Morgunblaðið - 21.05.1996, Page 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BREF • FORSETAKJOR
Rökrétt framhald
Frá Hrafni Sæmundssyni:
TÍMINN er skrýtin skepna. Alltaf
þrammar hann sína leið og aldrei
er hann eins. Og alltaf gerist eitt-
hvað í þróuninni. þannig hafa
húsráðendur á Bessastöðum
breyst í gegnum árin og eftir að
þjóðin fór sjálf að kjósa forseta
án leiðsagnar stjórnmálamanna
hefur það gerst að hver tekur við
af öðrum og tekur jafnframt við
arfleifðinni og bætir við eftir kröf-
um tímans og þeirrar þróunar sem
orðið hefur.
Þannig mótaði Kristján Eldjárn
á sínum tíma hefð í forsetaemb-
ættinu sem byggðist á menning-
ararfleifð þjóðarinnar og alþýð-
legum virðuleik sem féll vel inn
í þann tíma í þróun þjóðfélagsins.
Þegar Vigdís Finnbogadóttir
tók við forsetaembættinu byggði
hún á þessari sömu hefð en bætti
við nýjum þáttum í samræmi við
breyttan tíma. Ný heimsmynd
blasti þá við af tröppum Bessa-
staða. Vigdís gekk inn í þennan
nýja tíma af slíkri reisn að hvar-
vetna, hvort sem var á innlendri
eða útlendri grund, bar hún hróð-
ur landsins af virðuleik og festu.
Hvarvetna utanlands kynnti hún
menningu og sérstöðu landsins
en gleymdi heldur ekki að sjálf-
stæði þjóðar byggist einnig á
efnahagslegu sjálfstæði og við-
skiptum við aðrar þjóðior.
Og enn blasa nýir tíma við. Enn
verður þjóðin að glíma við ný
verkefni í heimi sem er að galopn-
ast. Þessi heimur er harður og
fulltrúar lítilla þjóða þurfa að
bera höfuðið hátt og hafa reisn
og hugrekki til að tala máli þjóð-
arinnar á erlendum vettvangi.
Á þessum tímamótum stöndum
við í dag og enn þarf að kjósa
nýja fulltrúa til að búa á Bessa-
stöðum. Fólk sem tekur við hefð-
inni en er í stakk búið að ganga
til móts við nýja tíma.
Allir hlutir orka tvímælis. Mat
fólks er misjafnt og persónubund-
ið þegar um val á einstaklingum
er að ræða. Vandséð er þó hvern-
ig hægt er að líta framhjá Ólafi
Ragnari Grímssyni sem jákvæð-
um kosti ef sú þróun þarf að verða
á forsetaembættinu sem hér hefur
verið reynt að rökstyðja. Og
kannski er það líka nokkurs virði
í þessu vali að til Bessastaða flytj-
ist fjölskylda sem metur heilbrigt
líf mikils og keyrir á eigin elds-
neyti í umgengni við sjálfan sig
og náttúruna. Hljóta þessir þættir
ekki líka að vega eitthvað í valinu?
HRAFN SÆMUNDSSON,
Bræðratungu 10,
Kópavogi.
Veljum
ópólitískan mann
Frá Herði Bjarnasyni:
FORSETAKOSNINGAR eru
framundan og ýmislegt bendir til
að þjóðin hyggist velja stjórn-
málamann sem næsta forseta ís-
lands. Það tel ég misráðið. Við
eigum_ ekki að gera embætti for-
seta íslands að vettvangi fyrir
pólitík. Þvert á móti. Við eigum
að velja ópólitískan mann; mann
sem er hafinn yfir flokkadrætti
og dægurþras.
Við eigum að kjósa Pétur Haf-
stein. í mínum huga hefur Pétur
sett fram stefnu, _sem er virðingu
embættis forseta íslands samboð-
in. Hann hefur lagt áherslu á að
forseti íslands sé hafinn yfir
flokkadrætti og sé óbundinn af
pólitískri fortíð. Það hefur komið
fram að hann hafi rætt við leið-
toga allra stjórnmálaflokka á Al-
þingi til þess að gera þeim grein
fyrir stefnu sinni varðandi emb-
ætti forseta íslands.
Það finnast mér rétt viðbrögð og
sýnir staðfestu og dómgreind.
Pétur hefur þvert á móti reynt
að tala við alla - vinna traust
allra stjórnmálaflokka. Enda
embætti forseta íslands samein-
ingartákn en ekki sverð í pólitísk-
um skylmingum.
Því segir ég: Kjósum Pétur
Hafstein 29. júní. Með því tryggj-
um við að embætti forseta íslands
verði áfram sameiningartákn
meðal þjóðarinnar.
HÖRÐUR BJARNASON
Klapparstíg la, Reykjavík.
