Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Ákvörðunarvald og ábyrgð
forstöðumanna ríkisstofnana
ÁRLEGA gerir Ríkisendurskoð-
un opinbera skýrslu um það, hvort
ríkisstofnanir hafa farið út fyrir
fjárlagaheimildir. Vitaskuld skiptir
höfuðmáli, hvort þeir sem stjórna
fjármálum á vegum ríkisins virða
ákvarðanir Alþingis um fjárveiting-
ar.
Forsenda dóms um árangur for-
stöðumanna ríkisstofnana er yfír-
leitt sú, að þeir hafi ákvörðunarvald
um notkun þess fjár, sem veitt er
til stofnunar. Spurningin er því: Er
svo -í reynd?
Hvernig tókst sýslumannsemb-
ættinu á Akranesi að halda sig inn-
an fjárlagaheimilda árið 1995?
Samkvæmt skýrslu Ríkisendur-
skoðunar var fjárlagaheimild sýslu-
mannsembættisins á Akranesi árið
1995 70.5 m.kr. en ráðstöfun emb-
ættisins vegna útgjalda 69.1 m.kr.
Embættið var m.ö.o. innan fjárlaga,
svo að munaði á aðra millj. króna.
í þessu efni er vert að minna á, að
á Stöð II var því tvívegis haldið
' fram fyrir skömmu, að embættið
hefði farið 30% út fyrir fjárlaga-
heimildir á árinu 1995.
Árin á undan nægðu ijárveiting-
ar hins vegar ekki til að mæta út-
gjöldum embættisins þrátt fyrir
mikla viðleitni til að ná því mark-
miði. Á þessum árum benti ég þrá-
faldlega á, að embættið væri van-
haldið, þegar fjárveitingar á fjárlög-
um væru ákveðnar, enda væru
ákvarðanir þær ekki reistar á mál-
efnalegri könnun. Það eru ráðu-
bakrennur
Styrkur stáls
- ending plasts
Þakrennukerfiö frá okkur er auö-
velt og fljótlegt I uppsetningu. Eng-
in suða, ekkert lím. Gott litaúrval.
Umboösmenn um land allt.
ŒEcrrnsnnzn*
TÆKNIDEILD OJ^k
á
UGGPI'
k ÖRí
Smiðshöfða 9 • 132 Reykjavík
Sími 587 5699 • Fax 567 4699
Þak- og veggklæðning í
mðrgum útfærslum, t.d.: bárað
kantað, þaksteinamynstur ofl.
Plastisol yfirborðsvörn klæðn-
ingarinnar gefur margfalda
endingu.
Fjölbreytt litaúrval.
Umboðsmenn um land allt.
qmii'UiivnnTO
Lindab
ÞAKSTÁL
TÆKNIDEILD O.J&K
EE33Í
Smiðshöfða 9 • 132 Reykjavik
Sími 587 5699 • Fax 567 4699
neytin, sem gera tillög-
ur til Alþingis um fjár-
veitingarnar og yfir-
leitt er eftir þeim farið.
Sýslumannsembættið
á Akranesi (íbúar
5.102) hafði á undan-
fömum árum fengið
hlutfallslega mun
minna en t.d. ísa-
fjarðarembættið, sem
var af svipaðri __ stærð
(íbúar 5.221). Á fjár-
lögum fyrir árið 1995
fékk Akranesembættið
um 64,2 millj. kr., en
Isafjarðarembættið um
79,9 millj. kr.
Miðað við íbúatölu
og fjárveitingu til ísafjarðarem-
bættisins fékk Akranesembættið
um 14 millj. minna en ef hlutföll
fjárveitinga hefðu verið rétt miðað
við íbúatölu. Ekki var í mannlegu
valdi að aðlaga sig slíkri mismun-
un, og halli, sem þannig varð til,
var ekki leiðréttur með fjáraukalög-
um, heldur fluttur yfir áramót og
dreginn frá fjárveitingu næsta árs
á eftir. Þannig var embættinu ætlað
sífellt minna fé til rekstrarins og
sífellt hamrað á því, að embættið
færi út fyrir fjárlög.
