Morgunblaðið - 21.05.1996, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ1996 35
Neyzluvenjur
og krabbamein
VÍSINDARANN-
SÓKNIR, sem gerðar
hafa verið víða um
heim á undanfömum
áratugum, benda til
þess að mataræði eigi
mikinn þátt í tilurð
ýmissa krabbameina í
mönnum. Flestir eru
sammála um að rekja
megi um þriðjung
krabbameina til matar-
æðis, annan þriðjung
til tóbaksnotkunar en
þriðjungur krabba-
meina komi til af
óskyldum eða óþekkt-
um orsökum. Ljóst er
að í fæðu manna eru
fjöldamörg efni, sem geta orsakað
krabbamein, eða á annan hátt stuðl-
að að myndun þeirra. Jafnframt eru
þekkt mörg fæðuefni, sem geta kom-
ið í veg fyrir eða minnkað líkur á
krabbameinsmyndun.
Mataræði mannsins samanstend-
ur af ótölulegum fjölda efna, sem
eru nauðsynleg fyrir vöxt og við-
hald mannslíkamans. í fæðunni eru
kolvetni, eggjahvítuefni, fita, trefj-
ar, vítamín, steinefni og fleiri snefil-
efni, litarefni og ýmis efni, sem
ætlað er að auka geymsluþol fæð-
unnar, svo sem rotvarnarefni. Vitað
er að ýmsar geymsluaðferðir auka
magn krabbameinsvaldandi efna í
fæðu, svo sem reyking, söltun,
mygla og rotnun. Eftir því sem
þekking manna hefur aukizt á þess-
um málum hafa geymsluaðferðir
batnað og nú er þess víðast vel
gætt að ekki séu þekkt
krabbameinsvaldandi
efni í matvælum. Þá
má benda á að land-
fræðilegir þættir og
árstíðabundnir hafa
áhrif á efnainnihald
fæðunnar svo og mat-
argerð.
Ráðleggingar um
mataræði
Ýmsar stofnanir og
yfirvöld hafa sett fram
ráðleggingar til al-
mennings um æskilegt
mataræði til að minnka
líkur á krabbameini.
Bandaríska krabba-
meinsfélagið hefur sent frá sér eftir-
farandi leiðbeiningar:
1. Viðhaldið æskilegri líkams-
þyngd 2. Neytið fjöibreyttrar
fæðu 3. Neytið ávaxta og græn-
metis daglega 4. Neytið trefja-
ríkrar fæðu svo sem grófs kom-
matar, grænmetis og ávaxta.
5. Minnkið heildar fituneyzlu.
6. Makmarkið neyzlu áfengra
drykkja 7. Takmarkið neyzlu
fæðu, sem hefur verið söltuð,
reykt eða geymd í saltpétri.
Líkamsþyngd
Sýnt hefur verið fram á að offitu
fylgir aukin hætta á myndun
krabbameins. Konur sem eru innan
við 80% af kjörþyngd hafa 18%
minni líkur á að deyja úr brjósta-
krabbameini en þær sem eru í kjör-
þyngd. Konum, sem eru 40% eða
Þriðjung krabbameina
má rekja til mataræðis,
segir Signrður Björns-
son, og annan þriðjung
til reykinga.
meira yfir kjörþyngd er yfir 50%
hættara við eð deyja úr þessum sjúk-
dómi en þeim sem eru í kjörþyngd.
Grænmeti
og ávextir
Þeir sem neyta grænmetis og
ávaxta í miklum mæli eiga síður á
hættu að fá krabbamein í vélinda,
maga, ristil og blöðruhálskirtil en
aðrir.
Úr grænmeti og ávöxtum fáum
við karoten, vítamín, trefjar, snefil-
málma og mörg fleiri efni, sem tal-
in eru getað minnkað líkur á krabba-
meinum.
A- og C-vítamín eru talin draga
úr líkum á krabbameinum í barka,
Sigurður
Björnsson
lungum, vélinda og þvagblöðru.
Rannsökuð hafa verið íjöldamörg
efni, sem finnast í grænmeti og
ávöxtum, og geta hindrað tilurð og
vöxt krabbameina. Þeim má skipta
annars vegar í efni, sem koma í veg
fyrir að krabbameinsvaldar verði
virkir (blocking agents) og hinsveg-
ar í efni, sem koma í veg fyrir að
krabbamein byrji að vaxa í frum-
um, sem hafa orðið fyrir áhrifum
krabbameinsvalda (suppressing
agents).
Áhrif þessara efna eru ekki ein-
ungis háð magni þeirra í grænmeti
og ávöxtum heldur einnig meðferð
þeirra við geymslu og matargerð og
samspili við aðra þætti fæðunnar.
Trefjar
Margar rannsóknir benda til þess
að trefjarík fæða dragi úr líkum á
ristilkrabbameini, þótt ekki séu allir
sammála um það. Trefjar auka
magn hægða og flýta fyrir tæmingu
ristils og minnka þannig líkur á að
krabbameinsvaldandi efni geti haft
skaðleg áhrif á ristilslímhúð.
Þeir sem neyta trefjaríkrar fæðu
innbyrða að jafnaði færri hitaeining-
ar og minni fitu og jafnvel minna
áfengi (mormónar og 7. dags að-
ventistar) en aðrir þannig að fleiri
þættir kunna að valda lægri tíðni
ristilkrabbameina meðal trefjaneyt-
enda.
Fita
Margar rannsóknir hafa sýnt að
fylgni er milli ríkulegrar fituneyzlu
og krabbameina í bijósti, brisi og
blöðruhálskirtli.