Fyrirspurn til utan-
ríkisráðuneytisins
Frá Asgeiri R. Helgasyni:
HÉR í Stokkhólmi er kosninga-
starfíð vegna forsetakosninganna
komið á fulla ferð. Við stuðnings-
menn Guðrúnar Agnarsdóttur
höfum sett upp heimasíðu á alnet-
inu sem er beint tengd við kosn-
ingaskrifstofuna heima og fjöldi
manns hefur látið í sér heyra til
okkar. Skeyti hafa borist alls
staðar að úr heiminum með
ábendingum um þróun heimasíð-
unnar og beiðnum um upplýsingar
varðandi atkvæðagreiðslu utan
kjörfunda. Að sjálfsögðu reynum
við að aðstoða alla sem leita til
okkar en ég vil gjarnan koma því
á framfæri við opinbera aðila
heima hvort ekki sé hægt að koma
upp heimasíðu, t.a.m. hjá utanrík-
isráðuneytinu þar sem veittar eru
upplýsingar um þessi mal og fyr-
irspurnum svarað frá íslending-
um erlendis.
Með vinsemd og virðingu,
ÁSGEIRR. HELGASON,
asgeirradfys.ks.se
á kosningaskrifstofu
Guðrúnar Agnarsdóttur
á Norðurlöndum.
Klæðningin
sem þolir
islenska
veðróftu
1
Lana Hvítt
r Grátt
■ B|átt |*P; il
Fílabein Wm ’*'
Leitió tilboóa
ÁVALLT TIL Á LAGER
ÞÞ
&co
ARMULA 29 • 108 REYKJAVlK
SÍMAR S53 8640/568 6100, fax 588 8755.
I DAG
einn undir 16 ára. Þessi
staða kom upp í viðureign
þeirra yngstu:
Bromberger, Bæjara-
landi, var með hvítt, en
Grund frá
Baden hafði
svart og átti
leik.
21.
Hh2+! 22.
Kxh2 - Df2+
23. Khl -
0-0-0 24.
Bh6 (Þessi
örvæntingar-
fulla tilraun
til að loka h
línunni dugar
skammt:) 24.
Hh8 og hvít-
ur gafst upp.
Það munaði
um þennan
sigur, því þessari viðureign
lyktaði með jafntefli 6.-6.
Baden sigraði síðan í
keppninni með fimm stig
af sex mögulegum og 20
vinninga af 36, Bæjarar
komu næstir með þijú stig
og 18 vinninga, Sviss hlaut
tvö stig og 18 vinninga og
Wurttemberg tvö stig og
16 v.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
SVARTUR leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp í fjög-
urra liða keppni í Þýska-
landi í vor, Bodensee Cup.
Þar kepptu lið frá Sviss,
Bæjaralandi, Baden og
Wurttemberg. Tólf voru í
hverri sveit, þar af einn
unglingur undir tvítugu og
Farsi
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Hvar er Ólafur
Ragnar?
ADDA hringdi:
„Ég vil lýsa furðu
minni á því að í sjónvarpi
og dagblöðum að undan-
förnu hafa allir forseta-
frambjóðendur verið í
yfirheyrslu nema Ólafur
Ragnar Grímsson.
Eg vil sjá meira af
honum, eða til jafns við
hina og spyr því: Hvar er
maðurinn?
Hvað er
„húsmæðraverð“?
HÚSMÓÐIR hringdi til
að lýsa furðu sinni á aug-
lýsingu á Stöð tvö um
helgina þar sem hlutur
var sagður vera á hús-
mæðraverði.
„Þýðir það að hlutur-
inn kosti nánast ekkert,
því eins og allir vita hafa
húsmæður engin laun?
Aldrei hef ég heyrt þess
getið að t.d. dýrir bílar
eins og BMW eða jeppar
séu á forstjóraverði. Þeir
sem auglýsa á þennan
hátt ættu að sjá að þetta
er niðurlægjandi fyrir þá
sjálfa."
Tapað/fundið
Gleraugu
töpuðust
LESGLERAUGU í
dökkri umgjörð og brúnu
hulstri töpuðust miðviku-
daginn 8. eða fimmtu-
daginn 9. maí sl. á höfuð-
borgarsvæðinu. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
561-5435.
Hjól tapaðist
BLÁTT 24 tommu, 18
gíra Pro-Style-hjól með
svörtu munstri hvarf frá
Bónus-videó í Mjóddinni
fyrir u.þ.b. sex vikum.
Búið var að lita gjarðirn-
ar svartar. Tíu ára
drengur keypti þetta
ágæta hjól fyrir afmæli-
speningana sína fyrir
nokkru og saknar far-
skjótans því sárlega.
Hafi einhver orðið var
við þetta hjól er hann
beðinn að hringja í síma
557-9096.
Úr fannst
GYLLT kvenmannsúr
með hvítri skífu fannst
fyrir utan íslandsbanka
á Réttarholtsvegi sl. mið-
vikudag um fjögurleytið.
Eigandinn má vitja þess
í síma 588-4461.