Það var ekki fyrr en á árinu
1995, sem ráðuneytið sneri við
blaðinu og tók að fjalla um mál-
efni embættisins af skilningi og
velvild. Ber að þakka það. Fjárveit-
ing ársins 1995 varð því ekki 64
millj. kr. heldur 70 millj. kr., og
auk þess var gerð leiðrétting á
fjáraukalögum, er nam 17,5 millj.
kr. Ekki hefði tekizt að halda Akra-
nesembættinu innan íjárveitingar
ársins, nema af því að ráðuneytið
lagfærði stöðuna. En slík lagfær-
ing gerist nánast með einu penna-
striki.
Hvað gerði Akranesembættið
dýrara 1990-1995 en við venjulegar
aðstæður?
Eðlilegt er að líta til fólksfjölda,
Sigurður
Gizurarson
þegar fjárveitingar til
embættanna eru
ákveðnar, því gera má
ráð fyrir að fjöldi af-
greiðslna og þar með
þjónustu séu í réttu
hlutfalli við ijölda
þeirra íbúa, sem þjónað
er. Frávik þar frá geta
þó m.a. sprottið af því,
að atvinnulíf er öflugra
á einum stað en öðrum,
meira er um lögbrot á
einum stað en öðrum
eða embætti eru fengin
verkefni sem önnur
embætti hafa ekki. Slík
aukaverkefni hafa í för
með sér meiri vinnu og
kostnað. Ýmis aukaverkefni Akra-
nessembættisins hefðu að öllu eðli-
legu og öðru jöfnu átt að hafa í för
með sér, að það hefði fengið hærri
fjárveitingu en ísafjarðarembættið.
Þannig þjónar t.d. Ákranesembætt-
ið með rekstri sjúkrasamlagsins
sjúkrahúsinu á Akranesi, sem í raun
er sjúkrahús alls Vesturlands, auk
þess sem það tekur jafnvel við sjúkl-
ingum og verkefnum frá Reykjavík.
Ekki hefur vitanlega verið tekið til-
lit til þessa í fjárveitingum.
Aukin verkefni sýslumannsemb-
ættisins á Akranesi hafa ekki að-
eins snert sjúkrasamlagið, heldur
var embættinu og af dómsmála-
og heilbrigðisráðuneytum falið að
hafa með höndum sjúkraflutninga,
sem lögreglumenn sáu um. Þegar
þeir voru kallaðir út t.d. til að aka
sjúklingi til Reykjavíkur fyrir Hval-
fjörð, þurfti að kalla út aðra lög-
reglumenn á aukavakt í þeirra
stað. Ekki var tekið tillit til þessa
í fjárveitingum til embættisins.
Þegar embættið losnaði við þessa
vinnukvöð ekki alls fyrir löngu,
lækkaði tala yfirvinnutíma lögregl-
unnar á Akranesi úr 11.000 klst.
í 8.000.
Á Akranesi hefur lögreglan séð
um svokallaða millivakt frá kl. 1
Ákvörðunarvald um
fjárveitingar til sýslu-
mannsembætta er hjá
dómsmálaráðuneyti,
segir Sigurður
Gizurarson, í þessari
síðari grein sinni, og
sama gildir um fjár-
notkun þeirra.
til 5 á nóttunni - m.a. fyrir slökkvi-
liðið á Akranesi. Kaupstaðurinn
stóð lengi vel straum af kostnaði
við vaktina, svo sem eðlilegt má
teljast, og var það á fjárlögum
reiknað sem sértekjur til embættis-
ins. En þegar ríkisstjórnin lagði
svokallaðan „lögguskatt" á sveitar-
félög, kippti bæjarstjórn Akraness
að sér hendinni og hætti að greiða
embættinu fyrir vaktina - líklega
nálægt tveimUr millj. kr. á ári. Samt
var haldið áfram næstu ár að reikna
embættinu nefnda fjárhæð sem sér-
tekjur á fjárlögum, eins og ekkert
hefði í skorizt. Það þýddi halla upp
á um 6-7 millj. kr., sem var síðan
fluttur á milli ára, en ekki leiðrétt-
ur, og hvíldi árum saman á embætt-
inu.
