Morgunblaðið - 21.05.1996, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<SCENTRUM.1S / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Fyrsti dagur í humri
Vestmannaeyjum. - Morgunblaðið.
jíIUMARVINNSLA hófst í Eyj-
um í gær er fyrstu bátarnir
komu með afla sinn að landi. í
Vinnslustöðinni lönduðu 6 bátar
10 tonnum af slitnum humri og
sagði Viðar Elíasson, fram-
leiðslustjóri, að vertíðin virtist
fara ágætlega af stað. Stærðin
á humrinum væri blönduð en
það væri eðlilegt þar sem hann
hefði veiðst í Háadýpi. Hún
Katrín Ósk Péturdóttir, er að
vonum ánægð á fyrsta degi í
humarvinnslunni
Tölvunefnd hefur athugasemdir tveggja kvenna til skoðunar
Birting upplýsinga í
niðja- og stéttatölum
TOLVUNEFND er að skoða hvaða
reglur skuli gilda um birtingu upp-
lýsinga í niðja- og stéttatölum.
Tvær konur hafa m.a. óskað liðsinn-
is nefndarinnar við að koma í veg
fyrir að nöfn þeirra, maka þeirra
og niðja verði birt í tilteknu ætt-
fræðitali. Sigrún Jóhannesdóttir,
framkvæmdastjóri Tölvunefndar,
segir að fyrst verði að taka afstöðu
til þess hvort erindið heyri undir
valdsvið nefndarinnar.
Sigrún sagði að erindið væri á
gráu svæði því lögum samkvæmt
væri skráning í þágu ættfræðirann-
sókna og æviskrárrita utan ramma
persónuupplýsingalaga og þar með
væntanlega valds nefndarinnar.
Hagstofunni
skrifað
„Hvort erindið falli undir skil-
greininguna og ef svo er hvort samt
þurfi ekki að gæta ákveðinna sjón-
armiða um einkalífsvernd er til at-
hugunar hjá nefndinni," sagði hún
og tók fram að nefndin hefði sent
Hagstofunni bréf í því skyni að
kanna afstöðu hennar. Hagstofan
væri aðalagagnabankinn varðandi
Aðrir flokkar tapa fylgi, en breyt-
ingar eru mjög óverulegar frá síð-
ustu könnun og ekki tölfræðilega
marktækar. Framsóknarflokkurinn
er næststærstur flokka með 20,3%
fylgi, en fékk 21,3% í síðustu könn-
un og 23,3% í kosningunum. Al-
þýðubandalagið nýtur nú stuðnings
16,3%, miðað við 18,2% í nóvember
og 14,3% í kosningunum.
Af þeim, sem afstöðu tóku í
könnuninni, sögðust 13,9% myndu
kjósa Alþýðufiokkinn, lítið eitt færri
en í nóvember. Kjörfylgi flokksins
var 11,4%. Kvennalistinn fær stuðn-
upplýsingar í ættfræðibækur,
stéttatöl o.fl.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hefur aðeins einn hæsta-
réttardómur frá 1968 verið felldur
hér á landi vegna óska um að
ákveðnar upplýsingar séu ekki birt-
ar í niðja- eða stéttatali. Hæstirétt-
ur staðfesti að útgefendum lækna-
tals væri ekki heimilt að greina frá
nöfnum líffræðilegra foreldra kjör-
barns læknis í læknatali án hans
leyfis. Niðurstaðan var fengin með
tilvísun til grunnreglna laga um
þagnarvernd einkalífs.
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar
Sjálfstæðisflokk-
urinn fengi
42,7% atkvæða
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fengi 42,7% atkvæða ef þingkosningar
yrðu haldnar nú, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar, sem Félags-
visindastofnun Háskóla Islands gerði fyrir Morgunblaðið í síðustu viku.
Flokkurinn fékk 37,1% atkvæða í kosningunum í fyrra og 38,3% fylgi í
síðustu könnun stofnunarinnar, sem gerð var í nóvember.
ing 4,8% nú, álíka og í kosningun-
um, en í síðustu könnun var stuðn-
ingur við flokkinn 5,4%.
Þjóðvaki hlýtur 1,1% fylgi, en
7,2% kusu hann í kosningunum og
1,7% sögðust styðja hann í könnun-
inni í nóvember.
Könnunin var gerð 11.-18. maí.
Úrtakið var 1.500 manns. Óákveðn-
ir voru 6,7%, eftir að Félagsvísinda-
stofnun hafði spurt tveggja auka-
spurninga til að lækka hlutfall
óákveðinna.