Meðal þjóða, sem neyta mikillar
fitu er dánartíðni af völdum bijósta-
krabbameins hæst. Þannig er dán-
artíðni af völdum þessa sjúkdóms
fimm sinum hærri í Danmörku en í
Japan. Sterk fylgni milli fituneyzlu
og dánartíðni vegna btjóstakrabba-
meins kemur í ljós þegar skoðaðar
eru tölur frá 39 löndum.
Aðrir hafa bent á að hin aukna
krabbameinstíðni kunni að stafa af
hitaeiningaríkri fæðu fremur en
fituríkri. Sýnt hefur verið fram á
að fylgni er á milli hitaeiningaríkrar
fæðu og aukinnar tíðni á krabba-
meinum í bijósti, leghálsi, ristli, legi,
gallblöðru, nýrum, eggjastokkum,
blöðruhálskirtli og skjaldkirtli.
Mælt er með að innan við 30%
af hitaeiningum I fæðu komi frá
fitu, innan við 10% frá mettuðum
fitusýrum.
Alkóhól
Sýnt hefur verið fram á að mikil
áfengisneyzla tengist aukinni tíðni
á ýmsum krabbameinum, svo sem
í munni, koki, barka og vélinda.
Þessi krabbamein tengjast einnig
mjög reykingum. Þá hafa fjölda-
margar rannsóknir sýnt fram á
aukna tíðni bijóstakrabbameins
meðal kvenna, sem neyta áfengis
og eykst áhættan því meiri sem
neyzlan er.
Alþjóðlega krabbameinsstofnunin
í Lyon hefur lagt til að alkóhól verði
tekið í tölu krabbameinsvaldandi
efna.
Lokaorð
Þrátt fyrir viðamiklar rannsóknir
á tengslum mataræðis og krabba-
meina hefur enginn einstakur or-
sakavaldur eða varnarþáttur fund-
izt. Mataræði manna er misjafnt og
flókið og samspil hinna ýmsu þátta
þess óljóst. Þó vitum við nóg til
þess að geta mælt með minni fitu-
neyzlu og aukinni neyzlu grænmetis
og ávaxta ásamt trefjaríkri fæðu.
Með hæfilegri hreyfíngu, fjölbreyttu
fæðuvali og hófsemi í mat og drykk
og reykleysi stuðlum við að betra
heilsufari.
Því er óhætt að taka undir með
þeim sem segja: Borðum grænmeti
og ávexti - 5 á dag.
Höfundur er læknir.
Gail flísar
m
■m lStn 4
Stórhöfða 17, við Guilinbrú,
sfmi 567 4844
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433
Biddu um Banana Boat
sólmargfaldarann
el þú vilt vetða sólbrún/n á mettíma I skýjaveðri.
O Yfir 60 gerðir Banana Boat sólkrema, -olia,-gela,-óða,-salva
og -stifta m/sólvöm frá i til 150, eða um tvöfalt öllugri en
aðrar algengar sólarvörur. Banana Boat sólarlinan er fram-
leidd úr Aloa Vera, kollageni og elastíni, jojoba, minkoliu,
banönum, möndlum, kókos, A, B, D og E vitaminum
o Sérhönnuð sólkrem fyrir íþróttamenn. Banana Boat Sport
m/sólv. #15 og #30.
o 99,7% hreint Banana Boat Aloe Vera gel (100%). Hvers
vegna að borga 1200 kr. fyrir kvartlitra al Aloe geli þegar þú
getur fengið sama magn af Banana Boat Aloe Vera gel á 700
kr? Eða tvöfaft meira magn al Banana Boat Aloe Vera gel á
1000 kr? An spimlinu, tilbúinna lyktarefna eða annana ertandi
ofnæmisvalda.
Biddu um Banana Boat á sólbaðsstofum, apótekum, snyrtiv.
verslunum og öllum heilsubúðum utan Reykjavikur. Banana
Boat E-gel fæsl lika lijá Samtökum psoriasis og exemsjúklin-
ga.
Heilsuval - Barónsstíg 20 tr 562 6275
Bændur og sumarhúsaeigendur
GIRÐINGAREFNI
I ÚRVALI
MR búðin • Laugavegi 164
Símar: 551 1125 • 552 4355 • Fax: 581 4450
Scetirsófar
á óviðjafnanlegu verði
HÚSGAGNALAGERÍNN
Smiðjuvegi 9 (gul gata) - Kúpavogi - slml 564 1475 Opið mán.-fös. 13-18, lau. 11-14.
Fagmennska borgar sig
Islendingar eiga öfluga stétt faglærðra iðnaðarmanna
sem leggja áherslu á gæði og vönduð vinnubrögð.
Innlend framleiðsla þarf að standast harða samkeppni
og það skiptir sköpum fyrir þjóðarhag að fjármunir, sem
varið er til verklegra framkvæmda, nýtist sem best.
Samiðn hvetur fólk til að skipta við menntaða
iðnaðarmenn og kanna fagleg réttindi þeirra sem
bjóða þjónustu sína. Fagmennska borgar sig.
Samiðn er samband stéttarfélaga í byggingar-
iðnaði, málmiðnaði, bíliðnaði, garðyrkju
og netagerð. t Samiðn er 31 félag um lánd
allt með um 5500félagsmenn.
rir
SAMBAND IÐNFELAGA
Suöurlandsbraut 30.108 Reykjavík.
Sími 568 6055. Fax 568 1026.
Heimasíða: http-J/www. rl. is/samidn.html