Lítil saga úr fortíðinni, sem varp-
ar ljósi á það, hver hefur ákvörðun-
vald um fjármál sýslumannsemb-
ætta
í fyrri grein, sem ég reit um
efni þetta í Morgunblaðið, var bent
á, að nánast allt ákvörðunarvald
um fjárútlát sýslumannsembætta
er í höndum dómsmálaráðuneytis-
ins. Þrátt fyrir góðan vilja fær
sýslumaður engu áorkað til sparn-
aðar, ef ráðuneytið stendur ekki
honum að baki. Sú staðreynd verð-
ur bezt skýrð með dæmum, en til
Á hvalurinn að éta
okkur út á gaddinn?
HVALVEIÐAR
hafa illu heilli verið
bannaðar við íslands-
strendur síðastliðin tíu
ár, þrátt fyrir að öll rök
mæli með því að þær
verði hafnar án tafar.
Við sem störfum við
sjávarútveg og höfum
lífsviðurværi okkar af
því sem úr sjónum
kemur erum margir
með miklar áhyggjur
af því sem augljóslega
er að gerast í hafinu í
kring um ísland. Hval
er að fjölga mjög frá
því sem áður var.
Þetta hefur í för með
sér margs konar erfiðleika fyrir sjó-
menn, útvegsmenn og aðra þá sem
hafa viðurværi sitt af útgerð og
sjósókn. Erfiðleikarnir eru einkum
tvenns konar, annars vegar er hval-
urinn nú í vaxandi samkeppni við
sjómenn um fisk, hins vegar er
hvalur til trafala við loðnu- og síld-
veiðar og veldur stundum verulegu
tjóni á veiðarfærum.
Fram hafa komið upplýsingar
frá Hafrannsóknastofnun um það
hvernig fer ef hvalveiðar verða
ekki leyfðar og hval fjölgar ótæpi-
lega hér við land með sama hætti
og undanfarið. Þar
kemur fram að brátt
mun verða hægt að
taka frá tíunda hluta
þorskkvótans fyrir
hvalinn, því bæði mun
hann éta þorsk og
einnig hefur hvalurmn
viðurværi af því að éta
sömu fæðu og þorsk-
urinn að nokkru leyti
og verður þar af leið-
andi í samkeppni við
þorskinn á því sviði.
Svipað á trúlega við
um aðrar tegundir bol-
fisks.
Sjómenn sem
stunda loðnuveiðar og
síldveiðar verða áþreifanlega fyrir
barðinu á hvalnum við veiðar sín-
ar. Bæði er það að mikið af hval
er gjarnan í kringum torfurnar sem
verið er að kasta á og verða sjó-
menn oft að sýna mikla aðgát til
þess að stofna veiðarfærunum sín-
um ekki í stórhættu. Oft kemur
það fyrir að veiðarfæri skemmast
af völdum hvala og alltaf er hvalur-
inn til trafala á miðunum. Ekki
má heldur gleyma því að hann étur
gríðarlegt magn af þessum fiskteg-
undum og verður þar með til þess
að draga úr veiði sjómanna.
Það er löngu tímabært,
segir Birgir Þór
Sverrisson, að hefja
hvalveiðar.
Það er ljóst að með því að banna
hvalveiðar eru menn að bíta í rass-
inn á sjálfum sér, því að um leið
og hvalnum er gefið gríðarlegt
magn af fiski, láta menn hjá líða
að stunda veiðar á sjávarspendýri
sem er verðmæt og eftirsótt vara
á erlendum mörkuðum.
Eg er þeirrar skoðunar að rétt
sé að hefja hvalveiðar þegar í stað
og með því munu skapast miklar
tekjur í þjóðarbúið, tekjur sem við
annars yrðum af. Um leið myndum
við vinna að frekari verndun nytja-
fiska, því að með fækkun hvala
minnkar sókn þeirra í fisk sem við
getum veitt að öðrum kosti.
Á þessum síðustu og verstu tím-
um er mikið rætt um uppbyggingu
atvinnulífsins og sköpun nýrra at-
vinnutækifæra til þess að vinna
gegn atvinnuleysi. Sífellt er verið
að kanna möguleika á stóriðju hér
á landi og virkjun fallvatna með
tilheyrandi kostnaði. Með því að
Birgir Þór
Sverrisson
að vera ekki persónulegur gagn-
vart þeim sem nú ráða ríkjum í
ráðuneytinu tek ég gamalt dæmi.