Gæludýr
Kisu vantar
fósturheimili
ÁRSGAMLA blíðlynda
og vel vanda læðu (sem
er ófijó og eyrnarmerkt)
vantar gott fósturheimili
í 1-2 ár. Dýravinir vin-
samlega hringi og fái
upplýsingar í síma
551-3959.
Týndur köttur
KOLSVÖRT læða hvarf
frá Vallengi 1 föstudag-
inn 10. maí sl. Hún er
eyrnarmerkt og var með
sítrónugula ól með engu
merki. Hafi einhver orðið
ferða hennar var er hann
beðinn að hringja í Katt-
holt eða Dýraspítalann.
Einnig má hringja inn
upplýsingar í síma
586-1084.
Hundur í
heimilisleit
HEIMILI óskast fyrir
fjögurra ára fallegan
collie-hund. Upplýsingar
í síma 568-5693.
Víkverji skrifar...
HVERT er markmiðið með Evr-
ópusöngvakeppninni? Auk
þess að hvetja menn til dáða við
gerð fallegra dægurlaga, hlýtur
markmiðið að vera að nota þessa
keppni til þess að koma á fram-
færi ákveðinni ímynd þjóða. Tekst
okkur íslendingum það? Því fer
fjarri. Það má raunar halda því
fram, að okkur hafi tekizt dável
t.d. í Ósló á laugardagskvöld að
koma á framfæri rangri ímynd eða
alla vega ýta undir ranghugmyndir
annarra þjóða í þeim efnum.
Söngkonan, Anna Mjöll Ólafs-
dóttir, stóð sig vel og yfir engu
að kvarta í þeim efnum. En kjarni
málsins er sá, að lagið sjálft og
hópurinn sem stóð á sviðinu og
flutti það gátu alveg eins komið
frá Bandaríkjunum. Er það sú
ímynd, sem við viljum koma á
framfæri? Að við séum jafn „amer-
íkaníseruð" og sumir útlendingar
vilja halda fram? Tæplega getur
það verið markmiðið með þátttöku
í þessari keppni.
Anna Mjöll Ólafsdóttir kom sjálf
auga á þetta, þegar hún í samtali
við RÚV í fyrradag lýsti þeirri
skoðun, að framlag okkar í næstu
keppni ætti að vera þjóðlegra.
Undir það skal tekið.
Framlag flestra þátttakenda var
með sama marki brennt. Það var
ómögulegt að sjá af lögunum sjálf-
um og sviðsframkomu söngvara
hverrar þjóðar þeir voru. Þeir sem
beztum árangri náðu skáru sig hins
vegar úr. Það á bæði við um Irland
og Noreg.
xxx
EINN af viðmælendum Víkveija
hafði orð á því, hve algengt
væri, að bílstjórar leggi í bíla-
stæði, sem ætluð eru fötluðum.
Slík framkoma er ekki við hæfi.
Til þess eru bílastæðin sérstaklega
merkt að auðvelda fötluðu fólki að
komast leiðar sinnar og geta lagt
bílum við fyrirtæki og stofnanir,
þannig að skammt sé að fara.
Hvernig getur fullhraust fólk verið
þekkt fyrir að misnota þessi bíla-
stæði með þeim hætti, sem alltof
algengt er?
xxx
VÍKVERJI hafði orð á því á
dögunum, að hann hefði
keypt ferskan ananas í Hagkaup,
sem hefði verið ónýtur. Fulltrúar
Hagkaups höfðu samband við
Morgunblaðið og kváðust ekki
draga í efa, að þetta væri rétt,
enda hefði viðskiptavinurinn alltaf
rétt fyrir sér!
Þeir sögðu hins vegar, að fyrir-
tækið legði mikla áherzlu á að
hafa á boðstólum bæði grænmeti
og ávexti, sem uppfyllti ströngustu
kröfur um gæði. Fróðlegt var að
hlusta á lýsingu þeirra á því, hvern-
ig ferskur ananas er fluttur til
landsins. Hann kemur úr tveimur
heimsálfum, annars vegar frá
Hawaii en hins vegar frá Suður-
Afríku. í Hawaii er ananasinn tek-
inn, þegar hann er orðinn full-
þroska, skorinn og fluttur hingað
í gagnsæjum plastdósum, þannig
að fólk getur skoðað ávöxtinn.
Þessi ananas er fluttur hingað með
flugvélum og eru ekki nema tveir
dagar liðnir frá því að hann var
tekinn og skorinn á Hawaii og
þangað til hann er kominn hingað
til lands. Betur er varla hægt að
gera.
í Suður-Afríku er ananasinn
tekinn óþroskaður á akrinum og
fluttur með skipi til meginlands
Evrópu. Þaðan er hann fluttur með
flugi hingað. Þessi ananas er seld-
ur í verzlunum Hagkaups ýmist
skorinn og þá í plastdósum eða
óskorinn. Ananasinn frá Hawaii
er heldur gulari á litinn en frá
Suður-Afríku.
Vonandi auðvelda þessar upp-
lýsingar fólki að velja sem beztan
ferskan ananas.