá Kaupþingi, sagði í samtali við
Morgunblaðið að hlutabréfín hefðu
dreifst bæði á fjölda einstaklinga
og stofnanafjárfesta. Hann sagði
augljóst að kaupendur hefðu horft
til góðs rekstrar og batnandi af-
komu Sláturfélagsins á undanförn-
um árum. „Ég held að fjárfestar
hafi trú á framtíð félagsins í mat-
vælavinnslu og dreifingu," sagði
hann. „Þá er Sláturfélagið aðeins
annað fyrirtækið á þessu ári sem
leitar í fyrsta skipti á almennan
markað eftir hlutafé, en Plastprent
var fyrsta félagið. Áhuginn á bréf-
um nýrra og góðra félaga hefur
reynst mjög mikill.
Það er mikil ánægja með að þetta
hlutafjárútboð í B-deild stofnsjóðs
samvinnufélags skuli hafa tekist
svo vel. Þetta sýnir rækilega að
B-deildar hlutabréf samvinnufélaga
eiga sér góðan tilverugrundvöll
meðal íslenskra fjárfesta, engu síð-
ur en hlutabréf hlutafélaga. Þetta
form er vel þekkt víða erlendis og
mikil viðskipti eiga sér stað með
slík bréf,“ sagði Jóhann.
ÞEIR Þorkell Helgason, ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu og
hr. Mennes, forstjóri hollenska fjárfestingarsjóðsins FMO, undir-
rituðu viljayfirlýsingu um samstarf nýverið.
Blýlaust
benzín á
fimm árum?
Washington. Reuter.
ALÞJOÐABANKINN hefur hvatt til
þess að hætt verði að nota benzín
með blýi á fimm árum til að draga
úr heilsutjóni sem blý getur haft í
för með sér.
„Kostirnir koma strax í ljós og
verða mælanlegir," sagði Caio Koch-
Weser aðalbankastjóri í yfírlýsingu.
„Hægt verður að taka upp blý-
laust benzín á fimm árum ef ríki
skuldbinda sig til að framfylgja ýtar-
legri áætlun þar að lútandi," sagði
Koch-Wes.
Benzín með gasi er bannað í
Bandaríkjunum, Japan, Austurríki,
Brasilíu, Kanada og Svíþjóð og fleiri
löndum. Óttazt er að það geti átt
þátt í taugasjúkdómum, of háum
blóðþrýstingi og hjartasjúkdómum.
Alþjóðabankinn heitir aðstoð þeim
ríkjum sem taka upp blýlaust benzín.
Þingvísitalan hækkar enn
Þingvísitalan 1. des. 1995 til 2o. maí 1996
1808,30
1995
1996
DES.
JAN.
FEB.
MARS APRÍL
1850
1800
1750
1700
1650
1600
1550
MAI
1500
1450
- 1400
1350
1300
Lífleg hlutabréfaviðskipti í gær
Vísitalan rauk
upp um 1,32%
HLUTABRÉFAVIÐSKIPTI tóku
verulegan fjörkipp í gær og hækk-
aði gengi hlutabréfa umtalsvert í
fjölmörgum fyrirtækjum. Þingvísi-
tala hlutabréfa á Verðbréfaþingi
hækkaði um rúmlega 1,3%. Frá
áramótum hefur vísitalan hækkað
um rúm 30% en til samanburðar
má nefna að allt síðasta ár hækk-
aði vísitalan um 36%.
Þeir aðilar á verðbréfamarkaði
sem Morgunblaðið ræddi við í gær
sögðust ekki sjá neina einhlíta skýr-
ingu á þessum miklu hækkunum,
aðra en þá hversu mikið umfang
hefði verið á viðskiptum gærdags-
ins. Heildarviðskipti námu röskum
70 milljónum króna að nafnvirði.
Framboð á hlutabréfum væri enn
takmarkað og því settu svo mikil
viðskipti óhjákvæmilega mikinn
þrýsting á gengi þeirra.