Líklega var það á árinu 1977, sem
ég lenti í deilu við lögreglumenn á
Húsavík út af yfirvinnureikning-
um. Skoðun mín er sú, að grunn-
laun lögreglumanna séu afar lág,
því starf þeirra er afar erfitt og
áhættusamt. Allt að einu áleit ég,
að þak bæri að setja á yfirvinnu
yfirlögreglumanns, svo hann gæti
ekki nánast skammtað sér fé úr
ríkissjóði með því að ákveða út-
köll. Fulltrúar dómsmálaráðuneyt-
is samþykktu, að slíkt þak væri
sett á. Yfirvinnustundir skyldu, að
mig minnir, ekki fara yfir 80 klst.
á mánuði. Síðan kom reikningur
frá yfirlögreglumanninum fyrir
talsvert á annað hundrað klst. Þeg-
ar ég neitaði að greiða reikning-
inn, sneri hann sér til Landssam-
bands lögreglumanna, sem tók
málið upp við dómsmálaráðuneyt-
ið. Málalyktir urðu þær, að ráðu-
neytið lét undan í deilunni og
greiddi reikninginn. Þar með ógilti
það ákvörðun mína, sem þó hafði
verið tekin með fullu samþykki
þess.
Tækin og verklokin
Ákvörðunarvald um fjárveiting-
ar til sýslumannsembætta og svo
fjárnotkun þeirra er í höndum
dómsmálaráðuneytis. Raunveru-
legt ákvörðunarvald og ábyrgð er
aðeins í orði kveðnu hjá sýslumönn-
um. Sýslumaður getur því ekki
með góðri samvizku hrósað sér
fyrir að vera innan fjárlaga meðan
starfsbræður hans eru það ekki.
Og ekki heldur verður því sýslu-
maður gerður ábyrgur fyrir því,
að embætti hans er ekki innan fjár-
laga. Á þessari staðreynd hefur
engin breyting orðið þau 22 ár sem
ég hef verið sýslumaður. Öll opin-
ber dómfelling Ríkisendurskoðunar
eða fjölmiðla, sem lætur ógetið
þessarar staðreyndar, er því ekki
annað en blórabögglagerð. Við
þessar aðstæður tek ég því heils
hugar undir orð Winstons Churc-
hills, sem hann viðhafði í útvarps-
ávarpi 9. apríl 1941, þegar hann
bað Bandaríkjamenn um hjálp í
styijöldinni við Þjóðveija: „Give us
the tools and we will finish the
job.“
Höfundur cr sýslumaður.
veiða hval nást hins vegar mark-
mið af þessu tagi. Ekki þarf að
leggja í neina fjárfestingu ef hval-
veiðar verða hafnar á ný. Hvalbát-
arnir eru til og öll aðstaða við verk-
un og vinnslu er á sínum stað.
Hins vegar myndu hvalveiðarnar
skapa mörg hundruð manns vinnu
bæði við veiðar, vinnslu og söíu
og tel ég ólíklegt að verkalýðsfor-
kólfar við Faxaflóa myndu leggjast
gegn því að sjá þeim liðsmönnum
sínum fækka sem eru á atvinnu-
leysisbótum.
Framganga stjórnvalda í þessu
máli má hins vegar furðu gegna.
Þar virðast menn ekki átta sig á
mikilvægi hvalveiða fyrir þjóðar-
búið og bera gjarnan fyrir sig orð
fisksölumanna erlendis um að
markaðir munu spillast ef hvalveið-
ar hefjist á ný. Sú fullyrðing er
hins vegar út í hött. Ef svo heldur
fram sem horfir um át hvala á fiski
hér við land verður þess trúlega
ekki langt að bíða að þessir menn
hafi fátt eitt að selja.
Eg tel að mikill stuðningur sé
við hvalveiðar um allt land og það
á ekki síst við hér í Vestmannaeyj-
um. Því vil ég skora á þingmenn
okkar og þá ekki síst sjávarútvegs-
ráðherra, sem á að heita 1. þing-
maður Suðurlandskjördæmis, að
reka nú af sér slyðruorðið og sam-
þykkja það á Alþingi að hvalveiðar
skuli heíjast, og þá helst strax í
vor. Það er ekki eftir neinu að bíða
og er löngu tímabært að þingmenn
okkar reki af sér slyðruorðið í þessu
máli.
Höfundur er skipstjóri
á Vestmannaey VE-54.