Morgunblaðið - 21.05.1996, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996 51
ÍDAG
Árnað heilla
STJÖRNUSPÁ
Gallastrechbuxurnar komnar aftur í
4 litum og 'óllum stærðum, kr. 4.300.
/?/\ÁRA afmæli. í dag,
Ovfþriðjudaginn 21. maí,
er sextugur Þorsteinn
Hjaltason, fólkvangsvörð-
ur í Bláfjöllum, Fljótaseli
2, Reykjavík. Hann og
kona hans Elín Einars-
dóttir verða að heiman.
BRÚÐKAUP.
Gefin voru saman
30. desember sl. í
Digraneskirkju af
sr. Gunnari Sigur-
jónssyni Elín Lára
Jónsdóttir og
Snorri Páll Ein-
arsson. Á mynd-
inni er einnig dóttir
Elínar Telma Huld
Ragnarsdóttir.
Þau eru nú búsett
í Hollandi, Wagen-
hoeve 14, Houten.
Ást er...
... smánart í
eymasnepil.
TM Rsq U.S. Pmt. Ott. — mO nghts rmsenwJ
(c) 1906 Loa Ang«te> Timas Syndicate
BRIPS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
PUNKTATALNINGIN
4-3-2-1 er kennd við
Bandaríkjamanninn Milton
Work (1864-1934). Work
skrifaði sína fyrstu bók um
vist (1895), en hóf svo að
rita um „uppboðs-brids“
(auction) og síðar „samn-
ings-brids“ (contract) þegar
það spil var fullmótað árið
1925. Helsti spilafélagi
Works var Olive Peterson
(1894-1965). Hún skrifaði
sjálf ágætar bækur um spil-
ið, sem seldust þó illa vegna
yfirburðastöðu Culbertons á
markaðinum. Peterson þótt
betri spilari en Work og
ekki síðri en Charles Goren,
sem var einnig makker
hennar á síðari árum. Hér
er hún í vestur, í vörn gegn
íjórum hjörtum:
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ 1054
V K9
♦ G
♦ KG86432
Vestur
♦ 8
¥ G105
♦ 10986542
♦ ÁD
Austur
♦ ÁKD962
V 3
♦ 73
♦ 10975
Suður
♦ G73
¥ ÁD87642
♦ ÁKD
♦
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: Spaðaátta.
Austur átti fyrsta slag-
inn á spaðadrottningu og
tók næstu tvo á ásinn og
kónginn. Peterson þurfti
að henda tvisvar af sér og
hún valdi fyrst laufdrottn-
ingu og síðan laufás! Aust-
ur spilaði þá laufi og upp-
færði hjartagosann.
HOGNIIIREKKVISI
/t~Hcrwt- Uzr\oar6onx til cÁþokfca fxl
hugdjctr/o. sLöktwiLiðsmQnntsem
honum ni&Ur úr trénu."
COSPER
OD
00
V 1 ^ p p
W /
HANN er að gráta af þvi hesturinn hans sparkaði
í hnéð á honum.
Pennavinir
ÞRETTÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á blaki,
körfuknattleik, knatt-
spyrnu, bréfaskriftum,
tónlist o.fl.:
Rika Nakamura,
4-802-103 Tak-
inomizu Midori-ku,
Nagoya,
458 Japan.
LEIÐRÉTT
92 oktana bcnsín
MEINLEG villa slæddist
inn í fyrirsögn greinar
Gunnars E. Kvaran, upp-
lýsingafulltrúa Skeljungs,
í Bréfí til blaðsins sl.
sunnudag. Fyrirsögnin
átti að vera „Þess vegna
var hætt að selja 92
oktana bensín á Islandi"
en ekki 98 oktana bensín
eins og stóð í blaðinu.
Þá var höfundur sagður
heita Gunnar R. Kvaran,
en hann heitir Gunnar E.
Kvaran.
Morgunblaðið biður
hann og lesendur blaðsins
velvirðingar á þessum
mistökum.
Leiðrétting
í síðustu Lesbók voru
birt þijú smáljóð eftir Piet
Hein í þýðingu Helga
Hálfdanarsonar, í annars
nafni, og eru lesendur
beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
cltlr Franccs Drakc
*
NAUT
Afmælisbarn dagsins:
Þig skortir ekki
sjálfstraust, ogþú hefur
gaman af ferðalögum.
Hrútur (21. mars - 19. apríl) Hættu að þrasa, og hlustaðu á það sem aðrir hafa að segja. Hugmyndir þeirra eru góðar og geta komið þér að gagni.
Naut (20. apríl - 20. maí) Þú tekur til hendi við verk- efni í dag, sem þú hefur lengi vanrækt. En þegar kvöldar verður mikið um að vera í félagslífinu.
Tvíburar (21. maí - 20.júní) íöfr Ekki efast um eigin getu. Ef þú treystir á eigið fram- tak, bíður þín aukinn frami á vinnustað. Sinntu ættingja í kyöld.
Krabbi (21. júní — 22. júlf) HtÍ Þú kemur vel fyrir þig orði, og nýtur þín í sviðsljósinu þegar ráðamenn fallast á að koma hugmyndum þínum f framkvæmd.
Ljón (23. júlf — 22. ágúst) Þú hefur stundum tilhneig- ingu til óþarfa hlédrægni, en nú þarft þú að láta til þín taka í mikilvægu máli varð- andi vinnuna.
Meyja (23. ágúst - 22. september) Þig langar að kaupa dýran hlut fyrir heimilið, en íhug- aðu vel hvort fjárhagurinn leyfir það, og hafðu samráð við ástvin.
Vog (23. sept. - 22. október) Þú finnur leið til að leysa vandamál, sem hefur valdið þér nokkrum áhyggjum að undanförnu. Ástin ræður ríkjum þegar kvöidar.
Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Gættu þess að segja ekkert, sem gæti valdið misskilningi í vinnunni. Vandaðu val orða þinna svo ekkert fari á milli mála.
Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) ^0 Þú ert í sólskinsskapi, og glaðværð þín er beinlínis smitandi. Þú nýtur þín í vina- hópi í dag, og ástvinir fara út saman í kvöld.
Steingeit (22. des. -19. janúar) ^1} Það þýðir ekkert að stinga höfðinu í sandinn og bíða þess að málin leysist af sjálfu sér. Brettu upp ermar og leystu þau.
Vatnsberi (20.janúar- 18.febrúar) Þér tekst loks að leysa gam- alt vandamál með góðri að- stoð starfsfélaga í dag. Þú hefur fulla ástæðu til að fagna þegar kvöldar.
Fiskar (19. febrúar - 20. mars) 2* Þú þarft að leggja fjölskyld- unni lið við umbætur á heim- ilinu í dag, og verkið gengur vel. Þegar kvöldar er gott að hvíla sig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjnst ekki á traustuni
grunni vísindalegra staðreynda.
Vorum einnig að taka upp mikið
af bolum og peysum í góðum stærðum.
PÓSTHÓLF 3307
123 REYKJAVÍK
SÍMl 587 5055
Breyttar álterslnr
Vegna breyttra áherslu á snyrtivörum verður rýmingarsala á
nýjum og nýlegum vörum frá Kryolan og Vistique frá 21.-25.
maí í verslun okkar við Skólavörðustíg 2.
40-60% afsláttur
Þriðjudaginn 28. maí opnum við fulla búð
af MAKE UP FOR EVER SNYRTIVÖRUM.
MftlLE Up fOR €\/EZ-Utekt. Skóiavörðustíg 2
Ný sending
af
Gardeur-
buxuin
Uéutttv,,
v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
Sími 561 1680.