■ Staða sljórnarflokkanna/4
Átta
skólasljór-
ar hætta
SJÖ skólastjórar við grunn-
skóla Reykjavíkur hafa sagt
upp störfum auk skólastjóra
Isaksskóla. Er þetta um fjórð-
ungur allra skólastjóra við
skóla borgarinnar.
Sigrún Magnúsdóttir for-
maður skólamálaráðs, sagði
að sennilega mætti rekja
ástæðu uppsagnanna til þess
að skólastjórarnir væru að
komast á aldur og vildu hætta
og fara á biðlaun áður en sveit-
arfélögin taka yfir rekstur
grunnskólanna af ríkinu.
Um er að ræða skólastjóra
við Selásskóla, Seljaskóla,
Breiðholtsskóla, Breiðagerðis-
skóla, Langholtsskóla, Hamra-
skóla og Vogaskóla; Auk þess
hefur skólastjóri ísaksskóla,
sem er einkaskóli, sagt starfi
sínu lausu og mun skólanefnd
ráða í stöðuna.
Umsóknarfrestur um stöð-
urnar er til 28. maí.
Spænskir aðilar vilja eign-
ast Sementsverksmiðjuna
SPÆNSKT fyrirtæki, sem á og rekur sements-
verksmiðjur víða um heim, hefur lýst áhuga á
því við íslensk stjórnvöld að kaupa Sementsverk-
smiðjuna hf. á Akranesi. Samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins hefur fyrirtækið áhuga á
að kaupa meirihluta í fyrirtækinu, en leggur
ekki áherslu á að eignast verksmiðjuna alla.
Erindi Spánverjanna er til skoðunar hjá einka-
væðingarnefnd ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórn-
inni, en verður ekki tekið fyrir hjá Sementsverk-
smiðjunni fyrr en á stjórnarfundi fyrirtækisins
þann 31. maí næstkomandi. Búast má við því
að formlegar viðræður hefjist á milli fulltrúa
spænska fyrirtækisins og íslenskra stjórnvalda
innan tíðar.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er
ástæða þess að fyrirtækið hefur sýnt kaupum á
meirihluta í Sementsverksmiðjunni áhuga, sú
að fyrirtækið er komið með allnokkra reynslu
af því að kaupa meirihluta í sementsverksmiðjum
víða um heim, þar sem verksmiðjurnar hafa
verið endurreistar, endurskipulagðar og rekstur
þeirra stokkaður upp, samkeppnisstaða þeirra
hefur verið bætt og þær treystar í sessi. Meðal
annars munu þeir hafa tekið að sér að endurfjár-
magna og endurreisa sementsverksmiðju í Mið-
Austurlöndum fyrir ailnokkru, með afar góðum
árangri.
Sömu upplýsingar herma að Spánveijarnir
hafi náð umtalsverðum árangri á þessu sviði,
hvar sem þeir hafa komið við sögii, þannig að
verksmiðjur þær sem þeir hafi keypt hluta í,
hafi aukið framleiðslu sína til muna, markaðs-
hlutdeild hafi aukist á heimsmarkaði, svo og
velta og tekjur, þannig að fyrirtækin hafi orðið
mun sterkari rekstrareiningar, með þátttöku
Spánveijanna.
Spánveijarnir munu einvörðungu óska eftir
viðræðum um að kaupa meirihluta í Sements-
verksmiðjunni, en leggja enga áherslu á að eign-
ast alla verksmiðjuna - heldur aðeins meirihluta
sem gefi þeim ráðandi hlut við stjórn og rekstur
fyrirtækisins.
Engin ákvörðun hefur verið tekin um fram-
hald málsins, samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, en fullvíst er talið, að innan tíðar verði
hafnar viðræður við Spánveijana, þar sem við
blasi að þeim sé alvara með þeim áhuga sem
þeir hafa sýnt á ofangreindum kaupum. Áður
en slíkar viðræður hefjast á milli aðila mun fara
fram ítarleg úttekt á stöðu fyrirtækisins og sam-
keppnisstöðu, framtíðarmöguleikum fyrirtækis-
ins, markaðshorfum og verðmat á fyrirtækinu.
Síldveiðar
hafnar innan
Jan-Mayen
lögsögunnar
SJÖ íslensk síldveiðiskip höfðu hafið
veiðar innan lögsögunnar við Jan
Mayen á tólfta tímanum í gær-
kvöldi, en skipunum var heimilt að
hefja þar veiðar kl. 21.30 í gærkvöldi.
Áð sögn Ingva Einarssonar skip-
stjóra á Faxa RE var þokkaleg veiði
hjá skipunum innan lögsögunnar og
nóg af síld að sjá. Faxi átti skammt
eftir á miðin þegar rætt var við
Ingva, sem sagðist vita til þess að
Guðmundur VE hefði fengið mjög
gott kast.
■ Síldin/6