Sj ávarútvegsfy rirtækln
enn á uppleið
I einstökum félögum urðu mest-
ar hækkanir á hlutabréfum í Har-
aldi Böðvarssyni, eða rúmlega 14%.
Þá hækkuðu hlutabréf í Síldar-
vinnslunni og Skagstrendingi um
8,5% og 9,2%, en umtalsverðar
hækkanir urðu einnig á hlutabréf-
um í Þormóði Ramma, Útgerðarfé-
lagi Akureyringa og Granda hf.
Þingvísitala sjávarútvegsfyrir-
tækja hækkaði samanlagt um tæp
5% og hefur hún þá hækkað um
51% frá áramótum.
Samningaviðræður um nýtt hótel
á Egilsstöðum langt komnar
*
Aætlað að fram-
kvæmdum ljúki
næsta sumar
SAMNINGAVIÐRÆÐUR standa
nú yfír milli Ásgarðs ehf. og Mið-
vangs hf. um byggingu nýs hót-
els á Egilsstöðum og er gert ráð
fýrir því að framkvæmdir geti
hafíst fljótlega ef samningar nást,
en gert er ráð fyrir því að hægt
verði að taka hótelið í notkun síðla
næsta sumars. Ásgarður hf. er
eignarhaldsfélag Egilsstaðabæj-
ar, Ferðamiðstöðvar Austurlands,
Ferðaskrifstofu íslands, Kaupfé-
lags Héraðsbúa, Byggðastofnun-
ar, Sjóvár-Almennra og Hótels
Valaskjálfar, sem stofnað var um
byggingu hótelsins.
Að sögn Einars Rafns Haralds-
sonar, formanns bæjarráðs á
Egilsstöðum, er áætlað að kostn-
aður við byggingu hótelsins muni
nema um 150-160 milljónum
króna og verði a.m.k. helmingur
þess fjármagnaður með hlutafjár-
framlögum. Segir hann að Mið-
vangur hf. hafi gert tilboð í hótel-
bygginguna sem sé innan kostn-
aðaráætlunarinnar, en endanleg
upphæð tilboðsins liggi ekki ljós
fyrir, enda samningaviðræður
enn í gangi.
Einar Rafn segist reikna með
því að verkið verði boðið út, fari
viðræðurnar við Miðvang út um
þúfur, og muni verkið þá væntan-
lega eitthvað dragast á langinn.
Hins vegar ætti niðurstaða við-
ræðnanna að liggja ljós fyrir upp
úr mánaðamótum.
Gert er ráð fyrir að hótelið
verði með 36 herbergi auk allrar
hefðbundinnar aðstöðu, en hægt
verði að byggja við það 36 her-
bergi til viðbótar. Tekist hefur
að safna hlutafé að fjárhæð 75
milljónir króna og heimild er fyr-
ir hlutafjáraukningu í allt að 100
milljónir króna, að sögn Einars
Rafns. Stærstu hluthafarnir eru
Ferðaskrifstofa íslands, með um
20 milljónir króna, Egilsstaðabær
með tæpar 19 milljónir króna,
Byggðastofnun með 15 milljónir
króna og Ferðamiðstöð Austur-
lands með 10 milljónir króna.
Ártún opnað á ný
SKEMMTISTAÐURINN Ártún,
Vagnhöfða 11, hefur verið opnaður
að nýju eftir nokkurt hlé.
Ártún verður fyrst um sinn opið
á föstudagskvöldum en hægt er að
leigja það undir einkasamkvæmi
önnur kvöld vikunnar. Að sögn
Harðar Bjarnasonar, rekstraraðila,
er staðurinn fyrst og fremst dans-
staður og verður m.a. boðið upp á
danskennslu þar.
Um það bil ár er liðið frá því að
Ártún var síðast í rekstri. Vagnhöfði
11 er í eigu Lífeyrissjóðs lækna og
er Ártún á efri hæð hússins en Höfða-
kaffi rekur matstofu á neðri hæð.